Morgunblaðið - 19.09.1993, Blaðsíða 8
MOKGUNBLAÐIÐ
DAGBÓKs
19.*SEPTEMBER 1993
IT\ \ er sunnudagur 19. september, sem er 262.
dagur ársins 1993.15. sd. e. trínitatis.
Árdegisflóð í Reykjavík er kl. 8.16 og síðdegisflóð kl. 20.36.
Fjara er kl. 2.02 og kl. 14.29. Sólarupprás í Rvík er kl. 7.02
og sólarlag kl. 19.40. Myrkur kl. 20.27. Sól er í hádegisstað
kl. 13.21 og tunglið í suðri kl. 16.28. (Almanak Háskóla
íslands.)
Og hann sagði við þá: „Mannssonurinn er herra hvíldar-
dagsins.“ (Lúk. 6,5.-6.)
LÁRÉTT: 1 gamalt, 5
hljóminn, 8 hugaða, 9 gá-
leysi, 9 lykt, 14 bý til, 15
gáski, 16 hindri, 17 beita, 19
dæla, 21 spil, 22 furðar sig
á, 25 æpir, 26 eldstæði, 27
keyri.
LÓÐRÉTT: 2 óhljóð, 3
veiðarfæri, 4 skoruhjól, 5 leið-
inlegt, 6 ambátt, 7 spil, 9 sjó-
gang, 10 frekur, 12 glopp-
ótta, 13 synjaði, 18 þráður,
20 flan, 21 hæð, 23 lést, 24
ending.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: 1 smali, 5 seyra, 8 Óðinn, 9 staur, 11 endar,
14 aur, 15 dalls, 16 illan, 17 tel, 19 ilin, 21 ótal, 22 nærðist,
15 nes, 26 ris, 27 alt.
LÓÐRÉTT: 2 mót, 3 lóu, 4 iðraðist, 5 sneril, 6 enn, 7 róa,
9 suddinn, 10 aflsins, 12 dílótta, 13 ranglát, 18 eiði, 20 næ,
21 ós, 23 rr, 24 is.
Jón Baldcin Hannibalsson utanríkisrábherra um deiluna um formðiö
d innHutningi landbúnaðarufurða:
ÁRNAÐ HEILLA
ára afmæli. Á morgun
mánudaginn 20.
september verður sjötug frú
Guðrún Bjargey Jónsdóttir
frá Garðbæ, Vesturgötu
105, Akranesi. Eiginmaður
hennar var Valdimar S.P.
Ágústsson, skipstjóri, en
hann lést árið 1989. Guðrún
verður stödd erlendis á af-
mælisdaginn.
ára afmæli. Þriðjudag-
inn 21. september nk.
verður sjötug frú Helena
Sigtryggsdóttir, Siglufirði.
Eiginmaður hennar er Jó-
hann G. Möller, fyrrv. bæj-
arfulltrúi og verksljóri. Þau
hjónin dvelja á heimili dóttur
sinnar, Hjallabrekku 6, Kópa-
vogi, og taka þar á móti gest-
um í dag sunnudag milli kl.
15-19.
ára afmæli. Þriðjudag-
inn 21. september nk.
verður sjötug Kristjana S.
Guðjónsdóttir, Sólheimum
27, Reylqavík. Hún mun
taka á móti gestum í safnað-
arheimili Langholtskirkju frá
kl. 20 á afmælisdaginn.
FRÉTTIR/
MANNAMÓT
VIÐEY. í dag er opið mál-
þing í Viðeyjarstofu, haldið
af Reykjavíkurborg í tilefni
af 5 ára afmæli endurbygg-
ingar Stofunnar. Þorsteinn
Gunnarsson arkitekt flytur
erindi um endurreisnina, Curt
V. Jessen arkitekt frá Dan-
mörku ræðir um Nicolai
Eigtved, höfund Viðeyjar-
stofu og Pétur H. Ármanns-
son arkitekt flytur fyrirlestur
um dönsk áhrif á íslenska
byggingarlist. Umræður og
fyrirspumir. Farið með Við-
eyjarferju kl. 10 og gert ráð
fyrir að þinginu ljúki um kl.
16.30 og er það öllum opið.
AFLAGRANDI 40. Félags-
vist spiluð kl. 14 á morgun.
GJÁBAKKI, félagsheimili
eldri borgara, Kópavogi. Á
morgun, mánudag, hefjast
fyrstu námskeið vetrarins í
Gjábakka. Þann dag hefst
leikfimikennsla kl. 10. Lomb-
erinn verður spilaður kl. 13.
Söngvinir æfa kl. 17 og í
ára afmæli. í dag, 19.
september, er sex-
tugur Sigurður Ingólfsson
málarameistari, Rauðalæk
42, Reykjavík. Eiginkona
hans er Jóhanna Guðmunds-
dóttir. Þau hjónin em á
ferðalagi erlendis.
þennan blandaða kór vantar
fólk í allar raddir.
FÉLAG eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni. í
Risinu er bridskeppni, tví-
menningur kl. 13 í austursal
og félagsvist kl. 14 í vestur-
sal. Dansað í Goðheimum kl.
20 í kvöld. Opið hús í Risinu
kl. 13—17 á morgun, mánu-
dag, tafl og fijáls spila-
mennska.
ABK (Alþýðubandalag
Kópavogs). Félagsvistin
byijar í Þinghóli, Hamraborg
11, á morgun, mánudag kl.
20.30. Öllum opið.
STARFSMANNAFÉLAG-
IÐ Sókn og verkakvennafé-
lagið Framsókn. Félagsvist-
in hefst nk. miðvikudagskvöld
kl. 20.30 í Sóknarsalnum.
Verðlaun og veitingar.
FÉLAGSSTARF aldraðra,
Hæðargarði 31. Á morgun,
mánudag, kl. 9 er myndlist
og fótaaðgerð, kl. 11.30—13
hádegisverður, kl. 14 félags-
vist og kl. 15 eftirmiðdags-
kaffi.
ára afmæli. í dag, 19.
september, er fimm-
tugur Rafn Ólafsson,
Hryggjarseli 10, Reykjavík.
Eiginkona hans er Þóra Frið-
geirsdóttir. Þau verða að
heiman í dag.
EA-sjálfshjálparhópar fyrir
fólk með tilfinningaleg
vandamál halda fundi á Öldu-
götu 15 mánudaga kl. 19.30
fyrir aðstandendur og opið
hús fyrir alla þriðjudaga og
miðvikudaga kl. 20.
SAMBAND dýraverndarfé-
laga er með flóamarkað í
Hafnarstræti 17, kjallara,
mánudaga, þriðjudaga og
miðvikudaga frá kl. 14—18.
FORNBÍLAKLÚBBUR ís-
lands fer í kaupstaðarferð í
dag um Reykjavík og ná-
grenni. Mæting við Ráðagerði
kl. 13.30.
KÁRNESPREST AKALL:
Aðalfundur Kársnessóknar
verður haldinn í safnaðar-
heimilinu Borgum nk. mið-
vikudagskvöld kl. 20.30.
KIRKJA
ÁRBÆJARKIRKJA: Æsku-
iýðsfundur í kvöld kl. 20.
ÁSKIRKJA: Opið hús fyrir
alla aldurshópa á morgun,
mánudag, kl. 14—17.
ORÐABÓKIN
Smjörþefur
Þetta nafnorð er haft
um þá vondu lykt, sem
leggur af súru eða þráu
smjöri. Af því er dregið
orðtakið að fá smjörþefinn
af einhverju, en það merk-
ir að fá að kenna á e-u,
finna óþægilegar afieið-
ingar af e-u, segir Hall-
dór Halldórsson próf. í
íslenzku, þótt heimildir
skorti um það. Halldór
nefnir tvö dæmi úr þjóð-
sögum Jóns Árnasonar.
Þar segir á öðrum staðn-
um um viðskipti við
draug: „og hefði það verið
þarfleysa að færa að bein-
um sínum, og jafngott,
þó hann fengi smérþefinn
af því“. Hitt dæmið er á
þessa lund: „Brandur fékk
ekki síður smérþefínn af
mýbýtinu en aðrir.“ Merk-
ingin er sem sé neikvæð,
verða fyrir óþægindum
eða vandræðum. — Þegar
þessi frummerking er
höfð í huga, sést hversu
fráleitt er að nota orðtak-
ið í jákvæðri merkingu um
það að hafa veður af e-u,
kynnast e-u. Töluvert
hefur því miður borið á
þessum misskilningi á síð-
ustu árum og þá ekki sizt
hjá fjölmiðlafólki, sem
kannast auðvitað ekki við
lykt af illa þefjandi smjöri.
Trúlega hafa því fleiri en
ég kippzt við, þegar heyra
mátti ekki alls fyrir löngu
talað um það í Ríkisút-
varpinu, að ísfirðingar
ættu bráðlega að fá
smjörþefinn af því tónlist-
arlífí, sem ríkir hér í
Reykjavík.
J.A.J.
SELTJARNARNES-
KIRKJA: Fundur í æskulýðs-
félaginu í kvöld kl. 20.30.
FERJUR
AKRABORGIN fer frá
Akranesi kl. 8, 11, 14 og kl.
17 og frá Reykjavík kl. 9.30,
12.30, 15.30 og kl. 18.30.
SKIPIN
REYKJAVÍKURHÖFN: í
gær fór Baldvin Þorsteins-
son og Helga II kom af veið-
um. Jón Finnsson og Hrafn
Sveinbjarnarson koma í dag.
Dagbók
Háskóla
Islands
í dag, sunnudag 19. septem-
ber kl. 9, í sal 3 í Háskóla-
bíói, verður ráðstefna um
siðfræði náttúrunnar. Fyrir
hádegi verður rætt um nátt-
úru og vísindi. Fyrirlesarar:
Amór Garðarsson, Guð-
mundur Sigvaldason, Skúli
Skúlason, Ari Trausti Guð-
mundsson og Skúli Sigurðs-
son. Umræður. Eftir hádegi
verður rætt um náttúni og
trú. Fyrirlesarar: María Ág-
ústsdóttir, Bolli Gústavsson,
Sigurður Ámi Þórðarson,
Mikael Karlsson og Bjöm
Bjömsson. Umræður. Ráð-
stefnan er öllum opin.
Mánudaginn 20. september,
kl. 8.30. Tæknigarður.
Tveggja daga námskeið
hefst á vegum Endurmennt-
unarstofnunar ætlað dómur-
um, læknum, lögmönnum,
sálfræðingur, félagsráðgjöf-
um og öðrum sem koma að
málum sem varða börn fyrir
dómi. Efni: Börn fyrir dómi.
Leiðbeinandi: Charles B.
Schudson, dómari við áfrýj-
unarrétt í Wisconsin í Banda-
ríkjunum.
Kl. 20.15, Tæknigarður. Níu
daga námskeið í spænsku
fyrir byijendur hefst á veg-
um Endurmenntunarstofn-
unar Háskólans. Leiðbein-
andi: dr. Salvador Ortiz-Car-
boneres, spænskukennari við
Warwick-háskóla í Coventry
á Englandi.