Morgunblaðið - 21.04.1994, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994
Frábær leðursófasett og hornsófar.
Verð við allra hæfl.
Litir: Svart, brúnt, rautt, grænt, blátt,
hvítt og bleikt.
Valhósgogn
Ármúla 8, símar 812275 og 685375.
„Reikningar
greiddir
>»gjörið svo vel“
Greíðsluþjónusta Vörðunnar er einföld
og örugg. Þjónustufulltrúinn sértil þess
að regluleg útgjöld séu greidd á eindaga.
Varðan vísar þér leiðina að
fyrirhyggju ífjármálum.
varða
víðtæk
fjármálaþjónusta
Ávarp skátahöfðingja
á sumardagmn fyrsta
eftir Gunnar
Eyjólfsson
í helgisögninni um heilagan
Georg segir frá hraustum riddara
sem réðst ótrauður á ógnvænlegan
dreka til að frelsa konungsdóttur
frá bráðum háska. Riddarinn hug-
umstóri réð niðurlögum drekans
með sverði sínu og hvarf síðan á
braut án þess að hirða um laun
verka sinna.
í fræðum skáta er þessi saga
lögð til grundvallar hugsjóninni um
að vera ætíð reiðubúinn til hjálpar
án þess að ætlast til umbunar.
Víða um heim er dags heilags
Georgs minnst 23. apríl og hann
er sérstakur hátíðisdagur skáta i
mörgum löndum. Nýliðar vinna t.d.
gjarnan skátaheit sitt þennan dag
að loknum vetri.
Á íslandi hefur helgisögnin um
heilagan Georg fléttast saman við
sumarkomuna. Hinn framsýni
uppalandi sr. Friðrik Friðriksson
stofnaði skátafélagið Væringja í
Reykjavík á sumardaginn fyrsta
árið 1913, 24. apríl, daginn eftir
dag heilags Georgs. Vafalaust hef-
ur sr. Friðrik þekkt til helgisagnar-
innar og hlutverks hennar í skáta-
uppeldinu. Dagurinn hefur því
hentað sérlega vel til að stofna til
skátastarfs með þeim krafti og
framsýni sem einkenndi allt starf
sr. Friðriks í þágu íslenskrar æsku.
í tilefni þessa dags var hinn þekkti
sálmur Dýrlegt kemur sumar með
sól og blóm eftir sr. Friðrik sung-
inn í fyrsta sinn. Æ síðan hefur
sumardagurinn fyrsti verið hátíðis-
dagur íslenskra skáta.
Sumarkoman á sérstakan sess
i hugum íslendinga. Dimmir
skuggar vetrarins eru að baki,
birta daganna eykst hröðum skref-
Gunnar Eyjólfsson
um, gróðurinn tekur að lifna og
bjartsýni manna vex og trú á lífið.
Þannig fellur sumarkoman vel
saman við bjartsýnina sem ein-
kennir gott skátastarf. Aldrei eru
verkefnin svo örðug að ekki megi
sjá á þeim bjartar hliðar. Söngur-
inn sem skátarnir eru svo þekktir
fyrir er tæki til að létta lundina,
auka bjartsýnina þegar syrtir að
og stilla saman strengi til nýrra
átaka.
Skátahreyfingin er fyrst og
fremst uppeldishreyfing. Að vera
skáti er fólgið í að temja sér ákveð-
inn lífsstíl og lífsviðhorf, viðleitni
til að móta betri heim, heim frið-
ar, bræðralags og hjálpsemi við
náungann. í friðar- og bræðralags-
hugsjón skátanna á að felast víð-
sýni og umburðarlyndi. Hjálp skal
veitt hveijum sem er, hvort sem
um er að ræða-fólk sem hefur tap-
að áttum eða þjóðir heims sem
berast á banaspjót af ótrúlegri
grimmd.
Um þessar mundir sameinast
fjölmörg skátabandalög í heimin-
um um að senda friðarpakka til
hijáðra barna í fióttamannabúðum.
Flokkar lítilla skáta fylla pakka
með nærfötum, greiðu, sápu, leik-
fangi, blýanti, stílabók, litum og
fleiru smálegu sem að gagni má
koma, og senda jafnöldrum sínum.
Islenskir skátar hafa tekið að sér
flóttamannabúðir í Tazikistan og
margir íslenskir skátaflokkar eru
að útbúa pakkana sína nú á síð-
ustu dögum vetrarstarfsins.
Þannig komast börn, sem sjá
daglega fyrir sér hörmungar á
sjónvarpsskjánum, í tengsl við lif-
andi fólk sem þau geta e.t.v. gert
örlítið gagn og gefið gleði. Þetta
tengir líka saman fjölskyldur skát-
anna, því að mamma og pabbi
þurfa e.t.v. að hjálpa til við að
útvega eitthvað af því sem með
þarf.
Árið 1994 er tileinkað fjölskyld-
unni. Fjölskyldan á í vök að vetj-
ast í hörðum heimi. Foreldrar og
börn hafa hver sín áhugamál og
viðfangsefni. Það skiptir máli að
láta sig varða mál hinna í íjölskyld-
unni og foreldrar sýni áhuga á því
sem börnin eru að sýsla. Þar sem
böm og unglingar eru studdir af
foreldrum í námi og frístunda-
starfi næst meiri og betri árangur
en ella. Það er verðugt verkefni
fyrir foreldra að styðja börnin í
fótspor heilags Georgs til að láta
gott af sér leiða um sumarmál á
ári fjölskyldunnar.
Gleðilegt sumar! Með skáta-
kveðju.
Höfundur er skátahöfðingi.
Slatrarar í nýrri iðnerein
Á SÍÐASTA ári var ákveðið að i
menn til náms í Iðnskólann og
slátrarar og eiga þeir aðilar þá
sem vinna í sláturhúsum.
Fréttaritari hitti Bergsvein
Reynisson og Stefán Jónsson, báða
frá Gróustöðum í Reykhólahreppi,
en þeir eru að fá sér réttindi sem
löggiltir slátrarar ásamt 13 öðrum
nemum víðsvegar af landsbyggð-
inni. I Króksfjarðarnesi er rekið
alhliða sláturhús og þar hafa þeir
fengið sína starfsþjálfun. Þeir eru
nýkomnir frá Danmörku og voru
þar í starfsþjálfun í Slátraraskó-
lanum í Hróaskeldu. Einnig voru
þeir í stóru svínasláturhúsi sem
jjóða sláturleyfishöfum að senda
Ijúka námi í nýrri iðngrein sem
að geta kennt öðrum slátrurum
heitir Stef Houlberg í Ringsted,
en það mun vera eitt stærsta svína-
sláturhús í Evrópu og þar er unnið
allan sólarhringinn.
Slátrað er um 1.200 svínum á
klst. en 600 svínum á klst. á nótt-
unni. Svínin eru svæfð með koltví-
sýringi og síðan eru þau stungin.
Mennirnir sem stinga svínin endast
tæpast nema í tvö til þijú ár, en
laun þeirra eru góð, eða um þijár
milljónir íslenskra króna á ári.
Svínin renna fram hjá dýralækn-
um og er gölluðu svínunum kippt
í burtu, en stundum verða á mistök
og þau halda áfram í vinnslukerf-
inu og geta þá verið seld sem fyrsta
flokks vara. Allt sem tekið er úr
kerfínu fer í niðursuðu og selst sem
skinka, en það merkir samkvæmt
orðabók svínslæri, eða sett í pyls-
ur. Svínið er fullunnið þarna og fer
aðallega á Bretlandsmarkað.
Þeir sem vinna í þessu stóra slát-
urhúsi eru aðallega múhameðstrú-
ar innflytjendur, en í þeirra augum
eru svín óhrein dýr. I svona stóru
húsi verður að gæta vel að því að
ekkert fari til spillis. Nýta verður
allt sem nýtanlegt er af svíninu.
- Sveinn.
I
O'
ACIDOPHILUS FYRIR MELTINGUNA
Er meltingin i ólagi?
Margt getur truflað eðlilega starfsemi meltingarfæranna, t.d.
langvarandi óheppilegt mataræði. Algengast er þó að neysla
fúkkalyfja setji meltinguna úr jafnvægi vegna þess að lyfin eyða þvi
miður ekki einungis sjúkdómsvaldandi sýklum, heldur rústa þau
jafnframt nauðsynlegum gerlagróðri meltingarfæranna.
Til að koma starfsemi þeirra aftur í eðlilegt horf
eru notaðir ACIDOPHILUS gerlar.
ACIDQPHILUS töflur, þægilegar í inntöku,
koma jafnvægi á meltinguna.
Guli iniðinn tryggir gæðin.
Fœst í hcilsubúðum, lyfjabiíðum
og heilsuhillum matvöruversíana.
éh
GÍIsuhúsiö
Kringlan sími 689266 Skólavörðustíg sími 22966
ACIDO