Morgunblaðið - 21.04.1994, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994
HREINLÆTISTÆKI
BORGAR- OG SVEITARSTJORNARKOSNINGARNAR 28. MAI
Baðkör
120x70 170x70
KR. 5.600 Kn 6-940
160x70
Kr. 6.600
Setkar 140x70
kr. 6.150 Kn 6'150
WC
sett
með stút í vegg
eða yfirbyggt í
gólf m/harðri
setu Kr.
9.9'70
Sturtubotnar
70x70 80x80
Kr. 3.150 Kr. 3.450
Handlaugar
A vegg frá kr. 2.590
í borð frá kr. 6.670
Sturtuklefar
og sturtuhorn
Verð frá kr. 7.900
Ötl verð eru stgr.verð m/VSK.
Opið mánudaga
tii föstudaga 9-18.
Opið laugardaga 10-16.
FAXAFEN9
SÍMI 91-677332
Einsetinn heilsdagsskóli, nýj-
ungar og þróun í skólamálum
eftir Kristjönu M.
Kristjánsdóttur
Á yfirstandandi kjörtímabiii hef-
ur meirihluti Sjálfstæðisflokksins í
borgarstjórn með Árna Sigfússon
í broddi fylkingar lagt mikla
áherslu á uppbyggingu grunnskóla
borgarinnar.
Sjálfstæðismenn hafa lagt
áherslu á menntunarþátt grunn-
skólanna langt umfram lögboðnar
skyldur. Einnig hefur verið lögð
rækt við og hlúð að flestum þeim
þáttum sem gera skólunum kleift
að búa nemendur sem best undir
lífið.
Markvisst er unnið að því að
koma á einsetnum skóla og með
sama framhaldi ætti það að geta
orðið að veruleika á næstu 4 árum.
Reykjavíkurborg mun tryggja hús-
næði vegna einsetningarinnar.
Það þýðir að reykvísk börn á
grunnskólaaldri njóti vandaðrar
kennslu frá morgni fram til kl
14.00 og í framhaldi af því býðst
lengd viðvera með margvíslegum
tilbcðum til kl 17.00.
Einnig hefur borgarstjóri leitað
samstarfs við ríkið um samninga-
mál kennara.
Listkynning, tölvuvæðing og
forvarnarstarf
Helstu nýjungar og þróun sem
átt hafa sér stað á yfirstandandi
kjörtímabili undir stjórn formanns
Skólamálaráðs, Árna Sigfússonar
borgarstjóra, eru t.d.:
1. Listkynning í skólum varð
fastur liður í skólastarfi með sér-
stakri fjárveitingu. Hinir ýmsu
listamenn, fulltrúar mismunandi
listgreina, til að mynda leikarar,
söngvarar, tónlistamenn, ballett-
og samkvæmisdansarar hafa komið
í skólana a.m.k. tvisvar á ári með
dagskrá sem hæfir börnum á
grunnskólaaldri til að gefa nemend-
um innsýn í list sína og kynna þeim
mismunandi listform.
2. Tilveran (lion quest) sem er
námsefni er tengist forvarnarstarfi
og sjálfstyrkingu einstaklingsins
var tekið í notkun í skólum Reykja-
víkur árið 1992. Er það alfarið
kostað af borginni og kenndar tvær
kennslustundir á viku í 7. og 8.
bekk í öllum grunnskólum borgar-
innar. Kjarni námsefnisins „Að ná
tökum á tilverunni" má skipta í sjö
námseiningar, sem eru:
a) Að vera unglingur — glíman
framundan
b) Að byggja upp sjálfstraust með
samskiptum
c) Að læra um tilfinningar — að
ná tökum á sjálfsmati og sjálfs-
stjórn
d) Vinir — að bæta samskiptin við
jafnaldra
e) Að styrkja samskiptin innan fjöl-
skyldunnar
f) Að temja sér gagnrýna hugsun
til ákvarðana
g) Að setja sér markmið til heil-
brigðs lífs
3. Skólabúðir að Úlfljótsvatni
tóku til starfa 1992 í samvinnu við
skátahreyfinguna. Þar gefst öllum
nemendum 7. bekkjar grunnskóla
tækifæri að dveljast í tvo daga og
er dvölin tengd námsefninu Tilver-
unni. Reykjavíkurborg greiðir ferð-
ir, mat, gistingu og kennslu í þess-
um skólabúðum.
4. Markviss tölvuvæðing grunn-
skóla hófst 1992 og er nú tölvuver
í flestum grunnskólum borgarinn-
ar. Árin 1993 og 1994 hafa verið
keyptar um 350 tölvur í skóla borg-
arinnar ásamt tilheyrandi búnaði.
Grunnskólanemendur borgarinnar
læra nú að vinna á tölvur og eru
verkefnin t. d. námsefni í íslensku,
stærðfræði, líffræði og tungumál-
um.
5. íslenska menntanetið tengist
öllum grunnskólum borgarinnar
árið 1994.
6. Tölvuvæðing bókasafna
stendur nú yfir. Búið er að kaupa
tölvur á bókasöfn skólanna og hef-
ur borgin staðið straum af kostn-
aði við það.
7. Borgin leggur skólunum til
fjármagn í formi styrkja til að vinna.
að nýsköpunarverkefnum t.d. í
raungreinum og tölvuvinnslu sem
hefur í för með sér lengingu á
skóla- og viðverutíma nemenda.
8. Stefnt hefur verið að auknu
sjálfstæði skólanna með fjárveit-
ingum sem gefur þeim möguleika
til fijálsrar ákvarðanatöku til efl-
ingar á innra starfi.
9. Ekki hefur eingöngu verið
hugsað um aðbúnað hvað varðar
húsnæði, kennslutæki og önnur
gögn heldur eru lóðir yfirleitt góðar
og þeim og leiktækjum á skólalóð-
um vel við haldið.
Forystuhlutverk Reykjavíkur í
skólamálum
Af framansögðu má sjá að óhætt
er að fullyrða að framlag borgar-
innar til grunnskóla borgarinnar,
bæði hvað viðkemur fjárframlögum
sem og öðrum stuðningi við skól-
Skýrsluna á borðið
eftir Sigrúnu
Magnúsdóttur
í borgarráði 12. apríl lagði borg-
arstjóri fram minnispunkta forvera
síns varðandi vinnu sérfræðingsins
Ingu Jónu Þórðardóttur.
Borgarráð fer með framkvæmda-
vald borgarinnar ásamt borgarstjóra
og allar athuganir á rekstri borgar-
innar og tillögur þar að lútandi á að
kynna og taka ákvarðanir um í borg-
arráði.
Sú sérkennilega staða er komin
upp að borgarráðsmönnum er meinað
að fá þessi gögn á borðið, sem kost-
uðu tæpar þijár millj. króna. Borgar-
fulltrúar jafn og allir Reykvíkingar
eiga heimtingu á að fá að sjá vinnu
„Þetta er opinbert
plagg, sem sjálfstæðis-
menn hafa enga heimild
til að fela.“
sérfræðingsins, sem var kostuð af
sameiginlegum sjóði okkar allra,
borgarsjóði.
í minnispunktum fyrrverandi borg-
arstjóra svo og í viðtölum í blöðum
að undanförnu við Ingu Jónu Þórðar-
dóttur kemur fram að greinargerð
eða skýrsla um vinnu hennar var
afhent. Þetta er opinbert plagg, sem
sjálfstæðismenn hafa enga heimild
til að fela. Það er allt annað mál ef
flokkssjóðurinn í Valhöll vill aðstoða
sitt fólk við tillögugerð og borga fyr-
ir það, þá geta valdhafarnir í Reykja-
vík legið á þeim upplýsingum.
Núverandi borgarstjóri þarf að
leita út í bæ til að fá hugleiðingar
eftir minni um athuganir og vinnu
sem forveri hans lét vinna, eru það
árangursríkir stjórnarhættir? Til að
hann og borgarráð geti sinnt stjórn-
unarhlutverki sínu verður hann að
hafa á skrifstofu sinni þessa skýrslu,
sem var um hvernig mætti stjórna
borginni með nútímalegum hætti í
anda einkavæðingar á öllum sviðum,
eftir því sem mér skilst. Getgátur eru
óþarfar, krafan er skýrsluna á borð
borgarráðs strax.
Höfundur er borgarfulltrúi og
frambjóðandi Reykjavíkurlistans.
Krisljana M. Kristjánsdóttir
„Sjálfstæðismenn hafa
lagt áherslu á menntun-
arþátt grunnskólanna
langt umfram lögboðn-
ar skyldur.“
ana, hefur verið með þeim hætti á
yfirstandi kjörtímabili að stjórn
bæði þessara mála sem og annarra
mála borgarinnar er hvergi betur
borgið en í öruggum höndum sam-
hents meirihluta Sjálfstæðisflokks-
ins. Aðeins það mun gera Reykja-
víkurborg kleift að viðhalda sínu
forystuhlutverki í skólamálum
þjóðarinnar.
Höfundur er skólastjóri í
Reykjavík og skipar 12. sæti á
framboðslista Sjálfstæðisflokksins
við borgarstjórnarkosningarnar í
Reykjavík í vor.
Sigrún Magnúsdóttir
Billund/Legoland
1 vika á tímábilinu
íírá 5. júní-14. ágúst.
kr 30.3(K)
Staðgreiðsluverð á mann miðað við
2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára.
Innifalið: Flug, bílaleigubíll í A-flokki,
ótakmarkaður akstur.öll flugvallargjöld.
Flug, bíll og hús
ein vika kr. 32.6ÖO
Staðgreiðsluverð á mann miðað við 2 fullorðna
og 2 börn,2-ll ára. Innifalið: Flug,bíll íA-flokki,
hús í Hostenberg/Þýskalandi í júní.ótakmark-
aður kílómetraíjöldi, öll flugvallargjöld.
Við gerum betur
Staðgreiðsluverð
kr. 25.000
Börn 2-11 ára
kr 17.000
Tnnifalið flug, flugvallargjöld,
bókuð og greidd fyrir ló.apríl.
uitmxi:
■* *
nmm
2 vikur 10. júní
kr 35.425
Staðgreiðsluverð á mann miðað við 2 fullorðna og 2
börn, 2-11 ára. Innifalið: Flug, gisting og flugvallarskattur.
Ferðaskrifstofan
sími 652266.