Morgunblaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1994
Amdís Benedikts-
dóttir - Minning
Fædd 31. október 1919
Dáin 3. apríl 1994
Adda móðursystir er dáin og
minningarnar fylla hugann. Hún
var elst fjögurra systkina, næstur
er Finnur, þá Ingimundur sem lést
1989 og yngst er móðir mín, Guð-
rún. Systkinin misstu móður sína
þegar Adda var fimm ára gömul
^flg yngsta barnið aðeins nokkurra
vikna gamalt. Þau ólust upp norður
á Hólmavík hjá föður sínum, föður-
systur og fóstursystur þeirra.
Mikill samgangur var milli heim-
ilis Öddu og móður minnar á
Hólmavík á uppvaxtarárum mínum.
Ótal bernskuminningar tengjast
heimsóknum, jólum, dagsferðum
með nesti til Reykhóla eða út á
Gálmaströnd og ævintýraferðirnar
á háaloftið hjá Oddu gleymast seint.
Adda tók m.a. að sér að velja á
mig fermingarfötin og tók mig þá
með til Reykjavíkur. Á mennta-
skólaárunum þegar ég bjó ásamt
bróður mínum og sonum Öddu í
Reykjavík þá var hún með annan
fótinn fyrir sunnan og dekraði við
okkur. Áður en hún hélt norður
aftur þá var hún vön að búa í hag-
inn fyrir okkur; ég man að í eitt
skiptið sauð hún niður kjöt sem var
ógleymanlega gott. Orð fór af henni
fyrir myndarskap í tengslum við
matargerð og á árunum norður á
Hólmavík var mikill gestagangur á
heimili hennar vegna starfs eigin-
mannsins.
Adda bjó á Hólmavík ásamt
manni sínumn, séra Andrési Ólafs-
- syni, til haustins 1982 eða þar til
hann lét af prestsstörfum. Synir
þeirra voru þá sestir að í Reykjavík
og þangað fluttu þau og tóku við
störfum kirkjuvarða í Dómkirkj-
unni. Systkini Öddu fluttu hvert af
öðru suður til Reykjavíkur og 1985
var öll fjölskyldan sest þar að. Ég
á erfitt með að ímynda mér meira
og nánara samband milli systkina
en milli þessara fjögurra. Það lætur
Mklnkkjur
Glæsileg kafii-
hlaðborð Megir
salir og mjög
góð þjómista.
Upplýsingar
ísáma22322
FLUGLEIÐIR
ÍÍTIL uruillll
friðfinns
Suöuriandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
Opið öil kvöid
til ki. 22,- einnig um helgar.
- Skreytingar við öll tilefni.
Gjafavörur.
nærri að daglegt samband hafi ver-
ið milli þeirra. Söknuðurinn vegna
fráfalls Öddu er því mikill, jafn-
framt því sem við erum þakklát
fyrir að hún þurfti ekki að upplifa
frekari þjáningar. Adda hafði þann
hæfileika í ríkum mæli að sjá það
góða í hverjum og einum og vildi
öllum vel. Eg veit að henni á eftir
að líða vel í nýjum heimkynnum.
Ég er líka viss um að vel hefur
verið tekið á móti henni og að við
eigum eftir að hittast aftur og eiga
góðar stundir saman á ný.
Guðrún Reykdal.
Það er einn af þessum dögum á
mótum sumars og hausts sem
skarta svo ríkri fegurð á íslandi.
Gróður hefur enn ekki látið á sjá
en fjallatindarnir eru krýndir nýrri
mjöll. Lágfleyg sólin fleytir glömp-
um eftir gárunum sem golan vekur
á Steingrímsfirðinum. Við sjónum
ferðalangs blasir Hólmavík og lætur
sjóinn leika um bryggjur sínar og
teygir kirkjuspíruna til himins í
værð.
Þessum stað voru þau samgróin
Arndís og Andrés, hjón sem við
höfðum nánast þekkt af afspurn
einni þegar við ókum í hlað á prests-
setrinu. Það breyttist næsta sólar-
hring. Við höfðum komið heiman
frá Isafirði um Laxárdalsheiði og
ætluðum að skoða okkur um í
Strandasýslu.
Þau hjónin voru að búa sig til
beija þegar okkur bar að garði og
við vildum þá gera stuttan stans
og það var í góðu lagi ef við kæm-
um aftur um kvöldið og gistum hjá
þeim. Þetta gekk eftir og áttum við
eftirminnilegt kvöld og morgun
saman, þar sem við kynntumst við-
horfum þeirra og athöfn.
Arndís átti sinn drjúga þátt í frá-
sögn og umræðum og gleði hennar
og andlegt fjör gerði okkur gott í
geði og veitingarnar sem hún bar
fram af myndarskap settu hátíð-
arblæ á samkvæmið.
Áður en við fórum höfðu þau
sýnt okkur prestssetrið og kirkjuna
og við sannfærst um að það sem
við höfðum áður spurt var satt: Þau
Arndís og Andrés höfðu látið um
sig muna á Hólmavík. Seinni daginn
sem við ókum úr hlaði voru þeir
Benedikt og Hlynur, synir þeirra,
væntanlegir til þess að pakka með
þeim niður. Þau voru að flytjast
suður og ætluðu að annast Dóm-
kirkjuna í Reykjavík.
Ekkert okkar grunaði þá að þar
ættu leiðir eftir að liggja saman
um ára bil en svo varð þó. Þar efld-
ust kynnin við dagleg störf. Vinátta
skapaðist og trúnaður sem aldrei
brást. Arndís hafði mótaðar skoðan-
ir og lét þær ekki til hliðar ef um-
ræður tókust. Hún var íhaldssöm í
góðum skilningi þess orðs og einkar
ábyrg.
Sami myndarskapurinn ein-
kenndi störfin í Dómkirkjunni og
áður hafði verið á Hólmavík og juku
þau virðingu kirkjunnar. Þau urðu
henni samgróin bæði fyrir það
hversu þau lögðu sig í störfin og
eins fyrir það að hver sem þangað
hefur leitað nú í 13 ár hefur hitt
þau fyrir. Prestar og aðrir þjónar
helgiathafna hafa sótt í þau ráð og
traust og jafnan átt góðu að fagna
í viðskiptum við þau.
Þau Ámdís voru og prýði á sam-
fundum þess fólks sem hvað þétt-
ast hefur staðið um Dómkirkjuna.
Jólafundir Kirkjunefndar kvenna,
sumarferðir og hátíðlegar samkom-
ur bregða svip við fráfall Arndísar.
Glaðværð hennar og óaðfinnanlega
viðurkvæmilegt yfirbragð sló jafnan
tón fyrir marga aðra. Við söknum
vinar í stað.
Þegar komið er inn um skrúðhús-
dyr Dómkirkjunnar standa ævin-
lega við fatahengi tvennir skór,
karlmannskór og kvenskór, snyrti-
lega raðað hlið við hlið, einskonar
tákn um verklag og samstöðu eig-
enda sinna. Á daginn era þetta úti-
skór og á kvöldin inniskór. Það er
dapurleg tilhugsun að nú verði
karlamannsskómir bara einir.
Verkdijúgum starfsdegi er lokið
og fýrir innri eyrum hljómar rödd
sem segir: Gott, þú trúa þema,
gakk inn til fagnaðar herra þíns.
Við kveðjum Arndísi Benedikts-
dóttur í virðingu og þökk.
Auður og Jakob Hjálmarsson.
Á páskadag árið 1949, kl. 7 að
morgni, settu þau Amdís Bene-
diktsdóttir og sr. Andrés Ólafsson
sóknarprestur á Hólmavík upp
hringa til þess að staðfesta opinber-
lega unnin heit um ævitryggð. Síð-
an gengu þau saman til morgun-
guðsþjónustunnar, þar sem fagnað-
arerindi lífsins var boðað og lof-
söngvar sungnir vegna vissunnar
um, að Kristur er sannarlega upp-
risinn. Þar var það boðað, að vegna
þess að hann lifir, þá munum við
einnig lifa að eilífu. Hans vegna
eigum við það víst að mega, handan
við dauðans ós, ganga við stuðning
lífsips sterkustu og hlýjustu handar
og í samfélagi þeirra ástvina, sem
við höfum tengst nánustum bönd-
um, í áttina að hástóli Guðs.
Páskamessan var eins og sameig-
inleg játning hinna ungu elskenda
um, hvaða köllun þau vildu gegna
í lífi sínu. Þau gengu í hjónaband
um haustið þetta sama ár, og þeirra
biðu 33 afar farsæl ár í þjónustu
fýrir kirkju Krists þar norður á
Ströndum, þjónustu, sem var unnin
af dugnaði og samviskusemi, en þó
umfram allt af trú í kærleika.
Ferðalög nyrðra vom erfið, ekki
síst á vetmm, og sr. Andrés hafði
fundið fyrir nokkmm heilsubresti,
þannig að þau sáu þörfina að breyta
til. Um það leyti, þ.e. árið 1982,
þurfti að ráða nýja kirkjuverði að
Dómkirkjunni. Eftir þeim var aug-
lýst með þeim hætti, að æskilegt
var talið að geta ráðið hjón, er ynnu
þessi mikilvægu störf saman. Um-
sókn þeirra Arndísar og sr. Andrés-
ar lá fyrir, er ég kom úr sumar-
Ieyfi, en aðrar álitlegar umsóknir
höfðu einnig borist. Ég var að því
spurður, af samstarfsaðilum, hvort
mér mundi ekki þykja óþægilegt
að fá þarna til starfa prest, sem
væri eldri en við sr. Hjalti, fyrrver-
andi prófastur og trúlega fastur í
formum. Ég var svo lánsamur að
hafa kynnst ljúflyndi sr. Andrésar
og hafa einnig haft góðar spurnir
af hans ágætu eiginkonu, þannig
að ég gat öruggur vísað öllu slíku
á bug. Þau voru því ráðin, og í dag
er það í senn gleði okkar, sem við
Dómkirkjuna höfum starfað síðan,
og hamingja þeirra hjóna, hve vel
hefur þar til tekist. Ég er oft búinn
að segja það, að við höfum fengið
þama bestu kirkjuvarðarhjón í
heiminum, og einhvern veginn hef-
ur enginn haft ástæðu til að mót-
mæla því. Það var einstakt að fá
kirkjuvörð, sem sameinaði svo vel
þjónustulund og þekkingu sem sr.
Andrés hefur gert. En Arndís hefur
verið honum þar svo algjörlega
samstiga, og skapað með hreinlæti
sínu og myndarskap þann brag sem
kirkjuhúsið hefur notið síðan. Kór-
óna þessara hluta hefur svo verið
einlægni þeirra og trúargleði sem
þátttakenda í helgihaldinu.
Hin daglegu samskipti einkennd-
ust, af þeirra hálfu, af fágætu lúf-
lyndi og tillitssemi. Þegar við prest-
arnir komum til athafna, var ævin-
lega allt til reiðu og okkur fagnað
sem vinum. Þannig var það einnig
um organistana og söngfólkið. Það
var líka svo ánægjulegt, að verða
vitni að því, að prestar, eldri sem
yngri, prestar utan af landi eða úr
úthverfum prófastsdæmisins, er
áttu Ieið um miðbæinn, þeir löðuð-
ust að, litu gjarnan inn til að njóta
hinna góðu hjóna, og væri ekkert
á dagskrá í kirkjunni, lá leið margra
upp á kirkjuloftið í kaffisopa.
Síðustu sex árin hef ég meira
verið gestur en heimamaður, en
gagnkvæm vináttan og samfélagið
hafa ekkert breyst. Árndís hefur
seinni hluta þessa tímabils barist
við krabbameinið illvíga. Hún hefur
gert það með þeim hætti, að vakið
hefur aðdáun og virðingu okkar
allra, sem til höfum þekkt. Hún
sagðist ekki þurfa að kvarta. Guð
væri búinn að gefa sér svo mörg
góð ár og mikinn gæfuhlut. Það
vildi hún þakka og taka svo hinu,
að ég hygg, í anda orða postulans,
sem sagði: „Allt megna ég fyrir
hjálp hans, sem mig styrkan gjörir.“
Páskadagur rann upp, 3. apríl
sl. Ég frétti það, er ég kom til
morgunmessunnar, að Arndís og
Andrés væru þar ekki. Hún hafði
veikst alvarlega daginn áður og var
flutt á Borgarspítalann. Tengslin
við þau hjón em með þeim hætti,
að það var nánast sjálfsagt að fara
til hennar þá strax um morguninn.
Ég var svo lánsamur, að henni leið
vel þá stund, sem ég stansaði hjá
henni þar rétt fyrir hádegi. Við viss-
um bæði, að það var ekki langt
eftir. Þess vegna var rætt um vin-
áttuna og samstarfið og fyrir það
þakkað. En páskarnir og fögnuður
þeirra voru þó efst í huga, hinn lif-
andi Kristur, „ástvin alls sem lifír“,
og horfnir vinir í hans vernd. Hún
var svo ömgg um að mæta þar vin-
um í varpa og fá sjálf að taka á
móti þeim, sem hún skildi eftir hér.
I þeim hug kvöddumst við.
Eftir hádegi elnaði sóttin, og
undir kvöld kvaddi hún þetta líf.
Þá var haldið til þeirrar himnesku
páskaguðsþjónustu, sem engan
enda tekur.
Sr. Andrés, kæri vinur. Þessar
fátæklegu Iínur eru skrifaður til
þess fyrst og fremst að tjá þakk-
læti okkar Dagbjartar fyrir allt, sem
við höfum átt sameiginlegt í starf-
inu við Dómkirkjuna og á góðum
stundum á heimilum okkar beggja.
En jafnframt er það bæn okkar,
að Guð gefi þér, og ástvinum ykkar
öllum, huggun og styrk. Ég hygg
ég mæli fyrir munn allra, sem nutu
Arndísar með okkur, er ég lýk hér
með orðum sr. Valdimars Briem:
Far þú i friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Þórir Stephensen.
Kveðja frá Dómkirkjusöfn-
uðinum í Reykjavík
Það var mikill fengur fyrir Dóm-
kirkjuna í Reykjavík og söfnuð
hennar þegar sæmdarhjónin Arndís
Benediktsdóttir og séra Andrés
Ólafsson komu til starfa við Dóm-
kirkjuna sem kirkjuverðir í byijun
október árið 1982. Þá þegar áttu
þau bæði að baki langan og giftu-
dijúgan feril sem kirkjunnar þjón-
ar, hann sem prestur og prófastur,
hún sem prestkona og prófastsfrú,
samhent eiginmanni sínum í öllum
hans störfum og þjónustu við kirkju
og söfnuð.
Fljótt varð okkur ljóst, er Dóm-
kirkjuna sóttu, að nú hafði þessi
gamla og virðulega kirkja eignast
verðuga þjóna. Auk einstakrar
snyrtimennsku, kurteisi og prúð-
mennsku í fasi öllu og framkomu,
geisluðu þau hjónin af hljóðlátri
glaðværð, hógværð og hjarta-
gæsku, sem náði langt út fyrir
veggi kirkjunnar. Svo samstíga
virtust þau í öllu, að vart verður
annars þeirra getið án þess að nafn
hins fylgi með.
Okkur setti öll hljóð þegar til
eyrna barst sú harmafregn að frú
Arndís hefði látist að kvöldi páska-
dags, 3. apríl sl. Nokkra hríð höfð-
um við vitað að hún gekk ekki heil
til skógar, en háði af æðruleysi
baráttu við alvarlegan og erfiðan
sjúkdóm. Við höfðum vonað í
lengstu lög að hún færi með sigur
af hólmi. Svo varð þó ekki og því
er nú skarð fyrir skildi.
Upp er runnin kveðjustund. Við
kveðjum frú Arndísi að leiðarlokum
með söknuð og sorg í hjarta. Um
leið þökkum við henni öll hennar
góðu störf fyrir kirkjuna okkar. Við
þökkum henni allar góðu minning-
arnar og brosin sem hún skildi eft-
ir handa okkur.
Birting afmælis- og
minningargreina
MORGUNBLAÐIÐ tekur afmælis- og minningargreinar til birt-
ingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðs-
ins Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnar-
stræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Ákjósanlegast er að fá greinarnar sendar á disklingi.
Minnismerki úr steini
Steinn er kjörið efni í allskonar minnismerki. Veitum
alla faglega ráðgjöf varðandi hverskonar minnismerki.