Morgunblaðið - 28.10.1993, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1993
39
Minning-
Sigríður Láretta
Tryggvadóttir
Þriðjudaginn 12. október lést á
Grensásdeild Borgarspítalans Sig-
ríður Láretta Tryggvadóttir.
Tengdamóðir mín, Lallý, var mjög
óvenjuleg kona. Ég kynntist henni
fyrst aðeins 17 ára gamall og fann
þá strax, að þar hafði ég eignast
góðan vin sem gott var að eiga að
ekki síst þegar eitthvað bjátaði á.
Þótt íbúðin á Vesturgötunni væri
ekki stór þá áttum við krakkarnir
hennar, börn og tengdabörn, þó öll
heimili þar um lengri eða skemmri
tíma í kjallaranum hjá Lallý og
Jóa. Og þótt svo ætti að heita að
við héldum þar sjálf heimili þá
mæddi það heimilishald meira og
minna á hennar herðum. Og ekki
kom það ósjaldan fyrir að við krakk-
arnir kæmum óvænt í mat til henn-
ar og jafnvel með gesti með okkur.
Alltaf þótti það jafn sjálfsagt, alltaf
var til nógur matur og aldrei fann
maður fyrir þrengslum í þessari litlu
íbúð, því þar réði hjartahlýjan og
gestrisnin ríkjum.
Lallý var óvenjulega dugleg kona
svo aldrei féll henni verk úr hendi
meðan heilsan entist. Ekki minnist
ég þess að hafa farið frá henni svo
seint að kvöldi eða komið til hennar
svo snemma morguns að hún væri
ekki eitthvað að starfa. Samt hafði
hún alltaf tíma til að spjalla og sinna
gestum sem oft voru margir því
Lallý var vinsæl kona.
En enginn má sköpum renna. A
hátindi lífsins aðeins 42 ára gömul
bilaði heilsan. Aldrei hvarflaði það
þó að Lallý að leggja árar í bát.
Hún hélt áfram að hlúa að sínu
heimili og fékk sér auk þess vinnu
utan heimilis. Og í tímans rás tóku
barnabörnin við að búa í kjallaran-
um hjá ömmu sini og afa og þau
eignuðust sömu vinina og við for-
eldrarnir höfðum eignast 20 árum
áður. Því þótt líkaminn hrörnaði þá
var andinn síungur.
Heilsu Lallýar hrakaði þó stöðugt
og síðustu mánuði dvaldist hún á
Grensásdeild Borgarspítalans.
Aldrei heyrðist hún kvarta en hafði
áhyggjur af heilsufari annarra, sín-
um eigin veikindum tók hún með
ótrúlegu jafnaðargeði.
Að endingu vil ég þakka henni
allt sem hún gerði fyrir okkur hjón-
in og börnin okkar.
Jóhannesi og fjölskyldunni votta
ég innilega samúð.
Sigurður Páll Ásólfsson.
Nú er hún elsku amma dáin og
hefur nú fengið hvíldina éftir langa
og erfiða baráttu við MS sjúkdóm-
inn. Það er erfitt að skilja hvers
vegna það er lagt á eina mann-
eskju að þurfa að stríða við svo
erfið veikindi og gott að vita til
þess að hún hefur fengið hvíldina
þótt erfitt sé að sætta sig við þá
staðreynd að geta aldrei oftar farið
til ömmu og fundið fyrir þeirri hlýju
og þeim styrk sem frá henni staf-
aði og hún miðlaði öðrum af, þrátt
fyrir erfið veikindi. En einmitt
þannig var amma. Alltaf var hún
að spyija eftir líðan annarra og
sérstaklega þeim sem veikir voru.
Það skipti hana miklu máli og oft
fannst manni eins og það skipti
hana meira máli hvernig öðrum liði
heldur en henni sjálfri.
Þær voru ófáar gleðistundirnar í
æsku þegar amma og afi renndu í
hlaðið fyrir austan á stóra fína bíln-
um og þótti manni nú ekki verra
að vita að alltaf komu þau með
poka af nammi sem átti að endast
okkur systkinunum í nokkrar vikur,
eða þegar amma tók að sér inni-
verkin, alltaf var hún reiðubúin að
hjálpa þó svo að hún væri veik og
veitti ekki af hvíldinni sjálfri. Eins
var það þegar við fjölskyldan kom-
um í bæinn þá sá hún alltaf um
það að hafa til það sem okkur þótti
gott og meira til.
Alltaf hef ég átt meira og minna
innangengt hjá afa og ömmu og
man hvað það var gott að koma til
þeirra. Það var alltaf svo mikil hlýja
og kærleikur. Síðustu ár fékk ég
svo að búa í kjallaranum hjá afa
og ömmu og bý þar enn daginn í
dag. Það var eiginlega þá sem ég
kynntist ömmu mjög náið. Þó svo
að hún væri svona miklu eldri en
ég þá eignaðist ég góða vinkonu.
Hún á alveg séstakan sess í hjarta
mínu sem ég mun aldrei gleyma
og mun minnast með hlýju. Það var
eins og hún fyndi alltaf hvernig
mér liði ef ég hafði ákveðið að tala
ekki um það þá endaði alltaf með
að ég sagði henni það og leið alltaf
betur á eftir. Hún var alltaf svo
ung í anda og fordómalaus og skildi
mann oft svo vel. Það er sárt að
geta ekki átt þær góðu spjallstund-
ir í litla eldhúsinu á Vesturgötunni
lengur. Alltaf var hún tilbúin með
matinn sama hvað hún var veik.
Hún vildi sem minnst gera úr veik-
indum sínum, alltaf var hún að
bjástra eitthvað og meira að segja
síðasta árið sem hún var heima þá
lét hún aldrei deigan síga þó svo
að hún væri þá orðin mjög veik og
ætti að vera rúmföst. Samt gat
amma verið ströng og hreinskilin
var hún svo að mér gat sárnað.
En hún sat fast við sinn keip svo
ekki varð haggað og nánast alltaf
sá ég að hún hafði rétt fyrir sér.
Það var einnig grunnt á kímnigáf-
una hjá henni og hafði hún oft ein-
stakt lag á að gera grátlegustu hluti
hlægilega. Svartsýni var ekki að
hennar skapi, og þrátt fyrir að vera
rúmföst tókst henni að halda þess-
ari óbilandi trú á góðu hlutina í til-
verunni allt til enda. Mikinn styrk
fékk hún frá honum afa sem var
hjá henni öllum stundum.
Með söknuði kveð ég elsku ömmu
mína og vona að guð varðveiti hana
vel og styrki afa í sorg sinni.
Ragnheiður Björk
Sigurðardóttir.
Móðir okkar, t VIKTORÍA KETILSDÓTTIR
frá Kaðlastöðum,
verður jarðsungin frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 30. október
kl. 14.00. Bjarnfríður Símonardóttir, Ketill Símonarson.
t
Eiginmaður minn,
HJÖRTUR MAGNÚSSON
fyrrv. vagnstjóri hjá SVR,
sem lést þann 19. október, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
föstudaginn 29. október kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Arnbjörg Sigurðardóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og vinur,
HAUKUR KRISTINSSON,
Böðvarsgötu 10,
Borgarnesi,
andaðist í Landspítalanum þann 26. október 1993.
Sigurður J. Hauksson, Guðfinna Valdimarsdóttir,
Halldór J. Hauksson, Steinunn Ólafsdóttir,
Sigriður Jónsdóttir.
t
Fósturbróðir okkar og frændi,
GUÐMUNDUR ÓLAFSSON
frá Erpsstöðum,
Hrafnistu, Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni föstudaginn 29. október
kl. 13.30.
Fostursystur
og systrabörn hins látna.
t
Móðir mín, tengdamóðir og amma,
KRISTI'N VIGFÚSDÓTTIR
fyrrverandi Ijósmóðir
frá Stykkishólmi,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn
28. október, kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir.
Guðrún Guðmundsdóttir, Gunnar Jóhannesson,
Gunnar Gunnarsson, Steinar Gunnarsson.
t
Eiginmaður minn og faðir okkar,
KARL ÞORKELSSON
frá Arngeirsstöðum,
Stóragerði 1a,
Hvolsvelli,
lést aðfaranótt 26. október í Sjúkrahúsi Suðurlands.
Hulda Hjartardóttir,
Hjörtur Heiðdal,
Sigríður Karlsdóttir,
Gunnar Þór Karlsson
Eiginmaður minn,
KRISTINN BERG PÉTURSSON
frá Rannveigarstöðum
í Álftarfirði,
Hjallavegi 1c,
Njarðvík,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 29. október kl. 15.00.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Vilborg Björnsdóttir.
t
Faðir okkar, tengdafaðir og afi,
GUÐMÚNDURH.
SIGURJÓNSSON
brunavörður,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju
föstudaginn 29. október kl. 15.00.
Hörður Guðmundsson, Jónína Guðmundsdóttir,
Sveinn Pálmi Guðmundsson, Hulda Valdimarsdóttir,
Guðmundur Geir Ludwigsson
og barnabörn.
t
Elskulegur fósturfaðir, tengdafaðir, afi, langafi og mágur,
KETILL ÓLAFSSON
frá Kalmannstjörn,
verður jarðsunginn frá Kirkjuvogskirkju, Höfnum, föstudaginn
29. október kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á dvalarheimili aldraðra,
Garðvangi, Gerðahreppi. -
Lúlla Kristín Nikulásdóttir, Jósef Borgarsson,
Elfn Sigríður Jósefsdóttir, Snæbjörn Guðbjörnsson,
Ketill Guðjón Jósefsson, Karen Valdimarsdóttir,
Jenný Þuriður Jósefsdóttir, Alan Matske,
Baldur Jósef Jósefsson, Ásta Huld Jónsdóttir,
barnabarnabörn,
Ragnheiður Jóhannesdóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
KARL ÖGMUNDSSON,
Þórustig 5,
Njarðvík,
sem andaðist 19. þessa mánaðar, verð-
ur jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju
laugardaginn 30. október kl. 14.00.
Guðbjörg Waage,
Óskar Karlsson, Drifa Sigfúsdóttir,
Elísabet Karlsdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐRÚN ÁGÚSTSDÓTTIR,
Másstöðum,
Innri-Akraneshreppi,
verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju í Saurbæ föstudaginn
29. október kl. 13.30.
Jarðsett verður að Görðumj Akranesi.
Gunnar Nikulásson,
Guðmundur Ágúst Gunnarsson, Úrsúla Árnadóttir,
Guðbjörg Gunnarsdóttir, Sigurður Jónsson,
Gísli Rúnar Már Gunnarsson, Lára Sverrisdóttir,
Helga Gisladóttir, Ketill Bjarnason,
Margrét Gísladóttir, Axel Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.