Morgunblaðið - 21.04.1994, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 21.04.1994, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ DAGLEGT LIF FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994 Grillpinnar með hækkandi sól MARGIR nota gasgrill allan veturinn en aðrir hvíla það í snjó og kulda og eru þessa dagana að dusta af því rykið. Hvernig á að þrífa grillið þegar það er búið að standa ónot- að yfir vetur? J Þórarinn Guðlaugsson mat- ■ reiðslumeistari segist skafa ' sem mest af griilinu eftir notkun. Ef fólk er að þrífa B grillið eftir veturinn segir öfc hann að það borgi sig að y kynda grillið upp og bursta y síðan vel með kopar- eða SJj vírbursta og bera loks matarolíu á teinana með klút. Æskilegt er að bera olíu aftur á teinana áður en farið er að grilla. Þórarinn segir að margir kjósi að taka lausu stykk- in úr og þvo en hann segist ekki hafa lagt það í vana sinn. Þórarinn ætlar að gefa lesend- um tvær uppskriftir af grillpinn- um, önnur er gerð úr hakki en hin úr dýrara kjöti. _______Grillpinnar úr hakki 300 g nautahakk 300 g lambahakk 100 g saxað beikon 1 laukur 1 dl sojasósa 1 egg nýmulinn pipar og salt Öllu blandað saman í hrærivél eða með höndum en ekki krydd- að strax. Látið standa í kæli í klukkustund. Þórarinn bendir á að ekki eigi að krydda með salti fyrr en rétt áður en steikt er því ef kjötið er látið standa með saltinu í þá ýtir saltið kjötsafan- um út. Mótið eins og fjögurra senti- metra langar pylsur úr hakkinu og raðið á teina til skiptis sveppabitum, tómötum og hakki. Kryddið rétt áður en pinnarnir eru settir á grillið. Grillið í fjórar til fimm mínútur. Berið fram Þórarinn Guðlaugsson matreiðslumeistari Morgunblaðið/Kristinn með bökuðum kartöflum eða hrísgijónum. Grillpinnar 300 g nautahryggvöðvi 300 g grísalundir 300 g Frankfurter-pylsur sveppir græn og rauð paprika laukbitar Kjötið er skorið í hæfilega stóra bita og pylsur líka skornar niður. Þórarinn segir að ágætt sé að marínera kjötið eða nota bara salt og pipar rétt fyrir steik- ingu. Kjötbitamir eru þræddir á teina til skiptis rheð grænmetinu. Olíu er strokið með pensli yfir grillið áður en kjötið er sett á það. Grillað í sex til átta mínútur. Passa þarf að snúa teinunum af og til. Borið fram með bökuðum kartöflum og salati ef vili. ■ g'g Framleiða ostarúllur og selja ýmsar tegundir af brie-osti Matarkaupin um tölvu og maturinn heim Kaupmannahöfn Hvernig væri að losna við hlaupin í matvörubúðina, leitina að bílastæði og vöruklyfjarnar, krakkana sem heimta sælgæti við kassann, en setjast þess í stað í ró og næði við tölvuna og slá inn það sem vantar? Maturinn er svo sendur heim. Sérhæft hreinsiefni fyrir keramik Fáanlegt er nú nýtt sérhæft hreinsiefni fyrir keramik hellur á eldavélum. Efnið heitir Impact og er viðurkennt af fyr- irtækinu Schott en það er einn stærsti framleiðandi keramik hellna í heiminum. Það eru ýmsir viðurkenndir framleiðendur sem aftan á um- búðum vörunnar mæla með notkun hennar. ■ Harðlæst kl. 16 hjá flestum bankastofnunum ÞAÐ GETUR reynst flókið mál fyrir þá, sem stunda reglulega atvinnu á virkum dögum, að sinna fjármálum sínum í banka- kerfinu þar sem afgreiðslu- tíminn er frá kl. 9-16. Ýmist þarf að stelast úr vinnunni eða gjörnýta matar- og kaffitíma til slíkra erinda. Bankastofnanir hafa þó sumar hveijar verið að rýmka afgreiðslu- tíma sinn að undanförnu. Sem dæmi má nefna að opið er í Búnað- arbankanum í Kringlunni á fimmtudögum frá kl. 17-18. í Sparisjóði vélstjóra í Borgartúni og Rofabæ er opið alla föstudaga til kl. 18. Hjá Sparisjóði Hafnar- fjarðar í Strandgötu er opið til kl. 18 alla fímmtudaga. Aftur á móti er öllum útidyrum læst hjá Lands- banka íslands, íslandsbanka, Sparisjóði Reykjavíkur og ná- grennis og Sparisjóði Kópavogs á slaginu klukkan 16 alla daga svo dæmi séu tekin. ■ Barn látið auglýsa rakvörur FYRIR skömmu barst Sam- keppnisstofnun veggspjald, sem hangir á ýmsum hársnyrtistof- um. A veggspjaldinu heldur barn á rakvél og á vanga þess er skeggsápa. Umboðsmanni vör- unnar hefur verið send athuga- semd vegna þessa, en í 22. grein samkeppnislaga segir: „Auglýsingar skulu miðast við að böm sjái þær og heyri og mega þær á engan hátt misbjóða þeim. í auglýsingum verður að sýna sér- staka varkárni vegna trúgirni bama og unglinga og áhrifa á þau. Komi börn fram í auglýsingum skal þess gætt að sýna hvorki né lýsa hættu- legu atferli eða atvikum er leitt geti til þess að þau eða önnur börn komist í hættu eða geri það sem óheimilt er.“ ■ OSTARÚLLUR með hvítlauks- pipar, hnetum og koníaki, hvít- Iauk og steinselju, beikoni og papriku og blönduðum pipar er meðal þess sem framleitt er í Ostahúsinu við Fjarðargötu í Hafnarfirði þar eru líka mis- munandi brie-ostar til sölu, smurostar, brauðostur, Tira- misu ábætir, sultur, kex og margar aðrar ostategundir. í Ostahúsinu ráða ríkjum hjón- in Þórarinn Þórhalisson_ mjólkur- fræðingur og María R. Ólafsdótt- ir. Þórarinn vann við ostagerð í Danmörku í fjögur ár eftir að námi lauk og sá síðan um rekstur Mjólkurbúsins á Hornafirði um skeið þar sem hann meðal annars þróaði Jöklaost og Mozarella ost- inn. Þegar hjónin fluttu suður ákváðu þau að opna sannkallaða ostabúð með veisluþjónustu en fyrr en varði var Þórarinn líka farinn að fikra sig áfram við osta- gerð. Samningar hafa tekist með Osta- og smjörsölunni og Osta- húsinu og nú sér það fyrirtæki um dreifingu á ostarúllunum. Enn er þó bara hægt að kaupa brie- ostana í Ostahúsinu. Brie-ostana fær Þórarinn frá Osta- og smjör- sölunni en hann lagar þá til ef svo má að orði komast og blandar með grænum pipar, gráðosti og hvítlauki. Hægt er að fá sérlagaðar rúllur á bakka eftir stærð veislu en fyrir- tækið er með veisluþjónustu og útbýr einnig gjafakörfur. Nýjasta framleiðsluafurðin er Tiramisu-ábætir en enn er hann bara seldur í Ostahúsinu. Ýmislegt annað er á döfinni og Þórarinn ætlar á föstudag og laugardag að kynna fyrir við- skiptavinum sínum gráðosta- ídýfu. í framhaldi af því ætlar hann að huga að öðrum tegundum af ídýfum, allt öðruvísi ídýfum en til eru fyrir, segir hann. Það verður semsagt kynning í Ostahúsinu á föstudag og laugar- dag á gráðostaídýfu og brie-ost- um. ■ Kompudagar í Kolaportinu UM næstu helgi verða svo- kallaðir kompudagar í Kola- portinu og fá þá þeir bása á 1.800 krónur sem koma með dót úr geymslunni eða bilskúrnum til að selja. Venjulega eru bás- arnir seldir á 3.500 krónur. Þetta er því um helmings af- sláttur af venjulegu verði. Saumaklúbbar, fjölskyldur eða einstaklingar geta því notað tæki- færið og komið með allskyns dót og selt í Kolaportinu. í Stokkhólmi er fyrirtæki nokk- urt að gera tilraun með slík inn- kaup. Fyrstu viðbrögð notendanna eru að það taki smá tíma að venj- ast þessu, læra að nota tölvuna rétt, en það sé engin spurning um ávinninginn. Þessi innkaupaaðferð spari bæði tíma og fyrirhöfn. Og ef til vill hyllir undir meira af per- sónulegri þjónustu af þessu tagi. Til þess að geta nýtt sér tilboðið til hlítar þarf neytandi að hafa aðgang að tölvu og mótaldi, en að öðrum kosti er einnig hægt að senda pöntunina inn sem símbréf. Á vegum fyrirtækisins „Food Ex- press“ hefur verið útbúinn gagna- banki með upplýsingum um 2500 algengustu vörurnar í matvörubúð. Neytandinn getur fengið gagna- bankann sendan og eftir honum velur hann svo. Hann merkir vör- urnar og skrifar hversu mikið hann þarf og þar með verður til pöntun- arlisti hans. Vörunum í listanum er auðvitað skipt í flokka, rétt eins og í góðum vörumarkaði, mjólkur- vörur saman, kjöt sér o.s.frv. Und- ir þessum flokkum eru undirflokk- ar, sem gera neytandnum kleyft að velja sér þau vörumerki, sem hann kýs. Þar sem fólk kaupir oftast nokk- urn veginn það sama inn, geymir gagnabankinn síðustu pöntun og getur neytandi tekið hana fram næst, bætt og breytt og notað aft- ur. Með þessu er einnig tækifæri til að koma með sér óskir, s.s. að eggin eigi að vera stór eða banan- arnir mikið þroskaðir. Vörumerk- ing er eins og í búðum, með kíló- verði eða verði á hveija einingu, auk tilboða. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvu og mótaldri geta fengið sendan heim prentaðan vörulista til að panta eftir og sent pöntunina sem símbréf. Einnig hér getur neytandi fengið vörulista sem hann pantar reglulega og get- ur hann strikað út og bætt við eftir þörfum. Fyrirtækið hefur gert samning við matvöruverslanakeðjuna ICA um að afgreiða pantanirnar. Vör- upöntunin er send í þá búð sem er næst þeim sem pantar og þar eru vörurnar teknar saman og sendar áfram til neytandans. “Fo- od Express" fær prósentur af þeim viðskiptum sem fyrirtækið útvegar búðunum og það tekur pöntunar- gjald frá neytanda. Hann greiðar um 350 ísl.kr. ef pantað er fyrir meira en um 15 þús.kr. en annars um 750 kr. Ávinningur neytandans er tímaparnaður. Fyrirtækið reikn- ar einkum með að barnafjölskyldur og gamalt fólk noti sér þjónustuna og einnig skólar, leikskólar og aðr- ar stofnanir. Þeir sem hafa reynt þessa nýju skipan segja að í fyrstu taki smá tíma að panta en hver pöntun sé léttari en næsta á undan. Tíma- sparnaður sé á hreinu og gott að losna við burðinn. Enn stendur þetta aðeins til boða í einu hverfi í Stokkhólmi en ætlunin er að til- boðið nái á endanum til allrar borg- arinnar. Þá á að taka upp við- skipti við nýja verslunarkeðju sem verður komið á laggirnar síðar á árinu og þá mun vöruverð lækka. Þá er stefnt að því að matarbílarn- ir keyri einnig út aðrar vörur, t.d. þær sem hafa verið pantaðar í pósti, lyf úr apótekum ofl. Hér er því stefnt að persónulegri þjónustu sem um tíma var talið að væri aflögð fyrir fullt og allt, þegar kaupmenn hættu að senda heim hérna í eina tíð. ■ SD. SS tekur við dreifingu á Juvel hveiti NÝLEGA tók Sláturfélag Suður- lands við dreifingu og sölu á Juvel hveiti og rúgmjöli til versl- ana. Eins og áður mun V.B. um- boðið sjá um dreifingu á Juvel hveiti og öðru mjöli til bakara.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.