Morgunblaðið - 28.10.1993, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 28. OKTOBER
YFIRLIT: Við Hvarf er 995 mfa lægð, sem þokast norður en yfir Skot-
landi er 1.037 mb hæð. Heldur hlýnar í veðri.
SPÁ: Suðlæg átt, víðast kal.di og hlýtt. Súld um Sunnan- og Vestanvert
landið en annars þurrt. Hiti 9-16 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðlæg eða suðvestlæg átt, viðast fremur
hæg. Dálítil rigning eða súld sunnanlands og vestan en bjart veður
norðaustanlands. Hlýtt, einkum á Noröur- og Austurlandi.
HORFUR Á LAUGARDAG: Fremur hæg suðvestlæg átt. Skýjað sunnan-
lands og vestan en bjart veður á Noröur- og Austurlandi. Lítið eitt kóln-
andi, ef til vill næturfrost norðanlands og austan.
HORFUR Á SUNNUDAG: Suðvestanátt og bjartviðri norðaustanlands
en fer að þykkna upp með suðaustanátt og hlýnar sunnanlands og vest-
an.
Nýir veðurfregnatimar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskirt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
r r r
r r
r r r
Rigning
* / *
* r
r * r
Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V i/ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindðrin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.(
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM:
(Kl. 17.30ígær)
Þjóðvegir landsins eru nú flestir greiðfærir og hálkulausir. Víða er unnið
við vegagerð og eru ökumenn beðnir að gæta varúðar og aka þar eins
og annarsstaðar, samkvæmt merkingum. Um færð á hálendinu er ekki
vitaö.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyrl 8 skýjaö
ReykjavOc 8 alskýjað
Bergen 9 súld
Helsinki 1 rigníng
Kaupmannahöfn 7 þokuruðningur
Narssarssuaq vantar
Nuuk i-3 skýjað
Osló 6 léttskýjað
Stokkhólmur 11 léttskýjað
Þórshöfn 9 akýjað
Algarve 17 léttskýjaA
Amsterdam 10 súld
Barcelona 16 alskýjað
Berlín 8 súld
Chica'go 6 alskýjað
Feneyjar 14 heiðskírt
Frankfurt 8 skýjað
Glasgow 8 hálfskýjað
Hamborg 10 skýjað
London 10 skýjað
Los Angeles 15 heiðskírt
Lúxemborg vantar
Madríd vantar
Malaga 17 skýjað
Mallorca 21 skýjað
Montreal 7 skýjað
New York vantar
Orlando 18 helðskírt
Parí8 9 skýjað
Madelra 20 skýjað
Róm 22 heiðskírt
Vín 9 léttskýjað
Waahington 12 alskýjað
Wlnnipeg +2 alskýjað
Fullur g-ámur
STARFSMENN Radíóbúðarinnar opnuðu í gær gáminn með sjón-
varpstækjunum sem eftirvæntingafullir kaupendur fá afhent nú
í vikunni.
72 sjónvarpstæki
seldust á einum degi
EINN gámur, eða 72 sjónvarpstæki af gerðinni Nordmende,
seldist upp á mánudag hjá Radíóbúðinni en verslunin auglýsti
tækin til sölu í Morgunblaðinu á sunnudag. Grímur Laxdal for-
sljóri Radíóbúðarinnar segir að fyrirtækið hafi selt fyrir 7-8
milljónir króna og þessi mikla sala hafi komið þeim í opna skjöhlu
því reiknað var með að selja sendinguna á u.þ.b. liálfum mánuði.
Grímur kveðst ekki þekkja
neinar sérstakar skýringar á söl-
unni, en hún endurspegli þá sann-
færingu hans að efnahagskreppan
sé að mestu liðin undir lok og
allt stefni í góðæri. „Margir þurfa
líka að endurnýja og menn eiga
erfitt með að hafna góðu boði,“
segir Grímur.
Hann segir að verð sjónvarps-
tækjanna hafi verið óvenju lágt
miðað við það sem tíðkast mark-
aðinum vegna hagstæðra samn-
inga við framleiðendur, sem stafi
meðal annars af því að pöntunin
sé stór.
Fyrirtækið hefur óskað eftir
tveimur gámum til viðbótar frá
framleiðanda, og segir Grímur þá
væntanlega innan tíu daga.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Kynningin kostar 20 milljónir
DEKKJAKYNNING Dunlop hérlendis kostar hátt í 20 milljónir kr.
en fyrirtækið bauð _um 85 blaðamönnum frá Evrópu til að prófa
nýstárleg snjódekk. í samvinnu við Benz, BMW og VW voru fluttir
hingað 15 bílar ásamt hundruðum dekkja til prófunar í snjó við
Langjökul. Mikill hiti og rigning hefur breytt áætlun Dunlop talsvert.
I stað þess að fara á jökul reyndu hópar blaðamanna dekkin og bílana
á Keflavíkurflugveili í gær. Vonast forráðamenn prófunarinnar til
að fært.verði á Langjökul á laugardag með síðasta blaðamannahóp-
inn. Þróun dekkjanna hefur kostað 250 milljónir kr. og kynningin
hérlendis er fyrsti þátturinn í markaðssetningu snjódekkjanna, en
snjóinn hefur skort enn sem komið er. Á myndinni má sjá Benzbíl,
sem ekur milli mælitækja, sem sanna eiga yfirburði nýju dekkjanna.
Grandi hf. kaupir nýjan
frystitogara frá Noregi
sem var smíðaður 1973. Ekki hefur
verið tekin ákvörðun um það hvort
Snorri verði seldur eða gerður út á
fjarlæg mið. Sókn togara Granda
innan 200 mílna lögsögunnar verð-
ur ekki aukin, heldur ætlar fyrir-
tækið að sækja meira á djúpmið.
Kaupin á nýja frystitogaranum
munu ekki draga úr landvinnslu
Granda hf. í Norðurgarði.
Ríkishlutabréf í SR-mjöli og Þormóði ramma
Verðbréfafyrirtæki
keppi um útboðið
FRAMKVÆMDANEFND um einkavæðingu hefur óskað eftir tilboðum
verðbréfafyrirtækja í verðmat og umsjón með sölu hlutabréfa ríkisins
í SR-mjöli hf. og Þormóði ramma hf. SR-mjöl hf. yfirtók starfsemi
Síldarverksmiðja ríkisins og á ríkissjóður fyrirtækið að fullu. Ríkið á
16,55% hlutafjár í útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækinu Þormóði ramma
hf. á Siglufirði. Fyrirhugað er að selja öll þessi hlutabréf.
Framkvæmdanefndin óskar eftir þetta verk og síðan farið að selja
tilboðum verðbréfafyrirtækjanna
fyrir 1. nóvember næstkomandi. í
tilboðunum á meðal annars að koma
fram kostnaður við verðmat hluta-
bréfa í fyrirtækjunum, söluþóknun
og tímaáætlun. Gert er ráð fyrir að
eftir mánaðarmótin verði samið við
eitthvert verðbréfafyrirtækjanna um
hlutabréfin.
Sérstakur starfshópur í sjávarút-
vegsráðuneytinu undir forystu Arn-
dísar Steinþórsdóttur, formanns
stjórnar SR-mjöls hf., hefur annast
undirbúning sölu fyrirtækisins ásamt
framkvæmdanefnd um einkavæð-
ingu.
Innbrot hjá söluskála Olís á Eyrarbakka
Þjófurinn vildi bara
Síríus með hnetum
Eyrarbakka.
BROTIST var inn í söluskála Olís á Eyrarbakka aðfaranótt miðviku-
dagsins. Brotnar voru nokkrar rúður og hefur þjófurinn, eða þjófarn-
ir, þurft að smeygja sér í gegn um brotna rúðu á framhlið skálans til
að komast inn því ekki tókst að sprengja upp hurðina.
Nokkrar skemmdir voru unnar á
spilakassa en lítið var í honum af
peningum að þessu sinni enda ný-
búið að tæma hann. Þá var einnig
átt við Lottókassann, en hann virðist
þó í lagi eftir aðförina. Stolið var
nokkru af sígarettum, þó aðeins einni
tegund, rauðum Winston. Súkkulaði
virðist hafa freistað þessa óboðna
gests, þar var einnig um einhæfan
smekk að ræða, því hann vildi aðeins
eina tegund, Síríus með hnetum.
Aðkoman var óhugnanleg í morg-
un, allt blóði drifið og blóðug fíngra-
för og fótspor um allt. Það var um-
boðsmaður Morgunblaðsins sem lét
vita af brotinni rúðu um hálf sjöleyt-
ið í morgun, en hann var þá að bera
blaðið út.
- Óskar
GRANDI hf. hefur fest kaup á
nýjum frystitogara í Noregi, sem
afhentur verður fyrirtækinu í lok
nóvember nk. Skipið var smíðað
árið 1992 hjá Sterkoder skipa-
smíðastöðinni i Krisljánssundi.
Togarinn er 64 metra langur, 13
metra breiður og með 3.400 hest-
afla aðalvél.
Hinn nýi togari hefur verið í eigu
Den norske bank og er kaupverð
hans 570 milljónir íslenskra króna.
Hér er um mjög fullkominn frysti-
togara að ræða með búnað til veiða
og fullvinnslu afla.
Endurnýjun togaraflotans
Ástæðan fyrir kaupunum er fyrst
og fremst liður í endurnýjun skipa-
stóls Granda hf. en meðalaldur hans
er nú 15 ár, að því er fram kemur
í frétt frá fyrirtækinu. Stefna þess
sé að ráða fullkomnum skipa- og
tækjabúnaði til veiða og vinnslu.
Hinn nýi togari kemur í stað
frystitogarans Snorra Sturlusonar,
iDAGkl. 12.00
HeimiW: Veöurstofa tslands
(Byggt ó veðurspó kl. 16.15 í gær)