Morgunblaðið - 08.10.1993, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1993
17
Fjallað um fjölskyldur ungra barna á landsþingi Þroskahjálpar
Hefja líf í nýrri veröld þegar
fatlað barn kemur í heiminn
LANDSÞING Þroskahjálpar var haldið fyrir skömmu undir yfirskrift-
inni Fjölskyldur ungra barna. Þar var fjallað í framsögxierindum og
umræðum um stöðu fjölskyldna ungra, fatlaðra barna, erfiðleika sem
þær mæta og þau umskipti sem verða hjá foreldrum þegar fatlað
barn kemur í heiminn. Landsþingið ályktaði auk þess um málefni sem
snerta fatlaða og samtökin telja að þarfnist úrlausna.
Asta B. Þorsteinsdóttir, formaður
Þroskahjálpar, sagði að í framsögu-
erindum og umræðum hefði komið
í ljós að vandi fjölskyldna fatlaðra
bama væri margvíslegur. Fjölskyld-
ur verða iðulega fyrir tekjumissi
þegar fatlað bam fæðist vegna þess
að sjaldnast getur nema annað for-
eldri unnið utan heimilis. Þá verður
í mörgum tilfellum að skipta um
húsnæði. Það þýðir aukna fjárhags-
byrði íjolskyldna sem oft eru skuld-
settar fyrir vegna húsnæðiskaupa.
Stoðúrræði breytast
fyrirvaralaust
Mjög dýrt er að ala önn fyrir
fötluðu barni í heimahúsi og mikla
aðstoð þarf til sem aðeins að litlu
leyti er veitt af hinu opinbera. Sam-
félagið veitir umönnunarbætur sem
fara eftir fötlun bamsins og því hve
mikla þjónustu það fær utan heimii-
is. Ásta segir að undanfarin ár hafi
það gerst að bætur hafi verið skert-
ar fyrirvaralaust á þeim forsendum
að fötlun barnanna hafi verið ofmet-
in. Hún segir áberandi að foreldrum
finnist kerfið frumkvæðislítið og
stoðúrræði geti breyst með litlum
eða engum fyrirvara. Fólk þurfi að
nálgast allar upplýsingar og aðstoð
af miklu harðfylgi. Enginn útrétt
hönd bíður þessara foreldra þegar
þeir hefja líf í nýrri veröld.
Ódýru og góðu stoðkerfi
rústað
Landsþing Þroskahjálpar mót-
mælti í ályktun ákvörðun stjórn-
valda að skattleggja þóknun til
stuðningsfjölskyldna fatlaðra.
Stuðningsfjölskyldur er fólk sem
fúst er til að annast fatlað barn,
t.d. helgi og helgi, í því skyni að
veita foreldrunum hvíld. Fyrir þetta
hefur verið greidd ákveðin þóknun,
nú 2.434 krónur á sólarhring, og
þar til í fyrra var hún skattfijáls
en framtalsskyld. Þá var fyrirvara-
laust gerð sú krafa að skattur yrði
greiddur af þóknuninni og það aftur
í tímann. Landsþing Þroskahjálpar
hefur beint þeirri áskorun til stjórn-
valda að þau endurskoði afstöðu
sína varðandi þessa skattlagningu
þar sem verið sé að leggja í rúst
eitt besta og jafnframt ódýrasta
stoðkerfi sem fötluðum börnum
standi til boða.
Fatlaðir eiga ekki að hafa
umframkostnað af fötlun sinni
Ásta segir að hægt og bítandi sé
verið að skerða ýmis áunnin réttindi
fatlaðra. Nú sé t.d. verið að auka
kostnaðarhlutdeild fatlaðra í hjálp-
artækjum og skerða rétt þeirra til
sjúkrapjálfunar. Hún segir að það
sé andstætt jafnaðarhugsjón að fatl-
aðir þurfi að hafa umframkostnað
af fötlun sinni. Þá gangi mjög treg-
lega að fá afgreiddar beiðnir um
sjúkraþjálfun hjá Tryggingastofnun
og þegar úrskurður kemur loks þá
sé barn oft búið að vera án sjúkra-
þjálfunar í einhvern tíma. Ásta seg-
ir að allur þessi kostnaðarauki komi
verulega illa við fjölskyldur fatlaðra
þar sem þær hafi margar litla fjár-
muni milli handanna og hún leyfir
sér að fullyrða að sumar þeirrá lifi
við verulega fátækt.
Landsþing Þroskahjálpar lýsti yfir
áhyggjum sínum varðandi trygg-
inga- og réttindamál fatlaðra barna
og skorar á stjórnvöld að virða áunn-
in réttindi þeirra.
Málefni fatlaðra flytjist ekki
til sveitarfélaga án
undirbúnings
Ásta segir eitt helsta baráttumál
fatlaðra að færa þjónustu við þá til
heimabyggðar og sé Þroskahjálp því
mjög hlynnt sameiningu sveitarfé-
laga. Nú þurfi flestar fjölskyldur
fatlaðra barna á landsbyggðinni að
sækja mikinn hluta þjónustu til höf-
uðborgarinnar og það hljóti að vera
hagsmunamál mun fleiri en fatiaðra
að geta sótt félagslega- og heilbrigð-
isþjónustu í eigið byggðarlag.
Þroskahjálp hefur varað við þeim
hugmyndum sem hreyft hefur verið
að taka út einstaka þætti eins og
leikskólagöngu fatiaðra barna og
flytja yfir til sveitarfélaga án þess
að það verði undirbúið vandlega og
að fjármagn fylgi með. „Við sjáum
þetta sem hluta af heildai-verkefna-
flutningi til sveitarfélaganna. Við
vitum af reynslu að ef ekki er vel
Ásta B. Þorsteinsdóttir
að staðið og ekki fylgir fjármagn
þá er þessum úrræðum stefnt í voða.
Við fögnum hins vegar hugmyndum
um sameiningu og vonum að þær
nái fram að ganga,“ sagði Ásta.
Miklar væntingar vistmanna
Kópavogshælis
Landsþingið ályktaði um málefni
Kópavogshælisins og harmar seina-
gang þann sem orðið hefur á flutn-
ingi íbúa þess á sambýli. Skorað er
á heilbrigðisráðuneytið og félags-
málaráðuneytið að hafa samráð um
framgang málsins. Ásta segir að
miklar væntingar hafi verið skapað-
ar meðal íbúa Kópavogshælisins og
aðstandenda þeirra og innan hælis-
ins háfi mikil vinna farið fram til
að undirbúa vistmennina, sem eru
um 130 talsins,_og fjölskyldur þeirra
undir flutning. í ályktun landsþings-
ins um málið er minnt á að búseta
fatlaðra á Kópavogshæli samrýmist
ekki lögum um málefni fatlaðra.
Ásta segir að það sem á skorti séu
stöðugildi eða mannafli til þess að
annast fólkið utan hælisins og þess-
vegna gera samtökin kröfu um að
stjórnarnefnd ríkisspítalanna ljúki
við raunhæfa áætlun um flutning
fólksins og fari að hrinda verkefninu
í framkvæmd.
Gildir frá Id. 17.30 til 19.00
EIKHÚSKVÖLDVERÐUR
FORRETTIR:
Sjávarréttarsúpa.
Skeldýr á kartöfluköku
með tómat-hvítlauk og ólífum.
Reyksoðin lundabringa
með linsubaunum og salati.
AÐALRÉTTI R:
Grísalundir
með koníaks-sveppasósu.
Nautalundir Ðijon.
Pönnusteiktur skötuselur
með humar og pasta.
E FTI RRÉTTU R:
Perur og döðlur með vanilluís.
BORÐAPANTAN1R í
SÍMA 25700
FORRÉTTUR, AÐALRÉTTUR
OG EFTIRRÉTTUR
2.500 KR.
Á MANN.
STÓRÚTSÖLIIMARKMVRINN
• i
Nýr 12 km
kafli lagður
í Suðursveit
LÆGSTA tilboð sem Vegagerðiii
fékk í lagningu 12 km kafla á
Austurlandsvegi, frá Staðará að
Reynivöllum í Suðursveit, hljóð-
aði upp á 32,1 milljón kr. sem
er 70,5% af kostnaöaráætlun.
Tilboðið var frá Árvélum hf. á
Selfossi.
Veginn í Suðursveit á að leggja
í ár og á næsta ári, þannig að hon-
um verði lokið 1. júlí. 11 verktakar
buðu í veginn og voru öil tilboðin
undir 39 milljónum. Kostnaðaráætl-
un var 45,5 milljónir.
Enn lægri tilboð bárust í Skaga-
veg, frá Hafnaá að Hrauni. Lægsta
tilboðið, frá V.Brynjólfssyni hf. á
Skagaströnd, hljóðaði upp á 6,6
milljónir sem er 56% af kostnaðar-
áætlun Vegagerðarinnar. Vegurinn
er rúmlega 7 km langur og á verk-
inu að vera lokið fyrir 1. júlí á
næsta ári.
RILDSHOFDA 10
-SÁGAMLI GÓOI -
AÐEINS TVEIR DAGAR >
i__________________________________;
Fatnadur - skór ■ skífur ■ skart ■ barnaföt
- íþróttavörur ■ vefnaðarvara ■ skólavörur ■
blóm og gjafavörur og margt margt fleira
Opið í dag föstudag
frá kl. 13-19,
á morgun laugardag
frá kl. 10-16.
Það má enginn
missa af þessum
meiriháttar markaði
Fjörug bilaviðskipti:
Vantar á skrá og á staðinn
góða bíla, helst skoðaða '94.
Ath.: Bón og þvottur á staðnum.
Bílamarkaburinn
Smiðjuvegi 46E
v/ReykjanesbrauL
Kopavogi, sími
571800 ^
OPIÐ SUNNUDAGA
KL. 13 - 18.
Lancer GLX '89, sjálfsk., ek. 47 þ.,
PontSac Transam '77, hvítur, sjálfsk., ek.
aðeins 48 þ. mílur, læst drif, flækjur o.fl.
o.fl. Óvenju gott eintak. V. 790 þús.
Toyota Corolla XL ’90, grásans, 4 g., ek.
89 þ. V. 590 þús. stgr.
Honda Prelude EX 2.0i 16v '91, grásans,
5 g., ek. aðeins 29 þ. km., rafm. í öllu, hiti
í sætum, álfelgur, sóllúga o.fl. Sem nýr.
V. 1700 þús.
Ný tímareim o.fl. V. 900 þús.
Toyota Llte Ace bensín, ’91, vsk bíll, rauð-
ur, ek. 64 þ. V. 950 þ.
M. Benz 250 ’82, beinsk. Óvenju gott ein-
tak. V. 550 þús., sk. á ód.
Toyota Corolla XL Sedan '88, 5 g., ek.
105 þ. V. 550 þús., tilboðsverð 450 þús.
stgr.
MMC Galant GLSi '89, sjálfsk., m/öllu,
ek. 71 þ. V. 990 þús., sk. á ód.
Range Rover 2ja dyra '82, beinsk., ek.
127 þ. Góður jeppi. V. 450 þús.
BMW 520 IA '90, sjálfsk., ek. 64 þ.,
m/öllu. V. 2.2 millj.
Mazda 626 LX 2000 '88, 5 g., ek. 91 þ.,
spoiler o.fl. V. 680 þús.
Daihatsu Charade CX '88, 5 dyra, grá-
sans, ek. aðeins 32 þ. V. 430 þús. stgr.
Toyota Corolla Liftback '88, sjálfsk., ek.
98 þ., góður bíll. Tilboðsverð 550 þ. stgr.
Toyota Corolla Twin Cam 16v '85, hvít-
ur. Gott eintak. V. 395 þús.
Toyota Corolla XL '88, svartur, 4 g., ek.
56 þ. Toppeintak. V. 550 þús. stgr.
Ford Bronco II XL '85, sjálfsk., ek. 50 þ.
á vól. V. 650 þús. stgr.
Mazda 323 1.5 GLX Sedan '86, sjalfsk.
V. 330 þús.
Cherokee Chlef, 4 L, '87 3ra d., sjálfsk.,
ek. 130 þ. V. 1150 þ. Sk. ód.
Toyota Corolla Liftback GTi 16v '88, 5
g., ek. 98 þ. V. 750 þús.
Chevrolet Blazer Thao '86, grár (tvílitur),
sjálfsk., ek. 86 þ. km. Gott eintak. V. 1050
þús.
Chrysler Voyager V-6 '90, brúnsans,
sjálfsk., ek. 101 þ., 7 manna, einn eig
andi. V. 1390 þús.
MMC L-300 4x4 '88, 8 manna, grár, 5
g., ek. 87 þ. V. 1090 þús., sk. á ód.
MMC Colt GL '91, 5 g., ek. 44 þ. V. 760
þús.
Cherokee Pioneer 2,5L '84, sjálfsk., ek.
79 þ. mílur. V. 690 þús., sk. á ód. (eða 2
bílum).
MMC Colt GLXI '91, 5 g.t ek. 47 þ. V.
890 þús.
Daihatsu Feroza DX '89, svartur/grár, 5
g., ek. 60 þ. km., topplúga o.fl. V. 850
þús., sk. á ód.
MMC Pajero bensín '86, brúnsans, 5 g.
ek. 89 þ., Óvenju gott eintak. V. 790 þús.
MMC Lancer 4x4 station '88, 5 g., ek.
107 þ. V. 750 þús., sk. á ód.
MMC Galant GLSi 4x4 '90, hvítur, 5 g.,
ek. 67 þ., rafm. í öllu, hiti í sætum, saml.
stuðarar, álfelgur o.fl. Toppeintak.
V. 1270