Morgunblaðið - 21.04.1994, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994
h
Framkvæmdir eru hafnar við nýja fangelsisbyggingu á Litla-Hrauni
Rúmar 55
fanga í 5
deildum
Selfossi.
FRAMKVÆMDIR við nýtt fang-
elsishús á Litla-Hrauni hófust í
gær er Þorsteinn Pálsson, dóms-
málaráðherra, tók fyrstu skóflu-
stungu að húsinu. Nýja fangels-
ishúsið mun rúma 55 fanga í 5
deildum. Húsið verður alls um
1.460 fermetrar að stærð og mun
kosta um 160 milljónir króna
fullbúið. Aætlað er að taka húsið
í notkun í mai á næsta ári. Þá
er einnig áformað að lokið verði
við vinnu- og íþróttaskála sem
gert er ráð fyrir að kosti 30
milljónir.
Þorsteinn Pálsson sagði að fram-
kvæmdirnar á Litla-Hrauni mörk-
uðu upphaf áþreifanlegrar og sýni-
legrar uppbyggingar nútímalegs
fangelsiskerfís. Hann sagði að upp-
byggingin næði einnig yfir stjóm
og skipulag fangelsa, menntun
fangavarða og það hvemig fangar
eru valdir saman til afplánunar og
hversu margir yrðu í hverri deild.
Þá væra öryggismál einnig til skoð-
unar, hlutverkaskipti á milli ráðu-
neytis og stofnana ásamt nýjum
refsiúrræðum.
Undirbúningur að markvissri
stefnumótun og framkvæmdaáætl-
un hefur staðið í rúm þijú ár. 1991
var skipuð nefnd undir forystu
Haraldar Johannessen fangelsis-
málastjóra sem skilaði áliti um að
brýnna úrbóta væri þörf. Fram-
kvæmdanefnd undir hans forystu
vann síðan að því að koma málinu
á framkvæmdastig. Aðrir í þeirri
nefnd vora Hjalti Zophoníasson,
Bjöm Matthíasson og Sigurður
Jónsson.
„Aðalatriðið er að þessi fram-
kvæmd er liður í heildaráætlun um
markvissa uppbyggingu nútíma-
legs fangelsiskerfís sem hafí á að
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Þorsteinn Pálsson dómsmálaráðherra og Haraldur Johannessen fangelsismálasljóri fagna því að
framkvæmdir eru hafnar við nýja fangelsisbyggingu á Litla-Hrauni.
Nýja fangelsisbyggingin eins og hún Iítur út á uppdrætti.
skipa fangelsum sem uppfylla kröf-
ur samfélagsins um öragg en
mannúðleg fangelsi," sagði Þor-
steinn Pálsson dómsmálaráðherra
meðal annars er hann ávarpaði þá
sem viðstaddir vora athöfnina.
Verktakar nýju fangelsisbygg-
ingarinnar era Valgarð Stefánsson
og Sæmundur Gíslason frá Hvera-
gerði. Arkitektar nýju byggingar-
innar era Finnur Björgvinsson og
Hilmar Þór Bjömsson og verk-
fræðilega hönnun annaðist Verk-
fræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf.
Eftirlit með verklegum fram-
kvæmdum mun Verkfræðistofa
Suðuriands annast.
Sig. Jóns.
Víkingalottó
39,5 millj.
til Islands
EINN íslendingur var meðal tíu
sem voru með allar sex tölurnar
réttar í Víkingalottóinu í gær-
kvöldi og hlaut hann í vinning
39.540.000 krónur, en fyrsti vinn-
ingurinn var 395.450.000 krónur.'
Potturinn var fjórfaldur að þessu
sinni og er það í fyrsta sinn sem
það hefur gerst og hefur fyrsti
vinningurinn aldrei verið hærri.
íslenski vinningsmiðinn var keypt-
ur í söluturninum Skalla í Hraunbæ
og var það tíu raða sjálfvalsmiði sem
kostaði 200 krónur. Þetta er í þriðja
sinn sem íslendingur hlýtur fyrsta
vinning í Víkingalottói, og er þessi
tæplega 40 milljóna króna vinningur
sá hæsti sem greiddur hefur verið
út hjá íslenskri getspá. Þrír skiptu
með sér bónusvinningnum hér heima
og hlaut hver þeirra 727.353 krónur
í sinn hlut, en miðarnir voru keyptir
á Akranesi, Ólafsvík og í Borgarnesi.
2n»ronn6Intiib
IANDGRÆÐSIUSKÓGAR
1994
Þjóðþrifastarf unnið
í skógræktarfélögum
Morgunblaðinu í dag fylgir
blaðaukinn Landgræðsluskóg-
ar 1994. Þar er fjallað um skóg-
rækt og landgræðslu og það
átak í ræktun sem staðið hefur
frá stofnun lýðveldisins. Meðal
annars er rakin saga Land-
græðslusjóðs, greint frá starfi
skógræktarfélaga og hlutverki
Yrkjusjóðsins.
►
t
i
t
Mjólkurfræð-
ingar semja
SAMNINGAR náðust síðdegis í
gær milli Mjólkurfræðingafélags
Islands (MÍ) og Vinnumálasam-
bands samvinnufélaganna.
Geir Jónsson formaður MÍ segir
samningana verða borna undir fé-
lagsmenn á föstudag og mánudag.
Vinnumálasamband samvinnufélag-
anna féllst á að stefnu á hendur MÍ
á grandvelli ólögmætrar verkfálls-
boðunar yrði vísað frá Félagsdómi
að því tilskyldu að félagsmenn sam-
þykktu samningana. Geir segir að
kaupaukakerfi gæti skilað 5% kaup-
hækkun og Árni Benediktsson for-
maður Vinnumálasambandsins segir
hækkunina jafnvel geta orðið meiri.
í dag
íþróttafélög______________
Verða styrkir og lottógreiðslur
fryst? 35
SVR_______________________
Unglingafargjald í strætó 7
Bískupinn af Kantaraborg
Úr fátækt í biskupsstól 32
Leiðari__________________
Sumardagurinn fyrsti 34
JHorðuttbfabib
VIÐSKEFTIAIVINNULÍF
PoröunMafcíÖ
Ríkisendurskoðandi neitar að afhenda SR
skýrslu strax ,
Alþýðubandalagið vill
atbeina forsætisnefndar í
ÞINGFLOKKUR Alþýðubandalagsins ákvað í gær að óska eftir því að
forsætisnefnd Alþingis krefðist þess að Ríkisendurskoðun afliendi
skýrslu sem tilbúin er um undirbúning og sölu á hlutabréfum ríkisins
í SR-mjöli hf. Ríkisendurskoðandi neitaði á fundi með fjárlaganefnd
Alþingis í gær að afhenda nefndinni skýrsluna fyrr en lokið væri
munnlegum málflutningi fyrir undirrétti í máli sem Haraldur Haralds-
son hefur höfðað til að fá sölu hlutabréfanna rift. Sá málflutningur á
að fara fram á mánudag. Valgerður Sverrisdóttir 1. varaforseti Alþing-
is sagðist í gærkvöldi ekki hafa fengið þessi tilmæli í hendur og að
óbreyttu yrði næsti fundur í forsætisnefnd haldinn á mánudag.
breytti neinu fyrir sækjendur og veij-
endur dómsmálsins því þar gæti ekki
verið byggt á öðrum upplýsingum
en þeim sem aðilar dómsmálsins
hefðu látið í té.
Skýrslna beðið
Páll Pétursson formaður þing-
flokks Framsóknarflokks hefur þeg-
ar farið fram á utandagskrárumræðu
um söluna á SR-mjöli þegar skýrsla
Ríkisendurskoðunar liggur fyrir.
Hann sagði við Morgunblaðið að
aðalatriðið væri að skýrslan kæmi
fram nægilega snemma svo umræð-
an gæti farið fram fyrir þinglok sem
áætluð eru 30. apríl en gætu dregist
í nokkra daga. Þá hefur sjávarút-
vegsráðherra ekki enn flutt Alþingi
skýrslu um sölu ríkisins á SR-mjöli.
Jóhann Ársælsson, varaformaður
þingflokks Alþýðubandalagsins,
sagði að í raun væri um að ræða
ítrekun á þeirri skoðun sem flokkur-
inn hefði sett fram áður að birta
hefði átt skýrsluna um leið og hún
lá fyrir. Þingflokkurinn væri alveg
ósammála ríkisendurskoðanda í því
að bíða eigi með að afhenda skýrsl-
una þar til málflutningi í dómsmálinu
Ijúki þar sem ekkert samhengi sé
milli skýrslna Ríkisendurskoðunar og
málflutnings í dómsmálum.
Sigbjörn Gunnarsson formaður
fjárlaganefndar er svipaðar skoðun-
ar. Hann sagðist virða niðurstöðu
ríkisendurskoðanda sem hefði sagt
það frá upphafi að hann teldi ekki
rétt að birta niðurstöðu þessarar at-
hugunar meðan málið væri fyrir
dómstólum. „Hins vegar er hann
búinn að lýsa því yfir að skýrslan
sé tilbúin og þá tel ég að hann eigi
að skila skýrslunni til fjárlaganefnd-
ar,“ sagði Sigbjöm. Hann sagðist
ekki telja að birting skýrslunnar
Loðnuskýrsla kynnt grænlenskum og norskum fiskifræðíngum
Agætt útlit er með loðnu-
veiðarnar á næstu vertíð
BÚIST er við að næsta loðnuvertíð verði með svipuðu sniði og nýliðin
vertíð og sá afli sem í hlut íslendinga kemur geti orðið að minnsta
kosti um ein milljón tonna. Heildarkvótinn sem skiptist milli íslend-
inga, Grænlendinga og Norðmanna var 1.250 þúsund tonn á síðustu
vertíð, og þegar upp var staðið voru 70-80 þús. tonn óveidd sem ekki
náðust vegna þess hvernig loðnan hagaði sér í fyrrahaust og í janúar.
Var heildarafli íslensku loðnuskipanna á bilinu 970-980 þús. tonn.
Að sögn Hjálmars Vilhjálmssonar og norsku hafrannsóknastofnuninni
fiskifræðings hefur skýrsla með út- í Bergen. Með hugsanlegum athuga-
reikningum Hafrannsóknastofnunar semdum sem frá þessum aðilum ber-
á loðnustofninum verið send fiski- ast verður skýrslan síðan lögð fyrir
fræðihgum hjá græhlensku hafrann- fiskveiðinefnd Alþjóðahafrannsókria-
sóknastofnuninni í Kaupmannahöfn ráðsins seinnihlutann í maímánuði,
en að því loknu verður hún gerð
opinber. Byggjast niðurstöður skýrsl-
unnar á rannsóknum sem gerðar
voru í fyrrahaust og upplýsingum
sem fengist hafa um meðalþyngd,
meðalvöxt og viðgang loðnunnar.
„Það eina sem hægt er að segja
á þessu stigi er að almennt séð er
gott útlit um loðnugengd og þá vænt-
anlega loðnuveiðar á næstu vertíð,
en á þessari stundu er mér ómögu-
légt að tala um einhveijar ákveðnar
magntölur,“ sagði Hjálmar.
>
í
I
i
í
k