Morgunblaðið - 08.10.1993, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1993
Kór Glerár-
kirkju vantar
karlaraddir
KÓR Glerárkirkju hefur nú tekið
til starfa og er margt á döfinni
hjá kórnum í vetur.
í haust verður strax farið að æfa
aðventu- og jólalög, en hugmyndin
er að taka nokkur jólalög með kórn-
um sem yrðu tilbúin á snældu í byij-
un aðventu. Verður efni snældunnar
mjög fjölbreytt, m.a. verða kórlög í
útsetningum fyrir blandaðan kór,
kvennakór og karlakór. Einnig mun
barnakór kirkjunnar syngja með í
nokkrum lögum.
Eftir áramót verður farið að huga
að afmæli kórsins, en 12. febrúar
nk. verða 50 ár liðin frá stofnun
hans og verður þeirra tímamóta þá
minnst.
Sumarið 1992 fór kórinn í sína
fyrstu utanlandsferð, þá til Þýska-
lands og er mikill áhugi hjá kórfélög-
um að fara fljótlega aftur í aðra
utanlandsferð.
í kórnum eru nú rúmlega 40 kór-
félagar og vantar enn nokkra í karla-
raddir. Kórnum er skipt í þijá hópa
sem skiptast á að syngja við mess-
ur, en kórinn syngur allur á hátíð-
um. Æfingar eru að jafnaði einu
sinni í viku, á fimmtudagskvöldum
frá kl. 20.00- 22.15, en aukaæfingar
á þriðjudagskvöidum á sama tíma.
Þeir sem áhuga hafa á að vera með
í Kór Glerárkirkju er bent á að hafa
samband við kórstjórann, Jóhann
Baldvinsson, í Glerárkirkju eða kór-
stjórann, Evu Úlfsdóttur.
(Fréttatilkynning.)
------» ♦ ♦------
Morgunblaðið/Rúnar Þór
A slysstað
UNGUR drengur var fluttur á FSA með alvarlegan höfuðáverka eftir að hafa hjólað á bíl.
Drengrir hlaut höfuðáverka
SEX ára drengur hlaut alvarlegan höfuðáverka
eftir að hafa hjólað á bíl. Hann var fluttur á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri þar sem gert
var að meiðslum hans.
Drengurinn var að hjóla á bílaplani fyrir framan
fjölbýlishúsið við Hrísalund 16 til 20 skömmu eftir
hádegið í gær. Ökumaður bíls af gerðinni Ford Ec-
onoline kom akandi eftir Hrísalundi og inn á planið
og virðist barnið hafa hjólað inn í hlið bílsins, að
sögn varðstjóra lögreglunnar, en hann sagði að öku-
maður hefði aldrei séð bamið.
Alvarlegur áverki
Drengurinn hjólaði inn í hlið bifreiðarinnar og
lenti fyrir afturhjóli hennar. Hann hlaut alvarlegan
áverka á höfði og var fluttur á Fjórðungssjúkrahús-
ið á Akureyri. Varðstjóra lögreglunnar var ekki
kunnugt um hvort barnið hefði verið með hjálm er
atburðurinn varð.
50 manns í atvinnu-
hefst í dag- átaki í næstu viku
Bjórhátíðin
Októberfest
BJÓRHÁTÍÐIN Októberfest ’93
hefst í dag, 8. október, og stendur
hún í rúma viku, eða til 16. októ-
ber, en þetta er í annað sinn sem
slík hátíð er haldin.
Bjórhátíðin á Akureyri verður sett
að þýskum sið í miðbæ Akureyrar í
dag kl. 17 þegar októberbjórtunnum
verður ekið í kerru sem dregin er
af hestum. Homaflokkur Akureyrar
leikur undir stjórn Roars Kvams og
sungnir verða léttir þýskir slagarar
með aðstoð Aðalsteins Bergdals leik-
ara og söngvara. Gestum verður
gefið að smakka Prezels, þýskt
brauð sem vinsælt er með öli.
Ekið miili staða
í kvöld verður októberfestbjórn-
um ekið milli veitingastaða á Akur-
eyri í fylgd Hornaflokksins, Roars
Kvams og Aðalsteins Bergdals sem
stjórnar fjöldasöng. Bytjað verður á
veitingastaðnum Við Pollinn kl. 22,
hálftíma síðar verður bjórtunna opn-
uð í Blómahúsinu, þá verður haldið
á Café Karólínu og síðan í Sjallann
kl. 23.30.
Októberbjórinn verður seldur í
útsölum ÁTVR allan októbermánuð.
Það er Delta hf/Viking Brugg sem
efnir til bjórhátíðarinnar.
(Úr fréttatilkynningu.)
GERT er ráð fyrir að í næstu
viku verði um 50 manns af at-
vinnuleysisskrá að störfum í at-
vinnuátaki sem nú stendur yfir
á Akureyri. Átakið verður í gangi
næstu mánuði, en fólk fær at-
vinnu í um tvo mánuði. Um nýlið-
in mánaðamót voru 377 skráðir
atvinnulausir á Akureyri.
Sigrún Bjömsdóttir forstöðu-
maður Vinnumiðlunarskrifstofu
Akureyrarbæjar sagði að atvinnu-
leysi væri svipað á milli mánaða-
móta þegar tillit væri tekið til at-
vinnuátaksins, en í lok ágúst voru
rúmlega 400 manns án atvinnu á
Akureyri.
Um 50 í átakinu
Þeir eru nú 377 og í síðustu viku
voru um 25 manns af atvinnuleysis-
skrá að störfum við atvinnuátakið.
í þessari viku hófu um 20 manns
störf við átakið og eftir helgina
bætast enn fleiri við þannig að gera
má ráð fyrir að um 50 manns af
atvinnuleysisskrá verði við ýmis
störf á vegum bæjarins í næstu
viku.
Af þeim 377 sem voru á atvinnu-
leysisskrá um síðustu mánaðamót
Byggingafulltrúi
Héraðsráð Eyjafjarðar auglýsir eftir byggingafulltrúa
fyrir bygginganefndir Eyjafjarðarsvæðis, eystra og
vestra.
Starfið er laust frá 1. janúar 1994.
Umsóknum skal skila til Héraðsráðs Eyjafjarðar, b/t
Halldórs Jónssonar, Geislagötu 9, 600 Akureyri, fyr-
ir 1. nóvember 1993. Umsóknin greini frá aldri,
menntun og fyrri störfum.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Jónsson í síma
96-21000 og Guðný Sverrisdóttir í síma 96-33159.
Héraðsráð Eyjafjarðar.
voru 149 karlar og 228 konur.
Langflestir þeirra eru úr Verkalýðs-
félaginu Einingu eða tæplega 160
manns, 80 manns úr Félagi verslun-
ar- og skrifstofufólks voru skráðir
atvinnulausir og rúmlega 60 félags-
menn í Iðju, félagi verksmiðjufólks.
Sigrún sagði að það sem af væri
vikunni hefðu nýskráningar verið
svipaðar og verið hefði undanfarna
mánuði. „Það kemur alltaf góð gusa
hingað á skrifstofuna rétt eftir
mánaðamót og þessi voru engin
undirtekning," sagði Sigrún.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Gjöf afhent
TÓLF Rauðakrossdeildir á Norðurlandi hafa gefið nýjan búnað til
notkunar í sjúkraflugi. Myndin var tekin við afhendingu búnaðarins.
Gáfu búnað til notk
unar í sjúkraflugi
TÓLF Rauðakrossdeildir á Norðurlandi, frá Hvammstanga til Þórs-
hafnar, hafa afhent Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, Flugfélagi
Norðurlands og Slökkvistöð Akureyrar sérstakan búnað til notkunar
í sjúkraflugi, grind sem fest er á sætafestingar í gólfi flugvéla.
Þessi nýji búnaður gerir störf og því mikilvægt að sambærilegur
sjúkraflutningamanna léttari, eyk-
ur þægindi fyrir sjúklinga og gjör-
beytir aðstöðu hjúkrunarfólks. í
grindinni er geymdur súrefniskútur
og fylgir sérstakur skápur sem í
er m.a. hjartarafsjá, hjartastuð-
tæki, súrefnisskömmtunartæki,
öndunarvél og sogtæki. Neyðarbún-
aður er í langflestum siúkrabílum
búnaður sé tiltækur í flugvélum
þannig að tryggð sé viðunandi að-
hlynning fyrir sjúklinginn alla leið.
Þá er ekki síður mikilvægt að lækn-
ar og hjúkrunarfólk þurfí ekki að
flytja með sér neyðarbúnað úr hér-
aði ef til þess kæmi að hann þyrfti
að nota meðan á flugi stendur.
Frímerkja-
markaður í
Kringhmni ,
DAGUR frímerkisins verður
laugardaginn 8. október nk. >
Félag frímerkjasafnara á "
höfuðborgarsvæðinu hafa
ákveðið að minnast þessa dags |
með nokkuð öðrum hætti en •
venja hefur verið.
Félögin munu halda frímerkja-
markað í göngugötu Kringlunnar
á opnunartíma verslana kl. 10 til
16. Þar mun almenningi gefast
kostur á að kynna sér starfsemi
félaganna og frímerkjasöfnun al-
menn. Félagar munu einnig bjóða
aukaefni sitt til sölu eða í skiptum.
Þetta er í fyrsta sinn í langan
tíma sem efnt er til_ almenns frí-
merkjamarkaðar á íslandi og er
það von aðstandenda að almenm
ingur taki þessari nýbreytni vel. í
nágrannalöndum okkar eru slíkir
markaðir hluti af borgarbragnum t
í flestum stærri sveitarfélögum, *
segir í frétt frá frímerkjasöfnur-
um.
Á höfuðborgarsvæðinu starfa
nú þrjú félög: Félag frímerkjasafn-
ara, Klúbbur Skandinavíusafnara |
og Islenskir mótífsafnarar. Félög-
in halda öll fundi síðan að Síðu-
múla 17. Unglingastarf er stór
hluti af starfsemi félaganna og
má benda á að þijú söfn unglinga
verða sýnd í Kringlunni 6.-9.
október á vegum póststjórnarinn-
ar. Einnig verður þar flugsögusafn
Páls H. Ásgeirssonar.
-----» » ♦----
Námskeið
fyrir að-
standendur 1
alkóhólista
Á NÆSTUNNI verða haldin |
kvöld- og helgarnámskeið fyrir *
aðstandendur alkóhólista í fjöl-
skyldudeild fræðslu- og leið-
beiningarstöðvar SÁÁ við Síðu-
múla 3-5.
Helgarnámskeið fyrir byijendur
verður haldið laugardaginn 9.
október og sunnudaginn 10. októ-
ber frá kl. 9-17 báða dagana.
Fimm vikna kvöldnámskeið sem
haldið er á mánudags- og miðviku-
dagskvöldum hefst 18. október.
Á námskeiðunum verður leitast
við að auka þekkingu þátttakenda
á alkóhólisma og hvaða áhrif sjúk-
dómurinn getur haft á þá sem búa
eða hafa búið við hann. Reynt |
verður að aðstoða þátttakendur
við að koma af stað breytingum
til bóta í mannlegum samskiptum j
innan fjölskyldunnar og utan.
Námskeiðin eru sniðin fyrir alla
fjölskyldumeðlimi. Einnig eru )
námskeiðin tilvalin fyrir alkóhól-
ista sem hafa verið óvirkir í eitt
ár eða lengur og hafa búið við
alkóhólisma.
Námskeiðsgjald er 8.000 kr.
fyrir kvöldnámskeið og 5.000 kr.
fyrir helgarnámskeið. Nánari upp-
lýsingar veitir SÁÁ.
--» » «-
Geirmundur á
Hótel íslandi
GEIRMUNDUR
Valtýsson og
hljómsveit hans
leika í kvöld,
föstudaginn 8.
október, á Hótel
Islandi. Geir-
mundur hefur átt
ýmis vinsæl lög
í gegnum tíðina,
t.d. Lífsdansinn,
Ort í sandinn
o.fl.
Gcirmundur
Vnltvsson