Morgunblaðið - 21.04.1994, Page 25

Morgunblaðið - 21.04.1994, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994 25 Morgunblaðið/Kristinn Félags- og þjónustumiðstöð aldraða kynnt ÁRNI Sigfússon borgarstjóri og Bryndís Guðmundsdóttir taka á móti gestum í nýrri Félags- og þjónustumiðstöð fyrir aldraða sem opnuð hefur verið við Lindargötu 59. Kristján Gíslason framkvæmdastjóri Radíómiðunar um athugasemd P&S Sannleikanum hagrætt í formi fréttatilkynningar FRAMKVÆMDASTJÓRI Radíómiðunar hf. segir athugasemd frá Pósti og síma sem birtist í Morgunblaðinu í fyrradag „koma sér spánskt fyrir sjónir". Er hún til komin vegna kvörtunar Kristjáns Gíslasonar framkvæmdastjóra Radíómiðunar til Samkeppnis- stofnunar yfir viðskiptaháttum P&S. Ennfremur segir Kristján að sannleikanum sé hagrætt í svörum P&S og því sé hann ekki hissa á því að stofnunin skuli hafa svarað í formi skriflegrar at- hugasemdar. Hann ítrekar að skipulag stofnunarinnar sé þannig að ekki sé mögulegt að gæta hlutleysis í samkeppni á frjálsum markaði um sölu notendabúnaðar. Nefnir Kristján sem dæmi að yfirmaður markaðsdeildar hafi umsjón með skrifum í Farsímafrétt- ir sem eigi að vera hlutlaust en starfsmenn hans hafi til dæmis skrifað tilboðsbréfið sem sent var notendum sem ennþá voru eftir í handvirka kerfinu. Auglýsingaherferð um samheitalyf Kostnaður nemur rúmum 4 millj. AUGLÝSINGAHERFERÐ heilbrigðisyfirvalda fyrir að læknar ávísi frekar á ódýr samheitalyf en sérlyf kostar 4.175.517 krónur. Þetta kom fram hjá heilbrigðisráðherra á Alþingi fyrir skömmu. Kristján segist hafa viðað að sér upplýsingum um viðskiptahætti P&S um nokkurt skeið áður en hann hafi tekið þá ákvörðun að kvarta til Samkeppnisstofnunar. Hafi stofnunin fengið í hendur ítar- lega greinargerð um málið og kjósi hann að bíða úrskurðar þaðan. Hann segist hafa átt samtöl við marga eftir að hann komst á snoð- ir um að reikningagerð hefði af- hent tiltekinni söludeild heimilis- föng og símanúmer um 300 aðila sem ennþá áttu farsíma í handvirka kerfinu. „Meðal annars átti ég við- töl við flesta ef ekki alla aðila inn- an P&S sem málið varðaði og viður- kenndu allir helstu yfirmenn stofn- unarinnar að mistök hefðu átt sér stað þegar reikningagerð afhenti umrædd tölvugögn,“ segir Kristján. Hann segir þau svör að aðrir söluaðilar hafi getað borið sig eftir umræddum lista hjá P&S hafa „komið sér spánskt fyrir sjónir“. „Það er ekki alveg rétt að öðrum söluaðilum hafi staðið til boða að fá afrit af nafnalistanum eins og segir í athugasemd P&S. Hið rétta er að þegar ákveðinn söluaðili komst á snoðir um útsend tilboðs- bréf fór hann fram á það við reikn- ingagerð P&S að fá listann en var synjað. Það var ekki fyrr en búið var að hafa samband við yfirmann markaðsdeildar og hann hafði kynnt sér málið að listinn fékkst. Færðar voru sönnur á að listinn væri frá reikningagerð, sem á að vera hlutlaus þjónustudeild, og þá fékkst hann fyrst afhentur. Hér er einfaldlega verið að hagræða sann- leikanum og því eðlilegt að yfir- menn P&S hafi ekki viljað tjá sig öðruvísi en í fréttatitkynningu," segir Kristján. Hann segir það einn- ig rangt að hver og einn hafí getað fengið listann með örlítilli fyrir- höfn, eins.og sagði í athugasemd Pósts og síma. „Þar vantar heimil- isföng umræddra farsímaeigenda. Þarna er augljóslega verið að reyna að draga úr mikilvægi listans en á honum voru bæði heimilisföng og símanúmer notendanna," segir Kristján. „Reynt að gera mig samsekan" Þá segir einnig að P&S hafí ekki talið ástæðu til þess að láta prófa gjaldtökubúnað sem fyrirtækið sel- ur og Kristjáni hafi verið kunnugt um af hveiju. „Þetta er rangt og sætir furðu að stofnunin sé að reyna að gera mig samsekan því að hafa brotið íjarskiptalög með því að óska ekki eftir tegundarsam- þykki hjá Fjarskiptaeftirlitinu,“ segir Kristján. I í 3. grein II. kafla í fjarskipta- lögum segir að „hver sá sem flytur inn eða smíðar búnað sem tengja á við almennt fjarskiptanet skuli fá yfirlýsingu frá Fjarskiptaeftirliti ríkisins um að hver og ein tegund eða gerð tegundar, búnaðar eða hluta hans uppfylli þær tæknikröf- ur sem gilda þar um. Liggi fyrir vottorð frá viðurkenndri prófunar- stofu um að búnaður sé í samræmi við staðla og reglur telst staðfest- ing frá Fjarskiptaeftirlitinu full- nægjandi“. Synjað um innflutningsleyfi Kristján segir aðalatriði í sínum málflutningi varðandi gjaldtöku- búnað fyrir farsíma að Radíómiðun hafí fengið synjun um innflutning á samskonar búnaði og P&S tók síðan að selja á þeirri forsendu að hann væri ekki samþykktur af fyrirtækinu. Þetta var árið 1989 þegar prófun og samþykkt not- endabúnaðar var ennþá í höndum fyrirtækisins. „Þegar söludeild P&S hefur sölu á samskonar búnaði nokkru seinna er öll tegundaprófun talin óþörf og ekki leitað álits Fjar- skiptaeftirlitsins. Ég er ekki á móti gjaldtökubúnaði þeirra heldur þess- ari mismunun,“ segir Kristján. Ekki hægt að gæta hlutleysis Loks segir hann varðandi at- hugasemd P&S um Farsímafréttir að blaðið sé gefið út sem liður í þjónustu við farsímanotendur og því skuli ætla að ekki eigi að mis- muna söluaðilum. „Ég var ekki að fara fram á neitt annað en að fá sömu umijöllun um samskonar búnað og söludeildin hafði fengið umijöllun um, annað er útúrsnún- ingur. Yfirmaður markaðsdeildar hefur umsjón með útgáfu Farsím- afrétta og starfsmenn hans skrifa efni í bréfíð en þeir sáu til dæmis um að skrifa tilboðsbréfið sem sent var á sínum tíma og nefnt hefur verið. Og er þetta enn eitt dæmið um óljósa aðgreiningu söludeildar og þjónustudeilda fyrirtækisins," segir Kristján að lokum. ♦ ♦ ♦----- Menningar- miðstöð í Kópavogi BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur samþykkt forsögn að hönnun Menningarmiðstöðvar Kópa- Vogs sem verður reist vestan við Kópavogsgjána, milli Hamra- borgar og Borgarholtsbrautar, suðaustan við Listasafn Kópa- vogs og Gerðarsafn. Þar verða sameinaðar ijórar stofnanir undir einu þaki, þ.e. bókasafn, náttúrufræðistofa, tón- listarskóli og myndlistarskóli. Auk þess er gert ráð fyrir ijölnota tón- leikasal og skiptistöð fyrir AV (Almenningsvagna bs). Húsið verður nálægt 4.000 fm að gólffl- atarmáli. Eftirtaldir hafa verið skipaðir í byggingarnefnd Menningarmið- stöðvar Kópavogs: Gunnar Birgis- son, formaður bæjarráðs, Sigurður Geirdal, bæjarstjóri, Sveinn ívars- son, arkitekt og Valþór Hlöðvers- son auk eins fuíltrúa sem Alþýðu-’ Guðmundur Árni Stefánsson heil- brigðisráðherra sagði þetta vera að sönnu háa upphæð en á móti hefði reglugerð heilbrigðisráðuneytisins, um að merkja lyfseðlja sérstaklega eftir því hvort vísað sé á sérlyf eða hvort afgreiða megi ódýrasta sam- heitalyf, sparað tugmilljóna útgjöld. Unnt væri að halda því fram að lyfja- kostnaður gæti lækkað um hundruð milljóna til viðbótar á lengri tíma. Ráðherra var að svara fyrirspurn frá Ingibjörgu Pálmadóttur þing- manni Framsóknarflokks um lyfja- auglýsingar í fjölmiðlum. Ingibjörg spurði meðal annars hveiju ætti að ná fram með þessum auglýsingum og sagði heilbrigðisráðherra að aug- lýsingaherferðinni væri ætlað að upplýsa almenning um þá möguleika sem fælust í reglugerð ráðuneytisins um r-merkt sérlyf og s-merkt sam- heitalyf. Megintilgangurinn væri að leitast við að lækka lyfjakostnað samfélagsins og hlut sjúklinga án þess að slakað væri á öryggi eða gæðum. Sóun á almannafé Fram kom í svari ráðherrans að auglýst hefði verið í blöðum og ljós- vakamiðlum. Ingibjörg Pálmadóttir sagði fróðlegt að ekki væri auglýst í þeim eina miðli sem rétt hefði ver- ið að auglýsa i: Læknablaðinu. „Heldur heilbrigðisráðherra að lækn- ar í þessu landi fari eftir auglýsingu í útvarpi?" spurði Ingibjörg. Hún sagði að læknar hugsuðu bæði um heilsu og fjárhag sinna sjúklinga og því væri heilbrigðisráðherra að eyða almannafé til einskis í þessa auglýs- ingaherferð. Guðmundur Árni Stefánsson sagði að þetta kynningarátak byggði á því að allir þeir sem kæmu að málinu, læknar, lyfjafræðingar og sjúklingar, hefðu allar helstu upplýsingar um þá möguleika sem umrædd reglugerð gæfí. Guðmundur Ámi sagði, að þótt læknar hefðu tekið vel við sér varðandi reglugerðina, þá væru að- eins 48% lyfseðla merktir með full- nægjandi hætti. „Við væntum þess að í kjölfar þessa kynningarátaks náum við enn betri árangri. Eg hygg að þeir fjármunir sem hefur verið varið til þessa kynningarátaks komi þvert á móti til með að skila sér margfalt í lækkun útgjalda, bæði Tryggingastofnunar og þeirra ein- staklinga sem þurfa að kaupa lyfin," sagði heilbrigðisráðherra. -----♦ ♦ ♦----- Eindregin ósk eftir að fá greinar- gerðirnar Spurt um við- skipti við Myndbæ í BÓKUN Sigrúnar Magnúsdóttur borgarfulltrúa Framsóknar- flokks, í borgarráði á þriðjudag, er eindregið óskað eftir að grein- argerðir Ingu Jónu Þórðardóttur til Markúsar Arnar Antonssonar fyrrverandi borgarstjóra verði lagðar fram á næsta fundi borgar- ráðs. Minnihlutinn lagði einnig fram fyrirspurn vegna viðskipta borgarinnar við Myndbæ. í bókun Sigrúnar er vitnað til þess að í minnisblaði Markúsar til bogarráðs, komi fram að: „Á reglu- legum fundum með borgarstjóra lagði Inga Jóna fram minnisblöð og greinargerð sem vinnuplögg fyrir borgarstjóra..." Borgarráð eigi kröf- ur á að fá þessar greinargerðir og óski hún eindregið eftir að fá þær afhentar á næsta fundi borgarráðs. Þá óskar minnihlutinn eftir sund- urliðuðum upplýsingum um viðskipti borgarinnar við Myndbæ. Spurt er hvaða heimildarmyndir fyrirtækið hafi framleitt fyrir Reykjavíkurborg síðustu tvö ár. Hvaða auglýsingar fyrir sjónvarp hafi fyrirtækið fram- leitt fyrir borgina á sama tíma og loks hvað hafi fyrirtækið fengið greitt fyrir. rferð nsar Einstakt tækifæri til að nj Beint flug til Parísar á fi: sunnudagskvöldi. Aðeins Bókaðu meðan enn er laust. nudagskvölds í þessari heillandi borg. komið til baka á 19.900 5.700 með morgunmat. atiar kr. 3.200. HEIMSFERÐIR VISA flm j, v Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 624600

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.