Morgunblaðið - 12.04.1994, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1994
53
Öflugt æskulýðs-
starf kirkjunnar
Frá sr. Þórhalli Heimissyni:
Á vegum kirkjunnar í Reykjavík-
urprófastsdæmi hefur verið starf-
rækt öflugt æskulýðssamband frá
því árið 1988.
Frá því er sambandið var stofnað
hefur það vaxið ár frá ári. Ný félög
bætast í hópinn á hveiju misseri og
fleiri og fleiri unglingar sækja starf-
ið heima í söfnuðunum. Þannig eru
nú starfandi ein 20 félög í 16 söfnuð-
um á höfuðborgarsvæðinu. í félögun-
um eru svo um 800 rokkarar, hoppar-
ar, sportarar, hippar, skopparar, eða
í stuttu máli venjulegir unglingar.
Félögin eru með ýmsu sniði og
skiptast í yngri og eldri deildir, t.d.
13-14 ára, 15 ára og 16-20 ára.
Leiðtogar annast rekstur hvers fé-
lags og eru þeir ráðnir starfsmenn
safnaðanna. Söfnuðirnir leggja líka
til húsnæði undir starfsemina.
ÆSKR (Æskulýðssamband kirkj-
unnar í Reykjavíkurprófastsdæmum)
tengir félögin saman og skipuleggur
allt sameiginlegt starf þeirri. Vax-
andi unglingastarf kirkjunnar endur-
speglast svo aftur í vetrardag-
skránni. Lítum á síðastliðið ár! í sept-
ember tók ÆSKR þátt í landsmóti
allra æskulýðsfélaga kirkjunnar. Var
það haldið í Vatnaskógi og komu
þangað um 300 unglingar. í október
stóðu yfir leiðtoganámskeið fyrir
starfsfólk í félögunum. í nóvember
heldur ÆSKR haustsamveru þar
sem unglingar fara í heimsóknir á
spítala, elliheimili og aðrar stofnanir
til að gleðja heimilisfólkið með söng
og leik. í desember héldu unglingar
og undirbjuggu djass-messu í Bú-
staðakirkju. í janúar fóru allir leið-
togarnir, um 40 stk., á mót upp í
sveit til að undirbúa vorstarfið.
ÆSKR heldur síðan stórmót heila
helgi í febrúar. í ár var farið í Reyk-
holt í Borgarfírði, rúmlega 200 ungl-
ingar. Mars er mánuður Æskulýðs-
dags kirkjunnar. Af því tilefni und-
irbjó ÆSKR sjónvarpsmessu sem var
sýnd á RÚV: Sumarstarfið er tími
VELVAKANDI
ATHUGASEMD
í GREIN eftir Jóhannes Bene-
diktsson í Morgunblaðinu þann
6. apríl á bls. 38 er birt vísa „sem
ættuð mun vera af Austfjörð-
um“. Hún er eftir föður minn,
Einar bónda Friðriksson, Hafnar-
nesi við Reyðarfjörð. Vísan er
ekki alveg rétt. Þeir sem hafa
brageyra munu strax sjá, að 2.
hending stenst ekki eins og hún
var birt. Mér þykir þó vissara
að hún komi fram. Hún er svona:
Þótt þig leiki lífíð grátt
og lítið veiti gaman,
skaltu bera höfuð hátt
og hlæja að öllu saman.
Vísan er raunar birt í bókinni
Aldrei gleymist Austurland
(Bókaútgáfan Norðri, 1949).
Vinsamlegast,
Friðrik Einarsson
LJÓTAR AÐFARIR
DÝRAVINUR hringdi í Velvak-
anda og hafði þetta að segja:
Við dýravinir getum ekki orða
bundist yfir sýningu sem haldin
var í Portinu í Hafnarfirði nú
yfir páskana. Þar var einhver
Þóra Þórisdóttir sem sjálf kallar
sig listamann, sem hélt þessa
sýningu. Hún lét drepa lítið sak-
laust lamb, stillti því upp á stall
og lét leka úr því blóðið sem lak
í taumum eftir gólfinu. Þvílík
heimska og þvílík grimind. Við
dýravinir fordæmum svona lag-
að, ef þetta kallast list, þá þarf
maður ekki að vera merkileg
manneskja til að geta kallað sig
listamann.
Fyrir hönd dýravina,
Guðmunda Kjartansdóttir
GÓÐ DAGSKRÁ
MIG langar til að þakka sjón-
varpinu fyrir góðar myndir um
páskana. Ég var einn af þeim
sem ætlaði að eyða fríinu á ferða-
lagi en ákvað síðan að fara að
tilmælum og halda mig í bænum
á meðan versta hretið gekk yfir.
Þar sem ég hef ekki aðgang að
myndbandi varð það mér til
happs að sjónvarpsdagskráin var
óvenju góð yfir páskana.
Ég vil sérstaklega þakka Sjón-
varpinu og Stöð 2 fyrir eftirfar-
andi dagskrárliði: Miðbær
Reykjavíkur - aldarspegill ís-
lensks mannlífs. Fiðlutónleikar
Nigels Kennedys, Hamlet og
kvikmyndin Óbærilegur léttleiki
tilverunnar.
Sjónvarpsrásunum okkar tókst
að þessu sinni að finna góða
blöndu af fræðslu og afþreyingu
um páskana. Það er gaman að
sjá hve íslensk dagskrárgerð er
orðin áberandi í dagskránni enda
hafa gæði hennar margfaldast á
fáum árum. íslenskir kvikmynda-
gerðarmenn hafa sýnt og sannað
að verk þeirra eru fyllilega sam-
bærileg við það besta sem gerist
erlendis. Þátturinn um miðbæ
Reykjavíkur er gott dæmi um
getu og metnað íslenskra kvik-
myndagerðarmanna enda ein-
staklega skemmtilegur og fræð-
andi.
Pétur Jens
TAPAÐ/FUNDIÐ
Gleraugu fundust
KVENGLERAUGU fundust í
Osta- og smjörsölunni sf., Bitru-
hálsi 2, föstudaginn 4. mars.
Upplýsingar í síma 691611.
GÆLUDÝR
Köttur í óskilum
ÞESSI ógelti fressköttur er sest-
ur upp hjá heimilisfólkinu á Arn-
artanga 24, Mosfellsbæ. Hann
hefur dvalist þar í u.þ.b. mánuð.
Þeir sem kannast við köttinn vin-
samlega hafi samband í síma
666610.
Köttur í óskilum
Fjögurra mánaða grábröndótt
fress með hvíta bringu og fram-
lappir týndist frá Hringbraut
104. Kötturinn er með grábrönd-
óttan blett á annarri framlopp-
unni. Þeir sem hafa orðið varir
við hann eru vinsamlega beðnir
að hafa samband við eigendur í
síma 14084 eða 15672.
Kettlingar
KÁTIR grá-brúnbröndóttir kettl-
ingar með hvíta kverk fást gef-
ins. Upplýsingar í síma 78422.
Týndur köttur
SVÖRT og hvít læða fór að heim-
an frá sér, Engjahverfí, Grafar-
vogi, sl. þriðjudag. Hún er með
svarta doppu á trýni. Finnandi
er vinsamlega beðinn að hafa
samband í síma 676827.
sumarbúða ÆSKR bæði í borg og
sveit en einnig er haldið sumarmót
í júní og ÆSKR tekur þátt í versl-
unarmannahelgi í Vatnaskógi í ág-
úst. Fyrir utan fasta dagskrá annast
ÆSKR daglega þjónustu við söfn-
uðina, samskipti við félög utan höf-
uðborgarsvæðisins, samvinnu við
stofnanir ríkis, borgar og kirkju og
almenn samskipti við erlend ung-
lingafélög. ÆSKR gekk síðastliðið
haust í Samband allra æskulýðsfé-
laga er starfa á vegum kirkjunnar í
Evrópu. Opnaðist þá unglingum frá
íslandi leið til þátttöku í mótum,
námskeiðum og hjálparstarfi um alla
Evrópu. Af öllu þessu má sjá að starf-
ið er blómlegt. Ef þú sem þetta lest
hefur áhuga á þessum félagsskap,
hvort sem þú ert rokkari, hoppari,
rappari, sportari, hippi eða bara
„venjulegur" unglingur, þá er ÆSKR
eitthvað fyrir þig. Láttu sjá þig!
SR. ÞORHALLUR HEIMISSON,
framkvæmdastjóri ÆSKR.
Gagnasafn
Morgunbladsins
Allt efni sem birtist í Morgun-
blaðinu og Lesbók verður fram-
vegis varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskil-
ur sér rétt til að ráðstafa efninu
þaðan, hvort sem er með endur-
birtingu eða á annan hátt. Þeir
sem afhenda blaðinu efni til
birtingar teljast samþykkja
þetta, ef ekki fylgir fyrirvari
hér að lútandi.
Pennavinir
ENSK kona, komin á eftirlaun en
með áhuga á bóling, dansi, bóka-
le.'tri, gönguferðuin og blómarækt:
Irene Willars,
18 Windermere Road,
Wigston,
Leicester LE18 3RT,
England.
LEIÐRÉTTINGAR
Rangt föðurnafn
Greinin „Verkir í mjóbaki — far-
aldur í iðnríkjum" eftir Gunnar
Amarson kírópraktor birtist í hér í
blaðinu síðastliðinn laugardag,
blaðsíðu 12. Þar er höfundur rang-
lega sagður Árnason í stað Arnar-
son. Velvirðingar er beðist á þess-
um mistökum.
Qkuskóli
Islands
Námskeið til undirbúnings að auknum
ökuréttindum hefjast 14. apríl.
Innritun stendur yfir.
Ökuskóli islands hf •,
Dugguvogi 2, sími 683841.
Geymið augiýsinguna.
SIEMENS
STÓRSKEMMTILEG
STÆDA Á U MJÖG
GÓÐUVERÐI!
• Geislaspilari
• Tvöfalt segulbandstæki
• Alvöruútvarp
• Tónjafnari
• 2 x 30 W
• Gæðahátalarar
Fullkomin fjarstýring
Alltþetta fyrir aðeins kr.:
37.810,-
Bjóðum einnig fleiri gerðir af hágæða
hljómtækjum. Komið og skoðið!
Munið umboðsmenn okkar um land allt.
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SI'MI 628300
Víl/rr þú endingu og gæði
velur þú SIEMENS
Karfinn veiddist
við Franshól
Ónákvæmni gætti í frétt Morgun-
blaðsins frá síðasta sunnudegi um
góða úthafskarfaveiði suður af
landinu. Karfinn veiddist í grennd
við Franshól suður við 200 mílna
landhelgismörkin eins og kom fram
í samtali blaðamanns við skipstjór-
ann á Haraldi Kristjánssyni. I með-
förum blaðsins var sagt að karfinn
hefði veiðst á Franshól. Þar veiðist
hins vegar eingöngu blálanga.
Vinningstölur 9. apríl 1994.
(ÍíÍ)(Í5)(24)É| 7)
VINNINGAR fjOldi VINNINGSHAFA UPPHÆD A HVERN VINNINGSHAFA
! 1. 5ai5 , 0 5.366.790
2. 4 2 5« STÍ 92.423
3. 4at5 127 7.532
i 4. 3af5 4.776 467
! Heildaminningsupphæðþessaviku: 9.108.284 kr.
M g
i yp.FiysiNGA^siMSVA1«91-68)511 lukkul(na991002
Vorferð um Danmörku og Þýskaland 29. aprd til 5. maí.
Verð 44.700 á mann. Innifalið í verði er flug til Kaupmannahafnar,
gisting í 2ja manna herbergi með baði og morgunverði i tvær
nætur þar, gisting i 2ja manna íbúðum í Damp í Þýskalandi, allur
akstur, flug heim frá Hamborg, íslensk fararstjórn og
flugvallaskattar.
Vor- og sumarferðir um Evrópu
Akstur og sigling 30. maf til 16. júnf.
Flogið til Lúxemborgar, ekið um Þýskaland, Sviss, Italíu,
Austurríki, Danmörku og Noreg.
Verð 139.500 á mann. Innifalið í verði er flug, allur akstur, gisting
í 2ja manna herbergi með baði, morgun- og kvöldverður,
sigling heim frá Noregi með Norrænu í 4ra manna káetu með
baðherbergi, íslensk fararstjórn og flugvallarskattur.
Ferðaskrifstofa
GUÐMUNDAR JÓNASSONAR HF.
Borgartúni 34, sími 683222