Morgunblaðið - 08.12.1993, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
fclk í
fréttum
SÖNGUR
Díana o g uppátæki
soldánsins
Morgunblaðið/Vilmundur Hansen
Hjalti Guðmundsson formaður skólanefndar, Guðmundur Jónsson
hreppstjóri og Gunnsteinn Gíslason sveitarstjóri máta svuntur og
mætti setja þetta upp sem tákn nýrra tíma til sveita.
Díana Ross er víða vinsæl. Á
stærri myndinni kemur hún
til góðgerðarsamkomu ásamt
vini sinum Teddy Pendergrass.
Soldáninn í Brúnei er í hópi auð-
ugustu manna veraldar. Það
þýðir í ráun, að það er fátt sem
hann getur ekki leyft sér eins og
dæmin sanna. Til marks um það
er „lítið“ kvöldverðarboð sem hann
hélt nokkur hundruð vinum sínum
á dögunum. Sem nett og heimilis-
legt skemmtiatriði bauð soldáninn
upp á stórsöngkonuna Díönu Ross
sem hann sendi einkaþotu yfir hálf-
an hnöttinn til að sækja!
Það var nú ekki allt. Díana varð
fúslega við bóninni, enda er haft
fyrir satt að hún hafi aldrei þénað
jáfn mikið fyrir eina söngskemmtun
og er þá mikið sagt. Soldáninn er
mikill aðdáandi Díönu eins og nærri
má geta og svo ánægður var hann
með frammistöðu söngkonunnar,
svo og gestir hans allir, að næsta
uppátæki hans var enn geggjaðra.
Hann hafði fengið leyfi Ross til að
hljóðrita skemmtunina og að henni
lokinni óskaði hann eftir leyfí henn-
ar til að gefa út tvöfaldan geisla-
disk til handa kvöldverðargestum
sínum! Sérgreiðsla fylgdi að sjálf-
sögðu, enda samþykkti Ross á
staðnum.
Fulltrúar soldánsins flugu með
það sama til Los
leigðu þar fullkomnasta
hljóðverið og gengu frá út-
gáfunni á skömmum tíma
Hafa nú
fengið geisladiskinn í hend-
umar til minja um eftirminni-
Iegan kvöldverð með soldánin-
um af Brúnei.
MANNFAGNAÐUR
Rj ómatertumar
gengu vel út
Það var mikilþ atgangur þegar basarinn féll niður í fyrra vegna veð-
Kvenfélag Ámeshrepps hélt urs. Salan var mjög góð, enda marg-
nýlega basar, kaffisölu og tombólu ir góðir munir á boðstólum. Mest
í_ samkomuhúsinu í Trékyllisvík. seldist þó af kaffi og ijómatertum.
Ástæðan var m.a. sú að í þetta sinn Mæting var einnig óvenju mikil og
var úrval muna óvenju mikið þar sem er henni að þakka góðri tíð.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Listamaðurinn Tolli við eitt af verkum sínum, „Snjóbráð" á sýning-
unni í Risinu í Keflavík. ____
ost
Tolli sýnir í Risinu
í Keflavík
FÉLAG VIÐSKIPTAFRÆÐINGA
OG HAGFRÆÐINGA
efnir til morgunverðarfundar fimmtudaginn 9. des-
ember nk. kl. 8-9.30 á Hótel Holiday Inn.
Á fundinum mun Þorkell Sigurlaugsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Eimskip, fjalla um efnið:
FORYSTUHLUTVERKIÐ
NÝIR STRAUMAR í STJÓRIMUN OG REKSTRI FYR-
IRTÆKJA
Ný viðhorf til þekkingar og stjórnunar hennar kalla
á nýja stjórnunarhætti sem íslenskir stjórnendur
verða að temja sér ef þeir vilja ná árangri í harðn-
andi heimi viðskiptalífsins.
Þekking og þjóðfélagið. Vandamál íslensks þjóð-
félags er m.a. að þekkingin og hugvitið hefur ekki
verið nýtt sem skyldi, en treyst hefur verið á auð-
lindir til lands og sjávar.
Þekkingin og fyrirtækið. Nýjar kröfur kalla á nýja
stjórnunarhætti, svo sem gæðastjórnun, endur-
gerð vinnuferla, nýtt skipulag fyrirtækja og stefnu-
mótun.
Þekkingin og stjórnandinn. Hann þarf að búa
yfir aukinni þekkingu, geta lifað við streitu og
lært af mistökum. Hættan á óvæntum starfslok-
um, m.a. sakir samruna, gjaldþrota eða upp-
sagna, hefur aukist.
Félagar í FVH og aðrir áhugamenn um efnið eru
hvattir til að mæta.
Favre
er fyrsti bíll
barnsins
Carino favre sparkbíllinn hefur
verðið fáanlegur hér á landi í 15 ár,
nú á mjög góðu verði vegna
hagstæðra innkaupa.
Fæst í betri verslunum um land allt.
Bjarkey hf.
Ingvar Helgason hf.,
Sævarhöfða 2, sími 674151.
Myndlistamaðurinn Tolli, Þor-
lákur Kristinsson, opnaði
myndlistasýningu í Risinu í Kefla-
vík á laugardaginn. Er þetta fyrsta
sýningin sem listamaðurinn heldur
á Suðurnesjum. Á sýningunni sem
lýkur um næstu helgi eru liðlega
30 verk, sem öll eru ný — olíu og
steinþrykksmyndir.
Tolli sagði í samtali við Morgun-
blaðið að þar sem nokkuð væri
liðið frá því að hann hélt sýningu
síðast utan Reykjavíkur hefði sér
fundist að kominn væri tími að
bjóða landsbyggðarmönnum uppá
list sína. Hann sagði að verkin á
sýningunni væru flest ný af nál-
inni og að uppistöðu landslags
myndir. Steinþrykksmyndirnar
hefði hann unnið í Kaupmanna-
höfn í sumar og væru þær unnar
uppúr eldir myndum.
'
Happdrætti
bókaútgefenda
Vinningsnúmer dagsins í
happdrætti bókaútgefenda er
26418, en happdrættisnúmer-
in eru á baksíðu íslenskra
bókatíðinda. Vinningshafi get-
ur vitjað vinnings síns, bókaút-
tektar að andvirði 10 þúsund
krónur, í næstu bókabúð.