Morgunblaðið - 08.10.1993, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1993
29
Minning
Margrét Jenný Guð
■ mundsdóttir, As-
bjarnarstöðum
I Fædd 11. desember 1903
Dáin 25. september 1993
Lækkar lífdaga sól.
Löng er orðin mín ferð.
Fauk í faranda skjól,
fegin hvíldinni verð.
Guð minn, gefðu þinn frið,
gleddu’ og blessaðu þá,
sem að lögðu mér lið.
Ljósið kveiktu mér hjá.
(H. Andrésdóttir.)
Hún Magga okkar hefur fengið
hvíld eftir langa æviferð. Það er
margs að minnast frá samferð okk-
ar með henni og klökkvi bærir á
sér nú að leiðarlokum.
Hún hét fullu nafni Margrét
Jenný og fæddist á Stöpum á
Vatnsnesi 11. desember 1903, en
fluttist með fjölskyldu sinni að
Gnýsstöðum í sömu sveit á öðru
árinu. Þar ólst hún upp hjá foreidr-
um sínum, Marsibil Árnadóttur og
Guðmundi Jónssyni, ásamt systkin-
um sínum þeim Árna, Jóhannesi,
✓ Sesilíu og Emilíu.
Á Gnýsstöðum er ákaflega fal-
legt og þar átti Magga sterkar
rætur. Sagði hún okkur frá leikjum
sínum í klettunum við bæinn og
niður við sjó og að hún hefði alltaf
sóst eftir að elta bræður sína, þeir
hefðu gert svo margt skemmtilegt.
En auðvitað hefðu þeir verið sárleið-
ir að hafa alltaf þessa stelpu í eftir-
dragi.
Ung að árum fór hún vinnustúlka
að Flatnefsstöðum til ömmu okkar
og afa, Þórdísar Gísladót.tur og Jó-
sefs Guðmundssonar, er bjuggu þar
ásamt sonurtl sínum þeim Lofti og
Guðjóni. Hjá þeim lengdist dvöl
hennar, en þau Loftur giftu sig 11.
júlí 1926. Þau bjuggu fyrstu árin á
Flatnefsstöðum og síðan á Tjörn,
en keyptu svo jörðina Ásbjarnar-
staði og fluttist fjölskyldan þangað
vorið 1936. Foreldrar okkar, Guðjón
og Sigrún, bjuggu einnig á Ásbjarn-
arstöðum frá 1940. Þar voru bæði
heimilin undir sama þaki til ársins
1955 og er ekki undarlegt þó að
okkur hafi alltaf fundist Magga
vera ein af fjölskyldunni.,
Jósef lést sumarið 1936 og eftir
það var Þórdís til heimilis hjá
Möggu og Lofti en tengdadæturnar
önnuðust hana í sameiningu þar til
yfir lauk. Hún lést 1965. Á heimili
þeirra Möggu og Lofts ílentist einn-
ig Guðmundur Jónsson, sem hafði
verið hjá fyrri ábúendum jarðarinn-
ar, og var hann búsettur á Ásbjarn-
arstöðum til æviloka.
Það var því jafnan margt um
manninn í gamla bænum á þessum
árum og þótt Möggu og Lofti yrði
ekki barna auðið var ætíð margt
af börnum og unglingum hjá þeim
til dvalar, sum komu ár eftir ár.
Þrír drengir voru þó lengur en aðr-
ir og má raunar nefna þá fóstur-
syni þeirra. Systursonur Möggu,
Guðmundur Eðvaldsson, kom til
þeirra aðeins fjögurra ára gamall
og var þar fram yfir fermingu.
Magnús Ánnasson kom tólf ára og
dvaldist hjá þeim í tíu ár og Magn-
ús Kristjánsson var á tólfta ári er
hann kom til þeirra og átti þar
heimili til fullorðinsára. Víst er að
Möggu þótti ákaflega vænt um þá
alla.
Magga hafði yndi af blómum og
átti mikið af þeim í gluggunum sín-
um og lítinn blómagarð bjó hún til
við gamla bæinn á Ásbjarnarstöð-
um. Á efri árum, eftir að hún flutt-
ist til Hvammstanga, eignaðist hún
lítið gróðurhús í garðinum sínum.
Þar ræktaði hún rósir og fleiri blóm,
tómata, gúrkur og vínvið og var
gaman að vera vitni að þeirri
ánægju sem þetta veitti henni.
Magga var afskaplega kvöld-
svæf, svo að okkur unglingunum
þótti jafnvel nóg um, en hún vakn-
aði líka fyrir allar aldir á morgnana
og var oft búin að sitja lengi við
hannyrðir er aðrir fóru á stjá, en
handavinna þótti henni afskaplega
skemmtileg. Það eru líka næstum
óteljandi myndirnar og púðarnir —
ásamt fjölmörgu öðru — sem hún
vann í höndunum. Flesta hlutina
gaf hún vinum og vandamönnum
og hafði þannig tvöfalda gleði af
þessum sköpunarverkum sínum.
Mikill dýravinur var hún og nær-
færin við þau. Ævinlega var kallað
á Möggu ef þurfti að hjálpa kind
að bera eða binda um brotinn fót.
Síðasta hundinn sinn, Trygg gamla,
kvaddi hún með þessum orðum:
„Hafðu þökk, blessað dýrið mitt.“
Má telja víst að þá hefur Möggu
vöknað brá, þó að ekki væri hún
gjörn á að flíka tilfinningum sínum.
Hún var stundum snögg uppá lagið
og átti til að vera stutt í spuna.
Kannski var hún einmitt þá að dylja
tilfinningar sínar, en á bak við var
hlýtt og tilfinningaríkt hjarta. Ef
hún gat, þá rétti hún þeim hjálpar-
hönd sem hún vissi að þyrftu þess
með og það var þó nokkuð o_ft. Hún
sagði þá ef um var rætt: „Ég verð
alltaf ríkari af að hjálpa.“ Eflaust
var það rétt.
Magga hafði þann skemmtilega
sið að baka „sólarlummur“ þegar
sólin skein á bæinn eftir að hún
hafði ekki sést í nokkrar vikur í
skammdeginu. Þá sagði Magga „hæ
gaman", en þessi tvö orð notaði hún
gjarnan er hún gladdist yfir ein-
hveiju. Hún hlakkaði alltaf til vors-
ins og sumardagurinn fyrsti var
sannkallaður hátíðisdagur. Fáni var
dreginn að húni og hlustað á skáta-
messuna í útvarpinu og Magga
hafði sérstakt dálæti á sumarkomu-
sálmunum.
Ef þú velur þér vorið til fylgdar
og vorið er sál þinni skylt
og vitirðu hvað þú vilt,
þér treginn lækkar
og trúin stækkar
og himinninn hækkar.
(Guðmundur Kamban.)
Þetta erindi, sem Magga hafði.
skrifað á lítinn miða, fannst nýlega
inní bók sem hún átti. Já, vorið var
í sál Möggu.
Minningar okkar systkinanna um
Möggu miðast einkum við æsku-
heimilið okkar, Ásbjarnarstaði, og
I
Elísabet Erlends-
dóttir — Minning
Fædd 23. október 1899
Dáin 26. september 1993
Elísabet Erlendsdóttir var bæjar-
hjúkrunarkona í Hafnarfirði, bjó ein
og sinnti starfi sínu á tímum þegar
konum var einkum ætlað að giftast
og geta börn. Hún fór allra sinna
ferða fótgangandi og væri maður á
ferli í bænum var eins víst að hún
yrði á vegi manns. í huga mér er
mynd: Vestur Strandgötu gengur
há kona og grönn með hárið vafið
í hnút í hnakkanum. Hún er afar
vel til fara, í grárri síðri kápu og á
svörtum skóm með stóra svarta
tösku, undir kápunni glittir í stífaða
hvíta svuntu. Hún þekkir hvern
mann sem á vegi hennar verður,
heilsar öllum en leggur mismikið í
kveðjuna. Mannvirðingar ráða því
síst hver er kvaddur af mestri hlýju.
Hún var á miðjum aldri þegar
ég kynntist henni. Hún var vinur
móður minnar og þar með okkar
allra. Hún var stolt kona en hóg-
vær, mjög stillt, greind og vellesin
og hafði gaman af að ræða jafnt
um pólitík sem bókmenntir. Hún
var skýrmælt og lagði þannig
áherslur að menn mundu yfirleitt
orðrétt það sem hún sagði, líka
þeir sem aldrei hafa getað munað
neitt hvorki fyrr né síðar. Hún átti
til að leggja sína eigin merkingu í
orð og nota þau á annan hátt en
venja var. Orðið frú var t.d. virðing-
arorð sem hún notaði yfirleitt bara
um tvær konur og þá með stutt-
nefni þeirra. Tæki hún sér það í
munn um aðra var það ískrandi
háðskt — gott ef ekki löng samfé-
lagsádeila. Hún var hins vegar ekki
margmál alla jafna. Kannski hafði
hún ekki þörf fyrir orð á sama hátt
og aðrir. Hún þurfti ekki annað en
horfa á mann til að maður vissi
hvort henni líkaði betur eða verr
og hún var hreinskiptin og lá ekki
á skoðun sinni í augunum.
Hún stundaði móður mína oft í
veikindum hennar en lægi mamma
á sjúkrahúsi, kom hún gjarna að
vinnu lokinni að líta til með okkur.
Þá gaf hún okkur fleira en flestir
aðrir sem við höfum kynnst. Ég er
ekki bara að hugsa um allt sem hún
dró upp úr töskunni stóru sem
stundum var eins og hvítur dúkur
í ævintýri: Hókus pókus — hand-
klæði með fangamarkinu okkar,
pílarókus — vettlingar út í snjóinn.
Ég er ekki heldur bara að hugsa
um allt sem hún hjálpaði okkur við;
að elda, að hreinsa, að finna snið
og telja út krosssaum. Nei, mest
gaf hún með því sem hún var. Sem
barn fannst mér hún alltaf svo
merkilega fín og rakti það til fat-
anna hennar sem ég stalst stundum
til að þukla af því að þau voru svo
falleg. Uppkomin vissi ég að í tötr-
um hefði hún verið jafnfín. Hún var
einfaldlega siðfáguð í bestu merk-
ingu þess orðs. Slíkt fólk er fágætt
en það hverfur manni aldrei, hafi
það orðið á vegi manns. Ekki held-
ur þegar það deyr og maður þakkar
því samfylgdina.
Bergýót S. Kristjánsdóttir.
xtraStarka
Beiskur brjóstsykur - einnig án sykurs
gamla bæinn. Þar sjáum við hana
fyrir okkur enn í dag.
Eftir að við fluttumst í nýja hús-
ið bárum við leikföng og hvers kyns
dót fram og aftur milli bæjanna og
mátti segja að við ættum heima á
tveimur stöðum. Oft leituðum við
til hennar ef á bjátaði, þá þurrkaði
hún tár, gerði að smáum sárum og
vermdi kaldar hendur. Hún var til-
búin að taka þátt í svo mörgu, söng
með okkur í rökkrinu, hjálpaði til
að fela í feluleiknum og leikurinn
að „hugsa sér hlut“ var sérstaklega
vinsæll. Henni datt svo margt snið-
ugt í hug til að láta okkur geta upp
á og skemmti sér þá ekki síður en
við. Og mikið var spennandi þegar
hún fór á mótorhjólið 'með Obbu.
Ekki vorum við heldur öll há í
loftinu þegar við létum vekja okkur
fyrir allar aldir á bolludagsmorgun
til að fara upp i gamla bæ að flengja
fólkið þar. Þessar ferðir voru ómiss-
andi fyrir okkur krakkana og gilti
þá einu að þó oft væri kalt að koma
út og ekki laust við að sumir hlypu
skjálfandi þennan stutta spöl á milli
bæjanna. Þegar við höfðum svo
vakið heimilisfólkið — sem eflaust
þóttisf bara sofa — fór Magga á
fætur, bakaði bollur og hitaði kakó
handa okkur og vorum við þá fljót
að gleyma kulda og hrolli.
Þá eru jólin í gamla bænum sér-
stök í minningunni. Hátíðleikinn við
aftansönginn í útvarpinu, kertaljós-
in á jólatrénu, fína bollastellið henn-
ar Möggu sem við drukkum súkkul-
aðið úr og leyndardómsfulli kassinn
sem hún var búin að passa svo
vandlega en dró þá fram og hafði
að geyma alla pakkana. Þetta
gleymist aldrei.
Því miður var Magga ekki heilsu-
hraust, sérstaklega var astmi henni
þungur fylginautur um árabil. Við
héldum stundum að hún væri að
kafna er verst lét og oft varð hún
að leggjast ásjúkrahús. Miklir erfið-
leikar voru líka samfara veikindum
manns hennar sem lést sumarið
1964. Og þungt varð henni að missa
hann, en mjög var kært með þeim
hjónum og enginn vafi að þau mátu
hvort annað mikils í trú og kær-
leika. Fyrir fáum árum sagði Magga
að hún kviði ekki fyrir að fara, hún
vissi að Loftur sinn tæki á móti sér.
Móðir okkar, sem nú er ein orðin
eftir af fullorðna fólkinu í gamla
bænum, þakkar Möggu _svilkonu
sinni samveru liðinna ára. Á kveðju-
stund er okkur einnig efst í huga-
þakkæti fyrir að hafa átt hana
Möggu og fyrir að vita að henni
fannst hún líka eiga svo mikið í
okkur.
Öllum ástvinum Möggu biðjum
við blessunar og kveðjum hana með
orðum sálmaskáldsins Valdimars
Briem:
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem)
Systkinin frá Ásbjarnar-
stöðuni.
Skeifunni 13 Auðbrekku 3 Norðurtanga3
Reykjavík Kópavogi Akureyri
(91) 68 74 99 (91)4 04 60 (96) 2 66 62