Morgunblaðið - 08.10.1993, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1993
SIGLINGAR / WHITBREAD
Endeavour með fórystu
Southampton -
Punta del Este
Brottför 25. sept.
5.938 sjómílur,
49 daga sigling.
ATLANTS-
v . \ Mtðbaú
' SUÐUR AMERÍKA "" JáV' ' M . fpÚ'
1 ÚRUGVÆ'
; -1 Punta del Este
Tíóir vindat
‘
Stormasvæði
Fyrsta skútan hafði í gær lagt 3.379
mílur að baki eftir 12 daga siglingu
og á því 2.559 eftir af fyrsta legg
hnattsiglingarinnar. Röð fremstu
6 skútanna er þessi:
1. NewZealand Endeavour
2. Merit Cup (Sviss)
3. Tokio (Japan)
4. Galicia 93 Pescanova (Spánn)
5. Winston (Bandaríkin)
6. Yamaha (Japan / Nýja Sjáland)
Wý-Sjálenska skútan Endeavour
er með forystu í Whitbread
siglingakeppninni eftir 12 daga
siglingu. Skúturnar lögðu upp frá
Southampton í Englandi laugardag-
inn 25. september í keppni umhverf-
is jörðina.
I gær voru skúturnar búnar að
sigla um 6.000 mílur á leið sinni
til fyrsta áfangastaðar, Punte del
Este í Uruguay, og voru þær suð-
vestur af Grænhöfðaeyjum. Grant
Dalton og áhöfn hans á Endeavour
voru þá 23 mílur á undan næstu
skútu sem var spænska skútan
Merit Cup. Endevour er ein stærsta
skútan í keppninni og hefur haft
forystu lengst af.
Skútan Tokio frá Japan var í
þriðja sæti, en hafði lengi verið í
örðu sæti. Tokio var 6 míium á
eftir Merit Cup en fast á eftir komu
Galica 93 Pescanova frá Spáni og
síðan Dennis Conner á amerísku
skútunni Winston. „Keppnin hefur
verið mjög jöfn og spennandi og
áhafnir bátanna hafa eytt miklum
tíma í að spá í veðurkort,“ sagði
Conner.
Spænska skútan Fortuna er úr
leik. Hún snéri aftur til Southamp-
ton eftir að mastur hennar brotnað
á fimmta degi keppninnar. Skútan
Odessa frá Ukraínu er síðust enda
lagði hún ekki af stað frá Sout-
hampton fyrr en viku á eftir hinum
skútunum þar sem 'hún var ekki
tilbúin í tæka tíð.
Staðan í gær:
1. New Zealand Endeavour 3.379
mílur frá endamarkinu í Punte del
Este. 2. Merit Cup (Sviss) 3.412.
3. Tokio (Japan) 3.418. 4, Galicia
93 Pescanova (Spáni) 3.421. 5.
Winston (Bandar.) 3.449. 6. Yama-
ha (Japan-N-Sjáland) 3.460.
■ KATARINA Witt, þýska
skautadrottningin sem stefnir á
þátttöku í Ólympíuleikunum í
Lillehammer á næsta ári, mun
keppa á sínu fyrsta móti í fimm ár
í Frankfurt í byijun desember.
Witt er nú 27 ára. Hún vann gull-
verðlaun á Ólympíuleikunum bæði
1984 og 1988, en gerðist síðan
atvinnumaður í íþróttinni og var
því ekki gjaldgeng á leikana í Al-
bertville. Hún hefur nú aftur feng-
ið leyfi til að keppa á mótum á
vegum Alþjóða listhlaupasam-
bandsins.
■ MANCHESTER United skil-
aði meira en átta millj. pundum
(tæplega 900.000 kr.) í rekstrar-
hagnað á síðasta starfsári, en kaup
á leikmönnum helminguðu hagn-
aðinn.
■ MARTIN Edwards, stjómar-
formaður United, sagði að afkom-
an skilaði sér í betri leikmönnum
og áréttaði að ef ekki hefði verið
rétt á spilunum haldið, hefði félag-
ið ekki getað keypt Roy Keane,
_ besta leikmanninn, sem var í boði
T sumar,“ eins og han orðaði það.
HANDKNATTLEIKUR / HM A ISLANDI 1995
Morgunblaðið/Þorkell
HM 95 fékk þrjár milljónir frá Kópavogskaupstað
ÓLAFUR Schram, formaður Handknattleikssambands Islands, sem er til hægri á myndinni, og Sigurður Geirdal, bæjar-
stjóri í Kópavogi, undirrituðu í gær samning HSÍ og Kópavogskaupstaðar um að einn riðill HM 1995 og nokkrir leikir
í úrslitakeppninni fari fram í hinu nýja íþróttahúsi í Kópavogsdal, sem á að vera tilbúið 1. október 1994. Samningurinn
tryggir HSI þijár milljónir frá Kópavogskaupstað og sagði Páll Magnússont formaður íþróttaráðs Kópavogs, sem er til
vinstri á myndinni, að um sanngjarnan og góðan samning væri að ræða. Ölafur tók í sama streng og sagði stuðning
bæjarfélagsins mikinn styrk fyrir íþróttina, en færði síðan Gunnari Birgissyni, forseta bæjarstjórnar, merki keppninnar
í stækkaðri mynd.
ERTU AÐ BYGGJA? - VILTU BREYTA? - ÞARFTU AÐ BÆTA?
ixdúkur 15% afsláttur
• 20% afsláttur
Teppadeild:
Gólfdúkur í 2ja metra stærðum • verð frá kr. 775,-
Frönsku fiftteppin - verð frá kr. 350,- fm
Keramik-flísar - 20-25% afsláttur
ÓDÝRU STÖKU TEPPIN FYRIR
PARKETIÐ EÐA FLÍSARNAR
Dæmí: SARAH 160x230 kr. 4.864.-
MONACO 160x230 kr. 8.2
Líttu inn í Litaver
þvíþað hefur
ávallt borgað sig
Öll íslensk málning!
- Veljum íslenskt
visa
RAÐGREIÐSLUR
TIL 18 MÁNAÐA
■ DIEGO Maradona hefur æft á
fullu með argentínska liðinu New-
ells Old Boys og spilar fyrsta leik
sinn með liðinu í vikunni. Hann
hefur lést um 12 kíló síðan hann
kom til félagsins frá Sevilla og
æfir þrisvar á dag.
■ ARGENTÍNSKI landsliðsþjálf-
arinn í knattspyrnu sagði um helg-
ina að Maradona kæmi til greina
í landsliðið eins og hver annar.
Maradona segir sjálfur að það verði
bara að koma í ljós hvort hann
verði í nógu góðri æfingu til að
verðskulda að leika með Iandsliðinu.
■ MARK Bosnich, markvörður
hjá Aston Villa, sem hætti að leika
með landsliði Ástralíu, gefur senni-
lega kost á sér á ný.
■ BOSNICH sagði að Knatt-
spyrnusamband Ástralíu hefði haft
samband og óskað eftir að hann
endurskoðaði afstöðu sína og í ljósi
endurkomu Maradona væri hann
mun jákvæðari en áður.
■ BOSNICH sagðist samt ekki
hafa ákveðið sig. „Ég hef hvorki
sagt af eða á, en ef Maradona
verður þar er það þess virði að slá
til, þó ekki væri nema til þess að
geta sagst hafa leikið gegn honum.“
ÚRSLIT
Íshokkí
NHL-deildin
Keppnistímabilið hófst í vikunni og eftirtald-
ir leikir hafa farið fram:
Boston - N.Y. Rangers............4:3
Philadelphia - Pittsburgh........4:3
Dallas - Detroit.................6:4
Calgary - N.Y. Islanders.........2:1
New Jersey - Tampa Bay...........2:1
Montreal - Hartford..............4:3
Quebec - Ottawa..................5:5
■eftir framlengingu.
Winnipeg - Washington.............6:4
Florida - Chicago................4:4
) Beftir framlengingu.
Vancouver - Los Angeles...........5:2
Edmonton - San Jose..............3:2
Hafnabolti
Úrslitakeppnin í Bandaríkjunum
Ameríska deildin:
Torontó Blue Jays - Chicago......7:3
Torontó - Chicago White Sox......3:1
■Torontó leiðir 2-0, en mest verða leiknir
sjö leikir.
Landsdeildin:
Philadelphia - Atlanta...........4:3
■Þetta var fyrsti leikur liðanna.
Knattspyrna
Vináttulandsleikur
Mexíkó - Suður-Afríka............4:0
Patino (24.), Ambriz (39.), Galindo (73.,
87.). 12.578.
Sviss
Kriens - Yverdon.........:........2:0
FC Ziirich - Young Bóys...........1:2
Aarau - Sion......................0:2
Neuchatel Xamax - Grasshopper....0:0
Lausanne - Luzern................0:2
Staðan:
Grasshopper.........12 7 3 2 21: 8 17
Sion................12 5 5 2 16: 8 15
Lugano..............12 6 3 3 16:12 15
FCZiirich...........12 5 4 3 17: 8 14
YoungBoys...........13 5 4 4 20:11 14
Lausanne............13 6 2 5 15:17 14
Luceme..............12 5 3 4 17:17 13
Servette............12 4 4 4 18:23 12
Neuchatel...........12 3 5 4 17:19 11
Aarau...............12 4 2 6 13:20 10
Yverdpn.............13 2 4 7 13:21 8
Kriens..............13 1 3 9 10:29 5
Svíþjóð
Leikir um síðustu helgi:
Gautaborg - Malmö..................5:1
AIK - Degerfors....................3:0
Helsingborg - Örgryte..............3:0
Halmstad - Brage...................3:2
Örebro-Öster.......................2:1
Frölunda - Norköping...............3:2
Trelleborg - Hacken................6:2
■Gautaborg er efst með 54 stig og Norköp-
ing kemur næst með 52 stig, en þijár um-
ferðir eru eftir. Allt bendir til að Hlynur
Stefánsson og samheijar í Örebro verði að
leika aukaleiki um sæti í deildinni, en Arn-
ór Guðjohnsen og félagar í Hácken sigla
iygnan sjó.
England
Bikardráttur
Dregið var í þriðju umferð ensku deildar-
bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær:
Manchester United - Leicester, Man-
chester City - Chelsea, Sunderland - Aston
Villa, Derby - Tottenham, Oldham -
Coventry, Blackburn - Shrewsbury,
Liverpool - Ipswich, Everton - Crystal
Palace, Middlesbrough - Sheffield Wed-
nesday, Portsmouth - Swindon, Tranmere
- Grimsby, Wimbledon - Newcastle, Arsenal
- Norwich, QPR - Millwall, Blackpool -
Peterborough, Nottingham Forest - West
Ham. Fyrstu leikirnir verða i síðustu viku
mánaðarins.
FELAGSLIF
Herrakvöld KR
Herrakvöld KR-inga verður haldið í fé-
lagsheimili KR við Frostaskjól í kvöld, föstu-
daginn 8. október, og opnar húsið kl. 19.
Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkisráð-
herra, verður ræðumaður kvöldsins, en Tro-
els Bendtsen veislustjóri.
Aðalfundur samtak-
anna íþróttir fyrir alla
Aðalfundur landssamtakanna íþróttir
fyrir alla verður haldinn í menningarmið-
stöðinni Gerðubergi n.k. laugardag, 9. októ-
ber, og hefst kl. 13.30. Fyrst verða flutt
ávörp og síðan verður Rolf Nyhus, stjómar-
maður í Iþróttasambandi Noregs og forystu-
maður í endurskipulagningu almennings-
íþrótta í Noregi, með kynningarerindi um
stöðu almenningsíþrótta í Noregi. Þessi
htuti er öllum opinn, en að loknu hléi verða
venjuleg aðalfundarstörf og önnur mál.
Vetrarstarf hjá f rjáls-
íþróttadeild Armanns
Vetrarstarf fijálsíþróttadeildar Ármanns
er hafið, en æfingar eru í Baldurshaga og
íþróttahúsi Vörðuskóla. Kristján Harðarson
er þjálfari meistaraflokks og Svanhildur
Kristjónsdóttir aðal unglingaþjálfarinn, en
Ilalla Heimisdóttir og Haukur Sigurðsson
eru henni til umsjónar. Eyjólfur Magnússon
hefur yfirumsjón með allri þjálfun. Nánari
upplýsingar hjá Svanhildi (s.
813234/628411), Kristjáni (s. 668608),
Magnúsi (s. 656469/680030) eða í Ár-
mannsheimilinu (s. 618140).
Úr fréttatilkynningu.