Morgunblaðið - 08.10.1993, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1993
STJÖRNUSPA
eftir Frances Drake
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú hefur góða yfirsýn yfir
flármálin og heimiiið í dag.
Einhver vandræði geta
komið upp milli vina og
breytingar geta orðið á fyr-
irætlunum.
Naut
(20. apríl - 20. maí) tffö
Sumir sem þú átt viðskipti
við eru ekki áreiðanlegir, en
vinur veitir þér góðan stuðn-
ing og hvetur þig til dáða.
Tvíburar
(21. maí - 20. júnf) 5»
Þú kemut' miklu í verk í
dag, en vinnufélagi á við
vandamál að stríða. Einhver
óvænt útgjöld geta geta
valdið ágreiningi.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Tómstundaiðja og skapandi
verkefni eiga hug þinn allan
í dag. Láttu ekki tælast út
í vafasamt ástarsamband.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú þarft tíma út af fyrir þig
til að ljúka ákveðnum verk-
efnum í dag. Ættingi getur
verið eitthvað afundinn í
kvöld.
Meyja
(23. ágúst - 22. septcmborl r&L
Einhugur ríkir milli vina í
dag, en þú ættir að vera á
verði gagnvart ófyrirleitn-
um náunga sem reynir að
blekkja þig.
vi "7
(23. sept. - 22. október)
Láttu áhættusamt tilboð um
skjóttekinn gi'óða eiga sig
og farðu gætilega í viðskipt-
um. Fundur með ráðamönn-
um skilar árangri.
Sporódreki
w(23. okt. - 21. nóvember) 9KÍ0
Reyndu að komast hjá
ágreiningi við einhvern í
ijölskyldunni í dag. Eitthvað
sem þú lest eða sérð í dag
hefur mikil áhrif á þig.
Bogmaður
(22. nóv. -21. desember)
Með ítarlegri könnun færð
þú þær upplýsingar sem þig
vantar til að taka rétta
ákvörðun. Vandaðu valið á
þeim sem þú umgengst.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Vertu vel á verði í dag ef
einhver reynir að hafa af
þér peninga. Þú nýtur þín í
kvöld í hópi góðra vina og
félaga.
Vatnsberi
(20. janúar — 18. febrúar) dk
Þú mætir einhverri sam-
keppni í vinnunni í dag en
góð dómgreind og skilning-
ur ættu að færa þér verð-
skuldaða velgengni.
^Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) S5*
Nú er ekki rétti tíminn til
að lána öðrum peninga.
Láttu engan misnota sér
vorkunnsemi þína. Þér mið-
ar vel að settu marki.
Stjörnuspána á að lesa sem
i dægradvöl. Sþár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum grunni
visindalegra staðreynda.
DYRAGLENS
BG I/AR /tD FA
NAFðJ LAUSA HIZiNGíNGU
GRETTIR
TOMMI OG JENNI
LJÓSKA
^ n 1 urifj Ac\ i'n-aiiA
FERDINAND
SMAFOLK
MAKE ONE M0VE
TOUJARDTHIS 6LANKET,
YOU 5TUPID BEA6LE,
AND l'LL DESTK0V ALL
H0PE5 YOU HAVE FOR
TUE F0TURE!
■?- / M-
$
m
Ef þú tekur eitt skref í áttina að þessu teppi, heimski hundur- Mér líkar það vel að fá góða aðvörun.
inn þinn, skal ég leggja allar þínar framtíðarvonir i rúst!
BRIDS
Umsjón Guðm. Páll
Arnarson
Undir venjulegum kringum-
stæðum hefði vestur ekkert haft
á móti því að taka fjóra slagi á
lauf í vörninni gegn þremur
gröndum suðurs. En það geta
varla talist „eðlilegar kringum-
stæður“ þegar sagnhafi spilar
sjálfviljugur lit varnarinnar.
Austur gefur; allir á hættu.
Norður
♦ 83
♦ 107
♦ Á986532
♦ 63
Vestur
♦ K102
♦ 652
♦ D4
♦ KDG109
Austur
♦ 97654
♦ D9843
♦ 7
♦ 52
Vestur
Pass
Suður
♦ ÁDG
♦ ÁKG
♦ KG10
♦ Á874
Norður Austur Suður
— Pass 2 grönd
3 grönd Allir pass
Útspil: laufkóngur.
Suður dúkkaði laufið tvisvar,
en drap svo á ásinn og lagði
niður tígulkóng. Hann var að
vona að drottningin kæmi niður
stök, því annars er liturinn stífl-
aður. Honum varð ekki að ósk
sinni, svo það lá ljóst fyrir að
hann fengi aðeins þrjá slagi á
tígul. Nema auðvitað hægt væri
að fá pípulagningarmann til að
hreinsa tígulstífluna. Suður
ákvað að bjóða vestri þann
starfa og spilaði síðasta laufi
sínu.
Vestur var í fyrstu nokkuð
undrandi. En flýtti sér þó ekki
að taká síðasta laufslaginn, eins
og suður ætlaðist greinilega til.
Eftir nokkra umhugsun sá vest-
ur hvað vakti fyrir sagnhafa.
Tígullinn hlaut að vera stíflaður
og suður ætlaði að losa sig við
tígultappann niður x lauf- Að
þessu athuguðu spilaði vestur
tíguldrottningu og gerði þar með
vonir sagnhafa að engu.
Reyndar spilaði suður ekki
mjög vel. Það er betra að senda
vestur strax inn á lauf, áður en
tígulkóngur er tekinn. Þá verður
vestur að hitta á að spila hjarta
um hæl. Annar betri möguleiki
er að spila tígultíu lymskulega
út í þeim tilgangi að hleypa
henni yfir til austurs. Þá vinnst
spilið ef austur á drottninguna
(blanka eða aðra), eða ef vestur
fínnur ekki að leggja hana á
tíuna.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á Norðurlandamóti framhalds-
skóla um daginn kom þessi staða
upp í skák þeirra Kristjáns Eð-
varðssonar (2.025), sem hafði
hvítt og átti leik, og Mikas Pajun-
ens (1.725), Finnlandi. Svartur
lék síðast 20. — Hc6-c8 í stöðu
sem var orðið of seint að bjarga.
21. Bxb7! (Nú má svartur auðvit-
að ekki drepa biskupinn vegna
mátsins í borðinu. Þetta er mun
sterkasta en 21. Dd6, sem er
næstbesti leikurinn i stöðunni) 21.
- Hb8, 22. Bxa6 - f6, 23. b4
og með tveimur peðum yfir leiddi
hvítur skákina örugglega til sig-
urs.
Októberatskákmót Ilellis hefst
mánudaginn 11. október í menn-
ingarmiðstöðinni Gerðubergi kl.
20. Mótið tekur tvo mánudaga og
því lýkur 18. október.