Morgunblaðið - 21.04.1994, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRIL 1994
Allt innbúið á Svínhaga var ótryggt
Morgunblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Söfnun vegna brunans
EINSTAKLINGAR í Rangárvalla-
hreppi hafa hrundið af stað fjár-
söfnun til hjálpar fjölskyldunni í
Svínhaga á Rangárvöllum sem
missti eigur sínar í bi-una þegar
íbúðarhúsið þar brann, en eins og
sjá má af myndinni er það rústir
einar. Engu tókst að bjarga í brun-
anum. Allt innbú var ótryggt, en
húsið sjálft var tryggt með lögboð-
inni tryggingu. Fjölskyldan, Rúnar
Gunnarsson, Sigrún Bára Eggerts-
dóttir og böm þeirra þijú á aldrin-
um 5 mánaða til 7 ára, stendur
því uppi allslaus. Þeir sem standa
að söfnuninni beina því til fólks
að veita fjölskyldunni hjálp og gefa
fé, fatnað og annað sem það getur
af hendi látið.
Opnaður hefur verið reikningur
í útibúi Búnaðarbankans á Hellu
nr. 0308-26-4465 á nafni Rúnars
Gunnarssonar kt. 170748.-2049.
Fjölskyldan fyrirhugar að koma sér
fyrir til bráðabirgða í gamla húsinu
á Kaldbaki. Eins fljótt og verða
má verður síðan byggt nýtt hús í
Svínhaga.
Bjarni Finnsson formaður Kaupmannasamtaka Islands
Niðurstaða Samkeppnis-
stofnunar kemur á óvart
HALLDÓR Guðbjarnason, bankastjóri Landsbanka, kveðst álíta að sam-
starfsramminn um kostnaðarskiptingu debetkortaviðskipta og annað
sem stofnunin nefnir, sé þess eðlis að falla undir 16. grein samkeppnis-
laga sem heimilar að veitt sé undanþága frá þeim að uppfylltum til-
teknum skilyrðum. „Báðir aðilar að samkomulaginu þurfa þá að sækja
um undanþágu frá lögunum, því ljóst er að sömu lög gilda fyrir báða
aðila samkomulags," segir Halldór.
Bjami F’innsson, formaður Kaup-
mannasamtakanna, segir að þótt
færa megi sterk rök fyrir því að
rammasamkomulagið sé ígildi samn-
ings, sé hvetju fyrirtæki fijálst að
semja við banka og greiðslukortafyr-
irtæki. Kaupmannasamtökin og sam-
starfsaðilar þeirra mæli einungis með
því að slíkt verði gert. Þetta falli því
ekki undir ákvæði samkeppnislaga.
„Samkeppnisstofnun hafði yfir fjóra
mánuði til að komast að niðurstöðu
frá því að við sendum okkar fyrir-
spurn um lögmæti samráðs bankana,
ásamt fyrirspurnum ASÍ og neyt-
endasamtakanna. Það er því mjög
gott að þeir hafí komist að niður-
stöðu á einum degi varðandi þetta
samkomulag, þó að mér þyki tíma-
setningin sæta nokkurri furðu."
Starfi hópa lokið
Halldór segir að þau tilmæli stofn-
unarinnar um að samstarfshópar inn-
an bankanna senvfjalli um verðlagn-
ingu verði lagðir niður, komi of seint
þar sem hóparnir hafí fyrir löngu
skilað sinni vinnu. Sameiginlegri
kynningu sé einnig löngu lokið.
Halldór segir að bankamir séu
ósammála Samkeppnisstofnun um
að endurskoða eigi ákvarðanir um
að tengja gjaldtöku fyrir tékkavið-
skipti við gjaldtöku debetkorta.
„Þetta er rekstarmál hvers banka
fyrir sig. Það er ekki í verkahring
stofnunarinnar að hafa afskipti af
þessu,“ segir Halldór.
Halldór bendir á vegna þessa
máls, að nýjar lagasetningar hérlend-'
is, m.a. að erlendum fyrirmyndum,
séu settar af svo miklu kappi að ein-
staklingar og fyrirtæki eigi fullt í
fangi með að aðlagast þeim. „Það
sem var í lagi í gær er ekki lengur
í lagi í dag. Fyrirtæki geta vart starf-
að lengur, ekki vegna þess að þau
hafi breyst að innra eða ytra útliti,
heldur vegna þess að búið er að búa
til lagahindranir. Viðskiptalíf okkar
breytast ekki með sama hraða og lög
eru sett. Um er að ræða gjörbreyttan
heim frá því sem áður var, og það
tekur einfaldlega tíma tekur að laga
þjóðfélagið að nýjum lögum,“ segir
Halldór.
\FO
/ DAG kl. 12.00 °
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hiti veflur Akureyri ->-3 snjókoma Reykjavlk 0 léttskýjafl
Bergen 6 skýjað
Helsinki 6 léttskýjað
Kaupmannahöfn 7 léttskýjað
Narssarssuaq 3 skýjað
Nuuk 2 alskýjað
Ósló 7 skýjað
Stokkhóimur 6 skýjað
Þórshöfn 4 skúr
Algarve 16 skýjað
Amsterdam 8 skýjað
Barcelona 16 mistur
Berlín 9 skýjað
Chicago 8 léttskýjað
Feneyjar 10 alskýjað
Frankfurt 11 léttskýjað
Glasgow 9 skúr
Hamborg 8 alskýjað
London 12 skýjað
- Los Angeles 16 þokumóða
Lúxemborg 10 léttskýjað
Madríd 7 súld
Malaga 14 skruggur
Mallorca vantar
Montreal 9 skýjað
NewYork 13 hálfskýjað
Orlando 20 skýjað
París 12 léttskýjað
Madeira 16 léttskýjað
Róm 16 skýjað
Vín 10 skýjað
Washington vantar
Winnipeg vantar
Athugasemd Sam-
keppnisstofnunar
HÉR birtist í heild athugasemd Samkeppnisstofnunar um samráð banka-
stofnana og samkomulag þeirra við kaupmenn og samstarfsaðila þeirra.
Viðskiptá’bankar og sparisjóðir
hafa gert samkomulag við kaupmenn
og fleiri, svokallaða greiðsluviðtak-
endur, um þóknun fyrir debetkorta-
þjónustu. Samkeppnisstofnun hafði
bent bankastofnunum á að samstarf
þeirra í samringagerð við greiðslu-
viðtakendur samræmdist ekki
ákvæðum samkeppnislaga. Stofnun-
in benti á að hætta væri á að sameig-
inlegar viðræður þeirra gætu leitt til
samræmingar banka og sparisjóða á
þeirri þóknun sem greiðsluviðtakend-
um yrði gert að greiða fyrir debet-
kortaþjónustuna. Þar með yrði dreg-
ið úr virkri samkeppni í viðskiptum
banka og sparisjóða.
Samstarfs viðskiptabanka og
sparisjóða annars vegar og greiðslu-
viðtakenda hins vegar vegna þess
samkomulags sem lýtur að skiptingu
kostnaðar við debetkortaviðskipti
verður að telja brot á bannákvæði
10. greinar samkeppnislaga. Bankar
og sparisjóðir hafa nú upplýst Sam-
keppnisstofnun um að þeir íhugi að
sækja um undanþágu frá banná-
kvæðinu þar sem þeir telja sam-
starfsramma þeirra við greiðsluvið-
takendur samræmast skilyrðum 16.
greinar samkeppnislaga um undan-
þágu. Þar sem Samkeppnisstofnun
hefur ekki fengið samkomulagið til
umfjöllunar hefur stofnunin ekki
haft tök á að leggja mat á efni þess
og þar með hvort samkomulagið
uppfyllir skilyrði laganna um undan-
þágu. Ekki liggja fyrir upplýsingar
um fyrirætlanir greiðsluviðtakenda,
en meðan undanþága hefur ekki ver-
ið veitt telst samkomulag banka,
sparisjóða og greiðsluviðtakenda um
skiptingu kostnaðar við debetkorta-
viðskipti ógilt samkvæmt 49. grein
samkeppnislaga.
Athugasemdir við
viðskiptalega samvinnu
Eins og kunnugt er hefur Sam-
keppnisstofnun að undanfömu unnið
að athugun á samstarfí bankastofn-
ana um debetkort. Samstarfið hefur
annars vegar falist í tæknilegri og
hins vegar viðskiptalegri samvinnu.
Bankar og sparisjóðir hafa fært
rök fyrir því að tæknilega samvinnan
hafi leitt til lægri kostnaðar við debe-
tekortakerfið en ella og gerir Sam-
keppnisstofnun ekki athugasemd við
hina tæknilegu samvinnu. Sam-
keppnisstofnun telur hins vegar
ástæðu til þess að gera athugasemd-
ir við nokkur atriði í viðskiptalegri
samvinnu bankastofnananna við
undirbúning og framkvæmd debet-
kortakerfísins. Þessum athugasemd-
um hefur verið komið á framfæri við
banka og sparisjóði.
Grundvallaratriði í samkeppnis-
reglum hér á landi sem annars stað-
ar er bann við samráði fyrirtækja,
sem starfa á sama sölustigi um verð,
afslætti og álagningu. Samráð eða
samvinna um leiðsögn við útreikning
á verði, afslætti og álagningu er einn-
ig bönnuð. Hér er ekki einungis átt
við samráð um endanlegt verð vöru
og þjónustu heldur á bannið við um
hvers konar samráð um verðlagningu
svo sem verðmyndun, verðlagningar-
stefnu og annað samstarf sem getur
með beinum hætti orðið grundvöllur
að verðlagningu hjá fyrirtækjum.
Samkeppnisstofnun telur nokkur
atriði í samstarfi bankastofnana og
sparisjóða um debetkort í ósamræmi
við ákvæði samkeppnislaga. Sam-
keppnisstofnun telur ekki að það
hafí verið ásetningur banka og spari-
sjóða að fara gegn samkeppnislögum
heldur sé um að ræða misskilning
þeirra á túlkun laganna, auk þess
sem samstarf þeirra um debetkort
hófst nokkru fyrir gildistöku sam-
keppnislaga.
Niðurstöður
Samkeppnisstofnunar
1. Meðan undanþága hefur ekki
verið veitt er samkomulag banka,
sparisjóða og greiðuviðtakenda um
skiptingu kostnaðar vegna debet-
kortaviðskipta ógilt.
2. Samkeppnisstofnun mælist til
þess að eftirtaldar breytingar verði
gerðar á samstarfi banka og spari-
sjóða um debetkort:
a. Bankar og sparisjóðir láti af hvers
konar samráði sem stríðir gegn
bannákvæðum samkeppnislaga.
- Samningur viðskiptabanka og
sparisjóða (Rás-samningurinn) um
framkvæmd debetkortakerfisins
verði lagaður að ákvæðum sam-
keppnislaga.
- Samstarfshópar sem viðskipta-
bankar og sparisjóðir hafa komið á
fót og fjalla um atriði er lúta að
verðlagningu verði lagðir niður.
- Sameiginlegri kynningu við-
skiptabanka og sparisjóða þar sem
fram koma upplýsingar um verð og
kostnað verði hætt.
b. Nokkur ákvæði í sameiginlegum
reglum og skilmálum banka, spari-
sjóða og greiðslukortafyrirtækja sem
lúta að formi gjalda sem korthafar
inna af hendi falli niður. Hver banka-
stofnun fyrir sig taki ákvörðun um
hvaða gjöld korthafar eiga að inna
af hendi.
c. Ákvarðanir banka og sparisjóða
um að tengja gjaldtöku fyrir tékka-
viðskipti við gjaldtöku vegna debet-
korta verði endurskoðaðar.