Morgunblaðið - 12.04.1994, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRIL 1994
Um 60 manns atvinnulausir á Grenivík eftir gjaldþrot Kaldbaks hf.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Hóflega bjartsýn
HJÓNIN Jón Friðbjörnsson og Sigrún Valdimarsdóttir hafa bæði
starfað hjá Kaldbak í áraraðir og Jón reyndar frá því fyrirtækið
var stofnað fyrir nærri 30 árum. Þau eru hóflega bjartsýn á að
endurreisn takist en nota tímann til göng-u- og skíðaferða á með-
an staðan er enn óljós.
Það er lítið líf á höfninni á Grenivík þessa dagana.
Fólk bíður og von-
ar að erfiðleikam-
ir séu tímabundir
UM 60 manns eru nú atvinnulausir á Grenivík eftir að frystihúsið
Kaldbakur varð gjaldþrota fyrir hálfum mánuði. Unnið er að því
meðal heimamanna að endurreisa fyrirtækið og sagðist Guðný Sverr-
isdóttir vonast til að línur skýrðust í vikunni en á laugardag verður
haldinn fundur með þingmönnum kjördæmisins þar sem farið verð-
ur yfir stöðu mála.
„Við erum þtjú hér á heimilinu
sem misstum vinnuna," sagði As-
mundur Þorláksson, en hann, eigin-
kona hans, Hildigunnur Eyfjörð
Jónsdóttir, og Fanney dóttir þeirra
unnu öll í frystihúsi Kaldbaks. Ás-
mundur notaði tímann til að moka
snjó frá húsinu. „Maður verður eitt-
hvað að gera, það er biðstaða í
málinu, fólk bíður eftir að eitthvað
gerist. Ég vil helst ekki hugsa þá
hugsun til enda hvað verður ef fyr-
irtækið verður ekki endurreist
þannig að við reynum að lSta á
þetta ástand núna sem tímabundna
erfiðleika."
Ásmundur er Siglfirðingur,
kynntist Hildigunni í síidinni þar
og fluttist til Grenivíkur en hún er
frá Finnastöðum skammt utan við
þorpið. Hann er húsasmíðameistari
en sagði að á síðustu árum hefði
enga vinnu verið að hafa við smíðar
þannig að hann hefur síðustu árin
verið til sjós eða starfað á frystihús-
inu.
Ævistarfið
„Við höfum vissulega hugsað um
hvort við eigum að reyna að selja
húsið okkar hér og flytja til Akur-
eyrar en maður veit ekki hvað verð-
ur. Þetta hús er ævistarf manns
en er orðið allt af stórt þegar böm-
in eru flogin úr hreiðrinu. En þó
að við gætum selt og farið þá hef
ég áhyggjur af hvað verður um
plássið, hitt fólkið hér. Við verðum
að vera bjartsýn á að takist að
endurreisa fyrirtækið og fólk fái
vinnu aftur,“ sagði Ásmundur.
Eirðarleysi
Elísabet Friðriksdóttir og dætur
hennar og eiginmannsins Guðjóns
Jóhannssonar störfuðu hjá fiysti-
húsi Kaldbaks. „Ég hef unnið í físki
frá því ég var 14 ára,“ sagði Elísa-
bet, „og aldrei verið atvinnulaus
fyrr, maður kann það varla. Vinnan
hefur verið mitt áhugamál, maður
verður hálf eirðarlaus að hafa ekki
vinnu, en hins vegar stöndum við
betur að vígi en margir aðrir því
maðurinn minn er á sjó.“
Hún sagðist ekki geta ímyndað
sér framtíðina verði nýju fyrirtæki
um fiskvinnslu á staðnum hleypt
af stokkunum. Kaldbakur var
burðarás atvinnulífs í hreppnum og
yrði fyrirtækið ekki endurreist væri
ekki að neinu öðru að hverfa og
þó fólk vildi fara burt í leit að at-
vinnu annars staðar yrði ekki hægt
að selja húsin. „En ég held að fólk
vilji ekki flytja og sé ekki með þann-
ig hugleiðingar, að minnsta kosti
ekki fyrr en kemur í ljós hvað verð-
ur gert og fólk trúir að eitthvað
verði gert.“
Lottóvinningur
Dætur Elísabetar, þær Svava og
Steinunn, hafa báðar starfað hjá
Kaldbak í vetur. Svava kom heim
frá Bandaríkjunum í nóvember en
þar starfaði hún við barnagæslu.
Steinunn var við nám í ferðaskóla
Flugleiða og kom síðan heim til
Grenivíkur í fyrravor og hefur unn-
ið hjá fyrirtækinu síðan. Frá því
Kaldbakur varð gjaldþrota hafa
þær systur eins og aðrir þeir sem
misstu atvinnuna á Grenivík verið
duglegar að fara út að ganga og
hlaupa. „Maður verður að gera eitt-
hvað og það er ódýrast að fara út
að ganga,“ sögðu þær. Reyndar var
Steinunn svo stálheppin síðastliðið
laugardagskvöld að vinna bónu-
svinning í lottóinu, 92 þúsund krón-
ur, sem eflaust kemur sér vel til
viðbótar atvinnuleysisbótunum.
Við bíðum
Hjónin Jón Friðbjörnsson og Sig-
rún Valdimarsdóttir hafa í áraraðir
starfað hjá Kaldbak og Jón reyndar
óslitið frá því fyrirtækið var stofnað
fyrir tæpum þijátíu árum. Þau eiga
fjögur börn sem öll búa á Akureyri.
„Þetta eru mikil viðbrigði, það
hefur verið mikil vinna á frystihús-
inu og við bæði unnið mikið. Nú
hefur maður allt í einu ekkert að
gera þannig að þetta er óneitanlega
Eirðarleysið verst
ELÍSABET Friðriksdóttir og dætur hennar Svava og Steinunn
störfuðu hjá Kaldbak, en Elísabet hefur unnið í fiski frá því hún
var 14 ára og segir eirðarleysið sem fylgir atvinnuleysinu verst.
Steinunn datt í lukkupottinn og vann bónusvinning i lottóinu síð-
asta laugardag sem kemur sér vel í atvinnuleysinu.
Tímabundnir erfiðleikar
ÁSMUNDUR Þorláksson og Hildigunnur Eyfjörð Jónsdóttir unnu
í frystihúsinu og einnig Fanney dóttir þeirra en þau vona að erfið-
leikarnir séu tímabundnir og úr rætist aftur.
nokkurt áfall," sagði Jón.
Sigrún sagðist vera hóflega
bjartsýn, fólk yrði þó að vona það
besta og það þýddi ekkert að gef-
ast upp. „Við bíðum,“ sagði hún,
„bíðum og sjáum til hvort eitthvað
gerist, verði fyrirtækið ekki endur-
reist þá verðum við sjálfsagt að
leita okkur að vinnu annars staðar
þó ekki sé sérlega bjart yfír atvinnu-
málunum almennt. Það þýðir ekk-
ert að gefast upp,“ sagði hún.
Jón og Sigrún segjast reyna að
finna sér eitthvað að gera til að
dreifa huganum, þau fara í langar
gönguferðir og skreppa á göngu-
skíði, „og ætli maður verði ekki að
fara að taka fram nikkuna og hatt-
inn og spila fyrir fólk,“ bætir Jón
við og segir að þó ástandið sé svart
verði að halda í gamansemina,
„annars verð ég bara að sækja um
pláss á elliheimili".
SKIPATÆKJA/RAFEIN DAVIRKI
Fyrirtæki í sölu og þjónustu á fjarskipta, siglinga- og
fiskileitartækjum óskar eftir rafeindavirkja með starfs-
reynslu til starfa í þjónustudeild.
Skriflegum umsóknum skal skila til
HAFTÆKNI hf.,
Hvannavöllum 14b,
600 Akureyri.
Strandaði á Laufásgrunni
TÖLUVERÐ leit var gerð að
manni sem strandaði trillu sinni á
Laufásgrunni síðastliðið laugar-
dagskvöld, en upplýsingar um
staðsetningu trillunnar voru óljós-
ar að sögn varðstjóra lögreglunn-
ar á Akureyri.
Maðurinn ætlaði frá Grenivík til
Húsavíkur. Talið var að hann hefði
strandað við Gjögra og fóru björgun-
arsveitir af stað að leita hans. Trillan
fannst á Laufásgrunni og amaði ekk-
ert að mannninum, en hann var áber-
andi ölvaður þegar að var komið.
Var hann færður 1 fangageymslu
lögreglunnar á Akureyri.
-------♦ ♦ --------
■ HELGA Haraldsdóttir, for-
stöðumaður skrifstofu Ferðamála-
ráðs, verður gestur í Miðstöð fólks
í atvinnuleit í safnaðarheimili Ak-
ureyrarkirkju miðvikudaginn 13.
apríl frá kl. 15. til 18. Helga mun
kynna hlutverk og störf skrifstdfunn-
ar og hugleiða ýmsar nýjungar í
ferðaþjónustu. Þá mun hún einnig
svara fyrirspurnum um framtíð
ferðaþjónustunnar. Kaffí og brauð
verður á borðum og dagblöðin liggja
frammi auk þess sem ný námskeið
verða kynnt.
■ KYRRÐARSTUND verður í
Glerárkirkju á morgun, miðviku-
daginn 13. apríl, frá kl. 12-13. Org-
elleikur, helgistund, altarisakra-
menti, fyrirbænir. Léttur málsverður
að stundinni lokinni. Allir velkomnir.
Bænastund kvenna kL 20.30-21.30
á miðvikudagskvöld.