Morgunblaðið - 12.04.1994, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRIL 1994
45
Morgunblaðið/Sverrir
Hljómsveitina Sýslumenn skipa harmonikkuleikararnir Grettir Björnsson og Örvar Krisljánsson ásamt
trommuleikaranum Barða Ólafssyni.
TONLIST
„Sýslumenn“ skemmta fólki
Hinir landsþekktu harmonikku-
leikarar Grettir Bjömsson og
Örvar Kristjánsson, sem þar að auki
er þekktur lagasmiður, hafa tekið
höndum saman og stofnað hljóm-
sveit ásamt Barða Ólafssyni frá
ísafirði. Hann er aðallega kenndur
við hljómsveitina V.V. og Barði sem
TONLIST
Sigtryggur
með Björk
Söngfuglinn góðkunni Bogomil
Font, sem er aukasjálf Sig-
tryggs Baldurssonar, var staddur
hér á landi fyrir skemmstu til tón-
leikahalds sejn varð raunar
skammvinnt. Astæðan er sú að
sögn Ásmundar Jónssonar hjá
Smekkleysu að Björk Guðmunds-
dóttir, sem nú er stödd í Bandaríkj-
unum á tónleikaferð, leitaði til Sig-
tryggs um að leika á trommur
með hljómsveit hennar. Sigtryggur
hélt þegar til Bandaríkjanna, þar
sem hann leikur með Björk á tón-
leikum hennar í Los Angeles á
morgun. Ekki er ljóst hvað sam-
starf þeirra verður langvinnt að
þessu sinni en eins og margir
muna voru þau áður saman í Syk-
urmolunum.
Morgunblaðið/Kristinn
Bogomil Font spilar með Björk
á tónleikum í Bandaríkjunum.
þekkt var á sínum tíma. „Samstarf
okkar Örvars hefur komið mörgum
á óvart, því við höfum verið taldir
samkeppnisaðilar, en við erum það
alls ekki. Við erum hins vegar góðir
kunningjar og höfum þekkst iengi,“
sagði Grettir í stuttu spjalli við Morg-
unblaðið.
Félagarnir þrír hafa tekið sér
nafnið Sýslumenn. „Jú, það er vegna
þess að við ætlum að spila danstónh
ist og skemmta fólki um allt land. I
raun verðum við í einni sýslunni í
dag og annarri á morgun, því þótti
okkur tilvalið að skýra hljómsveitina
þessu nafni,“ sögðu þeir.
Um helgina spilaði hljómsveitin í
fyrsta sinn á Hótel Höfn í Horna-
firði, enda segjast þeir vera í miklu
uppáhaldi í þessum landshluta. Skýr-
inguna telja þeir m.a. vera þá, að
Örvar er Hornfirðingur, auk þess sem
Grettir hafi spilað Austfjarðaþokuna
inn á plötu á sínum tíma, en það lag
hefur átt geysimiklum vinsældum að
fagna í áratugi.
Á næstunni munu Sýslumenn m.a.
spila í Vestmannaeyjum, Grindavík
og fyrir norðan. Þeir segjast hafa
orðið varir við mikinn áhuga á hljóm-
sveitinni eftir að spurðist út að þeir
hyggðust spila saman. „Okkar kjör-
orð er líka að koma öllum í gott
skap með góðri danstónlist," sögðu
þeir félagar að lokum.
Tilboð í Bónus og McDonald’s
2 McHamborgarar m.osti
i eins!
(Venjulegt verð kr. 396,-)
ÍBÓNUS
BONUS BYÐUR BETUB
LYST
8888
Með tilboðsmiða frá Bónus
(þegar verslað er fyrir kr. 1.000,- eða meira)
færðu 2 McHamborgara m. osti á verði eins
(TVOFYRIREINN).
Leyfishafi McDonald's
íslensktfyrirtceki
íslenskar lanabúnaSarafurSir
VEITINGASTOFA
FJÖLSKYLDUNNAR,
SUÐURLANDSBRAUT 56
ÆTTLIÐIR
Slær einhver metið?
Svo virðist sem nokkurs konar
keppni sé fyrir tilviljun komin
upp hér í dálkunum, því Morgun-
blaðinu hefur borist bréf frá Gunn-
ari Þ. Garðarssyni á Akranesi, þar
sem hann bendir réttilega á að í
Fólki í fréttum birtist fyrir nokkru
mynd af fimm ættliðum, þar sem
tekið var fram að fremur sjaldgæft
væri að sá elsti væri karlmaður.
Skömmu seinna var birt önnur
mynd þar sem sá elsti var 98 ára
gamall karlmaður. Nú bætir Gunn-
ar um betur, því á meðfylgjandi
mynd er elsti ættliðurinn hvorki
meira né minna en 103 ára og
verður 104 ára í september næst-
komandi. Þess má einnig geta að
allir ættliðirnir eiga heima á Akra-
nesi. Er hugsanlegt að einhver
geti enn bætt hér metið?
Lengst til vinstri situr Erlendur Magnússon múrari, 103 ára, þá
kemur sonur hans Þorvarður Ellert, því næst Lilja Þorvarðardóttir,
þá sonur hennar Jón Ellert, sem heldur á dóttur sinni Lilju Rún.
PÖNTIJNA RSEÐI
NA FN
KENNITALA
HEIMILISFANG
PÓSTN.ÚM ER STAÐUR
Kostir þess að fá þér .. Gerðu það gott" möppu
fyrir uppskriftirnar þínar eru fleiri en einn:
• Þú hefur alla bæklinga Tilraunaeldhúss MS
á einum stað
• Mappan er falleg, handhæg og af hentugri stærð
fyrir alla bæklingana
• í möppunni eru grunnupplýsingar um mál,
vog og ýmis góð ráð
• Hún kostar aðeins 490 kr
_____
Já takk!
□ Ég vil fá senda safnmöppu MS í póstkröfu
□ Ég óska eftir því að uppskriftarbœklingar MS
---------------------------- fylgi möppunni.
numer
Utanáskriftin er: Tilraunaeldhús MS, Pósthólf10340, 130 Reykjavík.