Morgunblaðið - 08.12.1993, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
7
BRAK OG BRESTIR
Elías Snæland Jónsson hlaut ís-
lensku barnabókaverðlaunin nú í ár
fyrir bókina Brak og brestir. Sagan
segir frá fimmtán ára strák sem flyst
út á land með föður sínum og lendir
þar í óvæntum ævintýrum og
háska. BRAK OG BRESTIR er allt
í senn: spennandi, lífleg og raun-
sönn lýsing á lífi og tilfinningum
íslenskra unglinga.
*
Ný barna- og unglingabók eftir
höfundinn vinsæla Guðmund
Ólafsson en hann hlaut
íslensku barnabókaverðlaunin
fyrir bókina Emil og Skundi.
Þetta er einstaklega fjörug saga og
skemmtileg með líflegri atburðarás.
Hvert var leyndarmálið
hans afa?
Hér er á ferðinni ný bók eftir verð-
launahöfundinn Heiði Baldursdóttur
en hún hlaut íslensku barnabóka-
verðlaunin 1989. Sagan segirfrá
tveimur ólíkum stúlkum á ólíkum
tímum sem tengjast gegnum stein
með mikinn töframátt. í GALDRI
STEINSINS fléttar Heiður á snjallan
hátt saman tveimur sögum þannig
að atburðarásin er í senn hrífandi,
hröð og æsispennandi.
VAKA-HBGAFHl
Síðumúla 6, 108 Reykjavík
Þetta eru bækurnar sem börn og unglingar vilja fá í jólagjöf!
JÓLIN KOMA í
ANDABÆ
er bráðfyndin saga
skreytt failegum lit-
myndum,
sem kemur öllum
börnum
í sannkallaö jólaskap.
Bók sem lesin er
aftur og aftur!
Glænvjar og í»læsileí»ar bæktir!
-
Hið aldagamla og
víðkunna ævintýri um
ALADDÍN úr Þúsund og
einni nótt birtist hér í
óviöjafnanlegum
töfrabúningi Disneys.
Ógleymanleg bók
fyrir stráka og stelpur
á öllum aldri!
4»
VAKA'HEUGAFELL
Síðumúla 6,108 Reykjavik