Morgunblaðið - 08.10.1993, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1993
9
Kynning á Kripalujóga
verður laugardaginn 9. október kl. 14.00. Einnig verður
kynnt væntanlegt helgarnámskeið Gurudevs
(Yogi Amrit Desai). Allir velkomnir.
Jógastöðin Heimsljós, Skeifunni 19, 2. hæð, s. 679181.
Franskar, mjúkar ullarpeysur,
silki- og bómullarbolir
TESS
NEÐST VIÐ
DUNHAGA,
622230.
NEÐí
kDsU'
Opið virka daga
kl. 9-18,
laugardaga
kl. 10-14.
Útsalan hefst í dag
20-50% afsláttur
Laugavegi 4 - Sími 14473
Áhyggjur
Frakka
Atriði úr frönsku kvikmyndinni Germinal sem Frakkar vona að eigi eftir að geta keppt
við Jurassic Park að vinsældum í Frakklandi.
GATT og menningin
Deila EB og Bandaríkjanna um landbúnaðarmál er sá þáttur
Uruguay-lotu GATT-viðræðnanna, sem hvað mest athygli
hefur beinst að. Sú deila er samt ekki sú eina. Samningamönn-
um þessara ríkja hefur ekki síður gengið erfiðlega að ná sam-
komulagi um viðskipti með kvikmyndir og sjónvarpsefni.
Bandaríkjamenn vilja að kvikmyndir verði hluti af nýju GATT-
samkomulagi en sterk öfl innan EB, með Frakka í broddi fylk-
ingar, hafa sett sig upp á móti því. Telja Frakkar að aukið
frjálslyndi í þessum efnum myndi kaffæra Evrópu í fjöldafram-
leiddri, bandarískri lágmenningu. Telja Frakkar menninguna
of mikilvæga til að láta hinn frjálsa markað "Sjá um hana óá-
reittann.
Breska blaðið Finaiic-
ial Times fjallar um þetta
mál í leiðara á miðviku-
dag og- segir þar m.a.:
„Það væri fáránlegt að
láta þessa deilu ógna
samkomulagi um við-
skipti í heiminum. Til-
tölulega litlir efnahags-
legir hagsmunir eru í
húfi og þar að auki hafa
hlutaðeigandi aðilai' ýkt
og skrumskælt það sem
málið snýst um. Þar af
leiðandi eru hinar efna-
hagslegu og menningar-
legu hliðar málsins orðn-
ar óþarflega ruglingsleg-
ar.
Að vissu marki má
taka undir með Frökk-
mn. Þeir eru ekki eina
þjóðin sem hefur áhyggj-
ur af menningarlegum
sérkennum sínum á tím-
um alþjóðlegrar fjöl-
miðlaholskeflu. Þeir hafa
að auki skiljanlegan
áhuga á því að halda
gangandi eina alvöin
kvikmyndaiðnaði Evr-
ópu. Menn ættu ekki að
hafa miklar áhyggjur af
þvi að hann hafi verið
byggður upp með niður-
greiðslum og sköttnm.
Þegar öllu er á botninn
hvolft eru aðrar list-
gremar, s.s. tónlist og
leiklist, niðurgreiddar
alls staðar í heiminum.
Það má þá ræða rök
fyrir því að aðrar reglur
gildi um kvikmyndir þar
sem þær séu seldar á al-
þjóðamarkaði. Það er
hins vegar hæpið að
halda því fram að ríkis-
styrkur brengli sam-
keppnisstöðuna í þessum
iðnaði þar sem fjöldi
áhorfenda skiptir mun
meira máli fyrir fjár-
hagslega afkomu mynd-
ar en framleiðslukostn-
aður. Bandaríkjameim
ei-u að beijast við vind-
myllur með þvi að reyna
að ná samkomulagi urn
að takmarka niður-
greiðslur."
Kvótar
áKanann
Áfram segir: „Fjögurra
ára gömul ákvörðmi EB
um að setja liámark á
hlutfall þess sjónvarps-
efnis sem má koma frá
ríkjum utan bandalagsins
er mun stærri þröskuldur
í vegi frjálsra viðskipta.
Þó að sú ákvörðun sé
ekki bindandi er hún virt
af flestum. Frakkar hafa
jafnvel gengið skrefi
lengra og sett frönskum
sjónvarpsstöðvum emi
fastari skorður. Banda-
ríkjamenn ættu að beina
spjótum sínum að þessu.
Stuðningsmenn evr-
ópskra kvóta segja þá
nauðsynlega til að koma
í veg fyrir að ódýrt
bandarískt sjónvarpsefni,
sem kostnaður við hefur
þegar verið greiddur á
heimamarkaði, einoki
ekki markaðinn. Það er
uppgjafartónn í rök-
semdafærslu af því tagi
og hún tekur ekki mið
af því að Bandaríkjamenn
eiga árangur sinn að stór-
um hluta að þakka öfiugu
markaðssetningar- og
dreifikerfi í Evrópu-
bandalagsríkjunum , sem
heimamönnum hefur
ekki tekist að halda í við.“
Ritskoðun og
sjálfsblekking
Loks segir í leiðara
FTiÞað er líka rökleysa
að ætla að meta kvik-
myndir og sjónvarpsefni
út frá því hvort að það
Ijalli um hluti heima fyrir
eða erlendis. Hvað þýðir
það eiginlega í iðnaði þar
sem fjármagn, hæfileikar
og framléiðsluþættir
þekkja engin landamæri
og eiga í æ ríkara mæli
uppsprettu sína um allan
heim? A að skilgreina
framleiðslu MCA kvik-
myndaversins, sem er
staðsett í Hollywood en í
eigu Matsuhita, sem
bandaríska eða japanska?
Sterkustu rökin gegn
kvótum eru hins vegar
þau að í þeim felst ákveð-
in tegund ritskoðunar.
Það er ekki bara ámælis-
vert í sjálfu sér. Kvótarn-
ir eru líka sjálfsblekking
af hálfu ríkisstjóma á
sama tíma og ríkisrekin
sjónvarpsfyrirtæki þurfa
að glíma við aukna sam-
keppni frá nýjum miðlum,
s.s. kapalkerfum, gervi-
hnattasjónvarpi og mynd-
bandakerfum.
Hvernig reglur eigi að
setja um þá starfsemi er
viðfangsefni sem er utan
verksviðs Urugay-lotunn-
ar. Eins og stendur ættu
Bandarílgamenn og EB
að leggja áherslu á að
útrýma óþörfum og efna-
hagslega skaðlegum
hindrunum fyrir þennan
iðnað.“
Inga Sigurður
1. Hvernig verður GOTT GERT BETRA?
Viltu eiga ánægjulega og áhugaverða helgi með
maka þínum á yndisiegum stað úti í sveit?
Efni m.a.: Bakgrunnur - sameiginlegt leiksvið - hlut-
verk - árekstrar - hindranir - væntingar - draumar
- frumleiki - leikur - ást - vinátta - kynlíf.
Staður: Leirubakki, Landssveit. Tími: Helgin 12.-14. nóv. '93.
Leiðbeinendur: Inga Stefánsdóttir og
Sigurður Ragnarsson, sálfræðingar.
2. Draumar og draumaúrvinnsla.
Hefurðu áhuga á sálfræðilegri vinnu með drauma?
Tími: Vikulega 1V2 tími í senn (alls 10 skipti). Átta saman í hóp.
Leiðbeinandi: Inga Stefánsdóttir, sálfræðingur.
Skráning og upplýsingar í síma 91 -11444.
Blær sf., Laugavegi 59,101 Rvík
pv
SÍMINN ER
689400
BYGGT & BÚIÐ
KRINGLUNNI
FÖSTUDAGUR TIL FJÁR
KLASSÍSKUR SÍMI
í DAG
Á KOSTNAÐARVERÐI
byggtÖbCið
I KRINGLUNNI