Morgunblaðið - 21.04.1994, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 21.04.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994 17 Aftur til fortíðar eftir Jón Pétursson Það hefur verið mér hugleikið í langan tima hvernig hægt er fyrir okkur lögreglumenn, og þá sérstak- lega hér í Reykjavík, að losna úr þeirri úlfakreppu sem við höfum verið í til fjölda ára hvað varðar starfskjör, tækjabúnað og nú sein- ast Ijársvelti til löggæslunnar og það svo að vart er hægt að fram- kvæina starfið svo sómi sé að. „Það er búið að skipuleggja lög- gæsluna niður á núllið,“ sagði við mig aðalvarðstjóri nýverið. Þörf löggæslunnar hér á höfuðborgar- svæðinu hefur breyst og er auðvitað stöðugt að breytast í takt við breytt þjóðfélag í hugsun og gjörðum. Þær breytingar koma fyrst fram hér í Reykjavík. Þess vegna verða borg- arar þessa svæðis að ráða um fjár- streymi til löggæslunnar hér í Reykjavík og á hvaða þætti hennar þeir vilja leggja áherslu. Það er gjörsamlega útilokað og órökrétt að hafa yfir sér skömmtunarvald í málaflokki sem þessum. Við borgar- ar hér í Reykjavík hljótum að fá að ráða því, hvernig tryggja má öryggi okkar og okkar starfsmanna með því fjármagni sem við kjósum. Því er ég einlægur stuðningsmaður þeirra sem vilja að lögreglan að stærstum hluta flytjist aftur til borgarinnar og að hér verði höfuð- borgarlögregla sem heyrir beint undir borgarstjórn. Ég kannast ekki við annað og hef ekki heyrt annað en að lögreglu- menn hafi verið ánægðir sem starfs- menn borgarinnar hér á árum áð- ur, eða fyrir árið 1972. Þeir fengu hærri laun en hjá ríkinu. Launa- greiðandinn var Reykjavíkurborg og ríkið. Menn hófu störf sem ríkis- starfsmenn, en að nokkrum árum liðnum voru þeir færðir til borgar- innar og ég man að það var eftir- sóknarvert og í því var upphefð. Ég þekki engin dæmi um svik eða vanefndir af hálfu borgarinnar vegna samninga og almennt talið gott að semja við borgina. Borgin var okkur jákvæð og velviljuð sem hún og er í dag. Aðra sögu höfum við að segja af viðskiptum okkar við ríkið hvað Sýning í Perlunni Ferðalög og útivist VEITIN GAHÚ SIÐ Perlan stendur fyrir sýningunni Ferðalög og úti- vist dagana 21. til 24. apríl. I sýn- ingunni taka þátt 80 fyrirtæki og verða 38 básar með ýmsum kynn- ingum á ferðamöguleikum, gist- ingu, veitingum og afþreyingu í öllum landshlutum. Það sem fram fer meðan á sýning- unni stendur er t.d. getraunaleikur, sérstæðar rútur verða til sýnis, mat- vælakynningar frá hinum ýmsum landshlutum, gönguferðir verða fam- ar á vegum Ferðafélags íslands um Nauthólsvík og Fossvog, skógarferð verður farin um Oskjuhlíð, kennsla í notkun gasgrilla, jafnvægiskeppni á reiðhjólum, fræðsluerindi í máli og myndum, björgunarsig innandyra o.fl. Aðgangur að sýningunni er ókeyp- is. -----♦ » ♦ „Því er ég einlægur stuðningsmaður þeirra sem vilja að lögreglan að stærstum hluta flytj- ist aftur til borgarinnar og að hér verði höfuð- borgarlögregla, sem heyrir beint undir borg- arstjórn.“ varðar starfskjör og samninga. Deilur, vanefndir, tortryggni, upp- hlaup og stöðug fundarhöld vegna túlkana á samningum, árum saman og standa enn. Himinháir staflar af marklausum pappír. Linnulaus átök þessara aðila frá 1986 sem lögreglumenn rétt einu sinni töldu að væm loks frá við gerð leiðrétt- ingarsamnings á seinasta ári. En viti menn, samningurinn er ekki samningur nema að hluta. Deilur sein ráðherrar hafa per- sónulega reynt að setja niður, þar sem að þeim hefur ofboðið. Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp til laga um lögreglumenn og þau samin af hinum hæfustu lögfræð- ingum, en án nokkurs samráðs við þá sem starfið vinna og hafa starfs- reynsluna. Þeim var fyrst sýnt Jón Pétursson frumvarpið nær fullsamið. Athygl- isverð vinnubrögð, því ég vil ekki nefna orðið hroki í þessu sambandi. Af framanrituðu má sjá að lög- reglumenn hér í Reykjavík hljóta að sækja aftur til fyrri viðsemj- enda, því okkur er nauðsyn á að komast að samningaborði vegna breyttra aðstæðna og áhersla í lög- gæslumálum hér í Reykjavík, þar sem aðalþungi löggæslunnar er stöðugt að færast á helgarnar og meiri hættu þykist ég sjá að muni þróast í starfinu. Nauðsyn á að brjóta upp núverandi launakerfi og um leið að koma til móts við þá sem vinna frumlöggæslu, í launum og tækjabúnaði. Það tækifæri mun skapast við flutning frá ríkinu, sbr. viðtal við Ólaf G. Einarsson, menntamálaráðherra, í sjónvarpinu 6. þess mánaðar. Höfundur er fyrrverandi formaður Lögreglufélags Rcykjavíkur og starfandi lögregluþjónn í borginni. ■ KK-BAND hefur ekki látið fara mikið fyrir sér undanfarið þar sem þeir hafa verið uppteknir við tónsmíð- ar fyrir sjónvarpsleikrit. En nú ætla þeir að gera bragarbót á því og halda í tónleikaferð um landið. í kvöld, 21. apríl, verða þeir staddir í Nýja bíói, Siglufirði, föstudagskvöld á Hótel Mælifelli, Sauðárkróki, laugardags- kvöld í Kántrýbæ, Skagaströnd, sunnudagskvöld leika þeir í Yerts- húsinu, Hvammstanga, og á þriðju- dagskvöldið 26. apríl leikur' hljóm- sveitin í Hlégarði, Mosfellsbæ. Taktu þér tak í fjármálumí Námskeið um fjármál heimilisins Næstu námskeið: Reykjavík: • Mánud. 25. apríl og miðvikud. 27. apríl. - Fullbókað. • Mánud. 2. maí og miðvikud. 4. maí. Kennsla fer fram í Búnaðarbankanum Austurstræti (gengið inn Hafnarstrætismegin) frá kl.19:30 til 22:30. Skráning í síma 91-603203 (markaðsdeild). Selfoss / Hótel Selfossi: • Þriðjud. 26. apríl, kl. 18:30 - 22:30. Skráning í síma: 98-22800 (Selfoss), 98-75111 (Hella), 98-34500 (Hveragerði). Akureyri / Greifanum: • Fimmtud. 28. apríl, kl. 18.00 - 22:00. • Laugard. 30. apríl, kl. 13.00- 17.00. Skráning í síma 96-27600. III Helstu eínisþættir eru: • Heimilisrekstur • Heimilisbókhald • Hvernig má spara • Ávöxtunarleiðir • Aætlanagerð • Ákvörðunartaka • Tekju- og gjaldastýring • Lánamöguleikar • Skattamál • Tryggingabœtur — ellilífeyrir • Rekstur bíls • O.fl. Leiðbeinendur verða: Andri Teitsson, rekstrarverkfræðingur Gisli S. Arason, rekstrarhagfræðingur og Friðrik Halldórsson, viðskiptafræðingur. Námskeiðið kostar 1.900 kr. en félagar í Heimilislínunni greiða 1.400 kr. Innifalið í námskeiðs- gjaldi er vegleg bók um fjármál heimilanna. HEIMILISLÍNAN - Heildarlausn ájjárrnálum einstaklinga BUNAÐARBANKINN " Tramtur hanki
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.