Morgunblaðið - 21.04.1994, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRIL 1994
Meðeigandi óskast
Lítið fyrirtæki í verslunarrekstri á Akureyri
óskar eftir meðeiganda.
Áhugasamir sendi inn á auglýsingadeild
Mbl. nafn og símanúmer, merkt:
„Meðeigandi - 4780“, fyrir 30. apríl 1994.
ÁSKÓLINN
AKUREYRI
HÁSKÓLINN Á AKUREYRI
OPIÐ HÚS
Kynning á námi í Háskólanum á Akureyri verður
laugardaginn 23. april kl. 14.00-17.00
Kynningin veróur í húsakynnum skólans í Glerárgötu 36
og Þingvallastræti 23.
DAGSKRÁ:
Glérárgata 36
Kl. 14.00 Rektor.
Saxófónkvartett undir stjórn Finns Eydals.
Almenn kynning.
Kl. 15.00 Kynning deilda og stofnana.
Glerárgata 36
Rekstrardeild, sjávarútvegsdeild og samstarfsstofnanir.
Þingvallastræti 23
Heilbrigðisdeild, kennaradeild og bókasafn.
Léttar veitingar verða á boðstólnum.
Væntanlegir nemendur geta hitt kennara, forstöóumenn
deilda og nemendur skólans.
Allur almenningur og velunnarar skólans eru velkomnir.
Kennslumálanefnd Háskólans á Akureyri
LANDSMÓT SAUMAKLÚBBANNA
HALDIÐ 6.-8. MAÍ Á AKUREYRI
Stjórnandi: Sigurður Pétur Harðarson.
Stórdansleikur í Sjallanum með Geirmundi Valtýssyni.
DAGSKRÁ.
FÖSTUDAGURINN 6. MAÍ.
1. Móttaka í íþróttahöllinni kl. 20.00 - ávarp forsvarsmanna á Akureyri.
2. Fitjað upp á ef til vill lengsta trefli landsins.
3. Skemmtiatriði frá klúbbunum.
4. Skondnar sögur úr klúbbunum.
5. Spurningakeppni milli klúbbanna.
6. Landið og miðin í beinni.
7. íþróttamót klúbbanna.
Slit á samkomu um kl. 23.00 til 23.30.
LAUGARDAGURINN 7. MAÍ
Kl. 10.00 Landsmótsfulltrúum boðið í sund í Sundlaug Akureyrar.
Kl. 13.00 f boði eru fimm afþreyingarmöguleikar sem hver velur við sitt
hæfi, t.d. skoðunarferðir, sýningar, gönguferðir o.fl.
Kl. 17.00 Dagskrá dagsins lýkur og fer hver og ein að undirbúa kvöldið,
Kl. 19.30 Mæting í Sjallanum á stórdansleik með Geirmundi Valtýssyni.
Ákveðin Landsmótsdagskrá verður í boði og er hófið lokað til
miðnættis. Mótsslit verða svo um kl. 03.00.
Skráningargjald á Landsmótið er kr. 1.000 fyrir hvern klúbbfclaga.
Skráning fer fram í Upplýsingamiðstöð Akureyrar
í síma 96-24442 eða 96-27733.
KYNNING OG SKRÁNING í PERLUNNI 21.-24. APRÍL.
LÁTTU SJÁ ÞIG OG ÞÍNAR ÁN HANS!
Metsölublað á hverjum degi!
Ljjósmynd/Sveinn Gunnarsson
Öllu stolið undan bílnum
SVEINN Gunnarsson sjómaður úr Hrísey komst ekki langt á bíl sín-
um — búið var að stela öllum felgum og dekkjum undan honum. j
Felgnm og dekkjum
stolið á bílastæði
„ÞETTA er alveg rosalegt," sagði Sveinn Gunnarsson sjómaður á I
Súlnafelli EA í Hrísey, en þegar hann kom að bifreið sinni sem stóð |
á bílastæði á Árskógssandi var búið að stela öllum felgum og dekkj- ,
um undan bílnum. Tjón hans er um 160 þúsund krónur en innan við *
ár er síðan hljómflutningstækjum sem voru metin á um 170 þúsund
krónur var stolið úr bílnum á sama stað.
Eyjafjarðarsveit
Birgir o g
Ólafur efstir
Ytri-Tjörnum, Eyjafjarðarsveit.
ALLGÓÐ þátttaka var í próf-
kjöri E- og N-lista sem fram fór
í Eyjafjarðarsveit um helgina.
Alls kusu 275 af 662 á kjörskrá,
224 merktu við menn af E-Iista
en 51 af N-lista.
Eftirtaldir urðu efstir hjá E-lista:
Birgir Þórðarson sem fékk 83 at-
kvæði í 1. sæti en 149 atkvæði alls.
Ólafur Vagnsson 74 atkvæði í 1.-2.
sæti og 132 alls. Ármann Skjaldar-
son 86 atkvæði í 1.-3. sæti og 152
alls. Eiríkur Hreiðarsson 74 í 1.-4.
sæti og 120 alls. Jón Jónsson 87
atkvæði í 1.- 5. sæti og 116 alls.
Hjá N-lista var Ólafur Jensson
efstur, Hrefna Laufey Ingólfsdóttir
í öðru sæti og Hreiðar Hreiðarsson
í því þriðja. Guðmundur Jón Guð-
mundsson varð í fjórða sæti og Sig-
rún Ragna Úlfsdóttir í fimmta sæti.
Atkvæðatölur fengust ekki upp-
gefnar hjá N-listanum.
Benjamín
------» ♦ -------
■ FAASAN, félag áhugafólks og
aðstandenda sjúklinga með Alzhei-
mersjúkdóm og skylda sjúkdóma
á Akureyri og nágrenni heldur
fræðslufund í dvalarheimilinu Hlíð
laugardaginn 23. apríl kl. 13.
Gunnar Þór Gunnarsson læknir
heldur erindi um heilabilun, en talið
er að um 60% þeirra sem þjást af
heilabilun séu haldin Alzheimer-
sjúkdómi. Allir sem áhuga hafa á
að fræðast um sjúkdóminn eru vel-
komnir á fundinn.
Bifreið Sveins er að gerðinni
Nissan 100 NX, árgerð 1991 og
segir hann að örfáir bílar sömu teg-
undar séu til á svæðinu. Sveinn kom
frá Akureyri um kl. 16 á mánudag-
inn og skildi bílinn eftir á bílastæði
á Árskógssandi meðan hann fór
heim til Hríseyjar. Strax daginn
eftir þurfti hann að bregða sér inn-
eftir aftur en komst þá hvergi —
búið var að taka felgurnar og dekk-
in undan bílnum.
Sveinn sagði að hver felga kost-
aði um 30 þúsund krónur og hvert
dekk um 10 þúsund þannig að tjón-
ið er um 160 þúsund krónur. Síð- t
asta sumar var hljómflutningstækj-
um sem kostuðu um 170 þúsund i
krónur stolið úr bílnum þar sem ’
hann stóð á þessu sama bílastæði
en þar geyma Hríseyingar jafnan
bíla sína.
Tvær bílageymslur eru á Ár-
skógssandi í eigu Hríseyinga. „Ég
hef ekki hugsað út í hvort maður
eigi að reyna að komast þar inn,
það kostar líklega um 400 þúsund
krónur, en ég taldi nokkuð öruggt I
að geyma bílana á stæðinu, það er j
mikil umferð í tengslum við bryggj- |
una og fiskhúsin," sagði Sveinn.
---------» » »---
Hitaveitur
Tæringar-
varnir og
notenda-
(Fréttatilkynning.)
?HVA
ÚTBOÐ
Hita- og vatnsveita Akureyrar óskar eftir tilboðum í lagn-
ingu aðveituæðar frá dælustöð á Laugalandi á Þelamörk
í dælustöð við Austursíðu á Akureyri. Lögnin er rúmlega
10.000 metrar af 175 mm stálröri í 315 mm plastkápu.
Á lögnina koma nokkur úttök, afloftanir og tæmingar.
Reiknað er með að verkið geti hafist fyrir miðjan maí og
skal því lokið 30. september 1994. Útboðsgögn fást hjá
Verkfræðistofu SigurðarThoroddsen, Glerárgötu 30, Akur-
eyri, gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu HVA við Rangárvelli,
Akureyri, þriðjudaginn 3. maí 1994, kl. 11.00, að viðstödd-
um þeim bjóðendum er þess óska.
Akureyrarbær
ÚTBOÐ
Bæjarverkfræóingurinn á Akureyri, fyrir hönd bæjar-
sjóðs Akureyrar, óskar eftir tilboðum í byggingu yfir-
falla við Hjalteyrargötu og Spítalaveg á Akureyri.
Tilboðið nær til uppsteypu og frágangs á tveimur
niðurgröfnum byggingum á einni hæð, um 14 og
10 m2 að grunnflatarmáli. Tengingar þeirra við núver-
andi lagnir er ekki innifalin.
Verkinu skal aó fullu lokið eigi síðar en 8. júlí 1994.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu Sigurðar
Thoroddsen hf., Glerárgötu 30, Akureyri, frá og með
þriójudeginum 12. apríl gegn 10.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboð skulu hafa borist skrifstofu Tæknideildar Akur-
eyrarbæjar, Geislagötu 9, Akureyri, eigi síðar en
þriðjudaginn 26. apríl 1994, kl. 1 1.00 f.h., og verða
þau opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess
óska.
Bæjarverkfræðingurinn á Akureyri.
þjónusta
SAMiBAND íslenskra hitaveitna
heldur 14. aðalfund sinn í Verk-
menntaskólanum á Akureyri
dagana 22. og 23. apríl en um
120 fulltrúar hita- og vatnsveitna
víða af landinu mæta á fundinn.
Fyrir fundinum iiggja tvær tillög-
ur, önnur um fulla aðild vatnsveitna
að sambandinu en þær hafa haft
aukaaðila frá árinu 1991. Vatns-
veitur höfðu ekki áður samstarfs-
vettvang en brýnt er að auka sam-
starf þeirra á ýmsum sviðum. Hin
tillagan eru lög að nýju veitusam-
bandi sem í væru hitaveitur, vatns-
veitur og rafveitur. Skiptar skoðan-
ir eru um hvort æskilegt sé að hafa
allar veiturnar í sama félaginu en
fundurinn mun væntanlega leiða í
ljós hver vilji manna er í þeim efn-
um.
Auk hefðbundinna aðalfundar-
starfa verða ýmis mál til umfjöllun-
ar, s.s. um efnisval og tæringar-
varnir, nýjar reglur um neysluvatn,
nýtt virkjunarsvæði Hitaveitu Ak-
ureyrar, notendaþjónustu, bilanir í
veitukerfum og samnýtingu raforku
og jarðhita hjá hitaveitum.
(Fréttatilkyiining.)