Morgunblaðið - 12.04.1994, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRIL 1994
37
Framhaldsskólamót í hestaíþróttum
Yerkmeimtaskóhnn rauf
sigurgöngu Armúlaskólans
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Hákon Pétursson sem keppti fyrir hönd Iðnskólans i Reylqavík
varð stigahæstur keppenda í einstaklingskeppninni auk þess að
sig^ra í fjórgangi á hestinum Neró.
________Hestar___________
Valdimar Kristinsson
VERKMENNTASKÓLINN á Ak-
ureyri með þau Sigrúnu Brypj-
arsdóttur og Arnar Grant í
broddi fylkingar kom sá og sigr-
aði á árlegu móti framhaldsskól-
anna í hestaíþróttum. Mótið, sem
hófst á föstudag og lauk á sunnu-
dagskvöld, var haldið í Reiðhöll-
inni í Víðidal.
Alls sendu 17 framhaldsskólar
sendu lið til keppninnar að þessu
sinni sem segja má að sé búin að
festa sig rækilega í sessi. Skólarnir
styrkja nemendur vegna þátttö-
kunnar en margir flytja með sér
hross langt að. Kepppnin er fyrst
og fremst stigakeppni milli skól-
anna en sjálfsagt hefur þótt að
bjóða einnig upp á einstaklings-
keppni með úrslitum. Nú í fyrsta
skipti var keppt eftir nýjum reglum
Hestaíþróttasambandsins en einnig
var gerð tilraun með að hafa þrjá
keppendur inni á vellinum í senn í
forkeppninni. Voru menn almennt
heldur ánægðir með þetta fyrir-
komulag og töldu athugandi að
reyna það frekar á öðrum vett-
vangi. Tvöföld úrslit voru í hverri
grein, þ.e. A- og B-úrslit, og sam-
kvæmt nýju reglunum vinnur efsti
hestur í B-úrslitunum sér rétt til
að taka þátt í A-úrslitunum. Með
þessu fyrirkomulagi voru gerð regin
mistök að hafa A-úrslit í hverri
grein strax á eftir B-úrslitunum
sem þýddi til dæmis að einn hestur
þurfti að keppa. íjórum sinnum til
úrslita á sunnudagskvöldið sem er
án efa full mikið af því góða. Mót-
ið fór í aðra staði vel fram og
ánægjulegt að sjá stöðugt aukinn
áhuga nemenda á þessari göfugu
íþrótt.
Úrslit í einstaklingsgreinum varð
sem hér segir:
Tölt
1. Arnar Grant, VMA, á Leikni frá
Arnarstöðum, 7,25.
2. íris Björk Hafsteinsdóttir, MH,
á Gleði frá Þórukoti, 6,75.
3. Berglind Árnadóttir, FÁ, á Öss-
ur, 6,50.
4. Anna B. Ólafsdóttir, FLB, á Óð,
6,46.
5. Hákon Pétursson, IR, á Neró,
5,92.
6. Gísli Geir Gylfason, IR, á Kappa.
Fjórgangur
1. Hákon Pétursson, IR, á Neró,
6,27
2. Anna B.Ólafsdóttir, FLB, á Óði,
6,23
3. Amar Grant, VMA, á Leikni,
6,13.
4. Maríanna Gunnarsdóttir, VÍ, á
Garra, 6,0
5. Sigrún Brynjarsdóttir, VMA, á
Brynjari frá Búlandi, 5,83
6. Haukur Baldvinsson, FSU, á
Galsa frá Selfossi, 5,50.
Fimmgangur
1. Sigrún Brynjarsdóttir, VMA, á
Ljúfí frá Hvestu, 6,82.
2. Hörður Hermannsson, IR, á
Mekki, 6,65.
3. Edda Rún Ragnarsdóttir, FB, á
Sindra, 6,59.
4. Hákon Pétursson, IR, á Kalsa,
6,47.
5. Þóra Brynjarsdóttir, FS, á Fiðr-
ingi frá Ingveldarstöðum, 6,09.
6. Ásta Kristín Briem, MR, á Skelfi
frá Skagaströnd, 5,91.
Stigahæstu skólarnir:
1. Verkmenntaskólinn Akureyri,
422 stig.
2. Iðnskólinn í Reykjavík, 411,71
stig.
3. Fjölbrautaskólinn við Ármúla,
386,98 stig.
4. Fjölbrautaskóli Suðurnesja,
382,50 stig.
5. Menntaskólinn á Akureyri,
376,54 stig.
Stigahæsti knapinn
Hákon Pétursson með 146,72 stig.
íslensk tvíkeppni
Amar Grant með 113,91 stig
Snyrtilegasti hestur mótsins
Leiknir sem Amar Grant sat.
Sigrún Brynjarsdóttir VMA, lengst til vinstri sigraði í fimmgangi á Ljúfi frá Hvestu, næst komu
Hörður Hermannson IR, á Mekki, Edda Rún Ragnarsdóttir FB, á Sindra, Hákon Pétursson IR, á
Kalsa, Þóra Bryiyarsdóttir FS, á Fiðringi og Ásta Kristín Briem á Skelfi frá Skagaströnd.
Með sex hesta að norðan
í reiðtíma hjá Sigurbimi
ÞÆR tefja það ekki eftir sér eyfirsku konurnar sex að mæta til
Reykjavíkur með jafn marga hesta í leit að frekari kunnáttu í reið-
listinni. „Hugmyndin kviknaði þegar við vorum að vinna við undirbún-
ing fyrir íslandsmótið í fyrra á Hlíðarholtsvelli á Akureyri," segir
Birna Björnsdóttir sem hafði orð fyrir hópnum er blaðamaður leit við
í reiðskemmu Sigubjörns Bárðarsonar þar sem fræðin voru numin.
„Okkur fannst ástæða til að gera
eitthvað skemmtilegt og gagnlegt
saman og þá kviknaði þessi hug-
mynd að fara suður á reiðnámskeið
til Sigurbjörns. Við komum á Mið-
vikudag og förum aftur á miðviku-
daginn norður. Höfum við tekið tvo
tíma á dag í reiðkennslu og slappað
af og látið okkur líða vel þess á
milli," sagði Bima „og aðeins farið
út á lífið," bætti hún við. Á laugar-
dag var farið í útreiðartúr um ná-
grenni Víðidalsins og komið meðal
annars við í hesthúsahverfínu að
Heimsenda og sagði Bima að þeim
hafí verið tekið með kostum og
kynjum allsstaðar þar sem þær
hafi komið. „Eiginmennirnar hafa
hringt reglulega í okkur og spurt
eftir hvemig hestamir hafí það og
hvort þeim hafi nokkuð orðið meint
af ferðalaginu en lítið verið spurt
um líðan okkar kvennanna," sagði
Birna í gamansömum tón.
Aðspurð um ástæðuna fyrir suð-
urförinni sagði Birna ekki vera van-
traust á norðlenska reiðkennara en
hinu væri ekki að neita að þau
hefðu engan Didda fyrir norðan og
vildi hún koma því á framfæri að
hann væri hreint frábær reiðkenn-
ari og svo skiptir náttúmlega sköp-
um að geta verið innanhúss. „Nú
Slegið var á létta strengi þegar eyfirsku valkyrjurnar gerðu hlé
á reiðnáminu og stilltu sér upp fyrir myndatöku en þær eru frá
vinstri talið Sigríður Guðmundsdóttir, Birna Björnsdóttir, Kolbrún
Kristjánsdóttir, María Egilsdóttir, Áslaug Kristjánsdóttir, Helga
Árnadóttir og kennarinn Sigurbjörn.
verður ekki til baka snúið að við um fyrr en við höfum fengið eina
viljum reiðhöll í Eyjafjörðinn og slíka," sagði Birna að lokum og var
munum við konurnar ekki linna lát- þar með rokin í reiðtímann.
skólar/námskeið
handavinna
■ Ódýr saumanámskeið
Nú er rétti tíminn til að sauma sumarföt-
in. Mest 4 nemendur í hóp.
Faglærður kennari.
Upplýsingar i síma 17356.
starfsmenntun
■ Námskeið hjá
Stjórnunarfétagi
íslands:
Þekking - þjálfun - þátttaka
(námskeið f. konur)
12. apríl kl. 13.00-17.30.
Hvað einkennir
afburðastjórnandann?
13. aprú kl. 13.00-17.00.
Markaðs- og söluáætlun
fagmannsins
18. og 19. apríl kl. 13.00-17.30.
Leiðin til árangurs (Phoenix)
18., 19. og 20. apríl kl. 16.00-22.00.
Alþjóðleg si'masamskipti
19. apríl kl. 15.00-16.30.
■ Tímastjórnun (Time Manager)
20. apríl kl. 08.30-17.30.
Leiðir til að útrýma streitu
og spennu
22. apríl kl. 15.00-19.00.
Sölunámskeið fyrir verslunarfólk
25. og 26. apríl kl. 09.15-12.15.
Hlutverk (Mission)
26. apríl kl. 13.00-16.00.
Nánari upplýsingar
í síma 621066.
tölvur
■ Frá Starfsþjálfun fatlaðra
Tölvunámskeið hefjast 17. maí. Innritun
til 6. maí á staðnum og í síma 29380.
Starfsþjálfun fatlaðra,
Hátúni 10a, 105 Rvk.
■ Tölvunámskeið
- Windows 3.1
- Word fyrir Windows og Macintosh
- WordPerfect fyrir Windows
- Excel fyrir Windows og Macintosh
- PageMaker fyrir Windows/Macintosh
- Paradox fyrir Windows
- Tölvubókhald
- Novell námskeið fyrir netstjóra
- Word og Excel framhaldsnámskeið
- Unglinganám
- Windows forritun
Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar
kennslubækur fylgja öllum námskeiðum.
Upplýsingar og skráning í síma 616699.
Tölvuskóli Revkiauíkur
[Jo,oi.rtúm 28, simi.ei 66.99. . -
tungumál
■ Alþjóðlegir pennavinir
Viltu nýta og bæta tungumálakunnáttuna
á ódýran og skemmtilegan hátt? „Inter-
national Pen Friends" útvegnar þér
a.m.k. 14 jafnaldra pennavini frá ýmsum
löndum eftir þínum óskum og áhugamál-
um. Frekari upplýsingar.
I.P.F.,
Pósthólf 4276, 124 Reykajvík.
988-18181.
ýmislegt
Biblíuskólinn
við Holtaveg
Pósthólf 4060, 124 Reykjavlk
Slmi 91-67B899
■ Byggt á bjargi
Námskeið um Biblíuna
Leitað verður svara við ýmkum spurn
ingum um Biblíuna, t.d.: Hvers konai
bók er Biblían? Hvemig getum við lesif
hana og skilið? Af hverju er hún kölluf
Guðs orð? Hvaða munur er á einstökum
ritum Biblíunnar? Hvemig talar Guð til
okkar í Biblíunni?
Leiðbeinandi veröur Ragnar Gunnarsson.
Kennt í aðalstöðvum KFUM og KFUK
við Holtaveg fimm mánudagskvöld kl.
20.00-21.30, 18. aprfl - 16. maí.
Námskeiðsgjald aðeins kr. 800.
Skráning í síma 678899 til 15. aprfl.
■ Bréfið um gleðina
Námskeið um Filippíbréfið
Bréfið kynnt, baksvið þess og aðstæður
er það var skrifað. Bréfið lesiö, vers
fyrir vers, útskýrt og heimfært til sam-
tímans. Leiðbeinandi: Skúli Svavarsson.
Kennt verður fjögur þriðjudagskvöld, 17.
og 24. maí, 7. og 14. júní, kl. 20.00-
21.30.
Námskeiðið fer fram í aðalstöðvum
KFUM og KFUK við Holtaveg.
Námskeiðsgjald kr. 800.
Skráning í síma 678899 til 13. maí.
wrrTWTirwwr riwwwT»TBW~Tinnr~nwinjiMi
Ieiðin til árangurs (Phoenix)
3., U: m 15. aprfl 12.00^18.00.;