Morgunblaðið - 12.04.1994, Page 11

Morgunblaðið - 12.04.1994, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRIL 1994 11 Skæruliðastúlkuraar Myndlist Eiríkur Þorláksson Undanfarin misseri hefur loks- ins komið upp nokkur umræða um stöðu kvenna í íslenskri mynd- list, og mátti tæpast seinna verða ef þær vangaveltur sem komið hafa fram erlendis, hafi ekki hreinlega átt að fara framhjá landinu. Þessi umræða hefur eink- um verið áberandi í Bandaríkjun- um, og þá stundum tengst um- fjöllun um stöðu minnihlutahópa, sem eiga einnig erfitt uppdráttar í myndlistinni. Nú er angi af þessari umræðu kominn til íslands í formi sýning- ar á veggspjöldum, sem óformleg- ur hópur listakvenna í New York hefur staðið að. Hópurinn hefur tekið sér nafnið „Skæruliðastúlk- urnar“, með undirtitlinum „sam- viska listheimsins". Þegar á þarf að halda koma listakonurnar fram nafnlaust í tvíræðum einkennis- klæðnaði, sem er stuttir, þröngir kjólar, háhælaðir skór - og górillu- grímur. Hér er ekki um raunverulega listsýningu að ræða, heldur dreif- ingu á upplýsingum. Á veggjum Nýlistasafnsins er að finna þrjátíu veggspjöld, þar sem sem athyglis- verðum staðhæfmgum er haldið fram; listakonur fá mun minni athygli hjá gagnrýnendum (jafn- vel konum í þeirra hópi), í listtíma- ritum er hlutur þeirra einnig afar rýr, og þekktu listasöfnin (Metro- politan, Nútímalistasafnið, Whit- neysafnið o.fl.) í borginni sýna listsköpun kvenna afar litla at- hygli. Karlmenn gætu ef til vill reynt að leiða málið hjá sér sem þrá- hyggju, ef ekki kæmu til sláandi tölulegar upplýsingar sem styðja þessar fullyrðingar; samanburður við hlut kvenna á öðrum sviðum, t.d. við rekstur strætisvagna í stór- borginni, gerir stöðuna í listheim- inum enn háðulegri. Því er full ástæða fyrir skæruliðastúlkurnar að setja fram tillögu um siðareglur fyrir listasöfn, eins og þær gera hér. Eini gallinn við þessa framsetn- ingu er e.t.v. að tölurnar sem byggt er á eru orðnar gamlar, en flestar staðhæfíngarnar byggja á úrtaki frá 1985-86, og mætti ætla (þó það sé engan veginn víst) Haukur Halldórsson Nú stendur yfir í suðurvæng Hallgrímskirkju all-nýstárleg sýn- ing, sem hlotið hefur yfirskriftina „Trú og tákn í tveim heimum“. Hér er að finna verk sem Haukur Halldórsson myndlistarmaður hef- ur unnið í samvinnu við kínverska listiðnaðarmenn, en myndefnin eru byggð á íslensku teiknibókinni í Árnasafni, ímyndum frá víkinga- tímum og loks á myndlist indíána í Norður-Ameríku, þannig að hér er um alþjóðlegt framtak að ræða. Haukur Halldórsson er einna þekktastur fyrir myndskreytingar sínar á bókum, m.a. um þjóðsögur og íslenska hestinn. Þau myndefni, sem hér er að finna, byggja á sama hátt á gömlum hefðum; íslenska teiknibókin er talin frá byijun fimmtándu aldar, og indíánar Norð- ur-Ameríku áttu sér aldalanga hefð í myndgerð náttúruvætta þegar hvítir landnemar kynntust verkum þeirra, sem sumir þjóðflokkamir unnu m.a. með mislitum sandi. Hér er því að finna stílfærða myndgerð, sem á sér langar hefðir og ætti að vera mörgum kunnugleg. Haukur vinnur úr þessu öllu af miklum trúnaði við uppruna myndefnanna, og skipar því skemmtilega niður í myndflötinn. Úrvinnsla verkanna er síðan til- raun í alþjóðlegu samstarfi. Hauk- ur teiknar verkin hér heima, en þau eru síðan endanlega unnin af kínverskum listiðnaðarmönnum, sem eru greinilega afar leiknir í sínu starfi. í hefðbundinni vinnslu emileraðra gljámynda eru teikn- ingin mótuð með málmþræði, og myndfletir síðan fylltir með litar- efni. Það er mikið þolinmæðisverk, þar sem engu má skeika um lit eða dreifingu; loks er verkið brennt við háan hita til að festa litina og skapa harða húð utan á verkið. Hér er notuð ný tækni sem þessir tilteknu listiðnaðarmenn hafa þróað, og nefna mætti kalda emileringu; í stað brennslunnar er fljótandi polyester hellt yfir myndina og látið harðna. Þannig er ferlinu lokað, en í mynd- unum má vel greina komóttann litsandinn, sem er jafnað út í hvetjum litfleti; þessi nýja tækni gefur verk- unum mun líflegri og ferskari svip en ella. Á sýningunni eru tæplega sextíu myndir unnar með þessum hætti, og eru margar þeirra mun stærri en var hægt að gera með eldri tækni. Það er forvitnilegt að sjá hversu vel þessi myndgerð getur hentað ólíkum myndstílum, t.d. víkingamyndum, kristilegum viðfangsefnum og táknmyndum indíána, sem eru hér hafðar afar litríkar. Listamaðurinn hefur átt náið samstarf við Ragnar Baldursson um þróun þessa verkefnis, en Ragnar hefur dvalið langdvölum í Kína og tengsl hans þar hafa gert þeim félögum kleyft að komast í samband við þá listiðnaðarmenn, sem vinna verkin. Nú hefur verið stofnað fyrirtæki til að fylgja þessu starfi eftir og athuga möguleika þess á víðari grunni; nú þegar eru fyrirhugaðar sýningar erlendis á verkum, sem eru unnin með þess- ari nýju tækni, og verður fróðlegt að fylgjast næstu árin með fram- gangi þessa íslensk-kínverska sam- vinnuverkefnis á sviði lista og list- iðnaðar. Sýningin „Trú og tákn í tveim heimum" í Hallgrímskirkju stendur til sunnudagsins 24. apríl, og er unnendum fallegs handverks bent á að líta við. að staðan hafi nokkuð batnað síð- an. Á einu veggspjaldinu er fullyrt að staðan sé jafnvel enn verri í Evrópu. Vegna þessa hlýtur að vera áhugavert að athuga stöðuna hér á landi, og þar hefur undir- búningshópi sýningarinnar tekist að byggja á nýjum upplýsingum frá Listasafni íslands, Listasafni Reykjavíkur og skrifstofum Reykjavíkurborgar. Staðan á íslandi reynist nokkru skárri en þar sem skæruliðastúlk- urnar starfa, en samt er þar ekki eðlismunur á. Einkum er athyglis- vert að sjá hvernig listaverkakaup safnanna endurspegla rýran hlut listakvenna, bæði hvað varðar fjölda listaverka, en ekki síður á hvaða verði þau eru keypt. - Hér er ekki rétt að hafa allar þessar tölur eftir, en vert að benda safna- fólki og listunnendum að kynna sér þær vel. í listum er aldrei hægt að rétt- læta kvótaskiptingu af einu eða neinu tagi; það hljóta ætíð að vera hin listrænu gæði, sem eru hinn endanlegi mælikvarði, þegar öllu er á botninn hvolft. Hins veg- ar er afar ótrúlegt, að í augum opinberra listkaupenda halli sá mælikvarði svo áberandi á annan veginn, eins og hér er sýnt fram á; þar hlýtur fleira að koma til, a.m.k. hvað varðar samtímalist. Þegar haft er í huga að konur eru í meirihluta félagsmanna Sam- bands íslenskra Myndlistarmanna er rökrétt að álykta að hér þurfi að kanna betur sjónarmið „sam- visku listheimsins". Samhliða þessari kynningu hef- ur verið komið fyrir í sölum Ný- listasafnsins ljósmyndaverkum Ingu Svölu Þórsdóttur og Wu Shan Zhuan, sem og verkum úr eigu safnins eftir þær Sólveigu Aðalsteinsdóttur, Ragnheiði Hrafnkelsdóttur, Önnu Líndal og Ráðhildi Ingadóttur. Tengslin við aðalsýninguna eru ekki nógu sterk, nema þá í ljósmynd Maike Klein af hinni eilífu sögu um Adam og Evu og eplið góða. Sýningunni um „Skæruliða- stúlkurnar" sem og öðrum sýning- um í Nýlistasafninu lýkur sunnu- daginn 24. apríl, og er rétt að benda áþugafólki um stöðu list- anna á íslandi að líta við. Margrét Sveinsdóttir í Gallerí einn einn við Skóla- vörðustíg var nýlega opnuð sýning á nokkrum málverkum Margrétar Sveinsdóttur, en þetta mun vera fyrsta einkasýning hennar í höf- uðborginni. Margrét lauk námi frá málun- ardeild Myndlista- og handíða- skóla íslands 1988 og hélt þá til Svíþjóðar, þar sem hún nam við Valands listaháskólann í Gauta- borg. Hún hefur áður tekið þátt í nokkrum samsýningum í Svíþjóð og á ísafirði. Listakonan sýnir hér fimm olíu- málverk, sem öll eru unnin með þykkri áferð, þar sem litirnir eru lagðir með hrjúfum hætti; efsta lagið í þremur verkanna er fremur litlaust í sjálfu sér, en undir því má greina sterkari liti, sem bijót- ast á stundum í gegnum uppbygg- ingu flatarins. Verk af þessu tagi hafa verið virkur þáttur í málaralistinni allt frá því um miðja þessa öld, þegar abstraktlistamenn eins og Jack- son Pollock og fleiri fóru að nota sand og aðra aðskotahluti í mál- verk sín; frá þeim tíma hefur efn- isgildið ætíð verið ríkur þáttur í málverkinu. Hugtakið „Matter Painting" (Efnismálun) hefur stundum verið notað um verk í þessum anda og bandaríski lista- maðurinn Larry Poons vann ötul- lega á þessu sviði um og eftir 1970. Því má vera ljóst að hér er um að ræða framhaldsvinnu við hin eilífu viðfangsefni málaralistar- innar, úrvinnslu formsins og efn- isins í málverkinu. Það er í sjálfu sér eðlilegt að hver listamaður fyrir sig takist á við þau og kom- ist að persónulegum niðurstöðum; sú vinna er hins vegar sjaldnast áhugaverð fyrir aðra fyrr en ár- angurinn er kominn í ljós. Hér er flest kunnuglegt og því eiga vinnubrögðin enn nokkuð í land til að geta talist persónulegt, sjálf- stætt framlag á sviði málaralistar- innar. Sýning Margrétar Sveinsdóttur í Gallerí Einn Einn neðst við Skólavörðustíginn stendur til mánudagsins 25. apríl. TRÍÓ FRÁ VÍN _________Tónlist______________ Jón Ásgeirsson Vienna Clarinet Trio kom fram á tónleikum í Norræna húsinu sl. föstudag. Tónleikar þessir voru Inaldnir í boði austurríska mennta- imálaráðuneytisins og tilefnið voru svonefndir „þýskukennaradagar". Á efnisskránni voru verk eftir Johannes Brahms, sellósónatan í e-moll, op. 38, klarinettusónatan í Es-dúr, op. 120 og a-moll píanótríó- ið, op. 114. Brahms var dulur og margir sökuðu hann um tilfinninga- leysi, íhaldsemi, ofhlæði og útspek- uleruð vinnubrögð. Allt á þetta við rök að styðjast en tilfinningaleysið er nú skilgreint að vera innhverfar og duldar tilfinningar og hafa tón- flytjendur sífellt náð sterkari tökum á þrunginni túlkun þessa mikla tón- skálds og einfara. Tónleikamir hófust á e-moll sellósónötunni, verki sem að nokkru felur í sér allt sem Brahms var sakaður um. Það hefst á þungbún- um, alvörugefnum þætti í sónötu- formi, sem er þrunginn næturíhug- un einfarans. Annar þátturinn er ljóðrænn mennúett, eins konar „Valse triste", þar sem sorgin og gleðin eru ofin saman í hæglátum dansi, eins konar stefnumóti við einmanaleikann. Lokakaflinn er baráttuljóð en þar fer Brahms lengra aftur, hvað snertir form og vinnubrögð en í 'tveimur fyrri köfl- unum. Þar er það kontrapunkturinn sem ríkir í mikilleik sínum, sem foldgnátt fjall, hættulegt og erfítt hveijum farandmanni. Ekkert af þessu var að heyra í leik sellóleikarans Adalbert Skocic og píanóleikarans Adrian Cox, því þó þeir séu góðir hljóðfæraleikarar, vantaði t.d. sellistann þann syngj- andi tón, sem hæfir þessu sérkenni- lega skáldverki. Es-dúr klarinettusónatan var fal- lega flutt af Helmut Hödl, klari- nettuleikara, en á köflum með of mjóróma tóni. Hamin tónmyndun, eins og héyra mátti hjá Hödl, veld- Helmut Hödl ur því að hlustendur taka sérstak- lega eftir flutningnum, en hlusta minna á tónlistina, sem verið er að leika. A-moll tríóið er eiginlega píanó- sónata, eins og mörg kammerverk Adalbert Skocic meistarans og þar átti Adrian Cox oft vel leiknar tónhendingar, sem og reyndar í fyrri verkunum en í heild vantaði mýktina í leik hans. Ef ætti að lýsa leik félaganna í Vienna Clarinett Trio koma lielst í Adrian Cox hugann þær andstæður, sem ein- kenndu leik þeirra. Leikur sellistans var þurr og á köflum ótónviss, tónn og túlkun klarinettuleikarans var „kúltúr" haminn en píanóleikarinn var á köflum harður og ósveigjan- legur. Það vantaði sem sé skáld- skapinn í flutninginn, sem í heild olli nokkrum vonbrigðum, því heim- sókn frá Vinarborg er ekki hvers- dagsviðburður hér á landi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.