Morgunblaðið - 12.04.1994, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDÁGUR 12. APRÍL 1994
BORGAR- OG SVEITARSTJORNARKOSNINGARNAR 28. MAI
Stefnuyfirlýsing bræðingsins
eftir Jónu Gróu
Sigurðardóttur
Alþýðubandalagið, Alþýðuflokk-
urinn, Framsóknarflokkurinn og
Kvennalistinn hafa gert með sér
kosningabandalag við borgarstjórn-
arkosningarnar í vor og bjóða fram
R-listann. Þau láta sem hér sé um
fem stjórnmálasamtök að ræða, en
sannleikurinn er sá að þau eru í raun
sex þar sem Nýr vettvangur og Birt-
ing eru með í bandalaginu.
í sameiginlegri stefnuyfirlýsingu
þessa bræðings segir svo:
„Kosningabandalagið mun leita
eftir stuðningi borgarbúa tl þess að
fá meirihluta í kosningunum, þannig-
að unnt verði að vinna eftir nýjum
áherslum í Reykjavík eftir nær sam-
fellda áratuga stjórn Sjálfstæðis-
flokksins."
í þessu sambandi hljóta Reykvík-
ingar að spyija:
Hvað er það sem sameinar þessi
stjórnmálasamtök?
Hveijar eru hinar nýju áherslur
sem þau ætla að vinna að?
Augljóst er að fátt sameinar þessi
sundurleitu stjómmálaöfl annað en
að fella meirihluta sjálfstæðismanna
í borgarstjóm Reykjavíkur.
Stefnuyfirlýsing R-listans í at-
vinnumálum er með eindæmum. Þeir
sem eitthvað hafa fylgst með at-
vinnumálum í borginni hljóta að vera
undrandi. R-listinn hefur engin önn-
ur stefnumál fram að færa en þau
sem þegar hafa verið í framkvæmd
og í vinnslu um langan tíma hjá
meirihluta sjálfstæðismanna í borg-
arstjórn. Þessi sundurleitu öfl virðast
þannig hafa gert markmið sjálfstæð-
ismanna í atvinnumálum að sínum
og ætia síðan að nota þessi sömu
markmið sem meðul við þann eina
tilgang sinn að fella meirihluta borg-
arstjórnar Reykjavíkur.
R-listinn ætlar að gera sóknar-
áætlun í samvinnu við verkalýðsfélög
og atvinnurekendur í Reykjavík um
hvernig megi öiTa hjól atvinnulífsins
í borginni. Hér er um stolna fjöður
að ræða því starfshópur á vegum
Atvinnumálanefndar Reykjavíkur,
Aflvaka Reykjavíkur hf. og verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar, hefur
unnið að þessum markmiðum. Meg-
inviðfangsefni starfshópsins hefur
verið að leita þess með hvaða hætti
mætti standa að undirbúningi og
varanlegum úrræðum til úrbóta í
atvinnuleysinu.
í samstarfi síðastgreindu aðila
hefur víða verið komið við. Helstu
viðfangsefni hópsins má flokka niður
á eftirfarandi hátt:
Ataksverkefni Reykjavíkur-
borgar. Reykjavíkurborg ætlar að
skapa 1.200 störf tímabundið í sam-
vinnu við atvinnuleysistrygginga-
sjóð. Verið er að úthluta fyrstu 100
störfunum. Arið 1993 stóð stjórn
borgarinnar að því að 7.000 störf
væru tímabundið sköpuð fyrir at-
vinnulausa og skólafólk.
Fræðslumál atvinnulausra. Mik-
il vinna hefur verið lögð í að kanna
fræðslumál fyrir atvinnulausa svo
sem endurþjálfun, endurmenntun,
hugmyndir um skiptivinnu, þ.e. að
námi og vinnu er blandað saman,
og ýmsar fleiri hugmyndir. Til þess
að mögulegt sé að vinna að þessu
enn frekar er nauðsynlegt að félags-
„Þessi sundurleitu öfl
virðast þannig hafa
gert markmið sjálf-
stæðismanna í atvinnu-
málum að sínum og
ætla síðan að nota þessi
sömu markmið sem
meðul við þann eina til-
gang sinn að fella
meirihluta borgar-
stjórnar Reykjavíkur.“
málaráðuneytið og menntamálaráðu-
neytið komi að málinu ásamt aðilum
atvinnulífsins. Starfshópurinn hefur
sent ráðuneytunum báðum erindi
þess efnis.
Ný atvinnutækifæri. Fyrir hópn-
um hafa legið tillögur um skoðun á
hugmyndum að stofnun nýrra fyrir-
tækja með fjölgun atvinnutækifæra
að leiðarljósi. Hér er árangurs að
vænta á nokkrum sviðum.
Aðrar tillögur og hugmyndir.
Af öðrum tillögum og hugmyndum
sem starfshópurinn hefur fjallað um
má nefna tillögur um löndunarskyldu
frystitogara og eflingu fiskmarkaða.
Einnig má nefna hugmyndir til þess
að opna leið fyrir íslenskar afurðir á
erlenda markaði.
Annað markmiðið á stefnuskrá
R-listans er að örva nýsköpun í at-
vinnumálum með samræmdu og
skipulögðu stuðningskerfi fyrir lítil
og meðalstór fyrirtæki.
Meirihluti sjálfstæðismanna í
Fylgstu meb á þribjudögum!
Á þriðjudögum ei gefib út sérstakt íþróttablab þar sem fjallaö er um allt þab helsta sem
gerst hefur í íþróttaheiminum innanlands og utan. Úrslit eru birt út fjölmörgum greinum
íþrótta, t.d. öllum deildum í knattspyrnu, hand- og körfuknattleik, einnig eru fréttir af
golfi, júdó, blaki, karate, frjálsum íþróttum og kappakstri svo eitthvab sé nefnt. Vibtöl eru
tekin við íþróttafólk, umsagnir um leiki og lífleg umfjöllun um allt sem tengist íþróttum.
- tfarnl málsinsl
borgarstjórn hefur unnið ötullega að
þessum markmiðum lengi í samvinnu
við Háskóla Islands og rannsókna-
stofnanir atvinnuveganna. I þessu
sambandi má minna á Líftæknihús,
Tæknigarð hf. og Rannsóknahús í
þágu fiskeldis, en þar reiddi Reykja-
víkurborg fram verulega fjármuni.
Unnið er að hugmyndum um tækni-
garð í sjávarútvegi, fríhöfn í sam-
bandi við komu erlendra skemmti-
ferðaskipa og margvíslegri þjónustu
við skip sem hægt er að veita við
Reykj avíkurhöfn. Reykj avíkurborg
hefur stutt við fyrirtækjanet, en það
er starfsemi sem stuðlar að samvinnu
smærri fyrirtækja og auðveldar þeim
nýsköpun.
Atvinnumálanefnd hefur um ára-
bil haft yfir sjóði að ráða einmitt til
þess að standa að nýsköpun og þróun
smáfyrirtækja. Víða má sjá árangur.
Hér hefur aðeins verið minnst á
tvö fyrstu atriðin í markmiðasetn-
ingu R-Iistans í atvinnumálum sem
eru í raun stolnar fjaðrir. Með hinum
sjö atriðunum í stefnuyfirlýsingu
Jóna Gróa Sigurðardóttir
bræðingsins sýnir þessi sundurleiti
hópur að hann hefur reytt fuglinn
allan.
Höfundur er formaður
A tvinnumálanefndar
Reykjavíkurborgar ogskipar 7.
sæti á lista Sjálfstæðisflokksins
við borgarstjórnarkosningarnar í
Aukið umferðar-
öryggi í Reykjavík
eftir Ólaf F.
Magnússon
Stefna sjálfstæðismanna í Reykja-
vík í flölskyldumálum hefur nú verið
kynnt en þar segir m.a.: „Forvarnir
sem miða að betri aðstöðu til umönn-
unar bama, menntunar, fækkunar
slysa og betri heilsu borgarbúa eru
skynsamleg fjárfesting og síður en
svo útgjaldaauki þegar til lengri tíma
er litið. Forvarnir þýða meðal annars
að fleiri einstaklingar eru virkir á
vinnumarkaði, afla sér tekna og
styrkja samfélagið."
í fjölskyldustefnu okkar sjálfstæð-
ismanna er lögð megináhersla á
fimm þætti sem á mismunandi hátt
snerta ijolskylduna og umhverfi
hennar, en þeir eru:
1. Þjónusta við börn.
2. Þjónusta við aldraða.
3. Forvarnir.
4. Aukið umferðaröryggi.
5. Umhverfisvernd.
Aukið umferðaröryggi er
sérstakt forgangsverkefni
Framkvæmdir sem stuðla að auknu
umferðaröryggi eru í senn arðbærar
og hafa í för með sér aukna vellíðan
fólksins í borginni. Þar á ég einkum
við fjölgun undirganga við umferðar-
æðar og bættar göngu- og hjólreiða-
leiðir um borgina. Einnig þarf að
gera umferð um stofnbrautir greiðari
og beina umferð frá íbúðahverfum inn
á stofnbrautir í vaxandi mæli. Knýj-
andi þörf er fyrir mislæg gatnamót,
þar sem stærstu umferðaræðar höfuð-
borgarinnar liggja saman.
Færri ferðir og öruggari
leiðir í skólann
Með tilkomu heilsdagsskóla má
fækka ferðum nemenda milli heimilis
og skóla. Skipulega hefur verið unn-
ið að skráningu gönguleiða barna og
unglinga til og frá skóla.
Staðsetning umferðaröryggis-
varða á gönguleiðum barna í skól-
ann, ásamt vel upplýstum gang-
brautum og gangbrautaljósum eða
hraðahindrunum, auka öryggi barn-
anna. Við framtíðarskipulag þarf að
reyna að staðsetja skóla í hverfum
þannig að börn þurfi ekki að fara
yfir umferðargötur á leið í skólann.
Fjölgun undirganga við
umferðaræðar
Sjálfstæðismenn munu láta vinna
sérstaka á' mn um framkvæmdir
við göngu' .ýr og undirgöng til að
auka öryggi gangandi vegfarenda.
Þar má nefna tengingar yfir Skóg-
arsel í Suður-Mjódd, yfir Breiðholts-
braut í Módd, yfrr Miklubraut neðan
Rauðagerðis og yfir Bústaðaveg-frá
ibúðaHVéWi^íð.'feléftöfögM
Ólafur F. Magnússon
„Sjálfstæðismenn munu
láta vinna sérstaka
áætlun um fram-
kvæmdir við göngubrýr
og undirgöng til að
auka öryggi gangandi
vegfarenda.“
Bættar göngu- og
hjólreiðaleiðir
Á næstu tveim árum ætla sjálf-
stæðismenn að ljúka við gerð göngu-
og hjólreiðastígs, sem liggur frá Sel-
tjarnarnesi meðfram ströndinni og
um Fossvogsdal og Elliðaárdal upp
í Heiðmörk. Byggð verður göngu-
og hjólreiðabrú yfir Kringlumýrar-
braut á næsta ári. Þannig skapast
um 16 km gönguleið, þar sem aldrei
þarf að fara yfir umferðargötu. Sjálf-
stæðismenn leggja einnig áherslu á
tengingu borgarhverfa með gerð
göngu- og hjólreiðastíga.
Mislæg gatnamót og greiðari
umferð
Sjálfstæðismenn leggja áherslu á,
að sem fyrst verði gerð mislæg
gatnamót á mótum Miklubrautar og
Kringlumýrarbrautar og á mótum
Vesturlandsvegar og Höfðabakka.
Einnig þarf að ráðast í breikkun
Vesturlandsvegar milli Höfðabakka
og Skeiðarvogs. Á þennan hátt má
greiða fyrir umferð og auka enn frek-
ar forvarnir í umferðinni um höfuð-
borgina.
Höfundur er læknir og
varaborgarfulltrúi í Reykjavík.
Hann skipar. 9. sætið á
borgarstjórnarlista
"> kjálktæðiánokkiiitifi.' i < ,'u;(OG[its[