Morgunblaðið - 21.04.1994, Page 66

Morgunblaðið - 21.04.1994, Page 66
66 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994 HANDKNATTLEIKUR / ÚRSLITAKEPPNIN Páll Ólafsson, leikmaðurinn fjölhæfi hjá Haukum, er leikstjórn- andi þeirra. Bjarki Sigurðsson, hornamaðurinn snjalli hjá Víkingum, er einnig öflugasta langskytta þeirra. Sigurður Sveinsson. Hann fagnaði síðast meistaratitli með Valsmönnum. Fagnar hann nú með Selfyssingum? Mætasl Páll og Sigurdur? ÞEGAR 1. deildarkeppnin i handknattleik hófst fyrir sjö mánuð- um, voru tólf kallaðir, en þegar uppi verður staðið verður aðeins einn útvalinn og krýndur Islandsmeistari. Fjögur lið eru eftir í keppninni; Reykjavíkurrisarnir undanfarin ár, Valsmenn og Vík- ingar, Selfyssingar, sem voru svo nálægt því að verða meistarar 1992 — þá „féllu þeir á tfma“ gegn FH-ingum í Hafnarfirði, og Haukar, sem þurfa að renna huganum alit aftur til ársins 1943, til að rifja upp eina íslandsmeistaratitil þeirra. Haukar mæta Víkingum í undanúrslitum og Valsmenn Selfyssingum, þannig að sú staða gæti komið upp að tvö Reykjavíkurlið leiki til úr- slita, tvö utanbæjarlið, eða Reykjavíkurlið gegn utanbæjarliði. Jón Kristjánsson, lykilmaður í vörn og sókn hjá Vaismönnum, sem hafa meistaratitil að veija. Undanúrslitakeppnin hefst annað kvöld með öllu tilheyrandi — spennu, sorg og gleði, að ógleymdum hávaða áhorfenda. Trommuleikur á leikjum hefur geng- ið út í öfgar — há- vaðinn hefur verið óbærilegur frá mönnum sem virðast eingöngu vera mættir til að lemja á trommur og skapa hávaða. Sam- kvæmt mælingum Morgunblaðsins í úrslitakeppninni í fyrra, mældist há- vaðinn yfír sársaukamörkum sem er samkvæmt skilgreiningu heilbrigðis- yfirvalda á milli 110 og 120 desibel. Hávaðinn mældist mest 122 desibel, en þess má geta að hávaðinn mælist 135 desibel þegar farþegaflugvél er í flugtaki og þegar hljómflutnings- tæki eru á fullu mælist hávaðinn 90 desibel. Á þessu sést að það er kom- inn tími til að takmarka trommuleik í íþróttahúsum hér á landi. Valsmenn og Selfyssingar mælast aftur Valsmenn hafa meistaratitil að verja og verða þeir að leggja Selfyss- inga að velli, eins og í fyrra, til að komast í úrslitaviðureignina. Róður- inn verður erfiður hjá hinu unga liði Valsmanna, því að Selfyssingar, und- ir stjóm Einars Þorvarðarsonar, eru orðnir vel sjóaðir í baráttu sem ekk- ert má gefa eftir í — og eru örugg- lega orðnir þreyttir á að sjá andstæð- inga sína fagna. FH-ingar fögnuðu íslandsmeistaratitlinum á Selfossi 1992, Valsmenn sendu Selfyssinga vonsvikna heim eftir bikarúrslitaleik 1993 og eftir blóð, svita og tár í vetur, voru þeir aðeins hársbreidd frá því að komast í undanúrslitin í Evr- ópukeppni bikarhafa. í fyrra unnu Valsmenn Selfyssinga í undanúrslit- um meistarakeppninnar — í Reykja- vík 31:27 og á Selfossi 28:22. Þá voru gamlir refír í herbúðum Vals, eins og Geir Sveinsson, Valdimar Grímsson og Jakob Sigurðsson. Þeir eru famir, en Selfyssingar tefla fram sama liði og þá. Byrjunarlið Selfyssinga er geysi- lega öflugt. Það er þeim mikill styrk- ur að Einar Gunnar Sigurðsson, sem átti við meiðsli að stríða í vetur og var í öldudal, hefur tvíeflst með hverri raun. Einar Gunnar og Sigurð- ur Sveinsson geta skotið hvaða vam- ir og markverði á bólakaf, þegar þeir eru í ham. Guðmundur Hrafn- kelsson, markvörður Valsmanna, átti í erfiðleikum með gólfskot Stjörnu- mannanna Patreks Jóhannessonar og Sigurðar Bjamasonar. Hann á eftir að svitna í viðureign sinni við Einar Gunnar og Sigurð. Þorbjöm Jensson hefur náð frá- bærum árangri með Valsliðið und- anfarin ár — hann hefur alltaf náð að koma fram með sterkt lið þrátt fyrir að missa góða leikmenn. Vais- liðið er óneitanlega ungt, en liðsheild- in er sterk hjá Valsmönnum, sem eru ekki þekktir fyrir að gefast upp fyrr en í fulla hnefana. Það getur komið niður á leik Valsmanna að Dagur Sigurðsson og Jón Kristjánsson, sem var lengi vel meiddur, hafa ekki náð að leika að undanförnu eins og þeir geta best. Rúnar Sigtryggsson hefur komið inná til að létta á sóknarleik- ÍSLENDINGAR töpuðu 0:2 gegn Saudi Aröbum í vináttu- landsleik íknattspyrnu íToulon í Frakklandi ígær. Leikurinn var slakur af Islands hálfu, að sögn Ásgeirs Elíassonar þjálf- ara. Leikurinn átti upphaflega að fara frarh í Cannes en þegar til kom fengu Saudi Arabar, sem eru í æf- ingabúðum á svæðinu, ekki völlinn þar. Því var leikið í Toulon. Mörkin komu bæði í fyrri hálfleik, á 20. og 25. mín. „Við gáfum työ mörk, aulalega. Það var engin ástæða til mönnum Vals, en spumingin er hvort hann hafi nægilega mikla reynslu. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um að leikir liðanna eiga eft- ir að verða spennandi og tvísýnir. Spáin: Selfoss vinnur 2:0. Haukar á f lugi Viðureign Hauka, sem hafa verið á góðu flugi í vetur — tapað aðeins einum deildarleik, og Víkinga verður ekki síður spennandi. Jóhann Ingi Gunnarsson hefur náð að byggja upp sterka liðsheild í Hafnarfirði, þar sem reyndir og ungir leikmenn fléttast vel saman í góðum leik, þar sem liðs- heildin ræður ríkjum. Það skemmir ekki fyrir að „refurinn" Páll Ólafsson stjórnar leik Haukaliðsins, en Páll er einn af klókustu handknattleiks- mönnum Islands — útsjónarsamur leikmaður, sem hefur lært alla galdra handknattleiksins. Páll hefur engu gleymt, frekar en gamli félagi hans hjá Þrótti — Sigurður Sveinsson, Selfossi. Þeir félagar eiga sér örugg- lega þann draum að mætast í keppni um Islandsmeistaratitilinn — og það kæmi á óvart ef þeir gerðu það ekki. Þegar Haukum tekst vel upp er vamarleikur liðsins sterkur og fyrir aftan vörnina er Magnús Árnason, sem kallar ekki allt ömmu sína þeg- ar á reynir. Sóknarleikur Hauka er að tapa fyrir þessu liði, en við gerð- um það nú samt. Við sóttum mikið í seinni hálfleik, en fengum þó eng- in dauðafæri. Við fengum samt fjögur eða fimm þokkaleg færi, sem hefðu getað gefið mörk — Bjarki fékk það besta, ef ég man rétt, en vamarmaður náði að blokkera skot- ið hjá honum,“ sagði Ásgeir Elías- son. „Þeir léku mjög aftarlega í seinni hálfleiknum, enda með tveggja marka forystu og það er alltaf erfitt að eiga við lið sem spila þannig.“ Hann sagði lið Saudi Arabíu ekki sérlega sterkt. „En þetta var slakur agaður, fjölbreyttur og skemmtileg- ur, þar sem boðið er upp á leikfléttur á milli þess að langskytturnar fara á kreik. Við hlið Páls eru þeir Petr Baumruk og Halldór Ingólfsson afar ógnandi. Víkingar tefla fram „þremur ás- um“ sem þeir Bjarki Sigurðsson, Birgir Sigurðsson og Gunnar Gunn- arsson eru — reyndir leikmenn, sem gefast aldrei upp. Allir þekkja styrk Birgis á línunni, stálgrip hans og kraft. Hann skoraði sigurmarkið gegn FH á dögunum, þegar fimmtán sek. voru til leiksloka. Bjarki er afar ógnandi hægra megin í sókninni — leikur hjá okkur, við lékum ekki eins vel og í Japan um daginn. Það var of mikið af feilsendingum og of mikið um að menn væru að tapa bolta illa, þannig að þeir kæmust þrír gegn tveimur aftarlega á okkar vallarhelmingi.“ Ásgeir sagði ekki nógu mikið jafnvægi hafa verið í liðinu, en hafa bæri í hugi að i lið- inu væri menn sem hefðu ekki ver- ið að æfa saman, og sumir sem ekki væru enn komnir í fulla æf- ingu. „Við verðum að bæta okkur fyrir næsta leik, gegn Bandaríkja- mönnum á sunnudaginn," sagði Ásgeir og bætti við að menn yrðu jafnt sem hornamaður og skytta. Haukar hafa örugglega góðar gætur á Bjarka og ef þeir taka einhvern leikmann úr umferð verður það hann, en Víkingar koma til með að „líma“ leikmann á Pál Ólafsson, ef þeir fara út í það að klippa á leikmann hjá Haukum. Fyrir utan þessa þrjá leik- menn er Serbinn Slavisa Cvijovic ógnandi — getur átt góðan leik, en þess á milli lítið borið á honum. Varnarleikur Víkinga er nokkuð góð- ur og ef þeir ná að vinna vel saman í vöm, kann Reynir Þ. Reynisson, markvörður, að meta það. Spáin: Haukar vinna 2:1. líka aldeilis að taka sig saman í andlitinu fyrir viðureignina við Brasilíumenn ytra, sem verður 4. maí. „Og við gerum það,“ bætti hann við. Lið íslands stillti upp skv. leikað- ferðinni 3-4-3 í fyrri hálfleiknum í gær, en eftir hlé skipti Ásgeir í 3-5-2. Bjarki Gunnlaugsson var færður aftur á miðjuna með Hlyn og Þorvaldi og Arnór og Arnar voru tveir frammi. Þegar Sigur- steinn og Haraldur komu inná fóru þeir á kantana og Ólafur Þórðarson inn á miðjuna. Sigmundur Ó. Steinarsson skrifar Leikdagar í undanúrslitunum Strandgata: Haukar-Valur..............föstudagur kl. 20 Laugardalshöll: Valur-Selfoss.......laugardagur kl. 16.30 Víkin: Víkingur-Haukar................sunnudagur kl. 20 Selfoss: Selfoss-Valur.................mánudagur kl. 20 ■Ef þarfa að leika þriðja leikinn, mætast Haukar og Víkingur að Strandgötu á þriðjudaginn kl. 20 og Valur og Selfoss í Laugardals- höllinni á miðvikudag kl. 20. KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ Tap gegn Saudi Arabíu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.