Morgunblaðið - 08.10.1993, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1993
Fá kvóta
fyrir slæm-
ar fréttir
Peking. Reuter.
KÍNVERSK stjórnvöld hafa
ákveðið að losa um takið á fjöl-
miðium. Fá þau leyfi til að flytja
svokallaðar neikvæðar fréttir
samkvæmt sérstökum kvóta.
Samkvæmt nýja ritfrelsiskvótan-
um verður kínverskum fjölmiðlum
heimilt næstu þijá mánuðina að
flytja „slæm“ tíðindi, að sögn Xin-
/ma-fréttastofunnar.
Um 100 blaða- og fréttamenn frá
Dagblaði alþýðunnar, Xinhua, ríkis-
sjónvarpinu og öðrum fjölmiðlum
hafa fengið það verkefni næstu þrjá
mánuðina að færa þjóðinni fregnir
af alls kyns umhverfisvanda í Kína.
Kínverskir fjölmiðlar hafa sætt
strangri ritskoðun og hefur bann
legið við svokölluðum neikvæðum
fréttum sem taldar eru geta komið
óorði á Kommúnistaflokkinn eða rík-
isstjórnina.
Þrátt fyrir hið nýja frásagnar-
frelsi fylgir þó sá böggull skammrifi
að blaðamönnunum er uppálagt að
vera jákvæðir í umfjölluninni.
Reuter.
Major og Thatcher
ÞAÐ VAKTI athygli að Major heilsaði ekki Thatcher með kossi er þau hittust á flokksþingi íhaldsflokks-
ins í Blackpool í gær. Þó virtist fara ágætlega á með þeim og sést Thatcher hér taka utan um hönd Majors.
Leiðtogar mætast á flokksþingi breska íhaldsflokksins í Blackpool
Major þótti fá innilegri
móttökur en Thatcher
Blackpool. Reuter.
FULLTRÚAR á þingi breska íhaldsflokksins í Blackpool fögn-
uðu Margaret Thatcher ákaft er hún mætti á þingið í gærmorg-
un. Fimm þúsund þingfulltrúar stóðu upp og klöppuðu í tvær
mínútur og hrópuðu „Maggie, Maggie“ og „ræða, ræða“ er
hin bláklædda ,járnfrú“ gekk brosandi inn salinn. Móttökurn-
ar þóttu hins vegar ekki jafn yfirþyrmandi og hún fékk á
flokksþinginu í fyrra. Væntanlegar endurminningar Thatcher
hafa verið mikið til umræðu á þinginu, ekki síst vegna birt-
inga blaðsins Daily Mirror á meintum tilvitnunum í þær, þar
sem lítið er gert úr hæfileikum Johns Majors forsætisráðherra.
Major fékk einnig góður móttökur Major forvera sínum með kossi.
er hann gekk inn í salinn hálfri
klukkustund á eftir Thatcher og
þóttu þær töluvert hlýlegri en þær
sem hún fékk. Nokkur spenna ríkti
um hvernig Major og Thatcher
myndu heilsast en í fyrra heilsaði
Vakti það athygli að nú tókust þau
einungis í hendur og skiptust á
nokkrum vinalegum orðum.
Áhersla á samstöðu
Flestir helstu leiðtoga íhalds-
flokksins hafa lagt gífurlega áherslu
á samstöðu með Major á þinginu og
nauðsýn þess að flokksmenn standi
saman. í gær var röðin komin að
Kenneth Ciarke fjármálaráðherra,
sem af mörgum er talin líklegasti
eftirmaður Majors, hrökklist hann úr
embætti. Er talið að hann hafi ekki
síst beint orðum sínum að Thatcher
er hann sagði: „Allir óvinir Johns
Majors eru óvinir mínir. Óvinij Maj-
ors eru þar að auki ekki vinir íhalds-
flokksins. Því skulum við standa á
bak við forsætisráðherrann og leyfa
honum að leiða okkur til bjartari
framtíðar."
Meira að segja Norman Lamont,
fyrrum fjármálaráðherra, tók upp
Spenna í Bihac vegna
innbyrðis átaka múslima
Bihac, Belgrad, Lúxemborg. Reuter.
SPENNA ríkti í vesturhluta Bosníu, Bihac-héraðinu, í gær
og tilraunir til að koma á vopnahléssamningum milli stríð-
andi fylkinga múslima tókust ekki. Þá áttu sér stað skotbar-
dagar í höfuðborginni Sarajevo og skutu serbneskar leyni-
skyttur m.a. á franska friðargæsluliða sem svöruðu fyrir sig
með þungavopnum.
Bardagar hafa aukist í lýðveldum
fyrrum Júgóslavíu eftir að Samein-
uðu þjóðirnar (SÞ) framlengdu um-
boð sitt til friðargæslu í Bosníu,
Króatíu og Makedóníu um sex mán-
uði. Múslimar í Bihac-héraði hafa
lýst yfir sjálfstæði frá Bosníu og
sagði bosníska útvarpið í gær að 15
manns hefðu látist og 45 særst í
átökum múslima undanfarin sólar-
hring. Þar börðust stuðningsmenn
uppreisnarleiðtogans Fikret Abdic
og stjórnarhermenn. Atti yfirmaður
friðargæslusveita SÞ fund með báð-
um deiluaðilum í gær til að reyna
að stöðva átökin.
Utanríkisráðherra „Júgóslavíu",
Serbíu og Svartfjallalands, Vladislav
Jovanovic, sagði í vikunni að end-
urnýjað umboð SÞ minnkaði líkurnar
á því að friður kæmist á í Bosníu,
þar sem fleiri skilyrði væru nú fyrir
því að viðskiptabanni á landið yrði
aflétt. Þá hafa Serbar í Krajina-hér-
aði í Króatíu mótmælt harðlega
áframhaldandi veru friðargæslu-
sveita SÞ og segja að þar með sé
verið að taka afstöðu með Króötum
gegn Serbum.
hanskann fyrir Major en hann hefur
verið gagnrýninn í garð forsætisráð-
herrans eftir að honum var vikið úr
embætti fyrr á árinu. Töldu margir
jafnvel hugsaniegt um tíma að Lam-
ont byði sig fram gegn Major.
„íhaldsflokkurinn verður að vinna
næstu kosningar. Það er meginverk-
efni okkar. Ég er í engum vafa um
það að John Major geti leitt okkur
til sigurs,“ sagði Lamont hins vegar
í gær.
Flokkurinn til hægri?
Sumir fréttaskýrendur hafa túlkað
fyrstu tvo daga flokksþingsins sem
svo að John Major hyggist færa
flokkinn til hægri til að koma til
móts við Thatcher og skoðanabræður
hennar og reyna þannig að sameina
flokkinn.
Þessu til sönnunar benda menn á
þá hörðu stefnu í löggæslumálum
sem Michael Howard inannríkisráð-
herra kynnti á miðvikudag og boðað-
ar aðgerðir Peter Lilley félagsmála-
ráðherra gegn þeim einstaklingum
sem nýta sér velferðarkerfið í auðg-
unarskyni.
Þá hefur grein er Major ritaði um
Evrópuhugsjón sína í tímaritið Ec-
onomist fyrir tveimur vikum hlotið
góðar undirtektir í flokknum. „Ég
veit ekki um neinn íhaldsmann sem
gæti ekki stutt þessa stefnu," sagði
til dæmis Michael Portillo, fjárlaga-
ráðherra sem nú er helsta átrúnaðar-
goð hægrimanna í flokknum í ríkis-
stjóminni.
Það eina sem benti til annars en
hægrisveiflu á þinginu var ræða fjár-
málaráðherrans Clarke en hann gaf
í skyn að skattahækkanir yrðu lagð-
ar til í næsta fjárlagafrumvarpi.
Innanlandslína Flugleida
Farpantanir og saía farmiða í innanlandsflugi.
Upplýsingar um ferðargjöld og ferðir innanlands.
Opið alla daga frá
kl. 08.00 - 18.00.
FLUGLEIDIR W0
Rættum
aðgang að
Jerúsalem ;
YITZHAK Rabin, forsætisráð- .
herra ísraels, og Yasser Ara-
fat, leiðtogi Frelsissamtaka
Palestíunu, samþykktu á mið-
vikudag að ræða aðgang Pal-
estínumanna að Jerúsalem en
strangar reglur um hann hafa
gilt síðustu sjö mánuði. Samn-
ingaviðræður um stöðu Jerúsal-
em verða hins vegar látnar bíða
síðari tíma.
Hermálafull-
trúar reknir
PÓLVERJAR vísuðu hermála-
fulltrúa rússneska sendiráðsins
í Varsjá, Vladímír Lomakín, úr
landi í síðustu viku vegna
njósna. Svöruðu Rússar fyrir
sig í fyrradag með því að reka
Roman Hormoza, pólska her-
málafulltrúann í Moskvu, heim.
Ræða um mörk
milli Færeyja
og- Hjaltlands
FULLTRÚAR Færeyinga og
Dana annars vegar og Breta
hins vegar hófu á miðvikudag
viðræður sem vonast er til að
skili árangri í deilu ríkjanna um
mörk lögsögunnar milli Fær-
eyja og Hjaltlands. Deilan hefur
tafið olíuleit á þessum slóðum.
Færeyingar vilja að svonefnd
miðlína gildi en Bretar eru því
andvígir, segja slík mörk færa
Færeyingum yfirráðasvæði
sem sé í engu samræmi við
stærð landsins.
Rússnesk
kosning
HAYDAR Aliyev, fyrrum full-
trúi í stjórnmálaráði Sovétríkj-
anna og leyniþjónustumaður,
vann öruggan sigur í forseta-
kosningum í Azerbajdzhan,
sem fram fóru 'á sunnudag en
úrslit voru fyrst birt í á mið-
vikudag. Aliyev hlaut 98,8%
atkvæða. Kjörsókn var 96%.
Handtökur í
Flórída
FJÓRIR táningspiltar hafa ver-
ið handteknir á Flórída vegna
morðs á breskum ferðamanni,
Gary Colley, 14. september. Er
13 ára piltur þeirra yngstur.
Spara orku í
Ukraínu
STJÓRNVÖLD í Úkraínu hafa
skipað fólki og fyrirtækjum að
spara gas og raforku til þess
að koma í veg fyrir neyðar-
ástand í vetur vegna fyrirsjáan-
legs orkuskorts. Rússar hafa
dregið úr gas- og olíusölu til
Úkraínu og óvissa ríkir um
framtíð þeirra viðskipta.
Tengsl há-
spennu og
krabbameins?
VERIÐ getur að börn sem búa
innan 50 metra frá háspennu-
línum eigi frekar á hættu að
fá krabbamein en önnur börn.
Þetta kemur fram í grein sem
birtist í læknaritinu Brítish
Medical Journal í dag. Orsökin
er talið vera segulsvið í kring-
um raflínurnar, sein er öflugra
en venja er. Greinin er byggð
á rannsóknum í Danmörku og
Finnlandi. Tekið er fram í
greininni að ekki sé þó um
meiriháttar heilsufarsvanda að
ræða.
—