Morgunblaðið - 08.10.1993, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1993
fclk f
fréttum
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Eiríkur Alexandersson útbússtjóri íslandsbanka í Keflavík, til vinstri, og Olafur iiiyjóiissun 1U1 UJOVUI
körfuknattleiksdeildar UMFN innsigla samkomulagið.
KÖRFUBOLTI
Mikill hugiir í Njarðvíkingum
Við eram ákaflega ánægðir með
þennan samning og ég vona
að hann leysi fjárhagslegan vanda
körfuknattleiksdeildarinnar þann-
ig að Njarðvíkingar njóti þess í
leik og starfi," sagði Eiríkur Alex-
andersson útibússtóri íslands-
banka í Keflavík eftir að hann
hafði fyrir hönd bankans undirritað
tveggja ára styrktarsamning við
körfuknattleiksdeild UMFN.
- * Njarðvíkingar hafa löngum verið
þekktir fyrir körfuknattleikslið sitt
og eftir fremur slakt ár í fyrra era
þeir ákveðnir í að láta meira að
sér kveða á komandi keppnistíma-
bili og hafa þeir nú endurheimt tvo
landsliðsmenn, Val Ingimundarson
og Friðrik Ragnarsson.
Ólafur Eyjólfsson formaður
körfuknattleiksdeildar UMFN
sagði við þetta tækifæri að samn-
ingurinn við íslandsbanka væri
þannig upp byggður að því betur
sem liðinu gengi því hærri yrðu
greiðslumar. „Það ríkir mikil bjart-
Þeir eru komnir aftur í herbúðir Njarðvíkinga, Valur Ingimundar-
son, til vinstri, en hann hefur leikið með liði Tindastóls á Sauðár-
króki undanfarin ár, og Friðrik Ragnarsson, sem lék með KR-ingum.
sýni í okkar herbúðum, Banda- miklar vonir um góðan árangur
ríkjamaðurinn Rondey Robinson liðsins í vetur,“ sagði Ólafur Eyj-
verður áfram og við gerum okkur ólfsson ennfremur.
Reuter
Tímaritið Vanity Fair vekur oft athygli — og stundum hneyksli —
fyrir forsíðumyndir sínar. Hér situr Sylvester Stallone fyrir sem
„Hugsuðurinn".
LEIKARAR
Yöðvafjallið langar að
leika Edgar Allan Poe
Leikarinn Sylvester Stallone
sem prýðir nóvemberforsíðu
tímaritsins Vanity Fair segist í
viðtali við tímaritið sennilega aldr-
ei fá tækifæri til að leika drauma-
hlutverkið, sem er að vera ljóð-
skáldið Edgar Allen Poe. Hann
segist gera sér grein fyrir því að
vegna vaxtarlagsins verði hann
ekki trúverðugur sem veikburða,
óframfærið skáld.
Stallone var' við upptökur á
nýrri kvikmynd „Demolition Man“
þegar viðtalið var tekið, en sú
mynd er í líkingu við þær myndir
sem hann er einna þekktastur fyr-
ir, „Rocky“ og „Rambo“. Hann
segist hafa gert sér grein fyrir því
eftirá að það var frægð hans ekki
til framdráttar að leika í róman-
tískum gamanmyndum eins og
„Oscar“ og „Stop! Or My Mom
Will Shoot!“ Af þeim sökum tók
hann að sér hlutverkið í „Cliffhan-
ger“.
Kvikmyndin „Demolition Man“
er spennusaga sem gerist í fram-
tíðinni og næsta mynd sem hann
leikur í „Fair Game“ er einhvers
konar rómantísk spennumynd.
Þriðja mynd hans á næstunni er
„Judge Dredd“, þar sem mikið
verður um tæknibrellur, en sú
mynd er gerð eftir samnefndri bók.
EVROPURAÐIÐ
Þorvaldur Garðar
heiðraður
orvaldur Garðar Kristjánsson,
fyrrverandi alþingismaður,
var 28. september síðastliðinn
sæmdur æðsta heiðursmerki þings
Evrópuráðsins fyrir framúrskarandi
störf á vettvangi þess. Þorvaldur
átti sæti á þinginu í aldarfjórðung
og var um árabil einn af varaforset-
um þess og formaður íslensku
• sendinefndarinnar. Þorvaldur var
22. febrúar árið 1988 gerður að
heiðursþingmanni Evrópuráðsins.
Myndin var tekin er Þorvaldur
Garðar var heiðraður í höfuðstöðv-
um Evrópuráðsins í Strassborg við
hátíðlega athöfn. Frá vinstri eru
Vigdís Finnbogadóttir forseti ís-
lands, Miguel Martinez, forseti
þings Evrópuráðsins, Þorvaldur
Garðar og eiginkona hans, Elísabet
Kvaran.
TONLIST
Madonna á tónleika-
ferðalagi í ísrael
Kynbomban Madonna,
sem er á söngferðalagi
um ísrael um þessar mundir,
brá sér yfir á Vesturbakkann
síðastliðinn mánudag til að
taka þátt í messu í Fæðingar-
kirkju Jesús í Betlehem. Aldr-
ei þessu vant var hún ekki
mikið fyrir að láta á sér bera
og ferðaðist um í lokuðum
vagni falin bak við sólgler-
augu og með slæðu um höfð-
uðið. Hún þekktist ekki af
almenningi en henni tókst
ekki að blekkja blaðaljós-
myndarana, enda eru þeir
öllu vanari að sjá frægt fólk
í ýmsu dulargervi.
Madonna sem er kaþólikki
hefur notað ýmis trúarleg
tákn í sýningum sínum og fer
það mjög fyrir brjóstið á
kristnu fólki.
Sló um sig á hebresku
Síðastliðinn þriðjudag kom
hún til Tel Aviv í fylgd her-
manna, en þá um kvöldið
hélt hún „stelputónleika" sína
fyrir um 40.000 áhorfendum.
Hún lýsti því yfir að sér þætti
Reuter
Madonna lét lítið fyrir sér fara þegar hún
heimsótti Fæðingarkirkju Jesú í Betlehem.
Hún gat þó ekki blekkt fréttaþ’ósmyndar-
ana.
mikið til þess koma að vera
komin til Israel, því það hefði
verið langþráður draumur
sinn. Hún sló um sig með
herbreskum orðum sem hún
kvaðst hafa lært af ísraelsk-
um vini sínum. Ekki kom
fram í fréttaskeytum Reuters
hvernig viðbrögð áhorfenda
voru, en Madonna er þekkt
fyrir að vera fáklædd og hafa
kynferðislegt athæfi í frammi
á sýningum sínum.
Rauk út af hótelinu
Herútvarp í ísrael sagði frá
því, að aðeins tveimur tímum
eftir að Madonna kom á Kon-
ungs Davíðs-hótelið í Jerúsal-
em síðastliðinn sunnudag
hafi hún strunsað út úr hótel-
inu. Ástæðan var sögð sú,
að hún fékk ekki heila hæð
fyrir sjálfa sig. Að sögn
starfsmanna hótelsins flutti
hún yfir á Dan hótelið í Tel
Aviv, þar hafa þeir eflaust
geta orðið við óskum söng-
konunnar.