Morgunblaðið - 08.12.1993, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
25
Steinlagt á Selfossi
VINNA við frágang hringtorgsins á Tryggvatorgi á Selfossi hefur verið
í fullum gangi fram undir þetta og sér nú fyrir endann á verkinu. Veður-
blíðan í nóvember gerði mönnum kleift að vinna við hellu- og steinlögn
á torginu ásamt því að þökuleggja. Á myndinni eru vanir steinlagningar-
menn frá Garðhúsinu í Reykjavík við steinlögn í innri hring torgsins.
Sig. Jóns.
Egils Gull með þriðj-
ung bjórmarkaðar
SAMKVÆMT yfirliti Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins yfir bjór-
sölu í nóvember var Egils Gull langsöluhæsta tegundin eða með
32,7% af markaðnum, en í öðru sæti var Viking með 11,75% og í
þriðja sæti var Lövenbrau með 10,4%. Tuborg Grön var í fjórða
sæti yfir söluhæstu tegundirnar með 7,2%, í fimmta sæti var Holsten
með 7,0% og í sjötta sæti var Heineken með 6,5%.
Þórir S. Gröndal skrifar frá Flórída
Byssur og flöskur
Þið, þarna heima á Fróni, sem
fylgist svo vel með öllu, sem gerist
úti í hinum vonda heimi, hafið
ábyggilega heyrt um það, að hér
í Flórída hafa nokkrir erlendir
ferðamenn verið skotnir til bana á
skömmum tíma. Þetta er nógu
sorglegt fyrir aðstandendur og vini
hinna látnu, en eins og oft vill
verða, þegar svona gerist, verður
umræðan um það að slíkir atburð-
ir geti valdið því að ferðamanna-
straumurinn komi til með að
minnka. Af því virðast menn hafa
þungar áhyggjur.
Það er náttúrulega ekkert nýtt,
að ferðafólk verði fórnarlömb af-
brotahyskis og það gerist ekki
bara hérna í henni Ameríku, heldur
um heim allan. Hitt er aftur á
móti óhugnanlegt að glæpafólkið
hefir, á næstum skipulegan hátt,
setið fyrir erlendum ferðamönnum
sem komið hafa inn til Miami-flug-
vallar, leigt sér bifreiðar og eru
að reyna að fínna hótelin sín. Af-
brotafólkið veit að þessir ferða-
menn eru með gildan sjóð af
reiðufé auk alls kyns verðmæts
góss.
Á síðustu mánuðum hafa yfir-
völdin gert ýmislegt til þess að
bægja hættum frá ferðafólkinu.
Bílaleigufyrirtækin mega ekki
lengur sérmerkja bíla sína. I mörg
ár hafa þeir verið merktir með
númerum sem byrja á Y, en nú
er búið að breyta því. Vegir eru
nú betur merktir og leiðbeining-
arbæklingum á mörgum tungu-
málum er dreift við komu flugvéla
frá útlöndum. Stjómendur ríkis og
bæja hafa haldið marga fundi,
m.a. með ræðismönnum erlendra
ríkja í Flórída.
Þeir sem hér búa vita í hvaða
hverfum borganna „vonda“ fólki
býr og passa hreinlega upp á það,
að vera ekki þar á ferðinni, sérstak-
lega eftir myrkur. En það má auð-
vitað ekki merkja þessi „hættu-
legu“ hverfí inn á kortin, því þetta
er mjög viðkvæmt og pólitískt
mál, því hinir „vondu“ eru upp til
hópa af blámannakyni. í þessum
hverfum er að finna fátækt, at-
vinnuleysi, fíkniefnaneyzlu og
-sölu, vændi o.fl. Auðvitað býr hér
líka gott fólk, en það hverfur í
skuggann og þjáist.
Þegar Lyndon Johnson, forseti
landsins á sjöunda áratugnum,
barði í gegnum þingið hið mikla
framfærslufrumvarp sitt sém átti
að eyða fátækt í landinu lagði
hann um leið grundvöllinn að nú-
verandi eymd hins ört fjölgandi
blámannaþjóðflokks. Þetta var vit-
anlega ekki ætlun stjórnendanna,
en svo fór sem fór. Framfærslu-
styrkirnir eru oft það ríflegir að
hjá mörgum hefir verulega sljóvg-
ast löngunin til þess að leita sér
að atvinnu. Víða eru komnar þijár
kynslóðir atvinnuleysingja. Ein-
stæðar mæður fá eðlilega meðlög
með börnum sínum og þess vegna
er þeim akkur í því að bæta við
sig ungum til þess að fá fleri með-
lög. Þessar konur eru mjög bráð-
þroska og verða þess vegna oft
mæður á barnsaldri. Það gerist oft
á miðri skólagöngunni og verður
menntunin því oft endasleppt.
Margir komast samt út úr þessum
vitahring, beijast til mennta og
flytja í burtu.
011 þessi lausaleiksböm, sem
koma í heiminn einungis til að
skaffa viðbótar meðlag á heimilið,
alast svo upp ástlaus, föðurlaus,
agalaus og eftirlitslaus. Oft eru
það mamman og amman sem reka
heimilið, en feðurnir mega alls
ekki búa með barnsmæðram sín-
um, því þá er ekki hægt að inn-
heimta meðlagið. Það er algert
skilyrði að faðirinn sé hvergi ná-
lægt.
Það fer nú oftast heldur lítið
fyrir menntuninni sem þessir aum-
ingjar fá. Þótt það séu auðvitað
undantekningar, þá fljóta svörtu
unglingarnir í gegnum þetta kerfi,
ef þeir þá ekki hætta á miðri leið.
Agavandamálin í skólum, þar sem
svartir eru í meirihluta, eru sögð
alvarleg. Margir kennaranna eru
oft á tíðum hræddir við suma nem-
enduma og líkamsmeiðingar eru
ekki óalgengar.
Eftir þennan undirbúning er
tugum þúsunda slíkra unglinga
sleppt út á götur og stræti borg-
anna, menntunarlausum, atvinnu-
lausum og sjálfsvirðislausum.
Hægt er að ímynda sér að þeim
finnist framtíðin ekki blasa við.
Sjónvarpið sem verið hefir aðal
kennarinn hefir sýnt þeim hvernig
„hitt fólkið" lifir og leikur sér. Það
hefir líka sljóvgað mörkin milli
sjónvarpslífs og alvörulífs og deyft
virðinguna fyrir mannslífinu með
hinni miklu slátrun á fólki sem
sýnd er á kvöldi hveiju. Svörtu
unglingarnir hafa sínar langanir
og þrár og þeir vilja komast yfir
eitthvað af þessu dóti sem stöðugt
er verið að ota að þeim í sjónvarp-
inu. Það þarf bara að komast yfír
peninga. Fyrir stóran fjölda þessa
unga fólks er það auðveldast með
því að bijóta lög samfélagsins.
Til þess að verða krimmi hér,
er nauðsynlegt að komast yfir bíl
og byssu. Það síðarnefnda er
hlægilega einfalt og ódýrt. Það eru
núna fleiri skammbyssur í Banda-
ríkjunum heldur en fólk og virðist
ekkert lát á fjölguninni. Þingheim-
ur er algjörlega huglaus og frum-
vörp um takmarkanir eða hömlur
á byssusölu hafa ekki náð fram
að ganga.
Þrýstihópur félags byssueigenda
er feiki sterkur og leikur sér að
því að fella þingmenn, sem eru á
móti skotvopnum. Rök byssu-
manna eru sífellt þau sömu: Byss-
ur drepa ekki; fólk drepur. Hitt
hefi ég einn islenzkan mann, sem
búið hefir mjög lengi í Ameríku
og er gallharður byssumaður. Þessi
kauði gekk meira að segja svo
langt að koma með samanburð á
byssunni og Bakkusi. Hann benti
á að fleiri Islandsmenn féllu í val-
inn vegna flöskunnar en tíðkaðist
með öðrum þjóðum. „Flaskan drep-
ur ekki“, sagði hann, „fólk drepur".
Ég sagði þessum fróða manni,
að mér þætti þessi samiíking harla
skrítin. Leyfði ég mér að halda því
fram að landar okkar væru búnir
að ná góðum árangri í að læra að
umgangast flöskuna án þess að
verða sér að voða. Aftur á móti
virtist mikið vanta upp á að það,
að Ameríkaninn væri að bæta
umgengnisvenjur sínar í sambandi
við byssurnar.
Allt þetta tal um byssur og bófa
er ekki fram sett til þess að hræða
fólk frá því að ferðast til Flórída.
Þegar tekið er með í reikninginn,
að um 10 milljónir ferðamanna
koma hingað árlega, þá eru mögu-
leikarnir á þvi að verða á vegi
glæpafólks mjög litlir. Það er mjög
auðvelt að halda sig frá þeim svæð-
um, þar sem hættur geta leynst
fyrir. Það þurfa allir veraldarvanir
að læra hvort sem er, hvar svo sem
þeir ferðast í heiminum og heima
hjá sér líka.
Þegar miðað er við hlutdeild fyr-
irtækja kemur í ljós að Ölgerðin
Egill Skallagrímsson hf. er með
41,2% sölunnar á bjórmarkaðnum,
en Viking Brugg hf. er með 30%.
TRUFLANIR urðu á símasam-
bandi í Breiðholti og Mosfellsbæ
milli kl. 10.50 og 11.30 í gær-
morgun vegna bilunar í Ijósleið-
ara.
Að sögn Kristjáns- Reinhardts-
sonar yfirdeildarstjóra Pósts og
síma varð bilunin vegna mistaka
er verið var að tengja ljósleiðara.
Búnaður sem á að skipta sjálfvirkt
Þriðja söluhæsta fyrirtækið er svo
Holsten með 7%, í fjórða sæti er
Heineken með 6,5% og í fimmta
sæti er Becks með 5,1% sölunnar.
yfir á varaljósleiðara stóð á sér og
tók um hálfa klukkustund að koma
kerfinu í lag. Kristján sagði þessa
bilun ekki eiga neitt skylt við þær
bilanir sem orðið hafa að undan-
förnu i Miðbæjarstöð Pósts og sima.
Hann sagði að ekki hefði verið um
sambandsleysi að ræða en truflana
hefði orðið vart í stórum hluta síma
á fyrrgreindu svæði.
Truflanir á símasam-
bandi vegna bilunar
Canon
Canon
CLC-10
er fullkomin litmyndaljósritunarvél,
sem litavæöir skrifstofuna. Hana
getur þú notaö eina sér eöa fengiö
þér....
Canon
...PC/MAC
tölvutengi og tengt hana viö
Macintosh eöa PC tölvuna þína og þá
veröur hún ekki bara
litmyndaljósritunarvél heldur....
Canon
SKRIFVÉLIN ■
...KRAFTAVERK:
allt í einu tæki:
LITMYNDASKANNt,
LITMYNDAPRENTARl OG
LITMYNDALJOSRÍTUNARVEL.
Mögulegt er aö fá fleiri aukahluti á
CLC-10 sem auka eiginleika hennar
enn frekar....