Morgunblaðið - 08.10.1993, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1993
33
J
I
i
I
)
I
d
I
I
>
>
Flugfrímerki 9. október
_________Frímerki
Jón Aðalsteinn Jónsson
í síðasta þætti var sagt frá
smáörk þeirri með þremur frí-
merkjum, sem póststjórnin gefur
út á Degi frímerkisins 9. okt. nk.
En jafnframt því koma út fjögur
önnur flugfrímerki þennan dag.
Þessi útgáfa er í beinu fram-
haldi af þeirri útgáfu, sem hófst
á Degi frímerkisins 9. okt. 1991,
þegar frímerki með myndum af
póstskipum voru gefin út í átta
frímerkja örk, sem m.a. var sett
í mjög smekklegt hefti. Sama
gerðist svo aftur ári síðar, en þá
var myndefnið póstbílar. Og nú
er komið að þriðja farartækinu,
sem kemur við póstsögu íslend-
inga, póstflugvélum.
Nokkrir framsýnir menn fengu
enska þriggja manna flugvél hing-
að til lands árið 1919, og þá var
stofnað Flugfélag íslands hið
fyfofo rv-\4-l• —- — - * r
rvrsT.a_ Vcu 40 kuma a
föstum flugferðum til staða úti á
landi, en sökum vantrúar og fjár-
skorts varð ekkert úr þessu, en
flugvélin einungis notuð til
skemmtiferða í nágrenni Reykja-
víkur sumurin 1919 og 1920. Síð-
an lognaðist félagið út af.
Næsta tilraun var gerð -árið
1928 og þá stofnað Flugfélag ís-
lands, annað í röðinni. Tók það á
leigu þýzka Junkers-sjóflugvél,
sem nefnd var Súlan. Tók hún
fimm farþega. Var hún notuð til
farþega- og póstflugs og einnig
sjúkraflugs. Enn fremur var hún
reynd við síldarleit fyrir Norður-
landi, Árið 1930 bættist síðan
önnur flugvél sömu gerðar við, og
nefndist hún Veiðibjallan. Árið
1931 rann þessi tilraun einnig út
í sandinn sökum fjárskorts. Ann-
arri vélinni stjórnaði fyrsti lærði
íslenzki flugmaðurinn, Sigurður
Jónsson.
Árið 1937 var svo þriðja flugfé-
lag stofnað hér á landi, Flugfélag
Akureyrar. Keypti það fjögurra
sæta sjóvél, sem nefnd var TF-
Örn. Var hún í förum milli Akur-
eyrar og Reykjavíkur með farþega
og póst. Er talið, að samflejdt
atvinnuflug hefjist á íslandi með
þessari flugvél. Árið 1940 var fé-
lagið endurskipulagt 0g nefnt
Flugfélag íslands. Jafnframt var
aðsetur þess flutt til Reykjavíkur.
Árið 1944 var stofnað annað flug-
félag, Loftleiðir hf. Varð fljótlega
hörð samkeppni milli þessara flug-
félaga. Árið 1952 sneru Loftleiðir
sér eingöngu að utanlandsflum
Loks ánð 1973 gengu bæði félög-
in til samstarfs og pefndust eftir
það Flugleiðir hf. Á þessu ári á
félagið ellefu flugvélar með sætum
fyrir 1.399 farþega. Er flugfloti
þessi einna yngstur í Evrópu. Eru
flugsamgöngur íslendinga innan
lands og eins til útlanda orðnar
svo hraðar, að hætt er við, að
frumkvöðlana frá 1919 hafi aldrei
órað fyrir slíkri byltingu í sam-
göngumálum Islendinga.
Á einu frímerkjanna er mynd
af Súlunni, sem hóf póst- og farþe-
gaflutninga árið 1928. Flugmenn
hennar voru þýzkir. Á næsta frí-
merki er mynd af TF-Örn, sem
Flugfélag Akureyrar fékk árið
1938. Með henni hefst samfellt
póst- og farþegaflug, svo sem
áður segir. Á þriðja frímerki er
mynd af fyrsta Grumman-flugbáti
Loftleiða, en þeir urðu alls fimm.
Kom hann til lands 1944. Á fjórða
frímerkinu er svo mynd af Cata-
lina-flugbáti Flugfélags íslands,
Sæfaxa (Gamla Pétri). Hann var
einnig keyptur hingað til lands
1944. Fór hann árið 1945 fyrstu
millilandaflugferð íslenzkrar flug-
vélar rneð farþega og póst.
Frímerki þessi hefur Þröstur
Magnússon hannað af sinni al-
kunnu smekkvísi eins og fyrri frí-
merkin í þessum skemmtilega
flokki. Þá eru þau einnig offset-
prentuð í sömu prentsmiðju og
smáörkin, þ.e. hjá BDT, Internat-
ional Security Printing Ltd. í Eng-
landi.
Nú vill svo til, að Dagur frí-
merkjsin? er4ugarsagur. Þá eftr
pósthús lokuð, svo sem flestir vita.
Hér verður sú undantekning gerð
á, að pósthúsið R-1 í Pósthús-
stræti 5 verður opið frá kl. 9-1
þennan dag og svo R-3 í Kringl-
unni frá kl. 9 og eins lengi og
verzlanir eru þar opnar. Safnarar
og aðrir áhugamenn um íslenzk
frímerki geta keypt nýju frímerkin
á þessum stöðum og fengið þau
stimpluð á útgáfudegi.
Að venju verður sérstimpill not-
aður við stimplun frímerkjanna.
Er það teikning af flugvélahreyfli.
Dagur frímerkisins 9. okt.
Þyí miður hefur oft farið lítið
Nýju flugfrímerkin 9. október.
fyrir þessum degi á undanfömum
árum. Þó hefur verið reynt að
minna almenning á hann með
ýmsum hætti og svo var gert í
Kringlunni í fyrra og hitteðfyrra.
Að þessu sinni er ætlunin að hafa
heldur meira við á sama stað. Þar
er ráðp-ert nð ~ -----
•-*? ”* „ ... -0-------------
stjórnarinnar nokkur söfn, sem
tengjast flugi. Þá verður frí-
merkjamarkaður í Kringlunni, og
standa að honum Félag frímerkja-
safnara, Klúbbur Skandinavíu-
safnara og íslenzkir mótífsafnar-
ar. Þar geta félagar þessara sam-
taka fengið borð til afnota og
komið með alls konar efni til skipta
og sölu. Er vonandi, að aimennir
safnarar geti þar fengið ýmislegt
áhugavert í söfn sín. Frá þessu
verður vafalaust sagt nánar í blöð-
um.
Póstflug til Akureyrar 9. okt.
í oftnefndri tilkynningu póst-
stjórnarinnar er boðað sérstakt
póstflug frá Reykjavík til Akur-
eyrar laugardaginn 9. okt. nk. Er
með því verið að minnast þess,
að nú eru rétt 50 ár liðin síðan
Douglas-flugvélin Gljáfaxi kom til
landsins. Þessi flugvél er enn á
lofti sem landgræðslnflpgyg1,;;’
„r áií Svemsson“. Flytur hún póst-
inn frá Reykjavík. Að sjálfsögðu
verður notaður sérstimpill af þessu
tilefni á framangreindum pósthús-
um, R-1 og R-3. Einungis verður
tekið við ábyrgðarbréfum með sér-
stöku aukagjaldi, 160 krónum,
sem rennur til Landgræðslunnar.
Þannig- verður burðargjald innan
lands fyrir 20 g bréf 300 kr., 305
kr. til Evrópu og 325 kr. til ianda
utan Evrópu. Bréfin skal merkja
nákvæmlega nafni og heimilis-
fangi viðtakanda og að auki stöf-
unum „TF-NPK“.
Bent skal á það, að öll þau bréf,
sem eiga að fara með þessari flug-
ferð norður, verður að póstleggja
fyrir kl. 12.30 nefndan dag.
Minning
Poul Otto
Bemburg
Fæddur 8. október 1913
Dáinn 11. september 1993
í dag hefði mjög kær vinur okk-
ar hjóna, Poul O. Bernburg, orðið
áttræður hefði hann lifað. Því viijum
við, með örfáum orðum, þakka hon-
um og hans frábæru konu, Ing-
unni, fyrir aérstaka vináttu og
ræktarsemi, sem við nutum í um
tuttugu ár.
Við kynntumst Ingu og Poul á
Costa Del Sol á Spáni og eftir það
rofnaði ekki samband okkar, þótt
við hjónin flyttum til útlanda til
nokkurra ára dvalar. Slík var þeirra
tryggð.
Við viljum þakka þeim fyrir
ógleymanleg sumarleyfi ,er við átt-
um saman á Spáni. Þar var Poul
alltaf sami gleðigjafinn á sinn iát-
lausa en þó innilega hátt. Á öllum
þessum árum heyrði ég aldrei
hnjóðsyrði um nokkurn frá þessum
sómadreng. Hann var afar hógvær
í sínum skoðunum, var ekki alltaf
að flíka þeim og engan hef ég þekkt
sem gat staðið við sitt álit með
meiri hógværð og festu og án þess
að særa nokkurn mann.
Það leið aðeins um ár frá því að
hann sagði mér frá þeim sjúkdómi
er dró hann til dauða. Mig setti
hljóðan er ég heyrði þetta, en þá
kom eitt gullkornið frá Poul: „Ef
þú getur ekki minnst mín nema
gráti nær, þá skaltu gleyma mér,
því að ég vil láta minnast mín með
gleði.“
Svo sannarlega veitti hann gleði
og góðmennsku inn í líf okkar.
Fyrir þetta þökkum við ykkur, Inga
og Poul, og gleðjumst yfir minning-
unni.
Jakobína og Árni.
MINNINGARKORT SJALFSBJARGAR
REYKJAVÍK 0G NÁGRENNIS
ii 78 68
Innheimt með gíróseðli
t
Elskulegur sonur okkar, fóstursonur, faðir, bróðir og eiginmaður,
SIGURÐUR MARKÚS SIGURÐSSOIM,
er látinn.
Jarðarförin verður auglýst sfðar.
Sigríður Hjelm, Bragi Eyjójfsson,
Sigurður Ingimarsson, Ingibjörg Árnadóttir,
Alexander Rafn Sigurðarson,
Ásdís Halla, Aðalheiður Þóra, Sivar Sturla,
Árni Ingi, Ingimar, Sonja,
Embla Arnardóttir.
t
Eiginmaður minn,
ODDUR ÁGÚSTSSOIM
fyrrverandi útvegsbóndi,
Ystabæ,
Hrísey,
lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
6. október.
Fyrir hönd barnanna,
Rannveig Magnúsdóttir.
t
SIGURGEIR L. SIGURJÓNSSON,
Hrauntúni 22,
Vestmannaeyjum,
verður jarðsunginn frá Landakirkju laugardaginn 9. október
kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag íslands.
Halla Bergsteinsdóttir,
Svea Sigurgeirsdóttir,
Halla María Þorsteinsdóttir
og aðrir vandamenn.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birt-
ingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðs-
ins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, fósturmóðir,
amma og langammma,
DAGMAR ÓSKARSDÓTTIR,
frá Skálateigi,
Norðfirði,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
er lést 1. október verður jarðsungin frá
Grindavfkurkirkju, laugardaginn 9. októ-
ber kl. 14.00.
Óskar Karlsson,
Marteinn Karlsson, Þórdís Ágústsdóttir,
Björg Karlsdóttir, Helgi Jónsson,
Gerður Karlsdóttir, Sveinn Guðmundsson,
Þórarna Hansdóttir, Nikulás Brynjólfsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ARNDÍSAR EIRÍKSDÓTTUR
Ijósmóður
frá Fosshólum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalarheimilinu Lundi, Hellu, fyrir
hlýju og góða umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
María Sigurjónsdóttir,
Sigurleif J. Sigurjónsdóttir,
Eiríkur Sigurjónsson, Sigrún Haraldsdóttir,
Þórður Matthías Sigurjónsson, Vilborg Gísladóttir,
Sigrún Erna Sigurjónsdóttir, Tómas Gunnar Sæmundsson,
ömmubörn og langömmubörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu,
SJAFNAR GUÐJÓNSDÓTTUR,
Kirkjuvegi 80,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir flytjum við elskulegum vinum okkar í Golfklúbbi
Vestmannaeyja, Kiwanisklúbbi Vestmannaeyja og Sinawikklúbbi
Vestmannaeyja.
Guð blessi ykkur öll.
HörðurJónsson,
Hrönn Harðardóttir, Grettir Guðmundsson,
Alda Harðardóttir,
Eyþór Harðarson, Laufey Grétarsdóttir,
Katrfn Harðardóttir
og barnabörn.