Morgunblaðið - 19.10.1993, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.10.1993, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 1993 Stuðningsmenn Borís Jelts- íns stofna stj órnmálaflokk Moskvu. The Daily Telegraph. HELSTU stuðningsmenn Borís Jeltsíns Rússlandsforseta stofnuðu um helgina flokkinn Valkostur Rússlands, með það að markmiði að ná hreinum meirihluta í þingkosningunum, sem haldnar verða í desember. Stuðningsmenn forsetans urðu hins vegar fyrir vonbrigð- um því að hann mætti ekki sjálfur á stofnfundinn þar sem veggir höfðu verið skreyttir með myndum af Pétri mikla Rússlandskeisara. Timman klúðr- aði vinningnum Jakarta. Reuter. HOLLENDINGURINN Jan Timman klúðraði í gær kjörnu tækifæri til að sigra Anatolíj Karpov og tapaði 14. skák þeirra í heimsmeist- araeinvígi alþjóðaskáksambandsins FIDE. Karpov jók þar með forystu sína í éinvíginu og er með 8,5 vinninga á móti 5,5. Hann þarf 12,5 vinninga til að sigra í einvíginu. Næsta skák verður tefld á morgun, miðvikudag, og Timman verður þá með hvítt. Timman getur aðeins kennt sjálf- um sér um ósigurinn í gær. Hann tefldi af mikilli grimmd strax frá byrjun, fórnaði skiptamun í 13. leik og náði mun betri stöðu. En í enda- taflinu sást honum yfir vinnings- leik, drap gagnslaust peð og Karpov náði yfirhöndinni. Timman gaf skákina eftir 53 leiki og tæplega sex klukkustunda setu. Timman virtist gráti nær þegar hann gekk á brott og sagði ekki orð við blaðamenn sem biðu hans. „Sigurlíkur Timmans eru orðnar mjög litlar," sagði aðstoðarmaður hans, Yasser Seirawan. Rússnesk einkafyrirtæki, sem fer óðum fjölgandi, eru meðal öflugustu bakhjarla framboðsins og er búist við að Valkostur Rúss- lands verði sá flokkur sem úr mestu fjármagni mun hafa að spila í kosningabaráttunni. Jegor Gajd- ar, fyrrum forsætisráðherra, sagði á stofnfundinum að ríkisstjórnin gæti ekki lofað kjósendum miklu vegna mikils halla á fjárlögum og verðbólgu. „Við getum aftur á móti lofað stöðugum gjaldmiðli, stöðugri stjórnun og stöðugri lög- gjöf til verndar einkaeign sem og því að fjármunum ríkisins verði varið til að aðstoða þá, sem þurfa á því að halda,“ sagði Gajdar. Helstu keppinautar framboðsins í kosningunum verða að öllum lík- indum flokkar, sem vilja hægari breytingar. Ekki er búist við að harðlínukommúnistar og þjóð- ernissinnar muni verða mjög áber- andi í kosningabaráttunni enda ríkir mikil upplausn í þeirra röðum eftir hina misheppnuðu valda- ránstilraun fyrir tveimur vikum. Neyðarlögum var aflétt í Moskvu í gær en mörg dagblöð öfgamanna hafa verið bönnuð og einnig eru ijöldafundir enn bannaðir. Meðal þeirra ráðherra, sem talið er öruggt að muni styðja hann í þingkosningunum má nefna An- drei Kozyrev utanríkisráðherra, Anatolíj Shubajs, ráðherra einka- væðingar og Gajdar. Sergei Shakrai, sem séð hefur um smíði nýrrar stjórnarskrá, hefur hins vegar stofnað sinn eigin flokk og ekki er vitað hvern Viktor Tjernó- myrdín forsætisráðherra mun styðja. Míkhaíl Gorbatsjov fyrrum Sov- étforseti lýsti því yfir um helgina að hann hygðist ekki bjóða sig fram í kosningum. ERLENT Kemst Keiko heim til íslands? Hugmyndir eru um að verja 350 milljónum króna til að senda háhyrn- ing úr kvikmyndinni Frelsum Willytil heilsubótar við íslandsstrendur HÁHYRNINGURINN Keiko er mikið veikur og til að bjarga hon- um hyggjast velunnarar hans flylja hann til heimahaganna við ísland. Kostnaður við slíka flutninga nemur um 350 milljónum króna en ólíklegt er að leyfi fáist fyrir þeim, samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins, af ótta við sýkingarhættu. í fyrra lagðist yfirdýralæknir gegn sambærilei Keiko hlaut heimsfrægð fyrir leik sinn í kvikmyndinni Frelsum Willy en hírist engu að síður í lít- illi laug í Mexíkó-borg. Sýkingar i húð og munni eiga greiða leið að Keiko og verði honum ekki bjargað, deyr hann. Keiko var veiddur við íslands- strendur fyrir rúmum áratug. Hann var fyrst fluttur til Kanada þar sem hann var hafður til sýnis í sædýrasafni í nokkur ár. Því næst var hann seldur til sædýra- safns í Mexíkóborg, þar sem hann hefur verið síðan. Keiko er um sjö metra langur og er haldið í laug sem er 30 metrar á lengd, 13'A metri á breidd og sjö metra- djúp. Samkvæmt grein í nýjasta hefti Bandaríska tímaritsins Life er ljóst að honum líður illa í prí- sundinni þar sem hann nagar steinsteypta veggi laugarinnar og því eru tennur hans illa farnar, svo og húðin á trýninu. Sjórinn í lauginni er allt að 26° heitur en aðeins um 4° eða rúmlega það hér við land, þaðan sem Keiko er. Tveimur tonnum of léttur Keiko er ætlað að sýna listir sínar þrisvar sinnum á dag en vegna hitans innbyrðir hann að- eins um þriðjung þeirrar fæðu sem hann myndi gera í sínu náttúru- lega umhverfi og hefur því ho- rast. Sjávarlíffræðingar segja hann vera um tveimur tonnum of léttan. Hreinsunarkerfí laugarinn- ar er afleitt og nær engan veginn að hreinsa saur og matarleifar. Vegna bakteríugróðursins í laug- inni er Keiko með slæma sýkingu í húð og sagði einn sjávarlíffræð- ingurinn sem skoðaði Keiko að hann gæti drepist hvenær sem væri. Eigendur Keikos hafa reynt að finna betri stað fyrir hann en önnur sædýrasöfn hafa jafnan neitað að taka við honum þegar þau hafa séð skýrslur um líkam- legt ástand hans. •i umsókn. Björgum Keiko Á síðasta ári hrundu framleið- endur Frelsum Willy af stað söfn- un til byggingar á rannsóknarstöð þar sem ætlunin er að bæta líðan Keikos og annarra háhyrninga, sem sviðað er ástatt um. Þá hefur sjávarlíffræðingurinn Ken Balcomb sýnt Keiko mikinn áhuga en hann hefur helgað sig rann- sóknum á háhyrningum síðustu átján árin. Balcomb fullyrðir að háhyrningar sem eyða ævinni í búrum, lifi að jafnaði um tíu ár en við eðlilegar aðstæður séu líf- slíkur dýranna frá þijátíu og upp í fimmtíu ár. Ekki er vitað hvort háhymingar sem hafa verið í laug eða búri, spjari sig í náttúrulegum heimkynnum og hyggst Balcomb rannsaka það. Hann hefur gert nokkrar áætlanir um hvernig venja megi Keiko við frelsið og ein þeirra felst í því að flytja hann hingað til lands. Fyrsta árið yrði hann í Mexíkó, í endurbættri laug. Reynt yrði að lækna húðsjúkdóminn og Keiko yrði gefin íslensk síld til að hann næði fullri þyngd. Að því búnu yrði Keiko fluttur í rannsóknar- stöð Balcombs í Bandaríkjunum. Stöðin stendur við vík þar sem Keiko myndi læra að veiða sér til matar og læra samskipti við há- hyrninga á íslandsmiðum. Spilað- ar yrðu upptökur af hljóðum nor- rænna háhyrninga, svo að Keiko gæti lært „mállýsku" þeirra. Eftir tvö ár í rannsóknarstöð- inni er hugmyndin að senda Keiko til íslands, þar sem hann yrði sett- ur í kví, sem yrði smám saman stækkuð og á endanum opnuð. Vísindamennirnir myndu festa sendi við Keiko og fylgjast með honum í ár eftir að honum hefur verið sleppt. Spjarar Keiko sig? Þrennt stendur þessari áætlun Keiko ygglir sig Keiko nuddar tönnunum við steinsteypta veggi laugar- innar og eru tennur hans illa farnar. Laugin Hreinsunarút- búnaði núver- andi heimkynna Keikos er veru- lega áfátt. fyrir þrifum; tennur Keikos eru illa farnar og því ólíklegt að hann geti veitt sér til matar, líkegt er að hann hafi gleymt því hvernig eigi að veiða og svo óttast menn að hann kunni að smita aðra hvali af húðsjúkdómnum. Islendingar munu að öllum líkindum setja sýkingarhættuna fyrir sig. Balcomb var nýlega staddur hér á landi, átti viðræður við íslensk yfírvöld um flutningana á hvaln- um, auk þess sem hann keypti íslenska síld handa Keiko. Líkur benda hins vegar til þess að nær komist hann ekki heimahögunum. Banna er- lent gervi- hnatta- sjónvarp STJÓRN kommúnista í Kína hyggst banna landsmönnum að taka á móti sendingum frá er- lendum sjónvarpsstöðvum sem senda um gervihnetti, þ. á m. STAR-stöðinni sem fjölmiðla- kóngurinn Rupert Murdoch hefur nú keypt og sendir frá Hong Kong. Talsmaður stjórn- valda sagði að sendingarnar ógnuðu fullveldi þjóðarinnar. Atvinnuskap- andi tillögum vísað á bug FINN Thorgrimson, forseti danska alþýðusambandsins, lagði fyrir helgina til að íjár- lagahallinn yrði aukinn um 15 milljarða d. kr. til að draga úr atvinnuleysinu. Mogens Lyk- ketoft, fjármálaráðherra og jafnaðarmaður, segir að þetta komi ekki til greina því að af- leiðingin yrði vaxtahækkun. Þetta myndi verða til þess að í stað nýju starfanna hyrfu önnur, aðallega í einkageiran- um. Vinnuvikan lengd BÆJARALAND, fjölmennasta sambandsríkið í Þýskalandi, hefur nú riðið á vaðið og lengt vinnuviku opinberra starfs- manna úr 38 og hálfri stund í 40 stundir. Breytingin tekur gildi frá áramótum og er gert ráð fyrir að með þessu megi fækka störfum um 600 næstu tvö árin. Samtök opinberra starfsmanna hafa þegar mót- mælt ákvörðuninni. Rússar sökkva kjarn- orkuúrgangi RÚSSAR létu Alþjóðakjarn- orkumálastofnunina í Vín, IAEA, vita af því fyrir fram að þeir hygðust fleygja geisla- virkum kjarnorkuúrgangi í Jap- anshaf, að sögn talsmanna IAEA í gær. Geislavirkni efnis- ins er svo lítil að ekki telst vera um brot á alþjóðareglum að ræða en Japanar hafa samt mótmælt verknaðinum. Mao týndur í geimnum KÍNVERSK stjórnvöld sögðu frá því í gær að tilraunagervi- hnöttur, sem skotið var á loft 8. október, hefði bilað og ekki lent aftur á jörðu niðri eins og ætlunin var. Héraðsblað skýrði frá því að um borð hefði verið demöntum skreytt orða með mynd Mao Tse Tsungs og hefði átt að selja hana á uppboði eftir geimferðina. Schengen- samningur taki gildi í febrúar RÁÐHERRAR frá níu ríkjum í Evrópubandalaginu ákváðu í gær að síðustu leifar eftirlits á landamærum milli þeirra yrðu aflagðar 1. febrúar nk., að sögn franskra embættismanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.