Morgunblaðið - 12.04.1994, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRIL 1994
13
Listahátíð í Reykjavík
STEINAR WAAGE
Miðasala hefst í dag
MIÐASALA Listahátíðar í
Reykjavík hefst í íslensku óper-
unni í dag 12. apríl kl. 16.
Listahátíð í Reykjavík hefst á
hátíðarsýningu á sérstakri upp-
færslu á Niflungahring Wagner í
Þjóðleikhúsinu. Sýningin er stytt
útgáfa þessa mikla verks og hefur
Wolfgang Wagner, sonarsonur tón-
skáldsins og stjórnandi Bayruth-
hátíðarinnar, yfirumsjón með gerð
hennar. Richard Wagner sótti efni-
við Niflungahringsins að mestu í
íslenskar fornbókmenntir og er því
vel við hæfi að kynna þjóðinni þetta
stórvirki á 50 ára afmæli íslenska
lýðveldisins. Miðasala á sýningar
Niflungahringsins er þegar hafín í
Þjóðleikhúsinu.
Meðal fjölmargra annarra við-
burða á hátíðinni eru tónleikar
Vladimir Ashkenazys, Igor Oi-
strakhs og Erlings Blöndals
Bengtsson, sem allir eru heiðurs-
gestir hátíðarinnar. Ennfremur
verður djasstónlistarmaðurinn
Gerry Mulligan & the Gerry Mullig-
an Quartet með tónleika á Listahá-
tíð. Einnig verða frumflutt tónverk
eftir íslensku tónskáldin Atla Heimi
Sveinsson, Pál P. Pálsson og Tóm-
as R. Einarsson og nýir dansar
eftir Hlíf Svavarsdóttur, Maríu
Gísladóttur og Nönnu Ólafsdóttur.
Sérstakir hátíðartónleikar verða
í Laugardalshöll 16. júní. Þar syng-
ur Kristján Jóhannsson óperuaríur
með Sinfóníuhljómsveit íslands.
Stjórnandi verður ítalski hljóm-
sveitarstjórinn Rico Saccani, en
miðasala á þessa tónleika hefst í
maí.
Myndlist og leiklist verða einnig
gerð skil á Listahátíð. Sögusýning
verður um íslenska menningu frá
Alþingishátíð til lýðveldisstofnunar
og sýning á íslenskri samtímalist.
Þjóðleikhúsið frumsýnir Sannar
sögur af sálarlífi systra eftir Guð-
berg Bergsson og Viðar Eggerts-
son, Frú Emilía sýnir Macbeth eft-
ir William Shakespeare og Theatre
de Complicité frá Bretlandi kemur
með margverðlaunaða sýningu sína
á leikritinu „The Street of Crocodi-
les“ og sýnir í Borgarleikhúsinu.
Sem fyrr segir hefst miðasalan
í dag — á öll atriði nema tónleika
Kristjáns Jóhannssonar — og verð-
ur í Islensku óperunni. 12. apríl til
20. apríl verður miðasalan opin frá
kl. 16—19 virka daga og sömuleið-
is laugardaginn 21. maí. Eftir
hvítasunnu, þ.e. frá 24. maí til 18.
júní, verður miðasalan opin frá kl.
15-19 alla daga.
r
SKÓVERSLUN
A
Heilsutöflur
Ath.: Landsins mesta úrval af heilsuskóm.
i' ó s i s i mimi s v m i) i i, i u s • :»s r v » <, i: i: i » s i i usií i i i i:
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN /
SÍMI 18519 <P
Ioppskórinn
VELTUSUNDI V/IN6ÓLFST0RG
STEINAR WAAGE ^
SÍMI: 21212
SIMI689212
.,\..ö»" , voV
Gt v\"v -
í gegnum bragdlaukana!
Matargerbarlist er hluti af menningarsögunni. Ein leiðin
til þess ab kynnast menningu og sibum forvitnilegra
landa er því ab njóta sérkenna þeirra í mat og drykk.
Dagana 12. -17. apríl gengst Hótel Saga fyrir
mexíkönskum veisludögum, Fiesta Mexicana, í Grillinu.
Þá gefst fóUti kostur á ab kynnast margrómabri matar-
gerb þessa heillandi lands.
Gestakokkur frá Mexíkó í Grillinu
Hinn rómaði gestakokkur hr. Alejandro Caloca, reiðir fram það besta úr
mexíkönsku eldhúsi.
Sérinnflutt vín
Hótel Saga flytur inn vín frá Mexíkó sérstaklega vegna hátíðarinnar.
Margarita, Tequila og mexíkanskur bjór verfta einnig hluti af veigunum.
Gkesilegt happdrœtti
I lok veisludaganna verður dregiö í happdrætti þar sem allir matargestir eru
þátttakendur. Margir vinningar eru í pottinum. Sá glæsilegasti er tveggja
vikna ferð fyrir tvo til Mexíkó með ferðaskrifstofunni Heimsferðum og Flug-
leiðurn.
Skemmtikraftar frá Mexíkó
Stór þáttur í menningu Mexíkó er þjóðlagatónlistin þeirra, Mariachi og
kyngimagnaöir dansarnir. Hótel Saga fær til landsins 10 manna Mariachi
liljómsveit, skipaða frábærum hljóðfæraleikurum, söngvurum og dönsur-
um, sem mun skemmta matargestunuin.
Ferðamannalandið Mexíkó
Ferðamannalandið Mexíkó verður kynnt í máli og myndum af sérfróðum
fulltrúum Ferðamálaráðs Mexíkó.
Upplijðu Siigu Mexíkó í Grillinu!
Ítorðapanlanir í síma 25033 eða 29900.
FLUGLEIÐIR
HEIMSFERÐIR
Rœðismannaskrifstofa Mexikó
YDDA F69.2/SÍA