Morgunblaðið - 08.10.1993, Side 1
80 SIÐURB/C
STOFNAÐ 1913
228. tbl. 81.árg.
FOSTUDAGUR 8. OKTOBER 1993
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tveir særðir Bosníumenn komu til landsins í nótt
Efst í huga þakk-
læti til íslendinga
Kaupmannahöfn. Frá Önnu G. Ólafsdóttur blaðamanni Morgunblaðsins.
TVEIR særðir Bosníumenn voru væntanlegir til landsins á
miðnætti til lækninga á Landspítalanum. „Efst í huga okkar
er þakklæti til íslendinga fyrir að hjálpa okkur,“ sagði ann-
ar mannanna, Zlatan Mravinac, í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins á Kastrup-flugvelli í Kaupmannahöfn í gær-
kvöldi. Hinn maðurinn heitir Davor Purusic. Þeir urðu báðir
fyrir sprengjuslysum og missti Zlatan annan fótinn. Með
þeim er kona Zlatans, Nasiha, hún er hjúkrunarfræðingur.
Ríkisstjórnin ákvað að bjóða
sex slösuðum ungmennum frá
Bosníu lækningu hér á landi og
er búist við að fleiri komi í kjöl-
far þeirra tveggja sem komu til
landsins í nótt.
Glöð og hress
Bosníufólkið virtist hresst
þrátt fyrir langt og strangt ferða-
lag og þau voru glöð í bragði.
Þegar þau koma til íslands verða
þau búin að vera á flugi í fimm-
tán tíma en millilent var í Ítalíu,
Hollandi og Kaupmannahöfn á
leiðinni frá Sarajevo. Þau vildu
lítið tjá sig um ísland enda höfðu
þau aðeins fengið að vita það á
mánudaginn að þau færu til ís-
lands og sögðust því varla vera
búin að átta sig á því hvert þau
væru að fara. En þau vissu þó
um Geysi og Reykjavík og einnig
að íslendingar tækju þátt í Euro-
vision-söngvakeppninni. Davor
sagðist einnig vita allt um ís-
lenska knattspyrnu en hann vildi
ekki móðga Islendinga með því
að minnast á það végna þess að
þeir hefðu alltaf tapað fyrir sínum
mönnum.
Rafmagnslaust hefur verið í
Sarajevo í hálft annað ár og eru
viðbrigðin því mikii. Zlatan hafði
einmitt orð á rafmagninu og einn-
ig kókinu sem þau fengu á Kastr-
up-flugvelli áður en farið var með
þau um borð í Flugleiðaþotuna.
Zlatan og Davor fara beint í
sóttkví á Landspítalanum. Nasiha
er hjúkrunarfræðingur og hefur
unnið á spítala í Sarajevo. Hefur
hún meðal annars unnið við það
í rafmagnsleysinu undanfarna
mánuði að taka útlimi af fólki við
ljós frá kveikjara. Höfðu þau á
orði að aðstaðan yrði allt önnur
á Landspítalanum.
Polfoto
A leið til Islands
SÆRÐU Bosníumennirnir voru væntanlegir til íslands í nótt.
Myndin var tekin á Kastrup-flugvelli í gærkvöldi þegar Zlatan
Mravinac var borinn út úr flugvélinni sem flutti hann til Kaup-
mannahafnar.
Reuter
Bhutto fagnar sigri
BENAZIR Bhutto og flokkur hennar, Pakistanski þjóðarflokkurinn,
unnu nauman sigur í þingkosningunum í Pakistan á miðvikudag en
þó án þess að fá hreinan meirihluta. Stefnir hún að myndun sam-
steypustjórnar með ýmsum smáflokkum en helsti andstæðingur henn-
ar, Nawaz Sharif, fyrrverandi forsætisráðherra, hefur það sama í
hyggju og er þegar farinn að bera víurnar í litlu flokkana. Bhutto
var forsætisráðherra á árunum 1988-90 en var vikið frá sökum
spillingar. Hér ræðir hún við fréttamenn á heimili sínu undir mynd
af föður sínum heitnum, Zulfikar Ali Bhutto, en hann var lengi helst-
ur ráðamaður í Pakistan.
Stjórnvöld í Georgíu biðja vestræn ríki aðstoðar
Hætta á uppþotum
vegna matarskorts
Tbilisi. Reuter.
YFIRVÖLD í Georgíu óttast, að til óeirða komi í Tbilisi, höfuðborg
landsins, vegna matarskorts og hungurs. Kom þetta fram hjá einum
ráðherra ríkisstjórnarinnar í gær. Sagði hann, að eina vonin væri,
að vestræn ríki kæmu Georgíumönnum til hjálpar. Allt að 20.000
Georgíumenn á flótta undan aðskilnaðarsinnum í Abkhazíu eiga á
hættu að verða úti í snjó og kulda í Kákasusfjöllum.
„Ég skora á vestræn ríki að koma
okkur til bjargar. Við reynum að
róa fólk en hveitibirgðir eru á þrot-
um og það er von á fleiri flótta-
mönnum til borgarinnar. Ef ekkert
verður að gert verða borgarbúar
farnir að betjast um brauðið eftir
skamman tíma,“ sagði Michael
Djibuti, efnahagsmálaráðherra Ge-
orgíu, í gær. Kvaðst hann áætla,
að nú væru um 200.000 Georgíu-
menn heimilislausir og á flótta eftir
ósigur stjórnarhersins fyrir aðskiln-
aðarsinnum í Abkhazíu.
Mannfall í fjöllunum
„Undanfarna þrjá daga vitum við
um rúmlega 60 manns sem dáið
hafa úr vosbúð á flótta frá Abkhaz-
íu, þar af 20 börn,“ sagði Irina
Sarishvili, aðstoðarforsætisráð-
herra Georgíu, í fyrrakvöld. „Við
höfum engin ráð til að koma þeim
til hjálpar og berist ekki utanað-
komandi aðstoð á næstu tveimur
til þremur dögum kemst enginn
flóttamannanna lífs af,“ bætti hún
við.
Georgíumennirnir hröktust frá
heimkynnum sínum í Abkhazíu í
síðustu viku. Þeir sem leituðu til
fjalla í héraðinu Svanetiu, sem rísa
snarbrött upp frá Svartahafi, hafa
hreppt stórhríð. Komast þeir ekki
Clinton lagði áherslu á, að Banda-
ríkjamenn myndu ekki hlaupast und-
an merkjum í Sómalíu þrátt fyrir
ýmis áföll þar og óánægju heimafyr-
ir. Sagði hann, að bandaríska friðar-
gæsluliðið myndi Ijúka sínu verki
þar, sem væri að koma í veg fyrir
hungursneyð og stuðla að styrkri
stjórn í landinu.
Ætlunin er að senda 1.700 banda-
í skjól í grannhéraðinu Mingrelíu
vegna bardaga milli stjórnarhersins
og sveita Zviads Gamsakhurdia
fyrrum forseta.
Sveitir Gamsakhurdia eru á vest-
urleið og hafa síðustu daga náð níu
borgum og héruðum á sitt vald og
lokað samgönguæðum frá Tbilisi til
Svartahafsins.
ríska hermenn til liðs við þá 5.400,
sem fyrir eru, en þar auki eiga 3.600
landgönguliðar að vera til taks á
skipum úti fyrir Mogadishu, höfuð-
borg Sómalíu. Þá á að bæta verulega
vopnabúnað bandaríska herliðsins.
Ýmsir þingmenn réðu í gær Clint-
on frá því að dagsetja brottflutning
bandaríska friðargæsluliðsins og
töldu það veikja stöðu þess í landinu.
Clinton Bandaríkiaforseti um Sómalíu
Liðsaflinn verð-
ni' tvöfaldaður
Washington, Toronto, Mogadishu. Reuter.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti ætlar að fjölga í bandaríska frið-
argæsluliðinu í Sómaltu um 5.100 ntanns eða tvöfalda herstyrkinn
þar. Skýrði hann frá þessu í sjónvarpsávarpi í gær og tilkynnti jafn-
framt, að stefnt væri að því að draga allt herliðið á brott innan sex
mánaða eða ekki síðar en 31. mars nk.