Morgunblaðið - 08.10.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1993
19
OJafur Ragnar kynnir „þriðju leiðina“ í efnahagsmálum
Utflutningnr verði for-
gangsatriði í hagstjórn
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, for-
maður Alþýðubandalagsins,
sagði við umræður um stefnu-
ræðu forsætisráðherra á Alþingi
sl. þriðjudagskvöld að Alþýðu-
bandalagið hefði að undanförnu
mótað nýja leið til að fást við
efnahagsvandann, „þriðju leið-
Islenskur
jazzdiskur
kominn út
GENGIÐ á lagið er heitið á
geisladiski Sigurðar Flosasonar
saxófónleikara og tónskálds
sem er nýútkominn hjá Jazzís-
útgáfunni. A disknum flytur
Sigurður ásamt félögum tíu
jazzlög eftir sjálfan sig en disk-
urinn var tekinn upp í Hljóð-
smiðjunni um það leyti sem
hljómsveitin lék á Listahátíð í
Hafnarfirði í sumar.
Með Sigurði leika danski bassa-
leikarinn Lennart Ginman, Pétur
Östlund trommuleikari, Eyþór
Gunnarsson píanóleikari og
sænski trompetleikarinn Ulf Adá-
ker. Tónlistin er fjölbreyttur og
kraftmikill órafmagnaður jazz þar
sem bregður fyrir blúsum, völsum,
sömbum, ballöðum og ýmsu fleiru.
Sigurður Flosason hefur verið í
hópi atkvæðamestu jazzleikara
íslands um árabil. Hann hefur leik-
ið víða erlendis og hlotið viður-
kenningar fyrir leik sinn og tón-
smíðar.
Jazzís er nýtt útgáfusamlag
Jazzdeildar Félags íslenskra
hljómlistarmanna og Jazzvakning-
ar. Japis dreifir disknum og stefnir
hljómsveitin að formlegum útgáfu-
tónleikum þegar nær dregur jól-
um.
GENGIÐ á lagið, nýr jazzdiskur
frá Sigurði Flosasyni.
firfi GíEcfa
« « eldhús-
innréttin^:
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
I3ICMIEGA
vítamín og kalk
fæst í apótekinu
IMN
Vinn ngstölur
6. okt. 1993
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
a 6 af 6 0 80.325.000
a 5 af 6 +bónus 0 673.295
ð 5af6 9 58.779
a 4 af 6 433 1.943
a 3 af 6 +bonus 1.553 232
Aðaltölur:
®<§)@
@@@
BÓNUSTÖLUR
(7) @(48)
HeildarupphæO þessa viku
82.728.921
á isi.: 2.403.921
UPPLYSINGAR, SlMSVARI 91- 68 15 11
LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
nim MCt) FYRIRVARA UM PRENTVILUUR
ina“, sem hann kallaði svo, og
sagði hana byggða á rannsóknum
fremstu hagfræðinga á Vestur-
löndum.
Ólafur sagðist hafna leið ríkis-
stjórnarinnar, sem hann sagði að
fælist í samdrætti og niðurskurði
og einnig þeirri leið sem Jóhanna
Sigurðardóttir hefði verið að gæla
við að undanförnu, sem fælist í að
gefa hallanum lausan tauminn og
taka erlend lán í trausti þess að
ný eftirspurnaralda myndi keyra
þjóðfélagið upp úr öldudalnum.
Ólafur sagði þriðju leiðina fela í
sér að útflutningurinn yrði gerður
að forgangsatriði í hagstjóminni,
að breyta áherslum banka og lána-
sjóða og skattamála á þann veg að
smáfyrirtæki og miðlungsstór fyrir-
tæki fengju forgang til að efla hag-
vöxtinn, útflutningsstarfsemina og
framleiðsluna, og að búa til víðtækt
samstarf atvinnulífs, stjórnvalda,
launafólks, fræðimanna, vísinda-
manna og hugsuða til að fara nýjar
leiðir og nýta hugvitið og beita réttri
hagstjórn til að skapa hagsæld á
nýjan leik.
Frá Vedes leikfangaversluninni í Fákafeni f.v. Edda Smith, Anna
Sigurðardóttir og Kolbrún Jónsdóttir.
Vedes leikföng flylja
VEDES leikföng hafa flutt sig
frá Grensásvegi í Fákafen 9,
gegnt McDonalds-skyndibita-
staðnum.
Verslunin er í 500 fm húsnæði
og er meðlimur í samnefndu inn-
kaupasambandi, því stærsta í Evr-
ópu. Leikföng eru fyrir krakka á
öllum aldri. Vedes leikföng eru
einnig í Kringlunni 8-12. Eigend-
ur eru Guðberg Kristinsson og
Kolbrún Jónsdóttir.
Nýtt forrit
Fyrirtækið Menn og mýs hf. hef-
ur hannað nýtt forrit fyrir út-
reikning neytendalána. A mynd-
inni er Sigurður Ragnarsson,
einn af höfundum forritsins.
Nýtt forrit
fyrir neyt-
endalán
FYRIRTÆKIÐ Menn og mýs hf.
hefur sett á markað nýtt forrit,
Trygg, sem vinnur úr upplýs-
ingum um neytendalán. Með
forritinu er unnt að reikna út
greiðslubyrði, heildarlántöku-
kostnað og árlega hlutfallstölu
kostnaðar. Þessar upplýsingar
þurfa að liggja fyrir hjá fyrir-
tækjum sem veita neytendalán
samkvæmt nýjum löguin sem
tóku gildi um mánaðamótin.
Forritið skrifar út sérstakt
fylgiskjal með lánssamningi sem
lánveitandi og lánþegi geta undir-
ritað til að staðfesta sameiginleg-
an skilning á kjörum og greiðslu-
byrði. Þar er að finna upplýsingar
um heildarlántökukostnað, árlega
hlutfallstölu kostnaðar, sundurlið-
un afborgana og lánskjör, að því
er segir í frétt frá fyrirtækinu.
(9&9
kynnir Kringlukast
KRINGWN
,o^uiuoitm
1 vikunni
'A, T-v
Afgrciðslutlmí Kringlunnar:
Mánudaga til fimmtudaga 10 -18.30
föstudaga 10 - 19,
laugaidaga 10 -16.