Morgunblaðið - 21.04.1994, Blaðsíða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRIL 1994
Sönghópurinn Sólarmegin
Bergljót Jónsdóttir og Ásta Hrönn Maack framkvæmdastjóri ís-
lensku tónverkamiðstöðvarinnar.
Islenska tónverkamiðstöðin
Ásta Hrönn Maack tekur við
starfi framkvæmdasljóra
_________Tónlist___________
Ragnar Björnsson
Áður voru það knattspyrnukapp-
arnir frá Akranesi sem komu Reyk-
víkingum í opna skjöldu, nu senda
þeir annan hóp, níu manna lið sem
lætur sparkkúnstina eiga sig, býður
upp á strengleika raddarinnar, syng-
ur verkefni af ýmsu tagi, allt frá
madrígölum sextándu aldar, þjóðla-
gatónlist, alþýðutónlist, söngleikja-
tónlist til nútímalegra útsetninga,
undir stjórn Guðmundar Jóhannsson-
ar, sem um ieið syngur bassa í hópn-
um. Sjálfsagt eru einstaklingar hóps-
ins misjafnlega mikið þjálfaðir
söngvarar sem að öllum líkindum
gerði það að verkum að samhljómur-
inn var ekki alltaf óaðfínnanlega
hreinn, það getur einmitt gerst þegar
saman koma þjálfaðar raddir og
raddir sem eru lítt þjálfaðar. Minna
bar þó á þessum óhreinindum f síð-
ari hluta efnisskrárinnar, þegar
raddirnar voru orðnar heitar og
sviðsskrekkur fyrri hlutans runninn
af hópnum. Sönghópurinn á þó alla
möguleika á því að leiðrétta þennan
ágalla, því um virðist vera að ræða
músíkalskt fólk sem vinnur sam-
viskusamlega og vill gera hlutina á
listrænan máta, fram yfir þessa
venjulegu meðalmennsku sem er að
verða ógn ríkjandi. Eðlilega voru lög-
in á efnisskránni misvel sungin, áttu
misjafnlega vel við hópinn, og misvel
samin. Hlédrægni gætti eðlilega í
fyrsta laginu — madrigal frá 16. öld,
síðara þjóðlagið í útsetningu Sigurð-
ar Halldórssonar — Móðir mín í kví
kví — var fallega útsett og sungið.
Dægurlagakenndir „Hamingjudagar
Svantes“ er dæmi um óspennandi
dægurlag, og lag Jóns Múla leið fyr-
ir óhreina tónmyndun. Erfitt er að
ná hinni réttu stemmningu í „Vaar-
en“ eftir Grieg og vafasamt er að
bæta inn göngunótu, slíkir „saklaus-
ir“ hlutir geta eyðilagt rétt áhrif lags-
ins. Frönsku lögin eftir Debussy voru
fallega sungin. Síðan komu tvö ís-
lensk þjóðlög og í útsetningu Árna
Harðarsonar, útsetningamar voru
kannske of litlausar til að hægt væri
að smíða úr þeim perlur. Síðast fyrir
hlé var svo ein af snilldartónsmíðum
0. Lassos, sem var skemmtilega
sungin. Fyrst eftir hlé kom snjöll
tónsmíð eftir Gunnar Reyni Sveins-
son — Haldið’ún Gróa hafi. Síðan
kom hvert lagið á fætur öðru betur
sungið og virtust amerísku lögin eiga
mjög vel við hópinn, svo og Bohem-
ian Rahapsody eftir Freddy Mercury,
í útsetningu Sigurðar Halldórssonar,
sem krafðist mikils í samsöng og
hópurinn leysti sérlega vel. Eitt vil
ég benda hópnum á, síðasti sam-
hljóði orða hvarf gjaman í söngnum.
Hópnum skal óskað góðs gengis í
framtíðinni og næst ætti hann ekki
að koma manni eins í opna skjöldu,
eða hvað?
Ásta Hrönn Maack hefur tekið
við starfi framkvæmdastjóra ís-
lenskrar tónverkamiðstöðvar af
Bergljótu Jónsdóttur. Ásta er við-
skiptafræðingur frá viðskiptadeild
Háskóla íslands og starfaði áður
sem markaðsráðgjafi á íslensku
auglýsingastofunni.
MENNING/LISTIR
Málmblásarar koma saman í Hafnarborg á laugardag.
Myndlist
Sýning á mynd-
verkum barna og
unglinga í Nor-
ræna húsinu
Sýning á myndverkum bama og
unglinga frá Danmörku, Finnlandi, ís-
landi, Noregi og Svíþjóð verður opnuð
í sýningarsölum Norræna hússins,
laugardaginn 23. apríl kl. 15.
I kynningu segir: „Farandsýningin
Fomnorænar sagnir er þannig tilkomin
að sumarið 1990 ákváðu sjö norrænir
myndlistarkennarar að búa til sam-
norrænt og uppeldislegt myndverkefni'
út frá hópvinnu sem unnið var á nor-
rænu námsþingi sem haldið var á Got-
landi. Eftir miklar vangaveltur og
umræður varð samkomulag um að
þemað skyldi verða fornnorrænar
sagnir. Þetta þema skyldi síðan leggja
grunn að myndrænu þróunarverkefni
og vera kynnt bæði í bókarformi og
sem farandsýning."
íslenska framlagið í þessari sýningu
kemur frá Grunnskóla Barnadeildar
Landakotsspítala undir stjóm Sigríðar
Bjömsdóttur myndþerapista.
Farandsýningin Fomnorrænar
sagnir samanstendur af myndverkum
eftir nemendur á ýmsum aldri frá 7
mismundandi skólum á Norðurlöndum.
Sýningin verður opin daglega frá
kl. 14-19 til 8. maí.
Drög að veggfóðri
Sýning Jóhanns Sigmarssonar
(Jonna) var opnuð á Mokka 18. apríl
sl. Sumarið 1992 var kvikmyndin.
Veggfóður frumsýnd og Jóhann var
leikstjóri hennar og vann handritið
ásamt Júlíusi Kemp. Sýningin á Mokka
er samansafn teiknaðra augnablika úr
vinnubók Jóhanns. í kynningu segir:
„Það er hið upprunalega „veggfóður"
sem hangir á veggjum Mokkakaffis;
skýrslugerð og bergmál af þjóðfélags-
ástandi". Sýningin stendur til 8. maí.
Samsýningu í Portinu
að Ijúka
Samsýningu fimm listakvenna í
Portinu, Strandgötu 50, Hafnarfirði,
lýkur nú um helgina. Þar sýna verk
sín Erla Sigurðardóttir, Guðrún Sig-
urðardóttir, Katrín Pálsdóttir, Sigrún
Sveinsdóttir og Steindóra Bergþórs-
dóttir. Til sýnis eru verk unnin í olíu,
vatnslit og steindar glermyndir. Sýn-
ingin er opin alla daga frá kl. 14-18
en síðasti sýningardagur er sunriudag-
urinn 24. apríl.
Eitt verka Magdalenu.
Magdalena sýnir í
Gallerí Fold
Listamaður mánaðarins í Gallerí
Fold, Austurstræti 3, er Magdalena
Margrét Kjartansdóttir. Hún sýnir þar
þrykk dagana 23. apríl til 1. maí.
Hún hefur haldið margar einkasýu-
ingar á verkum sínum og tekið þátt í
fjölmörgurh samsýningum hérlendis og
erlendis.
Gallerí Fold er opið virka daga frá
kl. 10-18 nema laugardaga frá kl.
10-16.
Síðasta sýningarhelgi
Drafnar
Grafíksýningu Drafnar Friðfinns-
dóttur í Listasafni ASÍ lýkur nú um
helgina. Sýningin er opin daglega frá
kl. 14-19 og er lokað á miðvikudögum.
Sýning á verkum gesta-
nemenda við MHI
Sýning á verkum gestanemenda við
MHI verður opnuð í dag, sumardaginn
fyrsta, kl. 13 í anddyri Norræna húss-
ins. Nemendumir eru 18 talsins og
koma frá Danmörku, Finnlandi, Nor-
egi, Svíþjóð, Litháen og Þýskalandi.
Þau hafa öll stundað nám við MHÍ
sem Erasmus- og Nordplus-skiptinem-
ar í vetur og sýna hér smá sýnishom
af því sem þau hafa verið að gera í
myndlistarnámi sínu hér á landi.
Á sýningunni má sjá málverk, graf-
ík, teikningar, keramík, textíla, pijón-
les, innsetningar o.fl. Sýningin verður
opin kl. 9-19 alla daga nema sunnu-
daga kl. 12-19. Henni lýkur 4. maí.
Steinvör sýnir vatnslita-
myndir í Lóuhreiðri
Nú stendur yfir sýning á vatnslita-
myndum eftir Steinvöru Bjamadóttur
í Kaffistofunni Lóuhreiðri, Laugavegi
59. Steinvör hefur haldið nokkrar
einkasýningar. Sýningunni lýkur 16.
maí og er opið alla daga frá kl. .9-6 og
á laugardögum frá kl. 10-2.
Art-Hún 5 ára
Art-Hún hópurinn opnaði sýningu á
verkum sínum í Listhúsinu Laugardal
laugardaginn 16. apríl sl. Sýningin er
haldin í tilefni af 5 ára afmæli Art-
Hún, en það var stofnað 15. apríl 1989.
í Art-Hún er gestum sem koma í
galleríið boðið inn á vinnustofumar og
hefur það mælst vel fyrir.
Sýningin er opin daglega frá kl.
14-18 en henni lýkur sunnudaginn 1.
maí.
Æja sýnir í Gallerí
Sævars Karls
í Gallerí Sævars Karls opnar á morg-
un, föstudaginn 22. apríl, kl. 16 sýning
Æju, (Þóreyjar Magnúsdóttur). Þetta
er fyrsta einkasýning Æju og ber hún
heitið „Hrif“. Æja sýnir skúlptúra unna
í leir, járn, stein, rekavið og gifs, sem
málaðir eru með jarpikmentlitum. Oll
verkin á sýningunni eru unnin á ámn-
um 1993-1994.
Sýningin stendur til 20. maí og er
opin á verslunartíma, á virkum dögum
frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl.
10-14. Listakonan hefur verkstæði og
vinnustofu á Sogavegi 190.
Tréskurðarverk
í Gallerí Listanum
Skurðlistarskóli Hannesar Flosason-
ar heldur sýningu á tréskurðarverkum
nemenda í Gallerí Listanum, Hamra-
borg 20A í Kópavogi laugardaginn 23.
apríl kl. 14. Sýnendur eru um 40 og
sýna verk úr öllum sjö stigum skólans.
Sýningin stendur til miðvikudagsins
27. apríl og er opin daglega kl. 14-18.
Kvikmyndir
„Sögur um Lenín“
Síðasta reglubundna kvikmyndasýn-
ingin í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, á
þessu vetri verður nk. sunnudag, 24.
apríl kl. 16. Sýnd verður kvikmyndin
„Sögur um Lenín“ gerð árið 1957 í
leikstjórn Sergeis Jútkevitsj. Töku-
handrit sömdu Mfkhafl Volgin, Nikolaj
Erdman og Jevgeníj Gabrilovitsj. Með
hlutverk Leníns í myndinni fer Maxím
Straukh. Sögurnar um Lenín eru tvær.
Sú fyrri nefnist „Afrek hermannsins
Múkhins" og hin sagan nefnist „Síð-
asta haustið”.
Aðgangur að kvikmyndasýningunni
er öllum heimill og ókeypis._________
Tónlist
Norræn tónlist í skólum
Lokatónleikar á vegum verkefnis um
norræna tónlist í skólum verða haldnir
laugardaginn 23. apríl kl. 14 í sal Fjöl-
brautaskóla Vesturlands á Akranesi.
Fluttur verður norrænn djass af djass-
kvartett grunnskólanna, skipuðum
Sigurði Flosasyni, Birni Thoroddsen,
Tómasi R. Einarssyni og Pétri Grétars-
syni. Islensku þátttakendumir, sem eru
úr Grundaskóia á Akranesi, Flataskóla
í Garðabæ og Melaskóla í Reykjavík,
flytja eigin lög og texta f dægurlaga-
stíl við undirleik hljómsveitar Vilhjálms
Guðjónssonar, en hljómsveilina skipa,
auk Vilhjálms, þeir Magnús Kjartans-
son, Finnbogi Kjartansson og Ásgeir
Óskarsson. Vilhjálmur gerði útsetning-
amar f samvinnu við bömin.
Verkefni um norræna tónlist í skól-
um er þriggja ára samvinnuverkefni
milli norrænna tónlistarkennara.
Hér á landi em þrír bekkir í jafn-
mörgum skólum virkir þátttakendur í
verkefninu og em nemendurnir nú á
aldrinum 10-12 ára. Bekkirnir eru f
umsjá tónmenntakennaranna Flosa
Einarssonar við Gmndaskóla Akra-
nesi, Áslaugar Ólafsdóttur við Flata-
skóla í Garðabæ og Helgu Gunnars-
dóttur við Melaskóla f Reykjavfk.
Tónieikarnir em ölium opnir.
Niflungahringurinn í
Óperuklúbbnum
Niflungahringurinn eftir Richard
Wagner verður sýndur á vegum Óperu-
klúbbsins um helgina og í næstu viku.
Um er að ræða uppfærslu leikstjórans
Patrice Chereau, sem sett var upp á
Wagner-hátíðinni í Bayreuth á aldaraf-
mæli hátíðarinnar árið 1976. f helstu
hlutverkum em Donald Mclntyre sem
Óðinn, Gwyneth Jones sem Brynhild-
ur, Peter Hoffmann sem Siegmund,
Jeannine Altmeier sem Sieglinde,
Manfred Jung sem Siegfried, Heinz
Zednik sem Loki og Mímir, Matti Salm-
inen sem Hunding og Fasolt, Hanna
Schwarz sem Frigg og Fritz Húbner
sem Fáfnir og Hagen. Stjórnandi er
Pierre Boulez.
Sýnt verður af mynddiskum með
enskum skjátextum sem hér segir;
Laugardag 23. apríl kl. 15, Rínargullið
og kynning, sunnudag 24. apríl kl. 14
Valkyrjan, þriðjudag 26. apríl kl. 19
Siegfried og fimmtudag 28. 'apríi kl.
19 Ragnarök.
Sýningarnar verða haldnar á Vest-
urgötu 36 og er aðgangur ókeypis og
öllum heimill. -
Kór frá Finnlandi í
Norræna húsinu
Sumardaginn fyrsta kl. 17 syngur
kór frá „Nonnali koulu“ í Joensuu í
Finnlandi í Norræna húsinu. Þessa
heimsókn má rekja beint til íslands-
kynningar sem Norræna húsið í
Reykjavík stóð fyrir í Austur-Finnlandi
sl. haust. Eftir þá kynningu tók þessi
hópur ungmenna sig til og safnaði fyr-
ir íslandsferð. Þau eru einnig með
myndiistarsýningu í fórum sínum þar
sem sjá má hvernig þau sjá ísland
fyrir sér og verður sú sýning í bóka-
safni Norræna hússins.
Allir eru velkomnir og aðgangur er
ókeypis.
Vortónleikar
málmblásara
Málmblásarar koma nú saman í sjö-
unda sinn, en vortónleikar málmblás-
ara verða í Hafnarborg, Hafnarfirði,
laugardaginn 23. apríl kl. 16.
Efnisskrá tónleikanna að þessu sinni
er ijölbreytt., Á tónleikunum verður
frumfluttur nýr kvintett fyrir málm-
blásara eftir Hildigunni Rúnarsdóttur.
Þá verða flutt verk eftir Andrea Gabri-
eli og Johann Heinrich Schmeltzer. Því
næst verður fluttur kvintett no. 2 eftir
rússneska tónskáldið Victor Ewald.
Sænskættaði Þjóðverjinn Ingolf Dahl
á verk á tónleikunum og loks verður
svíta fyrir málmbiásara-septet eftir
Englendinginn Stephen Dodgson.
Vortónleikar í
Fella- og Hólakirkju
Söngfélag Skaftfellinga í Reykjavík
og Kór Víkurkirkju í Mýrdal halda
sameiginlega vortónleika í Fella- og
Ilólakirkju laugardaginn 23. apríl kl.
16. Boðið er upp á fjölbreytta dagskrá
og kaffi í hléinu. Stjórnendur eru Viol-
eta Smid og Anna Björnsdóttir. Undir-
leikari er Pavel Srnid."
Sauðárkrókur
Rökkurkórinn
á faraldsfæti
Vetrarstarfi Rökkurkórsins í Skaga-
firði fer nú senn að ljúka, en að undan-
förnu hefur kórinn komið víða fram
og haldið söngskemmtanir innan hér-
aðs og utan. Lokapunkturinn er hins
vegar söngferð suður á land, sem
stendur dagana 22. til 24. apríl nk.
og sagði söngstjóri kórsins, Sveinn
Árnason, að fyrstu tónleikarnir yrðu í
bæjarleikhflsinu í Mosfellsbæ, föstu-
daginn 22. apríl kl. 21, en á laugardeg-
inum yrðu tvennir tónleikar, þeir fyrri
í Ytri-Njarðvfkurkirkju kl. 16, en þeir
síðari í Vfðistaðakirkju í Hafnarfirði
kl. 21.
Síðasta dag söngferðarinnar, á
sunnudeginum, verður svo sungið að
Laugalandi í Holtum og er það sfðasta
söngskemmtun Rökkurkóreins á
starfsárinu. Með kómum verða ein-
söngvararnir Þuríður Þorbergsdóttir,
sem einnig leikur undir á þverflautu,
Sigurlaug Maronsdóttir, Hjalti Jó-
hannsson og Ásgeir Eiríksson, en tví-
söng syngja þeir Hjalti Jóhannsson og
Eiríkur Jónsson og Ásgeir Eiríksson
og Eyjólfur Jónsson. Undirleikari
Rökkurkóreins er Thomas Higgereon.
BB
Tjaldur. Hönnun Þórdís Zoega.
Stólar á sýningu í
Stöðlakoti
Sýning á stólum eftir Þórdísi Zoéga
húsgagnahönnuð verður opnuð í
Stöðlakoti laugardaginn 23. aprfl nk.
Á sýningunni verða m.a. frumgerðir
af tveimur nýjum stólum sem koma á
markað á næstunni. Stólarnir bera
nöfnin Tjaldur og Stelkur og eru eld-
hús- eða kaffihúsastólar, sem Sólóhús-
gögn hf. munnu annast framleiðslu á.
Einnig verða til sýnis aðrir stólar
sem Þórdís hefur hannað á undanförn-
um 5 árum og hafa síðan verið í fram-
leiðslu og sölu.
Þórdís stundaði nám í húsgagna-
og innanhússhönnun við Skolen for
Brugskunst og Kunstakademiets Arki-
tektskole í Kaupmannahöfn á árunum
1976-1981. Hún hefur síðan unnið við
hönnun og rekur nú eigin teiknistofu. -
Þórdís hefur tekið þátt í fjölda samsýn-
inga hér á landi og erlendis.
Sýningin í Stöðlakoti er fyrsta einka-
sýning Þórdísar og er opin alla daga
frá kl. 14-18. Henni lýkur 8. maf.
Málþing
Málþing- um
textatengsl og
viðtökurannsóknir
Stofnun Sigurðar Nordals gengst
fyrir málþingi um textatengsl og við-
tökurannsóknir laugardaginn 23. april
kl. 13.15 í stofu 101 í Odda, hugvfs-
indahúsi Háskóla íslands. Ráðstefnu-
stjóri verður Úlfar Bragason, forstöðu-
maður Stofnunar Sigurðar Nordals.
Málþingið verður sett kl. 13.15 og
þeir sem flytja erindi eru Soffía Auður
Birgisdóttir, Jón Karl llelgason, Toiíi
Tuiinius, Matlhew J. Driscoll, Sveinn
Yngvi Egilsson og Margrét Eggerts-
dóttir. Kl. 17 eru svo umræðurogþing-
slit kl. 17.30.