Morgunblaðið - 24.08.1993, Page 49
I
I
I
1
i
I
I
I
I
0
+
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. ÁGÚST 1993
49.
Hvert stefnir í vímuefnamáliim?
Frá Halldóri Kristjánssyni:
ÁFENGISMÁL koma öðru hvoru í
fréttum. Það gerist ýmsilegt sem
talið verður til tíðinda þar sem
menn eru ölvaðir. Hinu ráða atvik-
in hversu nærri er höggvið hverjutn
og einum. Sárust er jafnan sú frétt-
in sem snertir einhvern nákominn.
Og jafnan er einhver nákominn
þeim sem óhappið hendir.
Notkun — misnotkun
Menn eru alltaf að leita ein-
hverra ráða til að fækka slyslum
og vetjast óhöppum. Okkur er sagt
að verulegur hluti umferðarslysa
verði rakinn til áfengisneyslu. Það
segja þeir sem best vita og kunnug-
astir eru þessum málum, læknar
°g löggæslumenn.
Fjölmiðlar koma þessari vitn-
eskju áleiðis til okkar. Fréttamenn-
irnir orða það þá gjarnan svo að
misnotkun áfengis valdi. En því
láta þeir ekki næga að segja notk-
un áfengis? Það segir þó allt sem
segja þarf.
Þegar orðalagið „misnotkun
áfengis" er valið er því hvíslað að
okkur að notkun sé allt annað en
misnotkun, neysla annað en of-
neysla.
Nú er vel hægt að halda sér við
þá fræðilegu staðreynd að svo lítil
getur neysla áfengis verið að áhrif
hennar séu vart eða ekki merkjan-
leg. En hver getur dregið markal-
ínu milli notkunar og misnotkunar
fyrir hvern einstakan? Það er þraut-
in þyngri og í mörgu tilfelli ofraun.
Vandfundinn mun sá maður sem
ekki veit og viðurkennir að menn
eigi ekki að aka bíl undir áhrifum
áfengis. Samt er það staðreynd að
í hverri viku er hópur manna stað-
inn að þeirri óhæfu. Þá hefur notk-
unin orðið misnotkun þegar sest
var undir stýrið eða hvað?
Áhrif áfengis eru meðal annars
þau að það sljóvgar dómgreindina.
Það getur meðal annars lýst sér í
því að menn telji sig örugga og
hæfa þar sem það á ekki við.
Það er engin nauðsyn að tala
um misnotkun áfengis í sambandi
við slys. Notkun áfengis segir allt
sem segja þarf. Það orðalag leysir
menn alveg frá öllu mati á því
hvernig flokka skuli notkun og
misnotkun.
Hvert erum við að fara?
Leiðtogar okkar í SÁÁ munu
telja sig vita öðrum betur eða
a.m.k. manna best um ástand og
horfur í áfengismálum hér á landi.
Því skal á engan hátt mótmælt
hér. En hveijar eru þá horfurnar
að þeirra mati?
Þar er skjótt frá að segja að
þeir sjá það nú fyrir að meira en
einn af hverjum þeirra fjögurra
sveina sem nú eru ungir þurfi að
leita meðferðar vegna drykkjufýsn-
ar áður en lýkur. Hins vegar mun
ekki nema ein af hvetjum níu ungra
meyja þurfa slíka meðferð. Þær eru
þetta á eftir piltunum vegna þess
að svo stutt er um liðið síðan stelp-
ur fóru að drekka jafnt og strákar,
en kvenþjóðin dregur óðum á hitt
kynið.
Þetta væri nú e.t.v. þolanlegt ef
hver sá sem skryppi í meðferð fengi
þar með fullan bata. En það er nú
öðru nær. Á sama tíma óg tíu þús-
und byrjendur koma nýir í meðferð
á Vogi koma þar tuttugu þúsund
sem fyrr hafa fengið meðferð. Þetta
vita SÁÁ-menn manna best.
Stöð 2 hefur sýnt okkar eins
konar fréttaauka um útigangsfólk
vegna eiturlyfja, þ.e. öðru fremur
áfengis. Okkur er sagt að slíkir
skipti tugum í höfuðstaðnum. Og
kunnugir fullyrða að miklu séu
þeir fleiri úr þeim hópi sem nú séu
horfnir, en hafi týnt lífi sínu langt
fyrir aldur fram vegna vímuefn-
anna.
Varnarbarátta
Meðferðin er dýr. Legudagar á
Vogi árið 1992 kostuðu hver um
sig um 5.980 krónur og hver sá
sem inn var lagður var að meðal-
tali 10,8 daga svo að veran þar
kostaði 64.000 krónur til jafnaðar.
Og ekki þarf að spyrja um vinnu
þeirra sem þar liggja.
Meðferðin hjálpar ekki öllum.
Ef svo væri þá væri lítið efni í
fréttaaukann hjá Stöð 2. Þá væru
ekki þessir tugir heimilislausra
ógæfumanna. Ogþá væri ekkijafn-
margra að sakna.
Á engan hátt skal lítið gert úr
starfr SÁÁ. í nýlegu bréfi til félags-
manna þar sem þeir eru minntir á
að borga félagsgjaldið segir for-
maðurinn:
„Þau viðfangsefni sem SÁÁ þarf
að einbeit'a sér að á næstunni eru
margvísleg: Tryggja að meðferð
standi áfram öllum til boða. Auka
aðstoð og efla meðferðarúrræði
fyrir aðstandendur alkóhólista.
Áuka fræðslu um alkóhólismann
og afleiðingar hans. Stuðla að því
að fá virka alkóhólista til að taka
fyrr á sínum málum. Halda úti
öflugu félagsstarfr, sem hefur sýnt
sig að skiptir miklu máli til að
stuðla að bata margra alkóhólista,
ekki síst ungs fólks. Efla og auka
samskipti við aðra meðferðaraðila.“
Þetta er mikið verkefni og að-
kallandi. En allt er það miðað við
þá sem orðnir eru sjúkir af of-
drykkju. Þörfin að hjálpa þeim sem
í nauðum eru staddir er svo mikil
og brýn að enginn tími er aflögu
til að stöðva útbreiðslu þessara
óskapa. Því verður þetta starf ekki
annað en varnarbarátta þar sem
ekki er tekið fyrir rætur meinsins.
HALLDÓR KRISTJÁNSSON
frá Kirkjubóli.
LEIÐRÉTTIN G AR
Nöfn féllu niöur
í minningargrein Þórs Jakobssonar
veðurfræðings um Eystein Jónsson,
fyrrverandi ráðherra, féllu niður
nokkur nöfn í kafla, þar sem fjallað
var um börn þeirra Eysteins og frú
Sólveigar Eyjólfsdóttur. Birtist
hann hér á eftir á nýjan leik og eru
hlutaðeigendur innilega beðnir af-
sökunar á mistökunum.
„Börn Eysteins og Sólveigar Ey-
jólfsdóttur eru sex talsins: Sigríður
deildarstjóri, Eyjólfur verslunar-
stjóri, Jón bæjarfógeti og sýslumað-
ur, Þorbergur framkvæmdastjóri,
Ólöf Steinunn húsmóðir og Finnur
prentari.
Fyrri maður Sigríðar, Sigurður
Pétursson, lést 1967 (synir þeirra:
Eysteinn og Pétur), en seinni maður
hennar er Jón Kristinsson. Eyjólfur
er kvæntur Þorbjörgu Pálsson (syn-
ir: Ingi Valur, Eysteinn og Jón
Páll), Jón er kvæntur Magnúsínu
Guðmundsdóttur (synir: Karl, Ey-
steinn og Guðmundur Ingvar), og
Þorbergur er kvæntur Margréti
Marísdóttur (börn: Óskar, Sólveig,
Þorsteinn og Sigríður). Ólöf Stein-
unn er gift Tómasi Helgasyni flug-
stjóra, en sonur þeirra er Helgi.“
VELVAKANDI
TÓNVAKAKEPPNI
RÍKISÚTVARPSINS
MARGT furðulegt gerist hér á
þessu voru landi.
Eg get ekki orða bundist og
langar þess vegna að gjöra smá
athugasemd í sambandi við
keppni Ríkisútvarpsins um tón-
listarverðlaun árið 1993.
Eg á nefnilega mjög bágt
með að skilja þá ákvörðun Rík-
isútvarpsins að láta þessa áður-
nefndu keppni vera á milli,
annars vegar píanóleiks og svo
hinsvegar einsöngs. Hvernig er
hægt að gjöra samanburð á
þessu tvennu?
Allir fimm keppendur, sem
í úrslit komust, stóðu sig mjög
vel, hver á sínu sviði. En hver
er mælikvarðinn þegar dæma
skal á milli mannlegrar raddar,
söngs sem sé, og hljóðfæra-
leiks? Mér finnst persónulega
að slíkt sé ógerlegt. Því ekki
tvennskonar keppni, einsöngur
sér og hljóðfæraleikur sérstak-
lega?
Undirrituð hlutaði á alla
fimm keppendur í útvarpi og
stóðu þeir sig allir með ágæt-
um. Sigurvegari varð píanóleik-
ari og var hann sjálfsagt vel
að sigrinum kominn, enda frá-
bær á sínu sviði.
Sannleikurinn er hinsvegar
sá, eins og áður var sagt, að
það er fáránlegt í keppni að
ætla sér að dæma á einhveijum
réttlætisgrundvelli milli ofan-
greindra tveggja músík-greina,
einsöngs annars vegar og hljóð-
færaleiks hinsvegar.
Hljómlistarunnandi.
GÓÐ DAGSKRÁ
MIG LANGAR að þakka fyrir
góða dagskrá í Ríkisútvarpinu.
Sérstaklega ber að þakka lestur
á Ólafs sögu helga og skemmti-
legar umræður á eftir ágætum
lestri Olgu Guðrúnar Árnadótt-
ur. Einnig á Illugi Jökulsson
þakkir skildar fyrir áhugaverða
þætti sína og óvenju þægilegan
lestur.
Sigurveig
Guðmundsdóttir,
Hafnarfirði.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Goritex-úlpa tapaðist
BLÁ Goritex-úlpa með græn-
um ermum af tegundinni Berg-
house tapaðist einhvers staðar
á ferð um hálendið í júlí. Skil-
vís finnandi vinsamlega hringi
í síma 657600 eða vinnusíma
812220. Fríður.
GÆLUDÝR
Högni í óskilum
SVARTUR og hvítur 5-6 mán-
aða högni hefur villst að heim-
an og dvelur nú í Kögurseli.
Hann er mjög blíður og er
ábyggilega sárt saknað af ein-
hveijum. Uppl. í síma 74478.
Læða fæst gefins
BRÖNDÓTT átta mánaða
læða, hálf síams, fæst gefins.
Hún er róleg og fyrirferðarlítil.
Uppl. í síma 678299.
Kœrar þakkir sendi ég öllum þeim, sem glöddu
mig d 75 ára afmœlinu með gjöfum, blómum,
skeytum og heimsóknum.
Sérstaklega þakka ég börnum mínum, tengda-
börnum og barnabörnum fyrir að gera daginn
mér svo eftirminnilegan.
Sölvey Jósefsdóttir. -
Góáar ástæður til að
lesa áfram...
Húsgagnahöllin er stærsta húsgagnaverslun landsins
og þar er ávallt gott að koma og skoða húsgögn í
fallegu umhverfi. Hvort sem þig vantar húsgögn í
stofuna, eldhúsið, svefnherbergin eða forstofuna
þá ættir þú að líta til okkar því úrvalið er mikið
og svo er alltaf heitt á könnunni og næg bílastæði.
Húsgagnahöllin er aðili að innkaupasamböndum eins
og IDE MÖBLER á Norðurlöndum og REGENT MÖBEL
í Evrópu. Amerísk húsgögn eru Ifka að verða sí
vinsælli og hafa nú bæst við í úrvalið vel þekkt
fyrirtæki eins og SERTA fyrir amerísku dýnurnar,
BR0YHILL FURNITURE fyrir stofuhúsgögn og
LAZY-B0Y hægindastólaframleiðandinn og ofl.
Þessi hagstæðu innkaup okkar gera okkur kleift
að bjóða ávallt alþjóðlegt úrval og lægsta verðið.
CT'
Klt
Starfsfólkið okkar er vel þjálfað, glaðlegt og með góða
vöruþekkingu. Við leggjum mikinn metnað í að viðskipta-
vinir okkar verði sem ánægðastir f»ví vissulega er jrað
undirstaða verslunarinnar. Við segjum já við viðskipta-
vini okkar og leggjum okkur fram um að veita þjónustu.
Hver einasta vara í versluninni er merkt með svokölluðum
verðtryggingarmiða til að tryggja að viðskiptavinir okkar
fái lægsta verðið á markaðnum. Enda þótt við séum í
innkaupahringum þá erum við einnig með vörur sem fást
víða annars staðar og pú getur verið örugg(ur) með að
þær og allar aðrar vörur eru á besta verðinu hjá okkur.
Við leggjum okkur öll fram um að taka vel á móti þér
og veita þér góða pjónustu og efla það viðskiptatraust
sem velferð okkar byggir á.
Húsgagnahöllin
BÍLDSHÖFÐA 20 - 112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199