Morgunblaðið - 21.04.1994, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 21.04.1994, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRIL 1994 Sveinn Kristjáns- son — Minning Fæddur 21. nóvember 1922 Dáinn 13. apríl 1994 Er vinir kveðja hér í heim í hinsta sinn, brýst harmanóttin heljarmyrk í hjartað inn. Oss finnst þá oft sem fokið sé í flestöll skjól og gengin undir geislum svipt vor gleðisól. (E.J.) Þessar Ijóðlínur komu allra fyrst fram í huga minn, þegar mér barst sú fregn að morgni hins 13. apríl sl., að traustur vinur og reglubróðir, Sveinn Kristjánsson, fyrrverandi stórtemplar, hefði lotið í lægra haldi fyrir dauðans bitra brandi þann sama morgun. Þó að andlát hans kæmi að vísu ekki alveg á óvart þegar undangengin veikindi hans eru höfð í huga, þá fannst okkur vinum hans, að dauðinn væri svo fjarri þessum hrausta, þrekmikla og góða dreng, sem alltaf virtist jafn ungur og æsku- teitur, þótt kominn væri hann á átt- ræðisaldur. Andlát hans var okkur reglufélögum hans reiðarslag. Hann var einn þeirra, sem við allra síst máttum missa. Það er því engan veginn óeðlilegt, þó að „heljarmyrk harmanótt" komi fram í hugann þeg- ar Sveinn Kristjánsson er kvaddur á braut. Sveinn var Akureyringur að upp- runa, fæddur þar hinn 21. nóvember árið 1922. Foreldrar hans voru hjón- in Kristján Magnússon og Eugenía Jónsdóttir. Hann var yngstur af fimm bömum þeirra hjóna. Af þeim er nú einn bróðir á lífl, Kristinn, búsettur á Akureyri. Sveinn ólst upp á Akureyri hjá foreldrum sínum. Að afloknu bama- skólanámi fór hann í Gagnfræðaskól- ann á Akureyri og lauk þaðan gagn- fræðaprófi. Eftir það fór hann til starfa sem sendill hjá Prentsmiðju Odds Bjömssonar. Þaðan hvarf hann svo eftir tiltölulega skamman tíma til Kaupfélags Eyfirðinga og gerðist verslunarmaður þar í nokkur ár, en var þá kvaddur til skrifstofustarfa hjá fyrirtækinu. Þar var starfsvett- vangur hans upp frá því uns hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Það segir merka sögu og meira en mörg orð um vinsældir Sveins og farsæld í starfí, að hann skyldi helga sama fyrirtækinu meginhluta starfsævi sinnar. Það mun líka mála sannast, að vel var að öllum þeim störfum staðið, sem Sveinn kom nærri. Eng- inn var svikinn af því sem hann tók að sér að framkvæma og leiða til lykta. Hann var bæði fljótur og fús til að leggja hönd á plóginn, og ég hygg að hiklaust megi fullyrða, að hann hafi aldrei brugðist í þeim hlut- verkum, sem hann vann að hveiju sinni. Síðustu árin, eftir að Sveinn hætti störfum hjá KEA, vann hann hjá syni sínum, sem er með versl- unarrekstur á Akureyri. Á sínum yngri árum tók Sveinn mikinn þátt í íþróttum. Hann æfði og keppti með KA og þótti meðal þeirra sem fræknasta mátti telja og liðtækasta á knattspymuvellinum á sinni tíð. Og þó að hann legði sjálfur skotskóna á hilluna, þá var áhuginn jafn brennandi og áður. Af lifandi áhuga ungs manns fylgdist hann með fram til hins síðasta þegar liðin öttu kappi á Akureyrarvelli. Sveinn var mikill félagsmálamað- ur og kom víða við á þeim vett- vangi. Ég nefni hér aðeins hina miklu, skeleggu og blessunarríku þáttöku hans í bindindismálum. Það starf, sem hann innti af hendi innan vébanda Góðtemplarareglunnar verður vart þakkað og metið svo sem verðugt væri. Hann gerðist félagi í stúkunni Ísafold-Fjallkonan nr. 1 á Akureyri í nóvembermánuði árið 1962. Þar starfaði hann af lifandi áhuga, eindæma fórnfýsi og framúr- skarandi dugnaði allt til leiðarloka. Hann var, eins og að líkum lætur, lengstaf í forystusveit stúku sinnar og gegndi þar flestum æðstu emb- ættunum. Og það gerði hann jafnan af þeirri hlýju og látlausu reisn, sem var honum svo inngróin og eðlislæg. Frá 1964 var hann gæslumaður bamastúkunnar Sakleysið nr. 3. Árið 1970 var Sveinn kjörinn til starfa í framkvæmdanefnd Stórstúku ís- lands og embætti stórtemplars gegndi hann kjörtímabilið 1978- 1980, en gaf ekki kost á sér til endur- kjörs. Eigi að síður starfaði hann áfram í framkvæmdanefndinni til 1992. Þá var hann kosinn umboðs- maður alþjóðaforseta og því embætti gegndi hann til dauðadags. Af þessu lauslega yfirliti um störf Sveins að bindindismálum má aug- ljóst vera, að hann hefír lagt mikið af mörkum í þeirri hugsjónabaráttu, sem góðtemplarar heyja fyrir bind- indi á áfengi, tóbaki og hvers konar vímuefnum og baráttu fyrir bættu mannlífi yfirleitt hér á okkar iandi. Sveinn var aldrei stormsins mað- ur. Látleysi og hlýja í viðmóti og allri framkomu einkenndu jafnan dagfar hans, það var alltaf bjart í kringum hann og öllum leið vel í návist hans. Hann var sérstaklega raungóður og ráðhollur vinum sínum, félagsbræðrum og samstarfsmönn- um. Þá var hann einnig einarður og fastur fyrir, þegar því var að skipta. Sérstaklega fannst mér, frá okkar fyrstu kynnum og í öllum okkar sam- skiptum, mikið til um hið hlýja og einlæga bróðurþel, sem Sveinn var gæddur í svo óvenju ríkum mæli. Og aldrei brást honum háttvísin eða drengskapurinn. Þessir dýrmætu eig- inleikar eru því miður alltof fátíðir, en þeirra er mikil þörf í öllum mann- legum samskiptum og ekki síst í bindindisstarfi. Þess vegna má hik- laust um Svein segja, að á þeim vett- vangi hafí hann verið hinn rétti maður á réttum stað. Og þess vegna hafa svo margir blessunarávextir sprottið upp af bindindisiðju hans. í meira en tvo áratugi hafa stúk- umar á Akureyri og stúka okkar Akumesinga, Akurblóm nr. 3 haft með sér gagnkvæmar vináttuheim- sóknir árlega. Af hálfu Akureyringa var Sveinn jafnan ein helsta drifijöðr- in í þeim heimsóknum. Hann eignað- ist marga trausta vini meðal templ- ara á Akranesi á þessum árum. Þeir sakna nú sárt vinar í stað og senda ástvinum Sveins einlægar samúðar- kveðjur. Hinn 10. janúar síðastliðinn var þess minnst á hátíðarfundi á Akur- eyri, að 110 ár vora liðin frá því fyrsta stúkan, ísafold nr. 1 var stofn- uð á íslandi. Þá lágu leiðir okkar Sveins síðast saman. Mér verður lengi minnisstæður hinn lifandi áhugi hans á starfínu og það hve björtum augum hann horfði til þeirrar fram- tíðar, sem Góðtemplarareglan og bindindisstarfið allt gætu átt í vænd- um, ef allir legðust á eitt. Mér finnst að þessi minning ætti að verða áskor- un til okkar góðtemplara, um að heiðra okkar burtkvadda bróður og vin með því að hefja nýja sókn til sigurs fyrir okkar sameiginlega mál- stað. Á þann veg væri minning okk- ar drenglynda og hjartahlýja hug- sjónamanns að verðleikum rækt og helguð. Sveinn var kvæntur Undínu Áma-. dóttur, sem einnig er Akureyringur, hinni ágætustu konu, og lifir hún mann sinn. Þau gengu í hjónaband 20. nóvember 1943. Þau áttu sam- leið í bindindisstarfínu, og yfirleitt var heimilislíf þeirra bæði fagurt og farsælt. Böm þeirra urðu sjö talsins og era sex á lífi. Næstelsta bamið, drengur, sem Ámi Kristján hét, drakknaði fjögurra ára gamall. Elst- ur systkinanna er Rafn, kvæntur Kristínu Jónsdóttur, þau búa á Akur- eyri. Næstur Áma Kristjáni er Sveinn Brynjar, einnig búsettur á Akureyri, kvæntur Sigurlaugu Hin- riksdóttur. Þá er ívar Matthías, sem býr á Neskaupstað, kvæntur Mar- gréti Sigmundsdóttur og yngst era tvíburasystkinin Ingibjörg Hrönn, gift Pétri Kjartanssyni og Kristján Amar, kvæntur Gullveigu Ósk Krist- insdóttur. Þau búa bæði í Reykjavík. Barnabörnin era 14 talsins og 2 lang- afabörn hafa litið dagsins ljós. Fyrir um það bil 10 áram gekkst Sveinn undir hjartaaðgerð og náði sér mjög vel eftir hana. Hann veikt- ist svo skyndilega skömmu eftir síð- ustu páska, var fluttur til Reykjavík- ur og gekkst þar undir mikla að- gerð. Hann komst aldrei til meðvit- undar eftir hana og andaðist að morgni hins 13. þessa mánaðar. Það er mikill sjónarsviptir og mik- ill missir að slíkum manni sem Sveinn Kristjánsson var. En mestur er þó missir ástvinanna og harmurinn sá- rastur í hjörtum þeirra. En mikil huggun býr í björtum minningum og því skulum við heldur ekki gleyma, að Guð huggar þá sem hryggðin slær. Það er dýrmætur sannleikur, sem fram kemur síðar í ljóðinu sem ég vitnaði til í upphafi orða minna, þegar skáldið segir: Sá Guð, sem horfir hæðum frá og harm vorn sér, hann þekkir öll hin miklu mein, sem mannkyn ber. Og allra vina einnig veit hann endurfund, að sköp oss aðeins skilið fá um skamma stund. Persónulega og í nafni Stórstúku íslands þakka ég burtkvöddum bróð- ur vináttu, tryggð og bróðurhug á samleiðinni allri. Störfin hans mörgu og miklu, góðu og gifturíku í þágu Góðtemplarareglunnar, bæði í heimabyggð hans og annars staðar, blessum við og þökkum af heilum huga. Ástvinum öllum vottum við einlæga samúð og biðjum þeim allrar Guðs blessunar í bráð og lengd. Björn Jónsson, Akranesi. Sveinn Kristjánsson fyrrverandi stórtemplar er dáinn. Hann var fæddur á Akureyri 21. nóvember 1922. Foreldrar Sveins vora hjónin Kristján Magnússon og Eugenía Jónsdóttir. Hann var yngstur fimm systkina. Sveinn ólst upp í foreldra- húsum, tók gagnfræðapróf og gerð- ist verslunarmaður: fyrst í einkageir- anum síðar sem skrifstofumaður hjá KEA. Eftirlifandi kona Sveins er Undína Ámadóttir. Þau eignuðust sjö börn. Þar af era sex á lífí. Sveinn gerðist félagi í Góðtemplarareglunni 1962 hjá stúkunni Ísafold-Fjallkonan. Tveimur áram síðar var hann orðinn gæslumaður bamastúkunnar Sak- leysisins og því starfi gegndi hann ásamt Sigurlaugu Jónsdóttur til ævi- loka. Sveinn var kosinn í fram- kvæmdanefnd Stórstúku íslands 1970 og stöðu æðsta manns reglunn- ar gegndi hann í tvö ár, 1978-1980. Árið 1992 var Sveinn kjörinn um- boðsmaður alþjóðaforseta. Við Sveinn áttum mikið og gott samstarf í áratugi. Hann var dugleg- ur að hveiju sem hann gekk, íþrótta- Helga Guðmunds- dóttir — Minning Hinn 16. apríl sl. lést á Hrafnistu í Reykjavík móðursystir mín Helga Guðmundsdóttir frá Patreksfirði. Við andlát hennar leitar hugurinn til lið- inna tíma og langar mig að minnast hennar með nokkram orðum. Helga var fædd á Patreksfírði 13. september 1908, elst ellefu barna þeirra Önnu Helgadóttur og Guð- mundar Ólafs Þórðarsonar á Hól. Hún ólst upp við gott atlæti í glöðum systkinahópi heima á Patreksfirði og átti þess einnig kost að fara suður og gekk þar í Kvennaskólann í Reykjavík. Amma mín dó af barnsförum árið 1929 og yngsta bamið Kristinn nokkurra daga gamall, en áður höfðu þau amma og afí misst dóttur sína Þuríði aðeins átta ára gamla. Þá kom það í hlut Helgu, að taka við búsfor- ráðum hjá afa fyrstu fjögur árin eft- ir lát ömmu minnar og ganga yngstu systkinunum í móðurstað . Finnst mér reyndar að hún hafi ávallt verið nokkurskonar foringi í systkinahópn- um og notið virðingar systkina sinna og þeirra fjölskyldna. Þrjú systkinanna lifa Helgu, en þau era Nanna, búsett í Hafnarfirði, Ingvar, sem býr á Akureyri, og Guð- mundur Bjami, en hann býr í Kópa- vogi. Látin era á sl. níu áram Helgi, Baldur, Freyja og Þormóður en bróð- ir þeirra Kjartan lést 1940 aðeins 21 árs gamall. Helga giftist 16. júli 1933 Adolf Hallgrímssyni loftskeytamanni sem einnig var frá Patreksfirði. Hann lést 21. ágúst 1992. Helga og Dolli voru einstaklega samrýnd og sam- hent hjón og varð fráfall hans Helgu afar sár missir. Hún hafði þá um nokkurra ára skeið verið léleg til heilsu og hafði hann með einstakri natni og umhyggju gert þeim kleift að halda heimili sitt með þeirri gest- risni og reisn sem einkenndi það svo lengi sem ég man. Skömmu eftir andlát Adolfs fékk hún herbergi á Hrafnistu í Reykjavík og var hún mjög þakklát fyrir þá umönnun sem hún fékk þar. Þeim Helgu og Dolla fæddust fimm börn. Elstur er Hilmar, bif- reiðasmiður, hans kona er Svava Hauksdóttir, næstur í röðinni var Halldór, hann dó tæpra þriggja ára, þá Gylfi, skrifstofumaður, hans kona er Vilborg Geirsdóttir, Hildigunnur, húsmóðir og verslunarmaður, búsett í Bandaríkjunum, gift Louis Dixon, og yngst var Anna Halldóra, sem dó aðeins sólarhringsgömul. Einnig ólst upp hjá þeim sonur Hildigunnar, Adolf Þráinsson, læknanemi, hans kona er Aðalheiður Pálmadóttir. Barnabörnin eru átta og barnabama- bömin era orðin sex. Eins og ég hef áður nefnt voru þau Helga og Dolli ákaflega samrýnd hjón og því tæplega hægt að minn- ast Helgu öðravísi er að Dolli komi stöðugt við sögu. Með engri fjöl- skyldu annarri en Thinni eigin hef ég átt eins nána samleið allt frá bernskuárum og þeirra Helgu og Dolla. Heimili þeirra systra Helgu og móður minnar Nönnu stóð við Urðargötu númer 6 og 7 á Patreks- firði frá árinu 1936 til 1963. Þær voru samrýndar systur og við systk- inin áttum þeirra böm að vinum og leikfélögum. Vorum við í uppvextin- um nánast eins og systkin. Auk þess vora þeir pabbi og Dolli sérlega góð- ir vinir og félagar. Þeir voru báðir togarasjómenn, reyndar ekki á sama skipi en hjá sömu útgerð, annar skip- stjóri hinn loftskeytamaður. Um tíma ráku þeir saman matvöruverslun, og meira að segja áttu þeir kú í félagi í nokkur ár, en það var til þess að við krakkamir fengjum nóga mjólk sem á þeim árum var af skornum skammti á Patreksfirði. Þær systur stjórnuðu í iandi eins og þeir sögðu, ráku heimilin, sáu um heyskapinn á Hólstúninu og tóku virkan þátt í hinu daglega lífi eins og það gerðist best á þessum árum í litlum sjávarþorp- um. Helga var lengi formaður Kven- félagsins og tók virkan þátt í starfí slysavarnafélagsins á Patreksfirði. Og í minningunni finnst mér eins og það hafi alltaf verið einhver skemmt- un eða uppákoma í undirbúningi. Það voru þorrablót, jólatrésskemmtanir, sjómannadagar, hjónaböll, 17. júní o.fl., o.fl., allt undirbúið og unnið í sjálfboðavinnu af félagsmönnum og heimafólki eins og það er sjálfsagt enn víðast hvar úti á landi. Árið 1962 fluttust þau Helga og Dolli til Reykjavíkur. Það hafði hallað undan fæti hjá útgerðinni og fjöldi þess fólks sem hafði haft atvinnu þar þurfti nú að flytjast brott og leita atvinnu annars staðar. Eftir það starfaði Dolli við verslunarstörf, lengst af hjá Verslun J. Þorláksson og Norðmann. En Helga vann í nokk- ur ár við Hlíðaskóla í kaffistofu kenn- aranna. Þau áttú mörg góð ár í Reykjavík, tóku bæði virkan þátt í starfi Barðstrendingafélagsins og Helga í Kvenfélagi Hvítabandsins. Þau bjuggu síðustu árin í Stóragerði 14, og hjá þeim var alltaf gest- kvæmt, enda trúi ég að fleiri en ég minnist þess hve þau nutu þess bæði að taka á móti gestum og veita vel, á stórafmælum, jólum og nánast hvenær sem tækifæri gafst til vina- funda. Samverastundir með móðursystk- inum mínum, Hólssystkinunum frá Patreksfirði, og þeirra fjölskyldum era ógleymanlegar. Hávær hláturinn, græskulaus stríðnin og ýmsar at- hugasemdir sem gengu á víxl og tekið var mátulega mikið mark á. Allt þetta sem maður kann betur og betur að meta í mannlegum sam- skiptum með hveiju ári sem líður. Sérstaklega eru mér minnisstæðir samfundir með systrunum Helgu, Freyju og móður minni Nönnu og óska ég þess nú að þær hefðu getað orðið fleiri. Þær voru í raun afskap- lega ólíkar systur, en samt svo líkar í mörgu. Sérhver þeirra hafði ein- hvem þann kost sem hinar vildu gjarnan hafa. Helga skrifaði svo fal- lega og datt svo tignarlega. Þetta vora kostir sem Freyja og Nanna töldu að helst skorti á hjá þeim í samanburði við Helgu. En auðvitað er þetta bara sýnishorn af því græskulausa gríni sem alltaf var í gangi á milli þeirra. Helgu fylgdi ákveðinn virðuleiki og tign og ein- mitt þess vegna komu hnyttin tilsvör hennar og athugasemdir þannig á óvart að maður veltist um af hlátri og gleymir þeim ekki. Að réttum mánuði liðnum munu Hólssystkinin þtjú sem enn eru með okkur, afkomendur þeirra, og hinna sem gengin eru, hittast í þriðja sinn á Hólshátíð, eins og við höfum kallað okkar niðjamót. Ég á enga ósk heit- ari okkur afkomendunum til handa en að okkur auðnist að viðhalda þeim anda sem ávallt hefur ríkt meðal Hólssystkinanna og að þeirra ein- kenni megi lengi lifa með okkur öll- um. í dag kveð ég frænku mína Helgu, eða töntu eins og við frændsystkinin mörg hver kölluðum hana til margra ára. Ég trúi að hún sé með þeim sem henni voru kærastir og farnir voru á undan henni yfir móðuna miklu. Hún var orðin þreytt og þráði hvíld, og við, sem þótti vænt um hana, óskuðum henni hvíldar. En börnin hennar og ástvinir allir minnast hennar og sakna, og við systkinin ásamt mömmu og fjölskyldum okkar sendum þeim innilegar samúðar- kveðjur og þökkum Helgu áratuga samfylgd. Guðrún Gísladóttir Bergmann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.