Morgunblaðið - 28.10.1993, Síða 27

Morgunblaðið - 28.10.1993, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993 27 Aftenposten Gróðursetning í Ás HINN fjögurra ára gamli Runar aðstoðaði forseta íslands við gróðursetningana í gær. Stjómsýsla prestssetra færist til þjóðkirkjunnar Lagt til að stofnaðir verði kirkjumálasjóður og prestssetrasjóður STJÓRNSÝSLA prestssetra og tilsjón með þeim færist frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu til þjóðkirkjunnar nái tillögur 24. kirkjuþings um stofnun sérstaks prestssetrasjóðs fram að ganga. A kirkjuþingi í gær fór fram umræða um þingsálykt- unartillögu um stofnun kirkjumálasjóðs og prestssetrasjóðs. Lagt er til að í kirkjumájasjóð renni 11,3% af gjöldum er renna til þjóðkirkjusafnaða. Úr kirkjumálasjóði skulu að minnsta kosti 52 milljónir króna renna til prestssetrasjóðs en auk þess er honum ætlað að standa straum af kostnaði við kirkjuþing, kirkjuráð, prestastefnu, biskupsgarð o.fl. í þingsályktunartillögu um kirkjumálasjóð er gert ráð fyrir að ríkissjóður skili sjóðnum af tekju- skatti gjaldi er nemur 11,3% af gjöldum sem renna til þjóðkirkju- safnaða samkvæmt lögum um sóknargjöld. Skal kirkjumálasjóður skila á hveiju ári fjárhæð er rennur til prestssetrasjóðs, eftir nánari ákvörðun kirkjuráðs. Framlagið skal eigi nema lægri fjárhæð en 52 milljónum króna. Auk þess skal kirkjumálasjóður standa straum af kostnaði við kirkjuþing, kirkjuráð og prestastefnu, biskupsgarð, ráð- gjöf í fjölskyldumálum, söngmála- stjórn og tónlistarfræðslu, starfs- þjálfun guðfræðikandídata o.fl. Prestssetrasj óður Tekjur prestssetrasjóðs auk hins fasta framlágs úr kirkjumálasjóði skulu verða leigutekjur af prests- setrum, söluandvirði prestssetra og framlög sem einstakar sóknir kunna að veija til tiltekinna verk- efna. Prestssetrasjóður skai kosta nýbyggingar prestssetra, viðhald prestssetra, lögboðnar vátrygging- ar þeirra og fasteignagjöld. Auk þess skal sjóðurinn standa straum af kaupum og sölu prestssetra, eignakaupum á prestssetursjörðum og öðrum rekstri sem greiðist ekki af presti. A kirkjuþingi í gær gerði lö&u gjafanefnd þingsins bókun þar sem athygli Alþingis er vakin á því, að þrátt fyrir vaxandi starf kirkjunnar hafi framlag á fjárlögum til kirkju- legra málefna farið hlutfallslega minnkandi ár frá ári um alllangt skeið. Þá er minnt á að kirkjuþing hafí frá upphafi mótmælt 20% skerð- ingu á tekjum kirkjugarðanna og ekki liggi ennþá fyrir hvernig görð- unum verður bættur sá tekjumissir sem þeir verða fyrir við niðurfell- ingu aðstöðugjalda. Kirkjuþing bendir einnig á, að ekki liggur fyrir þinginu úttekt á ásigkomulagi prestssetranna hver ijárþörf þeirra er í raun. Lögreglustj óri segir mál ungii stúlkunnar hafa veríð í höndum RLR RLR segir stúlkuna ekkert hafa viljað við lögreglu tala Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands í opinberri heimsókn í Noregi Námsmenn nota tækifær- ið til mótmæla Ósló. Frá_ Jan Gunnor Furuly, frcttaritara Morgunblaðsins. VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti íslands, fékk góða aðstoð fjögurra ára drengs er hún gróðursetti eini við Rann- sóknarstöð norsku skógræktarinnar við Ás í Noregi, en hér er hún í opinberri heimsókn. Norskir stúdentar hafa hótað að trufla heimsóknina með mótmælaaðgerðum í dag. BÖÐVAR Bragason Iögreglusljóri í Reykjavík segir að mál stúlkunnar sem haldið var í fangaklefa lögreglunnar 23. septem- ber sl. eftir að hún hafði kært nauðgun hafi í raun ekki verið í höndum lögreglunnar nema í um eina klukkustund. Frá þessu máli var greint í blaðinu í gær. Eftir að menn frá Rannsóknar- lögreglu ríkisins komu á lögreglustöðina var litið svo á að málið væri í höndum RLR. Bogi Nilsson rannsóknarlögreglu- stjóri vildi ekki tjá sig um málið við Morgunblaðið í gær. Reiði stúdentanna beinist þó ekki gegn hinum vinsæla ís- lenska forseta, heldur mennta- málaráðherranum Gudmund Hernes og fjárlagatillögum hans. Telja stúdentarnir að fjárframlög til skólanna séu alltof lág og hafa haft í frammi mótmæli víðs vegar um Noreg að undanförnu. I Osló fóru um 150.000 manns í mótmælagöngu og kröfðust afsagnar Hernes. Þá hóta nem- endur í Þrándheimi að notfæra sér heimsókn forseta íslands til að mótmæla meðferð ríkisstjórn- arinnar á háskólunum. „Kóngurinn kemur - kemur þú?“ segir á veggspjöldum sem límd hafa verið upp víðs vegar í Þrándheimi en Vigdís Finn- bogadóttir verður einmitt sæmd heiðursdoktorsnafnbót við há- skólann í Þrándheimi. Talsmenn mótmælenda segj- ast mæla gegn því að nemendur hafi sig í frammi við sjálfa at- höfnina en útilokað sé að tryggja það að einhveijir af þeim þús- undum námsmanna sem mæti, láti í sér heyra. NTB-fréttastofan hafði það eftir öðrum náms- manni að ekki væri nokkur ástæða til að hlífa forseta ís- lands og konungshjónunum við mótmælunum. Lögreglan í Þrándheimi hefur gert sínar ráðstafanir og ræddi meðal annars við leiðtoga náms- manna. Hefur lögreglan litla trú á því að mótmælaaðgerðirnar verði miklar eða fari úr böndun- um. Niðarósskirkja skoðuð í gær opnaði forsetinn sýn- ingu á íslenskri nytjalist. Síðar um daginn heimsótti hún ráðhús- ið í Ósló ojg hélt að því búnu til móttöku Islendingafélagsins. í gærkvöldi var forsetinn við- staddur leiksýningu í boði norsku ríkjsstjórnarinnar. I dag mun forsetinn skoða Niðaróssdómkirkju, þar sem haldnir verða stuttir tónleikar. Frá Niðarósi verður svo haldið til Óslóar þar sem forseti íslands býður til hátíðarkvöldverðar á Grand Hotel. Lýkur heimsókn- inni í kvöld. Stúlkan kom á miðborgarstöð lögreglunnar ásamt vinkonu sinni á sjöunda tímanum, að sögn Böð- vars. „Þær voru illa á sig komnar vegna ölvunar og annarra atriða. Lögreglumanni sem var þarna á vakt skildist að þær teldu sig hafa verið misnotaðar kynferðislega. Hann hafði samband við aðalvarð- stjóra og þær voru fluttar á lög- reglustöðina á Hverfisgötu til við- ræðna. Það reyndist ákaflega erfitt að tala við þær en mönnum verður það ljóst að þetta mál sé þess eðlis að rétt sé að Rannsóknarlögreglu sé gert viðvart," sagði Böðvar. Málið úr höndum lögreglu Böðvar sagði að stúlkurnar hefðu verið mjög ódælar og viljað yfirgefa lögreglustöðina. Það hefði ekki þótt heppilegt þeirra vegna, altént ekki fyrr en þær hefðu rætt við Rann- sóknarlögreglu. „Þær voru því sett- ar hér í geymslu á meðan. Þær vildu alls ekki að haft yrði samband við heimili þeirra og það var ekki gert. Ég tel að á innan við einni klukku- stund frá því við fórum að sinna þessu máli hafi starfsmaður Rann- sóknarlögreglu verið kominn á lög- reglustöðina við Hverfisgötu. Þar með var þetta mál úr höndum lög- reglunnar í Reykjavík samkvæmt reglugerðum um starfaskiptingu lögreglu á höfuðborgarsvæðinu," sagði Böðvar. Hann sagði að það mætti hins vegar deila um hvers vegna ekki hefði verið farið _með stúlkunar á slysavarðstofu. „Ég tel að þar liggi fyrst og fremst að baki tvær ástæð- ur. í fyrsta lagi ruglingslegur fram- burður, ásakanir eru ýmist bornar fram eða dregnar til baka. í öðru Iagi sú staðreynd að aðalvarðstjóri hafði strax samband við Rannsókn- arlögreglu og starfsmaður kom þaðan innan nokkurra mínútna og tók þar með við málinu," sagði Böðvar. Yfirlýsing RLR Eftirfarandi yfírlýsing vegna málsins barst frá Rannsóknarlög- reglu ríkisins í gær: Vegna fréttar fréttastofu Stöðv- ar 2, Bylgjunnar og Morgunblaðs- ins um mál 16 árá stúlku sem vist- uð var í fangageymslu lögreglunnar í Reykjavík vill Rannsóknarlögregla ríkisins taka fram: Að morgni miðvikudagsins 22. september sl. kl. 6.30, barst RLR tilkynning frá lögreglunni í Reykja- vík um að á lögreglustöðinni, Hverf- isgötu 113, væri ung stúlka sem vildi kæra nauðgun. Rannsóknar- lögreglumaður fór þegar á lög- reglustöðina til þess að ræða við stúlkuna, sem þá hafði verið vistuð í fangaklefa og var sofandi. Hann vakti stúlkuna en hún vildi ekkert við hann tala eða eiga frekari sam- skipti við lögregluna. í ljósi þess að ekki var til meðferðar kærumál, sem ætti undir RLR, hefði stúlkan í raun og veru mátt fara. Hins veg- ar var það samdóma álit lögreglu- mannanna sem unnu að málinu að ekki væri forsvaranlegt vegna ölv- unarástands stúlkunnar og ungs aldurs að sleppa henni út á götuna. Ekki var vitað með vissu á þeirri stundu um dvalarstað stúlkunnar eða aðstandendur og var því af hálfu RLR haft samband við Fé- lagsmálastofnun Reykjavíkurborg- ar og tilkynnt um veru stúlkunnar í fangageymslu lögreglunnar og þess óskað að fulltrúi þaðan kynnti sér mál hennar. Fulltrúi félags- málastofnunar hafði samband við vakthafandi varðstjóra hjá lögregl- unni í Reykjavík og boðaði komu sína á lögreglustöð eftir kl. 13. Lauk þar með afskiptum RLR af stúlkunni að sinni. Síðar sama dag, um kl. 17, hringdi hjúkrunarfræðingur af Neyðarmóttöku til RLR, tilkynnti að stúlkan væri þar, hefði gengist undir læknisskoðun og vildi kæra nauðgun. Málið var tekið til rann- sóknar og voru rannsóknargögn send ríkissaksóknara til meðferðar þann 7. þ.m. í skýrslu lögreglunnar í Reykja- vík dagsettri 22. september sl. seg- ir svo m.a.: „Vorum sendir af Stjórnstöð lög- reglunnar að lögreglustöðinni í Tryggvagötu. Þar hittum við fyrir ..., lögreglumann. Hjá honum voivíi málsaðilar. Voru þær allt að því ósjálfbjarga vegna ölvunar og annarlegs ástand. Þær virtust einn- ig vera eitthvað miður sín ... tjáði okkur að þær hefðu komið á lög- reglustöðina þá skömmu áður og skildist honum að alla vegana ann- arri stúlkunni, X, hefði verið nauðg- að eða húh misnotuð kynferðislega. Fluttum við stúlkurnar á lögreglu- stöðina við Hverfisgötu og þar fyr- ir ... varðstjóra. Þær vildu þó ekki koma með okkur, vildu ekki gera mikið úr þessu og kváðust vilja fara í eitthvert hús að Klapparstíg þar sem þær kváðust geta fengið að leggja sig. Eins og áður hefur komið fram þá voru þær í heldur slæmu ástandi og því erfitt að ræða við þær. Var t.d. nokkuð erfitt að fá hjá þeim heimilisfang sem mark væri tak- andi á. Attum við orðið fullt í fangi með að halda stúlkunum rólegum þar sem þær vildu fara út en ekki var vegur að leyfa þeim að fara þar sem þær voru nánast ósjálfbjarga. Tók því varðstjórinn ákvörðun um geymslu þeirra þar til að maður kæmi frá RLR.“ < Það er í andstöðu við stefnu Rannsóknarlögreglu ríkisins að fjalla um einstök mál, eða málefni einstakra þolenda kynferðisafbrota, enda standa lög til þess að rann- sókn slíkra sakarefna fari fram fyrir luktum dyrum. Fréttir af máli ungu stúlkunnar hafa knúið RLR til að víkja frá markaðri stefnu að þessu sinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.