Morgunblaðið - 12.04.1994, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRlL 1994
19
Frá neyðarþjón-
ustu meinatækna
— á rannsóknarstofu Landspít-
alans í blóð- o g meinefnafræði
eftir Bergljótu
Halldórsdóttur
Verkfall meinatækna hófst á
miðnætti 5. apríl og hefur staðið
í 4 daga þegar þetta er skrifað.
Bráðarannsóknir frá um 1000
sjúklingum hafa nú verið mæld-
ar. Fjórir meinatæknar gegna
þessari bráðaþjónustu frá kl.
8.00-18.00 og 1 meinatæknir frá
kl. 18.00-8.00. Áður en degi lýk-
ur hafa allt að 5 meinatæknar
verið kallaðir til hjálpar við að
mæla hinar ýmsu bráðarannsókn-
ir og bráða undanþágubeiðnum
sem fjölgar er líður á daginn.
Allar rannsóknarbeiðnir koma
frá sérfræðingum spítalans, ein-
staka utan af landi og eru allar
taldar lífsnauðsynlegar. Telja
mætti af rannsóknarljöldanum og
þeim fjölda meinatækna sem til
eru kvaddar að ekki sé um verk-
fail meinatækna að ræða, heldur
einungis að dregið sé úr þjónustu
þeirra.
Meinatæknar hafa verkfalls-
rétt. Rétt sem flestar fagstéttir
hafa og neyðast til að grípa til,
ef allt annað hefur brugðist. Þess-
um rétti meinatækna eru þó sett-
ar mjög þröngar skorður eins og
sjá má hér. Staðan er erfið.
Bergljót Halldórsdóttir
Meinatæknar eru þjónustustétt
í heilbrigðiskerfinu. Ábyrgð er
mikil, álag mikið og þekkingar
krafist. Það vitum við sem verkin
vinna.
Höfundur er meinatæknir á
bráðaþjónustuvakt.
Fundir með Ingi-
björgu Sólrúnu
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarsljóraefni R-listans efnir til
opinna borgarfunda um helstu málefni Reykvíkinga. Fyrsti fundur-
inn verður 12. apríl og nefnist hann: „Atvinnumálin: breytt viðhorf
og frumkvæði".
Fundarstaður er Borgartún 6.
Málshefjendur auk Ingibjargar
Sólrúnvar verða Örn D. Jónsson,
Gunnar Gissurarson, Vilhjálmur
Þorsteinsson, Þuríður Magnúsdótt-
ir, og Grímur Valdimarsson. Um-
ræðum stjórnar Halldór Guð-
mundsson. Annar fundur verður
18. apríl og nefnist hann: „Breyttir
tímar, betri skóli“ og þriðji fundur-
inn verður 26. apríl og nefnist
hann: „Örugg, breytt og betri
borg“. Fundarstaðir verða auglýstir
síðar.
Ahugaverðar
Grænlandsferðir
Ammassalik
Þriggja daga hundasleðaferðir. Síðasta brottför 13. maí.
Kangerlussuaq
(Syðri Straumfjörður)
Sumarleyfisferðir frá 13. júní til 26. september.
Tilvalið fyrir skóla- og íþróttahópa.
Einnig einstaklings- og fjölskylduferðir.
Narsarsuaq
Á slóðum Eiríks rauöa.
Fjögurra til átta daga ferðir frá 13. júní til 26. september.
Narsaq
Veiðiferðir í 4 til 8 daga í ágúst og september.
Mjög hagstætt irerð
Leitid nánari upplýsinga
Ferðaskrifstofa
GUDMUNDAR JÓNASSONAR HF.
Borgartúni 34, simi 683222
Orðsending til
viðskiptavina
sparisjóðanna
BREYTIN G k,
GIALDSKRA
Sparisjóðirnir hafa undanfarið unnið að breytingum á uppbyggingu gjaldskrár.
Hugsunin að baki breytingunum er að hver liður gjaldskrárinnar sé í samræmi
við hvað það raunverulega kostar að veita þjónustuna. Með öðrum orðum:
Þeir sem nýta sér ákveðna þjónustu sparisjóðanna greiða fyrir hana
sanngjarnt verð.
NÝIR LIÐIR í GJALDSKRÁ
VEGNA DEBETKORTA OG TÉKKA:
Debetkortagjald
250 kr. á ári
Tekur gildi 1. júlí.
Færslugjald vegna debetkorta
9 kr. hver færsla
Tekur gildi 1. júní.
Færslugjald vegna tékka
19 kr. hver færsla
Tekur gildi 1. júní.
Útskriftargjald vegna yfirlita
45 kr. gjald fyrir hverja útskrift Tékkareiknings- og
SÉR-tékkareikningsyfirlita. Færslur vegna debet-
korta færast inn á þessi yfirlit. Yfirlit sem send eru út
um áramót verða áfram án útskriftargjalds.
Tekur gildi 1. maí.
Undanfarið hefur staðið nokkur styr um kostnað við notkun debetkorta. Stað-
reyndin er þó sú að sá sem notar að meðaltali 10 tékkhefti á ári borgar nú
fyrir það hærra gjald en samsvarandi notkun debetkorts kemur tii með að
kosta hann. Og eftir að breytingarnar á gjaldskránni ganga í gildi eykst munur-
inn verulega debetkortinu í hag. Auk þess að vera öruggur og ódýr greiðslumiðill
er debetkortið alit í senn hraðbankakort, persónuskilríki og tékkaábyrgðakort.
KOMDU í SPARISJÓÐINN OG FÁÐU
. ALLAR NÁNARI'UPPLÝSINGAR
SPARISJÓÐIRMR
-fyrir þig og þína