Morgunblaðið - 08.10.1993, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1993
Ríkisábyrg'ðir sjötíu
milljarðar um áramót
Áform eru um að takmarka notkun ríkisábyrgða
SAMANLAGÐAR útistandandi ríkisábyrgðir ríkissjóðs voru
70,5 milljarðar króna um seinustu áramót, samkvæmt ríkis-
reikningi fyrir árið 1992. Fjöldi lántakenda sem njóta ríkis-
ábyrgðar á lánum sínum voru um 200 en heildarfjárhæð þess-
ara lána hefur farið vaxandi á undanförnum árum þótt stefnt
sé að því að draga úr ríkisábyrgð. Árið 1991 námu lán með
ríkisábyrgð 55,1 milljarði kr.
Stærstu lántakendur um seinustu
áramót voru Húsnæðisstofnun rík-
isins og námu eftirstöðvar vegna
húsbréfa tæpum 36 mijljörðum kr.,
Framkvæmdasjóður íslands 21
milljarður, Atvinnutryggingasjóður
útflutningsgreina (nú atvinnu-
tryggingadeild) 6 milljarðar, Akur-
eyrarbær 3,1 milljarður, Hitaveita
Akraness og Borgarljarðar 2,5
milljarðar og Hitaveita Suðurnesja
1,1 milljarður.
Talið að 300 millj. tapist
á næsta ári
Áætlað er að 300 milljónir króna
muni falla á ríkissjóð vegna tapaðra
ábyrgða á næsta ári en það er fram-
lagið til Ríkisábyrgðasjóðs í fjár-
lagafrumvarpi næsta árs. Í greinar-
gerð frumvarpsins kemur fram að
áform eru um að notkun ríkis-
ábyrgða verði takmörkuð enn frek-
ar en orðið er. Eru ókostir ríkis-
ábyrgða taldir þeir, að ríkisábyrgðir
ýti undir aukna lánsfjáreftirspurn,
þar sem ríkistryggð lán bjóðast að
öðru jöfnu á hagstæðari kjörum en
ella standa til boða, og er húsbréfa-
kerfið nefnt sem dæmi um það, og
hins vega séu mörg dæmi um að
ekki sé tekið nægilegt tillit til arð-
semi þeirra fjárfestinga sem njóta
ríkisábyrgðar, eins og útlán
Byggðastofnunar og Fram-
kvæmdasjóðs Islands sýni. *
í nokkrum tilvikum er nú þegar
unnið að afnámi ríkisábyrgða. í
frumvarpi um stofnun íslenska fjár-
festingarbankans hf. er ríksábyrgð
á nýjum lántökum Iðnlánasjóðs og
Iðnþróunarsjóðs afnumin með því
að starfsemi þeirra er felld inn í
bankann og einnig er afnám ríkis-
ábyrgðar á húsbréfum til athugunar
í sérstakri nefnd sem félagsmála-
ráðherra skipaði fýrr á þessu ári.
Vf! / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 3 léttskýjað Reykjavflt 6 súld
Bergen 11 skýjað
Heleinki 10 skýjað
Kaupmannahöfn 12 þokumóða
Narssar8suaq 6 rlgning
Nuuk 0 skýjað
Ósló 12 skýjað
Stokkhólmur 11 rigning
Þórshöfn 7 skýjað
Algarve 18 skúr
Amsterdam 15 skýjað
Barcelona 21 skýjað
Berlín 17 hálfskýjað
Chicago 15 þokumóða
Feneyjar 21 skýjað
Frankfurt 17 léttskýjað
Glasgow 13 úrkoma
Hamborg 16 léttskýjað
London 13 skúr
Los Angeles 17 skýjað
Lúxemborg 16 léttskýjað
Madrid 14 skýjað
Malaga 16 skúr
Mallorca 22 alskýjað
Montreal 15 alskýjað
NewYork 14 heiðskírt
Orlando 22 alskýjað
Paris 16 skýjað
Madelra 20 skýjað
Róm 26 hálfskýjað
Vín 19 skýjað
Washlngton 11 léttskýjað
Wlnnipeg +1 skýjað
^ Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Ferhyrndur hrútur
í fjárkaupaferð fréttaritara vestur í Reykhólahreppi nú í haust rakst
hann á þennan ferhyrnda hrút á Litlu-Brekku í Geiradal hjá Hallgrími
Birgissyni bónda þar. Þessi ferhyrndi grái hrútur heitir Tijóni og er
tveggja vetra gamall. Hallgrímur brá málbandi milli efri horna hrúts-
ins og reyndust 85 sentímetrar á milli hornendanna og man fréttarit-
ari ekki til að hafa áður séð svo stórhyrndan ferhyrndan hrút með
jafn beinvaxin og flaskalaus horn.
Tvöfalt meiri notkun magasárs-
lyfja en á hinum Norðurlöndunum
Hægt að spara
mikið með notk-
un ódýrari lyfja
ÞÓ notkun magasárslyfja hafi minnkað lítillega undanfarin ár er
notkun þeirra hér á landi enn nærri helmingi meiri en í Svíþjóð sem
er með næstmestu notkunina á Norðurlöndum. Hér er einnig notað
hlutfallslega meira af dýrari lyfjunum en á hinum Norðurlöndunum.
Ef ódýrasta lyfið hefði eingöngu verið notað í staðinn fyrir það sem
var mest notað á síðasta ári hefði heildarverðið, miðað við útsölu-
verð úr apótekum, orðið 140 milljónum kr. lægra.
Ljrfjanefnd Landspítalans hvatti
alla lækna spítalans til að nota cím-
etidín-magasárslyf í stað dýrari
lyfja sem mest hafa verið notuð
hér. Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið og landlæknir hafa nú
eindregið tekið undir tilmæli lyfja-
nefndarinnar og hvetja alla lækna
til að fara eftir þeim og nota cím-
etidín-lyfin þegar slík lyfjagjöf er
nauðsynleg.
140 milljóna kr. munur
í tilkynningu frá ráðuneytinu og
landlækni í Læknablaðinu segir að
ekki hafi fundist fullnægjandi skýr-
ingar á þeim mikla mun sem er á
notkun magasárslyfja hér og á hin-
um Norðurlöndunum.
Notkun á nýjasta og dýrasta lyf-
inu, ómeprazól, hefur farið vax-
andi. Langmest notkun er þó af
ranitidíni, á árinu 1992 voru notað-
ir liðlega 1,6 milljónir dagskammta.
Á útsöluverði apóteka kostar þetta
rúmlega 273 milljónir kr., eða 166
kr. dagskammturinn. Dagskammt-
urinn af ódýrasta címetidín kostar
helmingi minna, eða 81 kr. Hefði
síðarnefnda lyfið verið notað í stað-
inn fyrir ranitidín hefði kostnaður
við magasárslyf lækkað um 140
milljónir á síðasta ári, miðað við
útsöluverð apóteka samkvæmt
lyfjaverðskrá.
-----♦ ♦ ♦---
Þrír sóttu um
stöðu lækn-
ingaforstjóra
UMSÓKN ARFRESTUR um
stöðu lækningaforstjóra við
Borgarspítalann rann út 2. októ-
ber sl. og sóttu þrír um stöðuna.
Jóhannes Pálmason fram-
kvæmdastjóri Borgarspítalans
segir að tilkynnt verði um það
síðar í mánuðinum hver hlýtur
stöðuna.
Um stöðuna sóttu Eggert Jóns-
son læknir, Ólafur Örn Arnarson
yfirlæknir og Jóhannes M. Gunn-
arsson formaður læknaráðs Borgar-
spítala.
Bjór í hálfs lítra
dósum frá Viking
NÝR bjór, Ice-bjór, er væntanlegur á markaðinn frá Viking-Brugg
hf. á næstunni og allur bjór hjá fyrirtækinu verður innan skamms
í nýjum umbúðum. Þá mun fyrirtækið setja á markað nýjan bjór í
hálfs lítra umbúðum í næsta mánuði og mun kippa með sex dósum
kosta undir 1.000 kr. Ekki er komið nafn á nýja bjórinn en Morgun-
blaðið hefur heimildir fyrir því að hann verði skírður Leifur heppni.
Björgólfur Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Viking-Brugg hf.
sagði að flöskubjórinn yrði á nýjum
flöskum, svonefndum „long-neck“-
flöskum, sem hafa lengri háls en
venjulegar flöskur. „Fljótlega setj-
um við á markað mjög ódýran bjór
í hálfs lítra umbúðum. Það verður
ekki Viking-bjór heldur sérbrugg-
aður bjór í hálfs lítra dósum og
flöskum. Kippan verður trúlega á
um 950 kr. Þessi bjó'r verður af
Viking-gæðum og mjög ódýr,“
sagði Björgólfur. Björgólfur sagði
að ekki væri búið að gefa nýja
bjórnum nafn, en sagði að Leifur
heppni kæmi sterklega til greina í
þessu sambandi.