Morgunblaðið - 08.10.1993, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1993
5
Frumvarp til laga um verndun nytjavatns
Umhverfisráðuneyti
hafi yfirumsjón með
verndun nytjavatns
UMHVERFISRÁÐUNEYTI hefur yfirumsjón með verndun nylja-
vatns í nýju frumvarpi til laga um verndun nytjavatns. Össur
Skarphéðinsson, umhverfisráðherra, segir að frumvarpið veiti
ráðherra m.a. leyfi til að stöðva framkvæmdir fyrirtækja ef hætta
er á mengun í nytjavatni. Frumvarpið er um þessar mundir til
umræðu í þingflokkum. '
Össur sagði að frumvarpið
byggði á sömu grunnhugmynd og
vatnalög frá 1923, þ.e. að vatn
væri lífsnauðsyn og tryggja þyrfti
öllum nauðsynlegan aðgang að því
í dag og til framtíðar. Hann sagði
að áður hefðu lög um vatnsvernd
verið dreifð en með frumvarpinu
færi umhverfisráðuneytið með
yfirumsjón með verndun nytja-
vatns.
Hvað nýjungar varðaði nefndi
hann að með frumvarpinu yrði
hægt að taka frá sérstök vatns-
verndarsvæði og í því væru skýr-
ari ákvæði um aðgang að nytja-
vatni í eigin landi. Þá hefðu menn,
sem ekki hefðu möguleika á vatns-
stöku í eigin landi, rétt til að taka
nytjavatn í landi annarra, þ.e. fyr-
ir sig, fjölskyldu sína og þú.
Össur minntist þess ennfremur
að samkvæmt frumvarpinu hefði
ráðherra völd til að krefjast þess
að fyrirtæki, með framkvæmdir á
svæði þar sem óttast væri að kom-
ið gæti til mengunar, legðu fram
sérstaka varnaráætlun með_ við-
búnað við slíkum spjöllum. Áætl-
unin yrði hluti af starfsleyfi fyrir-
tækisins. Þá er ráðherra heimilt
að stöðva starfsemi fyrirtækis ef
mikil hætta er talin á vatnsmeng-
un.
Samráðsnefnd
Gert er ráð fyrir að sex manna
samráðsnefnd verði skipuð um
nytjavatnsvernd. Hlutverk hennar
verður m.a. að gera tillögur um
verndun nytjavatns og nytjavatns-
svæða, hafa yfirlit yfir nytjavatns-
svæði og vernd þeirra, afla upplýs-
inga um ástand nytjavatns, vatn-
stöku og vatnsvernd á landinu öllu
og gera áætlun um viðbúnað gegn
hugsanlegri hættu á vatnsspjöllum
á vatnsverndarsvæðum.
------» ♦ ♦-----
Már fer
ekki á Rock-
all-svæðið
TOGARINN Már SH mun ekki
halda til veiða á Rockall-svæð-
inu en útgerð togarans hafði til
athugunar að hann færi þangað
eftir að skipið landaði í Hull í
síðustu viku.
Svavar Þorsteinsson útgerðar-
maður hjá Snæfellingi á Olafsvík
sagði að hætt hefði verið við að
senda togarann til veiða á Rockall-
svæðinu eftir viðræður við fulltrúa
utanríkisráðuneytisins. Hann sagði
að ákveðið yrði hvort Már færi á
ný til veiða í Smugunni næstu
daga.
Áætlað að minnka hlut ríkisins í lyfjaverði
Verðmyndun breytt
og sala gefin frjáls
ÁÆTLAÐ er að draga megi úr kostnaði ríkisins í lyfjaverði sem
svarar 150 milljónum kr. á næsta ári, að sögn Guðmundar Árna
Stefánssonar, heilbrigðisráðherra. Hann segir að verðmyndunar-
kerfi á lyfjum verði breytt þannig að visst hámarksverð verði ákveð-
ið á smásölustigi lyfja sem leiði til lækkunar álagningar og einnig
verði frelsi vegna reksturs lyfjaverslunar aukið á þann hátt að rekst-
ur verði ekki lengur háður úthlutun ráðuneytis, heldur verði hverj-
um sem er heimil lyfjasala að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Heilbrigðisráðherra kveðst telja
að breytt fyrirkomulag muni leiða
til að samkeppni varðandi innflutn-
ing, dreifingu á heildsölustigi og
smásölu lyfja aukist til muna.
Heilbrigðisráðherra segir tillögur
um verð lyfja og sölu koma fram í
lagafrumvarpi sem lagt var fram á
síðasta þingi og verður endurflutt
á næstunni með talsverðum breyt-
ingum, og er að sögn ráðherra
reiknað með að fáist samþykkt fyr-
ir jól. Ef frumvarpið verður sam-
þykkt er gert ráð fyrir að lögin
taki gildi í byijun næsta árs.
A
Fjörutíu arnarpör á Islandi
Arnarstofninn hef-
ur staðið í stað
ARNARSTOFNINN er um 40 pör og hefur staðið í stað síðastliðin
5 ár eftir því sem segir í fréttabréfi Fuglaverndarfélags Islands.
Varpárangur arna 1993 var með lélegra móti og er talið að um
30 pör hafi reynt varp en aðeins 14-15 þeirra komið upp samtals
15-16 ungum.
Nokkrar ástæður eru fyrir því stundum hreiður sín í kjölfar
að ernirnir koma ekki upp fleiri ógætilegra mannaferða eða eru
ungum að því er segir í fréttabréf- það lengi af hreiðri að egg og
inu. í fyrsta lagi verpa ekki öll ungar drepast af vosbúð. Loks
arnarpör árlega. í öðru lagi virðist virðast sum arnarvörp verpa ófijó-
slæmt tíðarfar, einkum kulda- og um eggju, sennilega einkum þau
vætutíð, og þá aðallega í maí og yngri.
júní, valda því að egg og litlir Fuglaverndarfélag íslands fylg-
ungar misfarast. í þriðja lagi eru ist með arnarvarpi í samvinnu við
ernir mjög viðkvæmir fyrir truflun Náttúrufræðistofnun íslands.
á varptímanum. Þeir yfirgefa
Maxwell
KOUSE
Heitur ilmur,
bragðmikil hressing
ÞETTA ER
KAFFIÐ sem
MÆTIR KROFUM MINUM
Þeir sem þekkja gotl kaffi, vita
hvaö til þarf. Úrvals Old Java
kaffibaunir, þurrkun og
brennsla viö kjörskilyröi.
Þannig er Maxwell House kaffi.
Maxwell House drekka þeir sem
þekkja kaffi.
MAXWELL HOUSE
...engu öðru líkt!
Ný bh
ríkara