Morgunblaðið - 08.12.1993, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
23
SeMar naöir að meðal-
tali áíbúa í dpætti
frá mars - nóvember 1993
(Dráttur 1-37)
1,51
Skipting seidna raða
frámars-nóvember1993
(Dráttur 1-37)
iSLAND2,8%
Víkingalottó vinsælt meðal Islendinga
Hlutfallslega
mest selt hér
ÍSLENDINGAR kaupa flestar raðir Norðurlandaþjóða eða 1,51
röð að meðaltali á íbúa í drætti í Víkingiottói. Þeir eru rúmlega
1% heildaríbúafjölda í þátttökulöndunum fimm. Hins vegar festa
þeir kaup á um 2,8% seldra raða að jafnaði. Eins og í Svíþjóð og
Finnlandi eru framlög hærri en vinningar um þessar mundir.
Vilhjálmur B. Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Islenskrar getspár,
telur þó ekki ástæðu til að örvænta. Ekki sé spurning, hvort vinn-
ingur komi til landsins heldur einungis hvenær og hversu hár.
Staðan geti þá snöggglega breyst.
„Víkingalottóið hefur gengið
betur en við áttum von á og það
virðist vera að sækja sig og festa
sig í sessi,“ sagði Vilhjálmur í
samtali við Morgunblaðið. Hann
kvað ekki nokkra ástæðu til að
örvænta þó hlutfall framlaga og
vinninga, væri fremur óhagstætt
okkur Islendingum um þessar
mundir. „Tapið heldur áfram að
verða hægt og sígandi þangað til
við fáum annan vinning og staðan
breytist snögglega. Hún er þá háð
því hve vinningurinn er myndar-
legur. Ég er heldur ekkert í vafa
um að þessi vinningur kemur.
Spurningin er aðeins hvenær eins
og var um fyrsta vinninginn. Það
var 17. mars og Islendingur var
einn þriggja sem skiptu með sér
36 milljóna króna potti,“ sagði
Vilhjálmur.
Má í því sambandi geta þess
að þó íslendingur hafi aðeins einu
sinni fengið hluta af fyrsta vinn-
ingi eru milljónamæringar í Vík-
ingalottói á Islandi orðnir 12 þær
37 vikur sem lottóið hefur starfað.
Fjöldi vinningshafa með 5 rétta
og bónustölu er orðinn 25 og fjöldi
vinningshafa með 5 rétta 272.
Fjöldi vinningshafa með 4 rétta
er 15.738 og fjöldi vinningshafa
með þijá rétta og bónustölu er
54.797. Alls hafa selst raðir fyrir
289.432.080 kr. Af því hefur
91.125.057 kr. farið til íslenskra
vinningshafa. Meðalsala hefur
verið 7.822.489 kr.
Laugardagslottó hefur áhrif
Hvað sölu í hlutfalli við höfða-
töiu varðaði minnti Vilhjálmur á
að íbúar í þátttökulöndunum fímm
væru samtals um 23 milljónir. „Af
því erum við aðeins 260.000. Við
erum þess vegna aðeins um 1%
íbúanna. Hins vegar erum við að
selja sem samsvarar 2,8% af heild-
arsölunni. Áhuginn virðist þess
vegna vera heldur meiri en annars
staðar,“ sagði Vilhjálmur og gat
sér þess til að tengja mætti skýr-
inguna laugardagslottóinu. „Ég
held að ástæðan fyrir meiri þátt-
töku í Víkingalottóinu hér sé sú að
í laugardagslottóinu hjá hinum er
meiri möguleiki að fá mjög háa
vinninga vegna hærri íbúatölu en
hjá okkur. Eg held að það sé mun-
urinn og stóri vinningurinn trekkir
alltaf að,“ sagði Vilhjálmur.
milljónlr kr.
800-----------
Hvernig skiptist 1. vinningur
Framlög og vinningar í löndunum
Framlög
Vinningar
- MISMUNUR
SVIÞJOÐ
Hætt við skemmdum
á gróðri í Mývatnssveit
Björk, Mývatnssveit.
KOMINN er töluverður jafnfallinn
si\jór hér í Mývatnssveit eftir alveg
snjólausan nóvemberinánuð. Að-
eins sást þá snjóföl í hæstu fjölluin.
Snjófarg á trjám
1. desember byrjaði að snjóa hér,
þá var hitinn ofan við frostmark og
því bleytuhríð. Síðan hefur snjóað
meira og minna flesta daga. Ekkert
hefur hvesst að ráði og er því mikið
snjófarg á öllum tijám og runnum,
þar sem ekki er hægt að hrista snjó-
inn af. Hætt er við að verulegar
skemmdir geti orðið ef ekki léttir
þunganum fljótlega af.
Undanfarna daga hefur þurft að
ryðja snjó af vegum og blása hér í
sveitinni. Enn er þó unnið við vega-
gerð milli Skútustaða og Helluvaðs.
Boðuð vinnustöðvun Sjómannafélags Reykjavíkur talin ólögmæt
Akveðið í vikunni hvort
gripið verður til aðgerða
FÉLAGSDÓMUR hefur komist
að þeirri niðurstöðu að vinnu-
stöðvun sú sem Sjómannafélag
Reykjavíkur hafði boðað hjá
Eimskipafélaginu frá og með
mánudeginum hafi verið ólög-
mæt, en Vinnuveitendasam-
band Islands kærði hina boð-
uðu vinnustöðvun til Félags-
dóms á þeirri forsendu að hún
væri ólögleg. Jónas Garðarson
framkvæmdastjóri Sjómanna-
félags Reykjavíkur sagðist í
samtali við Morgunblaðið ekki
vilja Ijá sig um hver viðbrögð
félagsins yrðu í kjölfar niður-
stöðu Félagsdóms, en ákvörðun
um það hvort gripið yrði til
frekari aðgerða af hálfu fé-
lagsins yrði tekin á stjórnar-
fundi nú í vikunni.
Kjarasamningar Sjómannafé-
lags Reykjavíkur við Vinnuveit-
endasamband íslands og Vinnu-
málasamband samvinnufélagana
hafa verið lausir síðan um síðustu
áramót, og að tilhlutan VSÍ og
VMS var kjaradeilu milli þessara
aðila vísað til ríkissáttasemjara 30.
apríl síðastliðinn. í niðurstöðu Fé-
lagsdóms kemur fram að í kröfu-
gerð Sjómannafélags Reykjavíkur
sem sett var fram 6. maí hafi
m.a. verið settar fram þær kröfur
að skip í eigu íslenskra útgerða
verði mönnuð íslenskum sjómönn-
um, að grunnlaun hækki um 3%
og uppsagnarfrestur verði þrír
mánuðir. A samningafundi hjá rík-
issáttasemjara 17. maí hafi kröf-
urnar verið ræddar milli deiluaðila,
en fundinum hafi lokið án sam-
komulags og ekki verið óskað eft-
ir frekari fundahöldum í bráð.
Engar formlegar viðræður
Fram kemur að engar formlegar
viðræður milli aðila hafi átt sér
stað eftir þennan fund, en 25.
nóvember síðastliðinn hafi verið
haldinn fundur með fulltrúum Sjó-
mannafélags Reykjavíkur og Eim-
skipafélags íslands. Svo virðist
sem á þeim fundi hafi einungis
verið rætt um það hvernig mönnun
væri háttað á leiguskipinu Europe
Feeder, sem mannað er erlendri
áhöfn. Síðla sama dag hafi svo á
fundi stjórnar og trúnaðarmanna-
ráðs Sjómannafélags Reykjavíkur
verið samþykkt samhljóða að boða
verkfall á skipum í rekstri Eim-
skipafélagsins sem hefjast skyldi
kl. 18 mánudaginn 6. desember
til að framfylgja fyrirliggjandi
kröfugerð félagsins.
í niðurstöðu Félagsdóms segir
að ljóst sé að hin raunverulega
ákvörðunarástæða verkfalls-
boðunarinnar hafi verið sú að
leiguskipið Europe Feeder hafi
ekki verið mannað íslenskum há-
setum, og til verkfallsins hafi því
verið boðað til að framfylgja kröfu
um að skipið skyldi mannað ís-
lenskum hásetum. Fyrir liggi að
Eimskipafélagið hafi gert tímale-
igusamning til tíu mánaða um
skip þetta og af því leiði að félag-
ið hafi engan íhlutunarrétt um
ráðningu skipvetja. Um greinda
kröfu verði ekki samið í kjarsamn-
ingi aðila og verði henni því ekki
framfylgt með verkfalli. Því beri
að taka til greina þá kröfu stefn-
anda að vinnustöðvun sú sem til-
kynnt var Eimskipafélaginu og
VSI af Sjómannafélagi Reykjavík-
ur 26. nóvember sé ólögmæt. VSI
fór fram á að Sjómannafélag
Reykjavíkur yrði dæmt til greiðslu
sektar og málskostnaðar, en Fé-
lagsdómur taldi ekki þykja efni til
að dæma félagið til greiðslu sekt-
ar. Hins vegar taldi dómurinn rétt
að það greiddi stefnanda 70 þús-
und kr. í málskostnað.
Dóminn kváðu upp þau Eggert
Óskarsson, Björn'Helgason, Ingi-
björg Benediktsdóttir og Valgeir
Pálsson, en Jón Þorsteinsson skil-
aði sératkvæði. Komst hann að
þeirri niðurstöðu að líta yrði svo
á að Sjómannafélag Reykjavíkur
hefði boðað lögmætt verkfall og
því beri að sýkna félagið af öllum
kröfum stefnanda.
Gullfallegt úraval
'eonazd
BREITLI
1884
N
BORGARKRINGLUNNI