Morgunblaðið - 08.12.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
31
Morgunblaðið/Þorkell
Skírnarfontur í Borgarspítala
NÝLEGA var vígður í kapellu Borgarspítalans skírnarfontur sem tileinkað-
ur er minningu Valgerðar Bergþórsdóttur hjúkrunarfræðings. Hún lést
árið 1991 og var mörgum að góðu kunn fyrir störf sín á Borgarspítalan-
um. Það var samstarfsfólk Valgerðar heitinnar og eiginmanns hennar
Kristins Guðmundssonar yfirlæknis sem safnaði fyrir skírnarfontinum en
Félag velunnara Borgarspítalans átti veg og vanda af gerð hans. Skírnar-
fonturinn var teiknaður og smíðaður af Finni Guðsteinssyni; hann er úr
eðalviði, borinn uppi af fjórum örmum sem hvíla á áttstrendum stöpli.
Það var formaður Félags velunnara Borgarspítalans, Egill Skúli Ingibergs-
son (til hægri á myndinni) sem afhenti skírnarfontinn. Við hlið hans stend-
ur Finnur Guðsteinsson íistamaður, þá séra Sigfinnur Þorleifsson.
Framsóknarflokkur, Alþýðubandalag og Kvennalisti í Reykiavík
Vilja samstarf en hafna
sameiginlegu framboði
Tilbúnir til viðræðna um sameiginlegt borgarstjóraefni
FRAMSÓKNARMENN í Reykjavík eru tilbúnir til viðræðna um
náið samstarf við núverandi minnihlutaflokka í borgarstjórn
Reykjavíkur og um sameiginlegt borgarsljóraefni. I sama streng
taka Guðrún Agústsdóttir, varaborgarfulltrúi Alþýðubandalags-
ins, og Guðrún Ogmundsdóttir, fulltrúi Kvennalista í borgar-
sljórn. Flokkarnir hafna hins vegar sameiginlegu framboði.
Borgarmálaráð Nýs vettvangs hefur samþykkt að hefja formleg-
ar viðræður við Alþýðubandalagið, Grænt framboð og Flokk
mannsins um myndun nýs sameiginlegs framboðs þessara flokka.
Jafnframt er skorað á Samtök um kvennalista, Alþýðuflokk og
Framsóknarflokk að endurskoða fyrri afstöðu sína og koma sem
fyrst að viðræðunum.
Sigrún Magnúsdóttir borgarfull-
trúi Framsóknarflokksins sagði að
flokkurinn hafni alfarið sameigin-
legu framboði minnihlutaflokkanna
en sé tilbúinn til að ræða um sam-
starf við hina flokkana. „Minnihlut-
inn hefur ætíð starfað saman í
ýmsum málum,“ sagði hún. „Við
teljum að nú séu allar líkur á að
hægt sé að fella meirihluta Sjálf-
stæðisflokksins. Það mun nást með
samstarfi minnihlutans í ákveðnum
Framkvæmdastjórí Sinfóníuhljómsveitar íslands um að jóiatónleikar verði ekki teknir upp
Ríkissjónvarpið braut
munnlegt samkomulag
FRAMKVÆMDASTJÓRI Sinfóníuhljómsveitar íslands hefur sent
útvarpssljóra bréf þar sem sú ákvörðun Sjónvarpsins að taka ekki
upp jólatónleika SI er hörmuð. Runólfur Birgir Leifsson, fram-
kvæindastjóri SÍ, segir að búið hafi verið að gera munnlegt samkomu-
lag milli Sinfóníunnar og Sjónvarpsins um að tónleikarnir yrðu tekn-
ir upp og því til staðfestingar hafi verið sent bréf til Sjónvarpsins
16. nóvember sl. með yfirliti yfir efnisskrá. Stuttu síðar hafi yfirmað-
ur innlendrar dagskrárgerðar, Sveinbjörn I. Baldvinsson, hins vegar
tilkynnt SÍ að Sjónvarpið væri hætt við að taka upp tónleikana þar
til væri nokkurra ára gömul upptaka af jólatónleikum sem
sem
hann taldi keimlíka tónleikunum nú.
Runólfur sagði í samtali við Morg-
unblaðið að Sjónvarpið hefði rétt til
að taka upp alla tónleika SÍ endur-
gjaldslaust. Áður fyrr hefði Sjón-
varpið þurft að greiða tónlistarmönn-
um ákveðna upphæð fyrir upptöku
sem það taldi vera fyrirstöðu á að
taka tónleika hljómsveitarinnar upp.
Ráðuneyti menntamála, Alþingi og
fleirí aðilum hefði fundist óeðlilegt
að Sjónvarpið gæti ekki nýtt sér tón-
leika SÍ fyrir fólk úti á landi og aðra
þá sem ekki kæmust á tónleika
hljómsveitarinnar og beitt sér fyrir
því í ágúst 1988 að ákvæðið um
sérstakar greiðslur til tóniistar-
manna yrði fellt niður gegn því að
laun þeirra yrðu hækkuð og Sjón-
íanna-
iramót
leysa,“ sagði Hólmgeir.
Innan Sjómannasambandsins eru
um 40 aðildarfélög með 4.000-
4.500 félagsmenn sem starfa á
fiskiskipum. Hólmgeir sagðist eiga
von á því að umboð hefðu borist
frá öllum félögunum næstkomandi
föstudag, en samkvæmt kjara-
samningum væri boðunartími verk-
falls 21 dagur. Flann sagði að Far-
manna- og fiskimannasambandið
og Vélstjórafélag íslands væri einn-
ig að undirbúa boðun verkfalls, og
sagðist hann reikna með því að
félögin yrðu öll þijú með verkfalls-
boðun á sama tíma.
varpið mætti sýna frá öllum tónleik-
um SÍ. Síðan hefði Sjónvarpið sýnt
frá 5-6 tónleikum sveitarinnar og
ítrekað hafnað málaleitan SÍ um að
fleiri tónleikar yrðu teknir upp.
Leigugjald háir samkeppni
I bréfi Runólfs til útvarpsstjóra
kveðst hann harma mjög ákvörðun
Sjónvarpsins og hvetur það til að
taka upp tiltekna tónleika á næsta
ári. Runólfur segist ekki sjá neitt
því til fyrirstöðu að aðrir aðilar, s.s.
Stöð 2, fái að taka upp tónleika SÍ
en hins vegar eigi Ríkisútvarpið
hljóðstúdíó í Háskólabíói sem það
láni ekki öðrum aðilum nema gegn
greiðslu, sem geri öðrum aðilum
mjög erfitt um vik tæknilega og fjár-
hagslega að taka upp tónleika.
Runólfur segir að honum þyki
ákvörðun Sjónvarpsins sérstaklega
óeðlileg þar sem nýlega hafi verið
samþykkt þingályktun á Alþingi er
segir að Alþingi álykti að fela
menntamálaráðherra að leita leiða
til að fiutningur verka Þjóðleikhúss-
ins og Sinfóníuhljómsveitar íslands
geti hafist í Ríkisútvarpinu 1994 og
jafnframt verði athugað með hveij-
um öðrum hætti starfsemi þessara
stofnana og annarra hliðstæðra geti
sem best náð til allra landsmanna.
„Þetta bendir til þess að Alþingi finn-
ist einnig óeðlilegt að Sjónvarpið
sinni þessum þætti ekki betur en
raun ber vitni,“ segir Runólfur.
málefnum og ef til vill sameiginlegu
borgarstjóraefni. Margir hafa verið
tilnefndir sem borgarstjóraefni
þannig að af nógu er að taka og
þá er spurningin hvort við auglýsum
það upp ákveðið eða hvort við höfum
einhvern í bakhöndinni.“
Áhersla á samstarf
Guðrún Ágústsdóttir, vara-
borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins,
segist þeirrar skoðunar að Alþýðu-
bandalagið muni bjóða fram G-lista.
Vonandi yrði sem víðtækust sam-
staða um listann og þá einkum frá
fólki í Nýjum vettvangi. „Við leggj-
um áherslu á samstarf við hina
flokkana um ákveðin málefni og að
það liggi fyrir þannig að kjósendur
geti kynnt sér hver er samstarfs-
grundvöllur flokkanna," sagði Guð-
rún. Sagði hún að ef minnihlutinn
næði meirihluta yrði að velja borg-
arstjóra og að hann gæti komið úr
röðum borgarfulltrúa eða apnars
staðar frá. Hann yrði þá valinn eft-
ir efni og hæfileikum en ekki eftir
því úr hvaða flokki hann kæmi.
Guðrún Ögmundsdóttir, borgar-
fulltrúi Kvennalista, segir að
Kvennalistinn sé innstilltur á sam-
vinnu minnihlutaflokkanna en ekki
sameiginlegt framboð. Enn hefur
ekki verið rætt um hugsanlegt borg-
arstjóraefni en það yrði gert eftir
áramót. „Það er ákveðinn hópur sem
leggur hart að sameiginlegu fram-
boði en við fáum ekki séð að það
geti gerst,“ sagði hún.
Breyting á lögum um tekjustofna sveitarfélaga
Hækka þyrfti út-
svar í Reykjavík
ÚTSVAR í Reykjavík þyrfti að hækka um 1,8 til 2 prósentustig til
að mæta missi aðstöðugjalds og landsútsvars, verði breyting á lög-
um um tekjustofna sveitarfélaga samþykkt. í bréfi Markúsar Arnar
Antonssonar borgarstjóra til félagsmálanefndar Alþingis er bent á
að skynsamlegt sé að bíða með aðgerðir í skattamálum þar til upp-
stokkun verkefna ríkis og sveitarfélaga hefur farið fram.
*
Ovenjumargar aðgerðir á
slysadeild Borgarspítala
MIKIÐ álag var á skurðstofu slysadeildar Borgarspítala um
síðustu helgi og voru á laugardag og sunnudag gerðar 17 að-
gerðir, sem er, að sögn Brynjólfs Mogensens yfirlæknis, mun
rneira en venjulega. Komur á deildina voru 199 á laugardag
og sunnudag sem er ekki meira en í meðallagi en meðaltalið
er um 100 komur á sóiarhring.
Brynjólfur sagði að eitt skurð-
stofuteymi hefði unnið hörðum
höndum langt fram á nótt á laugar-
dag og sunnudag en þrátt fyrir það
hefði ekki tekist að gera að öllum
sem þurftu á því að halda. Að
þremur var gert á mánudag og
siðasta aðgerðin vegna innkomu á
deildina um helgina var gerð í gær.
Var látin bíða í 13 tíma
Morgunblaðinu er kunnugt um
tæplega níræða konu sem datt
snemma á sunnudagsmorgun og
fór á slysadeildina. Þar var hún
skoðuð og teknar af henni röngten-
myndir sem leiddu í ljós að gera
þurfti á henni aðgerð á mjöðm.
Henni var gefið morfín og látin
bíða þar til seint á sunnudagskvöld
að aðgerðin var gerð. En hvers
vegna eru sjúklingar látnir bíða
svona lengi?
Ekki óeðlilegt
Brynjólfur Mogensen sagðist
ekki þekkja umrætt tilfelli en þeg-
ar um fullorðið fólk væri að ræða
þyrfti oft að bíða eftir niðurstöðum
úr ýmsum rannsóknum áður en
hægt væri að gera aðgerð á sjúkl-
ingnum. Hann sagði að þegar um
mjaðmarbrot væri að ræða væri
miðað við að gera aðgerð innan
sólarhrings og væri því alls ekkert
óeðlilegt þótt sjúklingur biði frá
morgni og fram á kvöld. Hann
sagði að það hefði ekki áhrif á
bata þótt aðgerð vegna beinbrots
tefðist í einhveija klukkutíma. Þá
benti hann á að óvenjumikið álag
hefði verið á skurðstofu slysadeild-
ar um helgina.
Enginn látinn híða sem ekki
þolir bið
Pálína Ásgeirsdóttir, deildar-
stjóri á slysadeild, sagði að sjúkl-
ingum væri raðað í forgangsröð
eftir því hversu aðkallandi væri að
gera á þeim aðgerðir. Þetta mat
gæti stundum verið óskiljanlegt frá
sjónarhóli sjúklinga og aðstand-
enda þeirra. Það væri hins vegar
ófrávíkjanleg regla að enginn væri
látinn bíða sem eklci þyldi bið og
ef aðstæður gæfu tilefni til þá
væri kallað út annað skurðstofu-
teymi og unnið á tveimur skurð-
stofum.
í bréfi borgarstjóra er bent á að
verði breytingarnar að lögum sem
frumvarpið gerir ráð fyrir muni yflr-
færsla á skattbyrði félaga og fyrir-
tækja á einstaklinga aukast. Fram
kemur að sveitarfélögum verði bættur
tekjumissirinn sem verður við brott-
fall aðstöðugjalds og landsútsvars
með því að heimila hækkun fasteigna-
skatta á atvinnuhúsnæði og til bráða-
birgða að leggja sérstakan skatt á
verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Þá segir að fyrir liggi að ríkisvald-
ið hyggst lækka tekjuskattinn um
1,15%. Skattbyrði Reykvíkinga mun
því aukast um 0,65% til 0,85% á
næsta ári ef borgarstjórn ætti ekki
annars úrkosta en að bæta tekjumiss-
inn með framangreindum hætti. Fram
kemur að þegar bráðabirgðaákvæði
frumvarps um sérstaka skattlagningu
á verslunar- og skrifstofuhúsnæði fell-
ur úr gildi í árslok 1994 munu útsvör
í Reykj.avík enn þurfa að hækka um
0,25 til 0,3% til að inæta þeim tekju-
missi.
Bent er á að ráðgert sé að flytja
stór verkefni frá ríki til sveitarfélaga
og að grunnskólinn verði alfarið verk-
efni sveitarfélaga frá 1. ágúst 1995.
„Þetta hlýtur aftur að kalla á mikla
uppstokkun á tekjustofnum sveitarfé-
laga og tilfærslu skatta til þeirra frá
ríkinu. Því er skynsamlegt að láta
aðgei-ðir í skattamálum bíða, en halda
a.m.k. á næsta ári óbreyttu fyirr-
komulagi frá því sem í gildi hefur
verið í ár,“ segir í bréfi borgarstjóra.