Morgunblaðið - 08.10.1993, Blaðsíða 44
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SJOVÁHfiHALMENNAR
MOKGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJA VlK
SlMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 8. OKTÓBER 1993
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK.
Sjálfstæðisflokk-
urinn í Reykjavík
UNDIR REGNBOGANUM
Morgunblaðið/RAX
Fjármálaráðherra við utandagskrárumræðu um yfirvimiugreiðslur til hæstaréttardómara
Framkvæmd ákvæðis um
eftirlaun þarf að breyta
RIÐRIK Sophusson fjármálaráðherra sagði við utandagskrárum-
ræðu á Alþingi í gær um yfirvinnugreiðslur til hæstaréttardóm-
ara að honum fyndist tími til kominn að 61. grein stjórnarskrár-
innar yrði skýrð öðruvísi en hún hefði verið skýrð hingað til
varðandi laun til eftirlaunamanna úr hópi hæstaréttardómara.
„Þetta ákvæði hefur verið ofnotað," sagði Friðrik Sophusson í
samtali við Morgunblaðið í gær. „Það hefur verið nánast algilt
að hæstaréttardómarar hafi fengið lausn frá störfum áður en
þeir komust á eftirlaunaaldur. Það sýnist vera gert eingöngu til
þess að þeir fái hærri eftirlaun en aðrir.“
Egilsstaðaflugvöllur
Fyrstaflug
þotu utan
FYRSTA milliiandaflugið
var frá nýjum Egilsstaða-
flugvelli í gær. Þota frá Flug-
leiðum fór í leiguflugi með
150 farþega á vegum Urvals-
Útsýnar til Glasgow í Skot-
landi.
Flugvélin kom frá Keflavík
með um 60 farþega og bættust
aðrir 90 við af Austurlandi. Von
er á hópnum til baka á sunnu-
dagskvöld.
61. grein stjórnarskrárinnar er
í heild svohljóðandi: „Dómendur
skulu í embættisverkum sínum fara
einungis eftir lögunum. Þeim dóm-
endum, sem ekki hafa að auki
umboðsstörf á hendi, verður ekki
vikið úr embætti nema með dómi,
og ekki verða þeir heldur fluttir í
annað embætti á móti vilja þeirra,
nema þegar svo stendur á, að verið
er að koma nýrri skipun á dómstól-
ana. Þó má veita þeim dómara, sem
orðinn er fullra 65 ára gamall,
lausn frá embætti, en eigi skal
hann missa neins í af launum sín-
um.“ Friðrik segir að réttur skiln-
ingur ákvæðisins sé fyrst og fremst
sá að um sé að ræða réttarvernd
fyrir hæstaréttardómara til að
koma í veg fyrir að löggjafinn eða
framkvæmdavaldið víki dómurum
úr embætti án þess að þeir haldi
launum sínum. Aðspurður um
hverju þurfi að breyta segir ráð-
herrann: „Þetta er framkvæmdar-
atriði en um það þarf að tala við
dómsmálaráðherrann og forseta
réttarins.“
Málið rætt utan dagskrár
Ólafur Ragnar Grímsson, Ai-
þýðubandalagi, hóf utandagskrár-
umræðuna um laun hæstaréttar-
dómara í gær. Vildi hann að það
yrði íhugað í alvöru og af miklum
þunga að sú ákvörðun forsætis-
ráðuneytisins að samþykkja þessa
sjálftöku Hæstaréttar verði aftur-
kölluð. Sagðist hann ekki vera sam-
mála því sem kom fram hjá Krist-
ínu Ástgeirsdóttur, Samtökum um
kvennalista, að hæstaréttardómar-
ar væru ekkert of sælir af launum
sínum. Dómarar væru á mjög góð-
um launum og nytu þeirra einstæðu
kjara ásamt forseta íslands að
halda þessum launum til æviloka.
Nú byggju níu fyrrverandi hæsta-
réttardómarar við þessi kjör.
Friðrik Sophusson, starfandi for-
sætisráðherra, hafnaði því í um-
ræðunum að hægt væri að aftur-
kalla þessa hækkun til dómaranna
sem nemur um hundrað þúsund
krónum á mánuði. Hrafn Bragason,
varaforseti Hæstaréttar, rökstyður
greiðslurnar með auknu álagi á
Hæstarétt síðastliðið haust.
Sjá miðopnu: „Hæstiréttur
tekur sér laun . .
Lagt til að
prófkjör
verði hinn
31. janúar
STJÓRN fulltrúaráðs sjálf-
stæðisfélaganna í Reykjavík
mun leggja til við fund í
fulltrúaráðinu í næstu viku
að prófkjör verði haldið til
uppstillingar á framboðs-
lista fyrir kosningar til
borgarstjórnar í vor og að
prófkjörið verði haldið 31.
janúar.
Almennt prófkjör var ekki haldið
fyrir síðustu borgarstjórnarkosn-
ingar en fyrir tvennar kosningar
þar á undan var prófkjör haldið
fyrir áramót. Á fundi stjórnar full-
trúaráðsins í gær ákvað meirihlut-
inn, sem samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins var níu fulltrúar,
að leggja til að prófkjör yrði eftir
áramót, hinn 31. janúar, en minni-
hluti fundarmanna, átta stjórnar-
menn, vildi að prófkjör færi fram
fyrir áramót, þ.e. í lok nóvember
eða byijun desember.
Nær kosningum
Ekki náðist í Baldur Guðlaugs-
son, formann stjórnar fulltrúaráðs-
ins, í gær og varaformaðurinn,
Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson,
vísaði á formanninn þegar leitað
var eftir upplýsingum hjá honum.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
taldi meirihlutinn að prófkjör í lok
nóvember eða byijun desember
væri of nálægt kosningum um sam-
einingu sveitarfélaga og að betra
væri að hafa prófkjör nær borgar-
stjórnarkosningum en verið hefði.
Þeir sem mæltu með prófkjöri fyrir
áramót vildu ljúka því af, þannig
að vinnutarnirnar yrðu tvær með
góðu hléi á milli. Slíkt hlé væri einn-
ig æskilegt til að menn sem keppt
hefðu í prófkjöri gætu náð betur
saman í kosningum.
Tillagan um prófkjör 31. janúar
verður tekin fyrir á almennum fundi
í fulltrúaráðinu næstkomandi
þriðjudag.
Tekið upp séreftírlit með
rússneskum togurum
LÖGREGLAN og tollgæslan hafa ákveðið að taka upp sérstakt
eftirlit með áhöfnum rússneskra togara sem koma inn til hafnar
í Reykjavík. Togurunum verður eins og framast er unnt beint
til þeirra hluta Reykjavíkurhafnar þar sem eru afgirt svæði sem
auðveit er að hafa eftirlit með. Þá verða útivistarheimildir til
sjómannanna að næturlagi takmarkaðar. Einn lögreglumaður og
einn tollvörður fá það verkefni að fylgjast sérstaklega með áhöfn-
um skipanna og verður rússnesku sjómönnunum m.a. gerð grein
fyrir því að þeir geti átt von á að leitað verði í fórum þeirra áður
en þeir fara um borð eftir landvist.
Á fundi lögreglu og tollyfir-
valda í gær var ákveðið að beina
sérstöku eftirlitsátaki að áhöfnum
rússneskra skipa sem hingað
koma vegna umræðna um að sjó-
mennirnir stundi viðskipti með
áfengi og tengist þjófnaðarmálum
og viðskiptum með -illa fengna
vara- og aukahluti í bíla.
Fylgst með ferðum sjómanna
Að sögn Ómars Smára Ár-
mannssonar aðstoðaryfirlögreglu-
þjóns var ákveðið að grípa til fyrr-
greindra aðgerða í Reykjavík og
standa vonir til að svipað fyrir-
komulag verði tekið upp í Hafnar-
firði og lögð áhersla á að fýlgst
verði með ferðum sjómannanna
að og frá borði þannig að Ijóst
sé hvað þeir bera með sér um borð.
Eins og kunnugt er fannst í
liðinni viku þýfi af bílapartasölum
um borð í rússneskum togara en
auk þess eru uppi getgátur meðal
lögreglumanna, samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins þótt
ekki liggi fyrir sannanir, að mikil
alda innbrota í bíla sem gengið
hefur yfir borgina undanfarið
kunni að tengjast komum rúss-
neskra togara.