Morgunblaðið - 28.10.1993, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993
19
Þingsálykt-
unartillaga
um alþjóð-
lega skrán-
ingu skipa
LÖGÐ hefur verið fram á Al-
þingi tillaga til þingsályktunar
um alþjóðlega skráningu skipa,
en í henni er m.a. gert ráð fyr-
ir að leyfð verði alþjóðleg
skráning fiskiskipa sem úrelt
hafa verið úr íslenska fiski-
skipaflotanum. Flutningsmenn
tillögunnar eru Steingrímur J.
Sigfússon og Jóhann Arsælsson.
Samkvæmt þingsályktunartil-
lögunni er ríkisstjórninni falið að
undirbúa hið fyrsta nauðsynlegar
aðgerðir svo koma megi á alþjóð-
legri skráningu skipa hér á landi.
Samið verði og lagt fyrir Alþingi
frumvarp til laga þar sem opnað
verði fyrir alþjóðlega skráningu
kaupskipa með sambærilegum
hætti og tíðkast í Danmörku og
að leyfð verði alþjóðleg skráning
fiskiskipa sem úrelt hafa verið úr
íslenska fiskiskipaflotanum eða
keypt eru erlendis frá án þess að
hafa veiðileyfi í íslenskri lögsögu.
Selir björguðu lambi
Þrír smalar lausir úr álögum?
ÞRIR selir stungu hausnum upp úr sjónum og stöðvuðu með því
sund lambs út á sjó frá Kjalarnesi á dögunum. Eigandi lambsins,
Sigurbjörn Hjaltason bóndi á Kiðafelli í Kjós, segir að selirnir
hafi bjargað lambinu. Hann segir að einhvern tímann hefði þetta
þótt gott efni í þjóðsögu, sem gæti verið um þrjá smala sem lo-
snuðu úr álögum við það að bjarga þrílembu.
Dr. Þorkell Þór Guðmundsson
Borgey á Kiðafell er mikil metær,
undan Aroni frá Hesti og afi hennar
er Gámur frá Oddgeirshólum. Hún
er sjálf þrílemba og var þrílembd í
vor. Sigurbjörn segir að hún sé ein-
fari og sé gjarnan ein í þeim högum
sem hún finni sér. Hún sé oft á
Doktor í rafmagns- og
tölvunarverkfræði
FYRIR skömmu lauk Þorkell Þór
Guðmundsson doktorsprófi í raf-
magns- og tölvunarverkfræði frá
Kaliforníuháskóla í Santa Barbara
í Bandaríkjunum.
Doktorsritgerð hans fjallar um
tölulegar aðferðir til þess að leysa
ýmis stærðfræðileg vandamál sem
flest eru tengd kerfísverkfræði á einn
eða annan hátt. Sífellt aukið umfang
þeirrar greinar á síðustu árum hefur
kallað á nýjar og hagkvæmar reikn-
iaðferðir og geta niðurstöður Þorkels
t.d. komið að notum við hönnun risa-
vaxinna geimstöðva eða hraðfleygra
og lipurra flugvéla.
Þorkell varði ritgerð sína í Santa
Barbara í október 1992 og vann við
rannóknir við verkfræði- og stærð-
fræðideildir háskólans þar fram í
byrjun september. Foreldrar Þorkels
eru Guðrnundur Þorsteinsson þýð-
andi og Ásthildur Þorkelsdóttir. Þor-
kell er kvæntur Maríu Kjartansdóttur
hagfræðingi og eiga þau tvo syni.
Kjalarnesi og meðfram vegum með
tilheyrandi vandræðum fyrir umferð.
Hann segist hafa vitað af henni við
veginn um miðjan ágúst en síðan
hafi hann lengi spurst fyrir um hana
án árangurs þar til nú að hún fannst
fyrir neðan sjávarbakka við Dals-
mynni á Kjalarnesi.
„Ég ætlaði að skjótast eftir henni
um kvöldið og fékk með mér tvo
menn með þjálfaða ijárhunda. Við
náðum hrútlambi en Borgey náði að
snúa sig út úr þessu með tvö lömb
og við misstum hana niður af sjávar-
bakkanum. Ég sendi mennina á
næsta bæ og ætlaði að reka kindina
þangað. Lömbin og ærin voru skelfd,
orðin hrædd við hundana og annað
lambið hljóp út á klettasnös við sjó-
inn. Þegar ég ætlaði að koma því
aftur upp stökk það út í sjó og synti
út víkina. Ég sá bara á eftir því og
gat ekkert gert. Þá gerðist það að
þrír selir stungu upp hausnum og
þegar lambið var komið 20-30
metra út sá lambið þá og sneri við.
Lambið lónaði eftirjiað í víkinni en
synti ekki í land. Ég ákvað þá að
fara heim á leið, ætlaði að treysta
á Guð og lukkuna og ekki síst að
selirnir myndu bjarga lambinu fyrir
mig. Ég fór að gá að fénu eftir
mjaltir morguninn eftir og þá var
lambið komið upp í ijöruna og var
þar rólegt með móður sinni og syst-
ur.“
Smalar í álögum?
Sigurbjörn sagði að í gamla daga
hefði þetta atvik þótt gott efni í þjóð-
sögu. Það hefði áreiðanlega verið
lagt út þannig að þarna hafi verið
þrír smalar í álögum. Þeir myndu
ekki bjargast fyrr en þeir næðu að
bjarga þrílembu. „Ég hef reyndar
ekki heyrt að sést hafi til ferða
þriggja smala á Kjalarnesi en það
veitti áreiðanlega ekki af þremur
smölum þar,“ sagði Sigurbjörn á
Kiðafelli.
♦ ♦ ♦-------
■ III. RAÐ ITC á íslandi heldur
fyrsta ráðsfund starfsársins laugar-
daginn 30. október nk. kl. 10 árdeg-
is á Hótel Sögu, A-sal. ITC-deildin
Eik, Reykjavík, skipuleggur fund-
inn sem er öllum opinn. A dagskrá
er m.a. athyglisverð kynning á nýrri
tækni, Alexanderstækni. Forseti
III. Ráðs starfsárið 1993-1994 er
Jónína Þ. Stefánsdóttir ITC Fífu
og í III. Ráði eru starfandi sex
deildir.
Skelltu þér í helgarferð með SAS!
Fargjöldin gilda til 31. mars 1994
Keflavík - Kaupmannahöfn.......27.500
Keflavík - Osló.............. 27.500
Keflavík - Stavanger...........29.140
Keflavík - Bergen..............29.140
Keflavík - Kristiansand........29.140
Keflavík - Stokkhólmur.........27.500
Keflavík - Gautaborg...........27.500
Keflavík - Malmö...............29.140
Keflavlk - Norrköping..........32.520
Keflavík - Jönköping...........32.520
Keflavík - Kalmar.................32.520
Keflavík - Váxjö.................32.520
Keflavík - Vesterás...............32.520
Keflavík - Örebro.................32.520
Keflavík - Helsinki..............33.190*
Keflavík - Tampere...............33.190*
Keflavík - Turku............... 33.190*
Keflavík - Hamborg................29.140
Keflavík - Frankfurt..............29.140
Keflavík - París.................29.140
Lágmarksdvöl aðfararnótt sunnudags, hámarksdvöl 4 nætur.
*Hámarksdvöl 4 dagar.
Börn og unglingar frá 2ja til 12 ára fá 50% afslátt.
m
Hafðu samband við ferðaskrifstofuna þína
eða söluskrifstofu SAS.
SAS á Islandi - valfrelsi í flugi!
Laugavegl 172 Síml 62 22 11