Morgunblaðið - 21.04.1994, Side 16

Morgunblaðið - 21.04.1994, Side 16
V|S/ CSS-XTQd li.00 16 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994 að kvöldi 10 mínútna símtal frá Stykkishólmi til Hafnar á kvöldin kostar aðeins PÓSTUR OG SÍMI Sjá nánar í símaskránni bls, 9. . Kynferðislegt of- beldi, nei takk! eftir Halldór K. ~“T~ Lárusson , * í kjölfar þeirrar miklu umræðu er átt hefur sér stað undanfarið um kynferðislegt ofbeldi finn ég mig knúinn til að leggja nokkur orð í belg og spyija. nokkurra spuminga. Er íslenskt réttarkerfí þegn- ijandsamlegt? Er ekki hægt að treysta lögreglu og dómsmálayfir- völdum til þess að taka á kærumál- um vegna kynferðislegs ofbeldis af réttlæti og sanngirni? Ef þeim er ekki treystandi fyrir því, er þeim þá treystandi yfirhöfuð? Eru lög okkar íslendinga svo flókin og ófullkomin að ekki er hægt að leggja megnið af kærum í kynferðisafbrotamálum sem ber- ast ríkissaksóknara og Rannsókn- arlögreglu ríkisins fyrir dómstóla og endi þar af leiðandi í skúffum þeirra? Eg vona innilega, að ein- hvern daginn verði hægt að svara þessum spurningum á þann hátt að við íslendingar getum sáttir við unað, og treyst yfirvöldum fyrir réttlátri málsmeðferð kynferðisaf- brotamála. Það er ekki hægt eins og málum er háttað í dag. Við verðum að geta treyst yfirvöldum fyrir rétti okkar og sjálfsögðum mannréttindum, því ef við getum það ekki, þá verður vandlifað í þjóðfélagi okkar sem lýðræðisþjóð- félagi. Að fenginni vitneskju og reynslu, veit ég, að kynferðislegt ofbeldi hefur svo alvarlegar afleið- ingar fyrir þann einstakling er fyr- ir því verður, að barátta hans við að öðlast eðlilegt líf og frelsi frá þeim voðaverkum sem á honum eru framin, er ævilöng. Viðhorfs- breyting verður því að verða hjá yfirvöldum svo þau megi sýna það í verki að þau eru þess megnug, að réttlæti ríki í okkar ágæta landi, ekki bara klappa á kollinn á kyn- ferðisafbrotamönnum og senda þeim þau skilaboð að glæpir þeirra séu nú ekkert tiltökumál. Þótt lengi megi deila um hvort fangelsisvist sé mannbætandi, þá er þjóðfélagi okkar ekki sæmandi að senda ekki Halldór K. Lárusson „Viðhorfsbreyting verður að verða hjá yf- irvöldum...“ kynferðisafbrotamönnum skýr skilaboð um að þeir séu að fremja einn alvarlegasta glæp sem hægt er að fremja á annarri manneskju, eða finnst okkur allt í lagi að full- vaxinn karlmaður hafi mök við þriggja ára gamalt barn? Ég segi nei! Þetta líðum við íslendingar ekki og þessu breytum við! Það kom bersýnilega í ljós 8. mars síð- astliðinn, í göngunni gegn kynferð- islegu ofbeldi, hvert almennings- álitið er. Stjórnvöld geta ekki leng- ur haldið að sér höndum og setið aðgerðalaus. Eg vona að hæstvirtur forseti Hæstaréttar móðgist ekki við þessi skrif mín, né finnist sér óvirðing sýnd, heldur taki til hendinni við að koma réttarfarinu á íslandi í það horf sem okkur íslendingum er sómi að, ekki ósómi. Höfundur er áfengis- og vímuefnaráðgjafi á Tindum, meðferðarheimili fyrir unga vímuefnaneytendur. er ijölskyldudagur á Jarlinum, Sprengisandi Þá gerir fjölskyldan sér glaðan dag og börnin fá barnaboxin vinsælu með Ofurjarlinum og félögum hans, með hamborgara, frönskum og kók, á aðeins 195 krónur. Þeir eldri eiga margra kosta völ: Mest seldu steikur á íslandi eða ítalskur salatbar, hollur, ljúffengur og ódýr eða eitthvað annað gómsætt af matseðlinum - af nógu er að taka g i Sprengisandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.