Morgunblaðið - 08.12.1993, Side 38
8
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
Gjöf til Lista-
safnsins
50 ÁR eru liðin frá því Hnitbjörg,
Listasafn Einars Jónssonar var
tengt við hitaveitu frá Reykjum í
Mosfellssveit. Af því tilefni ákvað
stjórn veitustofnana Reykjavíkur
að minnast tímamótanna og gefa
safninu jafnvirði 1,5 millj. til hitun-
ar hússins næstu ár. Viðstaddir
afhendingu gjafarinnar voru meðal
annarra úr stjórn safnsins Sveinn
Björnsson, prófessor Ármann
Snævarr formaður, Hrafnhildur
Schram forstöðumaður og fyrir
stjórn veitustofnunar, Martin Pet-
ersen kynningarfulltrúi, Garðar
Ingvarsson og Þórir Lárusson
ásamt Páli Gíslasyni formanni,
sem afhenti gjöfina.
Sparibaukurinn GEORG,
jólagjöf sem vex og vex!
Afar, ömmur, pabbar og mömmur, frændur og frænkur,
systur, bræður og vinir! Sparibaukurinn Georg er skemmtileg
jólagjöf. Hann gerir sparnaðinn spennandi, því til mikils er að
vinna fyrir börn sem standa sig vel, bæði góðir vextir og
margskonar verðlaun s.s. litabók, plakat og bolur. Georg og
félagar eru í íslandsbanka.
Unnið að
skipulagn-
ingu Reyk-
hólahrepps
Miðhúsum.
HINGAÐ kom í Reykhóla um
síðustu helgi Gísli Gíslason
landslagsarkitekt og með hon-
um voru Guðrún Halla Gunnars-
dóttir landfræðingur, Ingvi Þór
Loftsson landslagsarkitekt og
Snæbjörn Jónsson fyrrverandi
vegamálastjóri sem var fundar-
stjóri á fundi á Reykhólum um
skipulagsmál, en verið er að
skipuleggja Dalasýslu og Reyk-
hólahrepp.
Á næstu árum mun ferða-
mannastraumur aukast hingað
vestur og byggist sú skoðun á fyr-
irhuguðum göngum undir Hval-
fjörð, miklum vegabótum eða jafn-
vel göngum gegnum hæsta hluta
Bröttubrekku og brú yfir Gilsfjörð.
Einnig er fyrirhugað að endurbæta
veg yfir Tröllatunguheiði, en þá
eru ekki nema um 50 km milli
Reykhóla og Hólmavíkur. Einnig
kemur vegur yfir Kollafjarðarheiði
á dagskrá innan örfárra ára.
Verk Gísla er vel á veg komið
og hefur hann merkt inn á kortið
góð útivistarsvæði og jafnvel kom
sú hugmynd upp að gera nyrsta
hluta Reykhólahrepps að þjóð-
garði.
Það mál er á byrjunarstigi, um-
ræður að hefjast og ekki auðvelt
úrlausnar. Á þessu svæði er æðar-
varp og ef sú hugmynd nær fram
að rækta eigi tófu og mink í þjóð-
görðum verður leiðin erfiðari að
markinu.
- Sveinn.
-----»• ♦ ♦-----
*
Yerslunarráð Islands
Lækkun vsk.
á matvæli og
tollahækkun-
um mótmælt
VERSLUNARRÁÐ íslands mót-
mælir fyrirhugaðri lækkun
virðisaukaskatts á matvæli og
einnig fyrirhuguðum tollahækk-
unum á feiti og olíur. Verslunar-
ráðið lýsir einnig vonbrigðum
sínum með hækkun trygginga-
gjalds en -fagnar hins vegar því
að fallir hefur verið frá skatt-
lagningu vaxtatekna. Þetta
kemur fram í umsögn Verslun-
arráðsins um skattafrumvarp
fjármálaráðherra sem sent hef-
ur verið til efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis.
í fréttatilkynningu frá Verslun-
arráði segir af þessu tilefni m.a.
að fyrirhuguð breyting virðisauka-
skatts á matvæli muni veikja
virðisaukaskattskerfið og auka
möguleika á undanskotum. Heppi-
legra sé að fara aðrar leiðir, s.s.
að lækka almenna skatthlutfall
virðisaukaskattsins, hækka per-
sónuafslátt eða greiða sérstakar
tekjutengdar fjölskyldubætur.
-----♦ ♦ ♦-----
■ SÍÐASTA konukvöldið fyrir jól
verður haldið í kvöld, miðvikdaginn
8. desember, í Herkastalanum, Kirk-
justræti 2, kl. 20.30. Tækifæri gefst
að bragða á jólakonfekti og einnig
verður sýnt hvernig það er búið til.
Kapteinn Miriam Óskarsdóttir ásamt
fleirum mun syngja og stjórna og Ingi-
björg Jónsdóttir flytur hugvekju.
Einnig verður efnt til happdrættis.