Morgunblaðið - 21.04.1994, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.04.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994 13 Gallerí Klettur í Portinu í Kaupmannahöfn FÆST í BLAOASÖLUNNI Á JÁRNBRAUTA- STÖDINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁDHÚSTORGI Myndlist Eiríkur Þorláksson Eitt erfiðasta viðfangsefni sem listamenn glíma við þegar þeir hefja sitt starf er að koma sér upp viðunandi vinnuaðstöðu. Það er sjaldnast framtíðarlausn að leggja heimilið að einhveiju leyti undir listksköpunina, því ýmsir listmiðl- ar eru frekir á rými og efnanotkun listarinnar fer ekki alltaf vel inn á heimili; þar má t.d. nefna til olíuliti og ýmis eiturefni sem eru notuð við grafík. Þar sem kostnaður við að koma upp einkavinnustofu með öllu sem tilheyrir er mörgum ofviða, er orð- ið sífellt algengara að nokkur hóp- ur listamanna taki sig saman um rekstur vinnustofu; þannig dreifist kostnaðurinn á fleiri herðar, og samnýting aðstöðu, efna og tækja er að einhveiju leyti möguleg. Þannig er farið með þær fimm listakonur, sem standa nú að sam- sýningu í sýningarsalnum Portinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Þær stöllur reka sameiginlega vinnu- stofur við Helluhraun í Hafnar- firði, sem þær hafa nefnt Gallerí Klett, og er því sjálfsagt að kenna sýningu þeirra við þann stað. Þær Erla Sigurðardóttir, Guð- rún Sigurðardóttir, Katrín Páls- dóttir, Sigrún Sveinsdóttir og Steindóra Bergþórsdóttir héldu samsýningu á vinnustofum sínum á síðasta ári, og af sýningunni hér er ljóst að þeim hentar vel að sýna saman. Hver þeirra nálgast listina á sinn hátt, og verk þeirra halda ágætlega sjálfstæði sínu innan sýningarinnar; alls eru hér sýnd um fimmtíu verk, og skiptast þau nokkuð jafnt á milli sýnenda. Erla Sigurðardóttir sýnir hér vatnslitamyndir; annars vegar er um að ræða landslagsstemmur og fjörumyndir, en hins vegar myndir af börnum að leik. Hinar fyrr- nefndu eru mjög vel unnar, og einkum kemur notkun hennar á pappírnum sjálfum sem hvítum fleti vel útj í þessu sambandi má benda á „Ur Straumfjarðarfjöru" (nr. 2) og „Einu sinni var“ (nr. 5). Guðrún Sigurðardóttir sýnir nokkur olíumálverk, þar sem ann- ars vegar er að finna konur við hljóðfæri, mjög í anda þess sem Rut Rebekka hefur verið að vinna um árabil, og hins vegar konur í hringlaga rými, gjarna í fylgd með táknrænum fugli; í þessi verk vantar oft skarpari teikningu og ákveðna snerpu í litinn, en henni tekst einna best upp í „Ein í rými“ (nr. 41), þar sem litatónarnir eru bjartir og skýrir. Sigrún Sveinsdóttir vinnur einn- PÓSTUR OG SfMI Við spörum þér sporin Markmið okkar er að póstsendingar, sem póstlagðar eru fyrir kl. 16:30 á höfuðborgar- svæðinu og póstleiðunum, verði komnar í hendur viðtakenda næsta virkan dag. Til annarrá staða tryggjum við að pósturinn fa ætíð með fyrstu mögulegu ferð. Notaðu hraðan og öruggan flutnin'g Póstsins fyrir þínar sendingar. ig með olíu á striga, en vinnuað- ferðir hennar eru fjölbreyttari; í mörgum myndanna byggir hún landslag upp með geómetrískum formum, og vísar síðan til orku- mannvirkja með mastursgrind sem hallar yfir flötinn; „Orkutindar" (nr. 12) er gott dæmi um verk af þessu tagi. I öðrum myndum skef- ur hún litinn á markvissan hátt inn í verkið, þannig áð mörgum litum bregður fyrir í dýptinni, líkt og í „Fjallið eina“ (nr. 22). Þær Katrín Pálsdóttir og Stein- dóra Bergþórsdóttir vinna báðar í gleri, og við fyrstu sýn kann verk- um þeirra að svipa nokkuð saman. Við nánari skoðun koma þó fram viss persónueinkenni á verkum hvorrar fyrir sig. í verkum Katrín- ar bregður víða fyrir smágerðum táknum, og hún notar mikið hrein- skipta fleti, líkt og sést vel í „Ljós- brot“ (nr. 19) og „Brautir“ (nr. 11), þar sem alheimurinn er und- ir. Steinþóra notar glerkúlur á markvissan hátt, og gler í sterkum litum og með mismunandi áferð skapar oft ljúfa tilfinningu í heild- arverkinu, líkt og í „Gaukur“ (nr. 16) og „Stemmu“ (nr. 30). Hér er á ferðinni ágæt samsýn- ing ólíkra listakvenna, en sýningu þessa hóps úr Gallerí Klett í Port- inu í Hafnarfirði lýkur sunnudag- inn 24. apríl. Erla Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Katrín Pálsdóttir, Steindóra Bergþórsdóttir og Sigrún Sveinsdóttir. Það tekur aðeins einn » a ■virkan aö koma póstinum þínum til skila Með næturflutningum á pósti fímm sinnum í viku milli Reykjavíkur og Akureyrar, myndast samfellt flutningsnet fyrir póst um Norðurland, Vesturland og höfuðborgarsvæðið. Með samtengingu þessara svæða við bíla er flytja póst um Suðurland og Suðumes geta 80-85% landsmanna nýtt sér þessa bættu þjónustu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.