Morgunblaðið - 08.12.1993, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
29
Reuter
DÍANA prinsessa virðir fyrir sér gullplötu sem hún fékk að gjöf frá söngvaranum Chris DeBurgh (í
miðið) er hún hafði gefið nýjustu þotu Virgin Atlantic-flugfélagsins nafn á Heathrow-flugvelli í gær.
Til hægri er Richard Branson eigandi flugfélagsins.
Efasemda g-ætir um
konungdóm Karls
Kirkjan sögð setja fyrir sig sögur um framhjáhald hans
London. Reuter.
MIKLAR vangaveltur eru nú í Bretlandi um það hvort Karl prins
verði nokkru sinni konungur en æsifréttablöðin hafa haldið því
fram síðustu daga, að móðir hans, Elísabet drottning, vildi, að
hann afsalaði sér ríkiserfðum í hendur syni sínum, William. Eitt
fullyrti líka, að enska kirkjan væri því sammála en talsmaður
kirkjunnar vísar því á bug. Einn af kunnustu kirkjunnar mönnum
sagði hins vegar í viðtali í gær, að hann sæi ekki hvernig Karl
ætlaði að gerast konungur, hefði hann haldið við gifta konu. Blöð-
in hafa auk þess verið með fréttir um, að Karl prins vilji sækja
um lögskilnað við Díönu, konu sína, sem fyrst en af því getur í
fyrsta lagi orðið 9. desember á næsta ári þegar tvö ár verða liðin
frá því þau skildu að borði og sæng.
Dagblaðið The Sun sagði í gær,
að enska biskupakirkjan legði hart
að Karli prins að afsala sér ríkis-
erfðum og láta þær í hendur syni
sínum, William, sem yrði þá kon-
ungur þegar Elísabet, amma hans,
léti af völdum. Sagði blaðið, að
Geprge Carey, erkibiskup af Kant-
araborg, teldi Karl óhæfan sem
konung vegna langvarandi sam-
bands síns við gifta konu, Camillu
Parker Bowles, en talsmaður hans
vísaði þessu á bug og sagði ekk-
ert hæft í fréttinni.
í viðtali, sem breska ríkisút-
varpið, BBC, átti við George Aust-
in, erkidjákna af York, í gær, sagði
hann aftur á móti, að hefði Karl
prins haldið við Camillu Bowles,
skildi hann ekki hvernig hann
gæti gengið inn í Westminster
Abbey og svarið krýningareiðinn.
Einsdæmi í sögunni
í The Sun sagði einnig, að Elísa-
bet drottning vildi, að William
tæki við af sér þegar þar að kæmi
en ef það rættist væri það eins-
dæmi í sögu bresku konungsfjöl-
skyldunnar. Það gæti þó hugsan-
lega mælst vel fyrir meðal almenn-
ings þar sem sumir kenna Karli
ekki síður en Díönu um hjóna-
bandsógæfu þeirra. Þá er einnig
haft eftir heimildamönnum í Buck-
inghamhöll, að nauðsynlegt sé, að
þau Karl og Díana skilji sem fyrst,
því verði Karl konungur, hafí
Díana rétt til að verða drottning.
Eins og málum sé háttað, yrði það
hreinn skrípaleikur.
Blöðin voru einnig með þær
fréttir eftir helgina, að Karl hefði
sagt sínum nánustu aðstoðar-
mönnum, að hann vildi binda sem
fyrst enda á stormasamt hjóna-
band þeirra Díönu og eftir sömu
heimildum var haft, að Karl ætl-
aði að taka við krúnunni án Díönu
en hygðist ekki kvænast aftur. í
skoðanakönnunum kemur fram,
að fiestir Bretar telja, að þau hjón-
in eigi að skilja og sex af hverjum
tíu vilja, að Karl verði konungur.
í bresku sunnudagsblöðunum
kom fram, að Díana setti tvö skil-
yrði fyrir skilnaði: Að Karl tæki á
sig alla sökina og hún fengi umráð
yfir sonum þeirra.
Hubble betri til
geimrannsókna
Kanaveralhöfða. Reuter.
GEIMFARAR um borð í bandarísku geimfeijunni Endeavour skiptu
um hluta Hubble-stjörnusjónaukans í gær og er búist við að það
muni stórefla möguleika til stjörnuskoðunar. Eru viðgerðir og endur-
bætur á sjónaukanum þá rúmlega hálfnaðar en í því skyni eru ráð-
gerðar fimm geimgöngur og er þremur þeirra lokið, öllum með
góðum árangri.
Skipveijar geimfeijunnar hafa
orðið að fara út úr feijunni til við-
gerða. í fyrstu geimgöngunum
tveimur var skipt um stefnusnúða
og sólrafhlöður. í gær var skipt um
svokallaðan gleiðhomsmyndspegil,
hjarta sjónaukans, og tvo segul-
mæla en verkið tók hálfa sjöundu
klukkustund. Fjórða geimgangan
var ráðgerð síðdegis í gær og átti
hún að standa yfir þar til árla í
dag, en ætlunin var að skipta um
aðra myndavél og tækjabúnað sem
komið er fyrir í kassa á stærð við
símklefa.
Hubble sjónaukanum var skotið
á braut um jörðu 1990 en hann er
13 metra langur, 280 kg þungur
og áætlaður líftími er 15 ár. Kost-
aði hann um þijá milljarða dollara
kominn á braut eða um 215 millj-
arða króna. Full afnot hafa aldrei
af honum verið vegna framleiðslu-
galla í tækjabúnaði. Engu að síður
hefur mikilvægur árangur náðst í
stjörnurannsóknum með hjálp sjón-
aukans. Með aðstoð hans hefur
verið hægt að fylgjast með veðurf-
arsbreytingum á Júpíter og Mars
og þróun sjaldgæfs storms á Sat-
úmusi. Ennfremur mæla lofthjúp
Io, fylgihnattar Júpíters, og með
Hubble hafa verið teknar ítarleg-
ustu myndir sem náðst hafa til
þessa af halastjörnu sem búist er
við að rekist á Júpíter í júlí 1994.
Með hjálp Hubble fundust einnig
rykhringir umhverfis 15 nýmyndað-
ar stjörnur í Orion-himinþokunni
sem er í 1.500 ljósára fjarlægð frá
jörðu en þar með þóttust menn
hafa fengið staðfestar tilgátur og
tveggja alda vangaveltur um sköp-
un sólkerfa eins og okkar. Loks tók
Hubble fyrstu myndirnar af meintu
svartholi í miðri ystu stjörnuþok-
unni sem vitað er um.
Kjarnavopnum beint að N-Atlantshafi
Mótmælum harka-
lega ef rétt reynist
- segir Jón Baldvin Hannibalsson
JON BALDVIN Hannibalsson, utanríkisráðherra íslands, segir að
sendiherra Islands í Bandaríkjunum hafi verið falið að krefjast skýr-
ingu á fréttum, m.a. í JVew York Times, þess efnis að bandaríska
varnarmálaráðuneytið íhugi að beina langdrægum kjarnaflaugum
að öðrum skotmörkum en Sovétríkjunum og komi til greina að beina
þeim að Norður-Atlantshafi í staðinn.
„Þetta sannar hið fornkveðna að
styijöld er alvarlegra mál en svo
að hægt sé að láta hana alfarið í
hendur hershöfðingja. Ég vísa í
frétt New York Times þar sem svo
gáfulega er komist að orði að starf
hernaðaryfirvalda að þessum breyt-
ingum hafi verið hulið svo mikilli
leynd í von um að Bandaríkjafor-
seti gæti tilkynnt þetta með lúðra-
blæstri og fögnuði á leiðtogafundin-
um í janúar," sagði Jón Baldvin.
Hann sagði ennfremur að það væri
svo í stíl við annað að herforingi
léti hafa eftir sér að það eina sem
menn þyrftu að hafa áhyggjur af
væri að flaugarnar gætu hitt ein-
hveija hvali í hausinn. Segði þetta
sitt um skilning hans á stefnu eigin
stjórnvalda í hvalamálum, en þau
hefðu hótað þeim viðskiptaþvingun-
um, sem leyfðu sér að skerða hár
á höfði hvala.
„í alvöru talað þá hefur hins
vegar sendiherra íslands verið falið
að krefjast skýringa á þessari frétt.
Sjötti æðsti maður utanríkisráðu-
neytisins, sem heitir Teft og er yfir-
maður Norður-Evrópudeildarinnar,
hefur raunar fullyrt við sendiherr-
ann að engar ákvarðanir af þessu
tagi hafi verið teknar og vildi því
ekki staðfesta fréttina. Sendiráðið
mun samt kanna málið frekar og
ef hún reynist eiga við rök að styðj-
ast þá verður henni harkalega mót-
mælt,“ sagði utanríksiráðherra.
FERSKIR - SPENNANDI - UÚFFENGIR
Pastaréttir er fjölbreytt safn uppskrif+a aS frábærum pastaréttum. Sannkölluð
pastaveisla með gómsætum sósum og fyllingum.
Spænskir smáréttir býður lesendum sínum upp á lokkandi úrval af liúffeng
(dir um
PAST/\RETTÍR
- ííutar- o(/
(Kt(/;/((/>/)( A B
Tapas-réttum, sem eru aldagamlir spænskir réttir, en þeir hafa öðlast vinsæ
umi
allan heim.
Mexikóskir réttir lý sir hvernig búa má til gómsæta rétti sem eru
einkennandi fyrir hina fjölbreyttu, heillandi og spennandi matargerð Mexíkóbúa.
Thailensk matseld flytur með sér fjölbreytt bragð og ilm Suðaustur-Asíu.
Nýstárlegar kryddaðferðir og meðhöndlun hráefnis er lýst í myndum og máli.
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ HF